Morgunblaðið - 20.10.2001, Page 1
240. TBL. 89. ÁRG. LAUGARDAGUR 20. OKTÓBER 2001 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
STOFNAÐ 1913
MORGUNBLAÐIÐ 20. OKTÓBER 2001
ÞÚSUNDIR Palestínumanna
fylgdu í gær til grafar þremur liðs-
mönnum Fatah-hreyfingarinnar
sem fórust er sprenging varð í bíl
þeirra í Betlehem á fimmtudag.
Palestínumenn segja að Ísraelar
hafi myrt mennina. Ísraelar neita
því og álíta að mennirnir hafi verið
með sprengju í farartækinu og hún
sprungið fyrir slysni. Hörð átök
urðu í gær á Vesturbakkanum og
Gaza. Var sagt að sex Palest-
ínumenn hefðu fallið og tveir ísr-
aelskir hermenn særst.
Reuters
Liðsmenn Fatah kvaddir í Betlehem
Ísraelar neita/25
FLÓTTAMENN hópuðust í
gær þúsundum saman yfir
landamærin frá Afganistan til
Pakistans. Talsmaður Flótta-
mannahjálpar Sameinuðu þjóð-
anna sagði að um 10.000 manns
hefðu undanfarna daga komið
til Pakistans, „matarlausir og
allslausir“. Þúsundir manna
bíða handan landamæranna en
pakistönsk stjórnvöld loka öðru
hverju fyrir alla umferð.
Bretar hyggjast auka aðstoð
við Pakistan vegna flótta-
mannavandans en Clare Short,
ráðherra þróunarmála, heim-
sótti Pakistan á fimmtudag.
Gagnrýnir alþjóðleg
hjálparsamtök
Blaðið The Daily Telegraph
sagði Short hafa gagnrýnt mál-
flutning sumra alþjóðlegra
hjálparstofnana sem hún taldi
ýkja neyðina til að afla fjár og
vekja athygli fjölmiðla.
„Koma verður hjálpargögn-
um á vettvang og takast jafn-
framt á við Osama bin Laden
og áætlanir hans um að myrða
saklaust fólk,“ sagði Short og
taldi hlé á loftárásum lítið
myndu gagnast flóttafólkinu.
Frá 11. september hefði meira
verið flutt af vistum til flótta-
mannanna en nokkurn tíma áð-
ur og safnað væri birgðum fyrir
veturinn.
Flótta-
fólki
fjölgar
Chaman, London. AP, AFP.
RÍKISSTJÓRN norsku borgara-
flokkanna tók við völdum í gær en
hún hefur heitið að lækka skatta
verulega og bæta úr almennri þjón-
ustu við borgarana. Hægriflokkurinn,
Venstre og Kristilegi þjóðarflokkur-
inn standa að hinni nýju stjórn en þeir
hafa þó ekki nema 62 þingmenn af alls
165 á Stórþinginu. Þeir hafa hins veg-
ar tryggt sér stuðning 26 þingmanna
Framfaraflokksins.
Kjell Magne Bondevik, leiðtogi
Kristilega þjóðarflokksins, leysir
Jens Stoltenberg, leiðtoga Verka-
mannaflokksins, af hólmi sem for-
sætisráðherra en Jan Petersen, leið-
togi Hægriflokksins, verður utan-
ríkisráðherra. Per-Kristian Foss
verður fjármálaráðherra og Kristin
Krohn Devold varnarmálaráðherra.
Eru þau bæði úr Hægriflokknum.
Einar Steensnæs úr Kristilega þjóð-
arflokknum fær hið mikilvæga emb-
ætti olíu- og orkumálaráðherra.
Venstre, sem á aðeins tvo menn á
þingi, getur unað vel við sinn hlut.
Flokkurinn fær þrjú ráðherraemb-
ætti eða landbúnaðar-, samgöngu- og
dómsmál. Alls eru ráðherrarnir átján,
fimm úr Kristilega þjóðarflokknum,
tíu úr Hægriflokknum og þrír úr Ven-
stre og átta af ráðherrunum eru kon-
ur.
Bondevik sagði í gær, að fyrsta
verkefni stjórnarinnar yrði að ítreka
stuðning hennar við baráttuna gegn
hryðjuverkum en að öðru leyti yrði
gerð nánari grein fyrir stefnumálum
stjórnarinnar í næstu viku. Þau eru
annars helst að lækka skatta og bæta
velferðarþjónustuna með því að leita í
olíusjóðinn en Verkamannaflokkur-
inn var andvígur því.
