Morgunblaðið - 20.10.2001, Side 2
FRÉTTIR
2 LAUGARDAGUR 20. OKTÓBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Eigum eftir að smella saman,
segir Alfreð Gíslason / B4
Martröð markvarðanna
á Old Trafford / B3
4 SÍÐUR16 SÍÐUR
Sérblöð í dag
Á LAUGARDÖGUM L a u g a r d a g u r20.
o k t ó b e r ˜ 2 0 0 1
www.mbl.is
Morgun-
blaðinu í
dag fylgir
,,Ónáðið
ekki“ –
spjald frá
Stöð 2.
ÍSLENSKA lyfjafyrirtækið Delta hf.
framleiðir sýklalyfið ciprofloxacin
sem er samheitalyf CIPRO sem notað
er gegn miltisbrandi.
Lyfið er meðal annars selt á Þýska-
landsmarkaði þar sem velta þess hef-
ur margfaldast og fer að öllum lík-
indum um 600 milljónir fram úr
áætlunum fyrirtækisins á þriðja
fjórðungi ársins 2001.
Róbert Wessman, framkvæmda-
stjóri Delta, segir sóknina inn á
Þýskalandsmarkað hafa gengið fram-
ar björtustu vonum og fyrirtækið sé
nú með um 50% markaðshlutdeild
samheitalyfsins í Þýskalandi. Róbert
segir söluna hafa aukist ört og í ágúst-
lok hafi verið gert ráð fyrir að salan á
ciprofloxacin yrði að verðmæti 900
milljónir í ár. Hann vill þó ekki tengja
söluaukninguna miltisbrandsumræðu
liðinna vikna.
„Lyfið er fyrst og fremst notað við
einhverju öðru en miltisbrandi því
það er sjúkdómur sem menn hafa
ekki glímt við í háa herrans tíð. Ég
efast um að spurn eftir sýklalyfjum
sem vinna á miltisbrandi hafi aukist í
Evrópu enn sem komið er, hins vegar
er ekkert ólíklegt að miltisbrandur
hafi áhrif á söluna á komandi mán-
uðum ef sýkingarhættan færist yfir til
Evrópu,“ sagði Róbert.
Nú starfa um 450 manns hjá Delta
en í árslok 1998 voru starfsmenn um
hundrað.
Velta
gæti enn
aukist í
Þýska-
landi
Lyf frá Delta
gegn miltisbrandi
TRYGGINGASTOFNUN ríkisins
hefði getað sparað 140 milljónir
króna á liðnu ári ef stofnunin hefði í
öllum tilfellum greitt fyrir ódýrasta
lyfið af fjórum, í flokki tauga- og geð-
lyfja, sem eru sögð klínískt sambæri-
leg í flestum tilvikum. Um er að
ræða lyfin flúorxetín, cítalópram,
paroxetín og sertalín, en um 10% af
öllum lyfjakostnaði TR eru vegna
þessara lyfja.
Fram kemur í aðfaraorðum Karls
Steinars Guðnasonar, forstjóra
Tryggingastofnunar í Staðtölum al-
mannatrygginga árið 2000, sem birt-
ar voru í gær í tilefni af ársfundi
stofnunarinnar, að ef lyfin eru borin
saman með tilliti til heildarkostnað-
ar, verð fyrir hvern dagskammt og
notkun, hefði kostnaðurinn numið
292 milljónum í stað 430 milljóna.
„Það er að vísu óraunhæft að segja
að allir geti notað ódýrasta lyfið, en
flestir geta það, að mati sérfræðinga.
Það hlýtur að vera krafa stjórnvalda
að fá sem mest fyrir þá fjármuni sem
lagðir eru í meðferð. Þannig eru
meiri líkur á að hægt verði að taka í
notkun ný lyf sem raunverulega
bæta lýðheilsu,“ segir ennfremur í
aðfaraorðunum.
Lyfjakostnaður stóð í stað
Lyfjakostnaður TR í heild stóð
nærfellt í stað milli áranna 1999 og
2000 að því er fram kemur í staðtöl-
unum eftir að hafa aukist jafnt og
þétt árin þar á undan. Lyfjakostn-
aður er tæpur þriðjungur af útgjöld-
um sjúkratrygginga og nam rúmum
4,7 milljörðum króna í fyrra. Þar af
voru rúmir fjórir milljarðar kr.
vegna kaupa á lyfjum í lyfjabúðum
og tæpar 700 milljónir vegna kostn-
aðar á göngudeildum sjúkrahúsa.
Þegar skoðuð er skipting lyfja-
kostnaðarins í lyfjabúðum eftir lyfja-
flokkum kemur í ljós að mestur hluti
kostnaðarins er vegna kaupa á
tauga- og geðlyfjum eða 27,3%.
hjarta- og æðasjúkdómalyf eru næst
með 19,4% og meltingar- og efna-
skiptalyf með 16,2% heildarkostnað-
arins. Öndunarfæralyf eru síðan
12,8% en hlutfall annarra lyfjaflokka
er innan við 10%, hvers um sig.