Stjórn Bondevik tekin við í Noregi
Lofa lægri sköttum
og bættri þjónustu
Ósló. AP, AFP.
Reuters
Kjell Magne Bondevik (t.h.)
ásamt Per-Kristian Foss, nýjum
fjármálaráðherra, er ríkisstjórn
Bondevik var kynnt í Ósló í gær.
LEIÐTOGAR aðildarríkja Evrópu-
sambandsins (ESB) styðja eindregið
loftárásir Bandaríkjamanna og Breta
á stöðvar talibana og liðsmanna
Osama bin Ladens í Afganistan. Á
fundi leiðtoganna í Gent í Belgíu í
gær var samþykkt yfirlýsing þar sem
sagði að árásirnar væru gerðar í sam-
ræmi við ályktanir öryggisráðs Sam-
einuðu þjóðanna. Tony Blair, for-
sætisráðherra Bretlands, sagðist
telja að á fundinum hefði komið fram
að stuðningur við aðgerðirnar í Afg-
anistan væri áfram mjög traustur.
„Takmarkið í Afganistan er sem
fyrr að gera út af við hryðjuverka-
samtökin al-Qaeda sem stóðu að
árásunum 11. september en stjórn
talibana hefur ekki framselt leiðtoga
samtakanna,“ segir í yfirlýsingunni.
Guy Verhofstadt, forsætisráðherra
Belgíu, sagði er hann kynnti yfirlýs-
inguna að hefjast yrði strax handa við
að setja á laggirnar í Afganistan
„trausta, lögmæta ríkisstjórn undir
leiðsögn Sameinuðu þjóðanna, stjórn
sem er fulltrúi allra Afgana, virðir
mannréttindi og eflir góð samskipti
við allar grannþjóðir landsmanna“.
Haldið var áfram loftárásum á
Afganistan í gær, þar á meðal á höf-
uðborgina Kabúl. Bandarískar sjón-
varpsstöðvar fullyrtu í gærkvöldi að
meira en eitthundrað bandarískir
hermenn væru í suðurhluta Afganist-
an og ættu þar í hörðum bardögum
við hermenn talibana. Hefðu Banda-
ríkjamennirnir komið frá flugmóður-
skipum. Heimildarmenn sögðu í gær-
dag að litlir hópar bandarískra
hermanna hefðu verið sendir til Afg-
anistan fyrir rúmri viku. Fulltrúar
talibana sögðust myndu fagna því að
fá tækifæri til að berjast á landi.
„Afganar eru reiðubúnir fyrir heilagt
stríð og við munum berjast,“ sagði
sendiherra þeirra í Pakistan.
Talibanar verði utan stjórnar
Tony Blair sagði Norðurbandalag-
ið myndu fá stuðning „og við munum
gera það vegna þess að við vitum vel
að það besta sem getur komið fyrir
almenning í Afganistan og ekki ein-
göngu bandalagið [gegn hryðjuverk-
um] er að okkur takist að knýja fram
sigur eins hratt og unnt er“.
Colin Powell, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, sagði í vikunni eftir
fund með pakistönskum ráðamönn-
um, sem viðurkenna enn stjórn talib-
ana, að ekki ætti að útiloka að hóf-
samir aðilar meðal talibana fengju
aðild að nýrri stjórn allra þjóðflokka í
Afganistan. Þessu mótmæla helstu
talsmenn Norðurbandalagsins ákaft.
„Það eru ekki til neinir hófsamir tal-
ibanar. Þeir vilja halda áfram að berj-
ast. En um þá sem þvingaðir eru til
að sæta stjórn þeirra gegnir öðru
máli,“ sagði innanríkisráðherra rík-
isstjórnar Norðurbandalagsins, Yon-
us Qanooni, í gær. Stjórn hans ræður
um tíunda hluta Afganistan.
Utanríkisráðherra Írans, Kamal
Kharrazi, vísaði einnig hugmyndinni
um stjórnaraðild ákveðinna talibana-
leiðtoga á bug. Íranar styðja trú-
bræður sína úr flokki shía-múslíma
gegn talibönum í Afganistan.
ESB-ríki styðja
loftárásirnar
Bandarískt her-
lið sagt berjast
við heri talibana
Washington, Peshawar, Gent. AP, AFP.
Liðhlaupar/24