Verulegur sparnaður ef ódýr-
ustu lyfin verða fyrir valinu
GALAXY-hreystikeppni fer fram í dag í Íþróttahúsinu
við Sunnubraut í Reykjanesbæ. Tólf karlar og jafn-
margar konur keppa þar til úrslita í greinum, s.s. arm-
beygjum, hraðaþraut og fleiru. Þetta er í þriðja sinn
sem mótið er haldið og fór forval í kvennaflokki fram í
Smáralindinni í gær.
Morgunblaðið/Palli
Forval í hreystikeppni
SKIPULAGSSTOFNUN hefur fall-
ist á tillögu Landsvirkjunar að mats-
áætlun um Norðlingaölduveitu sunn-
an Hofsjökuls.
Skipulagsstofnun fellst á tillög-
urnar með þeim athugasemdum m.a.
að í matsskýrslu verði gerð skýr
grein fyrir öllum fyrirhuguðum
vegaframkvæmdum á framkvæmda-
svæðinu og áhrifum þeirra á um-
hverfið. Einnig komi fram í mats-
skýrslu fyrirhuguð lega jarðstrengs
frá Sigöldustöð og mat á umhverfis-
áhrifum vegna lagningar hans. Þá
verði gerð grein fyrir hvort og þá
hvaða áhrif af framkvæmdinni í heild
eru óafturkræf.
Skipulagsstofnun vill að í mats-
skýrslu verði gerð grein fyrir
tengslum framkvæmdarinnar og
framkvæmdakosta við hugsanlegan
6. áfanga Kvíslaveitu, hvort og þá
hvaða áhrif framkvæmdin kann að
hafa á þá veitu. Þá verði í mats-
skýrslu gerð grein fyrir afstöðu
sveitarstjórnar Gnúpverjahrepps og
samstarfsaðila hennar til stækkunar
friðlandsins í Þjórsárverum og áhrif-
um framkvæmdarinnar á þau áform.
Skipulagsstofnun vill þá að í mats-
skýrslu verði gerð grein fyrir ýmsum
atriðum varðandi lífríki með tilliti til
friðlandsins í Þjórsárverum og að-
liggjandi svæða sem framkvæmdin
hefur áhrif á. Í matsskýrslunni verði
þá fjallað um framtíðarmöguleika í
uppbyggingu ferðaþjónustu á svæð-
inu með og án Norðlingaölduveitu.
Fallist á tillögu
að matsáætlun
Norðlingaölduveita sunnan Hofsjökuls
FYRRI hluti sveitakeppni Íslands í
skák, 1. og 2. deild, var settur í gær-
kvöld í Höllinni í Vestmannaeyjum.
Nokkur seinkun varð á setningu
mótsins vegna röskunar á flugi til
Eyja sökum þoku en byrjað var að
tefla kl. 22 og gert ráð fyrir að tefla
fram eftir nóttu.
Að sögn Sigurjóns Þorkelssonar,
formanns Taflfélags Vest-
mannaeyja, er mikill fengur að
mótinu fyrir skákáhugamenn í Eyj-
um, en mótið er talið sterkasta Ís-
landsmót í skák til þessa og hafa
skákmennirnir samtals 35 þúsund
ELO-stig.
Á mótinu tefla sterkustu skák-
menn Íslands, m.a. stórmeistararnir
Helgi Ólafsson, sem keppir nú á
heimavelli, Jóhann Hjartarson, Mar-
geir Pétursson, Jón L. Árnason,
Hannes Hlífar Stefánsson og Helgi
Áss Grétarsson. Einnig tefla flestir
af efnilegustu skákmönnum lands-
ins.
Þá státa sum liðin af erlendum
stórmeisturum. Ivan Sokolov, sem
er 31. á heimslistanum með 2.660
ELO-stig, leikur á fyrsta borði hjá
taflfélaginu Hróknum. Fleiri erlend-
ir stórmeistarar taka þátt í mótinu,
m.a. Jan Ehlvest með 2.625 ELO-
stig, Hendrik Danielsen og danski
stórmeistarinn Lars Szhandorf.
Teflt fram
á nótt vegna
þokunnar
Morgunblaðið/Sigurgeir
Frá undirbúningi skákmótsins sem hófst í gær.
Vestmannaeyjum. Morgunblaðið.
HÆSTIRÉTTUR hefur sýknað ís-
lenska ríkið af um 12 milljóna króna
skaðabótakröfu manns, sem var bar-
inn af öðrum fanga í gæsluvarð-
haldsvist í Síðumúlafangelsi í júní
1994.
Maðurinn var á svokölluðum
„lausagangi“, þar sem fangar eru
vistaðir án sérstaks eftirlits og geta
haft samneyti sín á milli. Annar fangi
réðst að honum og barði hann m.a. í
andlit með kaffikönnu.
Fanginn hélt því fram að gæsla
samfangans hefði verið óverjandi og
til þess fallin að valda sér tjóni. Yf-
irvöld hefðu mátt vita að maðurinn
væri stórhættulegur umhverfi sínu.
Hæstiréttur taldi ekki að geðheil-
brigðisrannsókn hefði borið með sér
að nauðsynlegt hefði verið að vista
árásarmanninn í einangrun vegna
hættu á ofbeldi af hans hálfu og
framkoma hans fyrir árásina hefði
ekki heldur gert það.
Ekki bætur
vegna árás-
ar í fangelsi