Morgunblaðið - 20.10.2001, Side 6
FRÉTTIR
6 LAUGARDAGUR 20. OKTÓBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
LANDSSAMTÖKIN Þroskahjálp
munu íhuga vandlega að höfða mál
gegn ríkinu geri Alþingi ekki breyt-
ingar á frumvarpi til fjárlaga sem nú
er til umræðu í þinginu. Samtökin
hafa kynnt álitsgerð sem Ragnar Að-
alsteinsson hæstaréttarlögmaður
hefur unnið en Ragnar kemst að
þeirri niðurstöðu að grundvöllur sé
fyrir málssókn, enda tryggi ríkisvald-
ið ekki fjármuni til þeirrar þjónustu
til handa fötluðum sem því er þó skylt
að sinna skv. lögum.
Umræður um álitsgerð Ragnars
settu mjög svip á aðalfund Þroska-
hjálpar sem haldinn var á Hótel Sögu
í gær. Sterk undiralda var á fundinum
og sagði Halldór Gunnarsson, for-
maður Landssamtakanna Þroska-
hjálpar, menn langþreytta á stöðunni.
„Ef engar aðrar leiðir eru færar þá
förum við í mál gegn ríkinu,“ sagði
Halldór. „Ríkið hefur ekki sinnt þess-
um málaflokki sem skyldi.“
Hann sagði forsvarsmenn Þroska-
hjálpar hafa farið að spyrja sig þeirr-
ar spurningar hvort Alþingi gæti sett-
lög, sem veittu tilteknum hópi rétt
sem teldist til mannréttinda, en síðan
valið að haga fjárveitingum sínum
þannig að þær væru í algeru ósam-
ræmi við lögin.
Sagði hann að samtökin hefðu á
endanum leitað álits Ragnars og var
niðurstaða lögmannsins kynnt við
setningu aðalfundar Þroskahjálpar á
fimmtudag. Páli Péturssyni fé-
lagsmálaráðherra var þó gerð grein
fyrir efni hennar 4. október sl.
Ekki farið eftir áætlunum
sem gerðar voru
Halldór sagði ekki lengur hægt að
sætta sig við þá biðlista sem ein-
kenndu alla þjónustu við fatlaða, eink-
um skammtímavistun, dagþjónustu
og búsetu. Aðspurður sagði hann bið-
lista hafa verið að safnast upp allt frá
árinu 1992.
Fyrstu árin hefðu samtökin eytt
mestri orku sinni í að fá ríkisvaldið til
að viðurkenna að biðlistar væru raun-
verulega til staðar. Það hefði því glatt
menn mjög þegar félagsmálaráð-
herra skipaði nefnd til að fara yfir
málin og búa í framhaldinu til áætlun
um hvernig taka skyldi á vandanum.
Síðan hefði hins vegar ekki verið farið
eftir þeim áætlunum, sem gerðar
voru.
„Við höfum sýnt mikla biðlund,“
sagði Halldór. „Við höfum alltaf verið
til viðræðu og samþykkt fyrirliggj-
andi áætlanir, þótt þær gerðu ekki
ráð fyrir jafnhraðri uppbyggingu og
við hefðum frekast kosið. Við höfum
látið okkur það lynda, á meðan það
voru til einhverjar áætlanir sem átti
að vinna eftir. En þegar menn ætla
ekki einu sinni að vinna eftir þeim
áætlunum, þá er okkur nóg boðið.“
Sagði hann fjárlagafrumvarp árs-
ins 2002 kornið sem fyllti mælinn.
Ljóst væri að biðlistar myndu enn
lengjast yrði frumvarpið samþykkt
óbreytt. Nefndi Halldór sem dæmi að
gert væri ráð fyrir að eyða 23 millj-
ónum á næsta ári til reksturs nýrra
búsetuúrræða handa fötluðum. Þetta
þýddi nýja lausn fyrir tólf einstak-
linga í alls þrjá mánuði.
„Ég bind hins vegar miklar vonir
við að Alþingi bregðist við svo að ekki
komi til þess að við þurfum fara að
standa í kostnaðarsömum málaferl-
um,“ sagði Halldór. „Ég veit að við
eigum hauka í horni í öllum stjórn-
málaflokkanna.“
Í ályktun landsfundarins er skorað
á Alþingi að fara eftir lögum þannig
að biðlistar eftir þjónustu við fatlaða
einstaklinga heyri sögunni til. Í álykt-
uninni segir að langir biðlistar eftir
búsetu, dagþjónustu og skammtíma-
vistun sýni að undanfarin ár hafi ekki
verið farið eftir lögum um málefni
fatlaðra. Í skýrslu kostnaðarnefndar
vegna tilflutnings þjónustu við fatlaða
til sveitarfélaga, sem gefin er út af fé-
lagsmálaráðuneyti í október 2000
kemur fram það álit að það þurfi 520
milljónir króna í aukið rekstrarfé til
að eyða biðlistum eftir þjónustu. Er í
skýrslunni lagt til að þeir fjármunir
verði greiddir sveitarfélögunum á
næstu 3 árum. „Gagnvart fólki með
fötlun og aðstandendum þeirra er
óverjandi og siðlaust að láta þessar
greiðslur til málaflokksins ekki þegar
koma til framkvæmda,“ segir í álykt-
uninni.
Landsþing Þroskahjálpar er haldið
annað hvert ár og sækja það kjörnir
fulltrúar aðildarfélaganna, en þau eru
25. Auk álitsgerðar Ragnars Aðal-
steinssonar voru ýmis önnur mál
rædd, m.a. málefni Greiningar- og
ráðgjafarstöðvar ríkisins, en fram
kom á Alþingi í vikunni að bið eftir
greiningu hjá stöðinni væri allt að tólf
mánuðir.
Sagði Halldór þetta grafalvarlegt
mál. Það yrði alltaf ljósara og ljósara
að því fyrr sem greining á fötlun ætti
sér stað, og rétt þjálfun hæfist, því
betra væri það fyrir viðkomandi ein-
stakling. Raunar gæti það skipt sköp-
um upp á framhaldið og ef menn vildu
aðeins horfa á peningahliðina þá væri
það sennilegast til sparnaðar í kerf-
inu.
Landsþingið ályktaði einnig um yf-
irfærsluna sem ekki varð á málefnum
fatlaðra frá ríki til sveitarfélaga.
Sagði Halldór að það hefði valdið
þeim miklum vonbrigðum þegar
frumvarp þar að lútandi var afturkall-
að á síðasta þingi. Þetta hefði lengi
verið eitt þeirra helsta baráttumál
enda ljóst að það einfaldaði mjög
þjónustu við fatlaða ef hún væri öll á
einni hendi, en sveitarfélögin sinna nú
þegar hluta hennar.
Landssamtökin Þroskahjálp vilja auknar fjárveitingar til þjónustumála fatlaðra
Íhuga málsókn gegn ríkinu
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Frá aðalfundi Landssamtakanna Þroskahjálp í gær.
,,SKAPA þarf sátt um fiskveiði-
stjórnunarkerfið, sem felur það í
sér að skila til baka til þjóðarinnar
yfirráðarétti yfir auðlindinni.
Þannig yrði snúið við þeirri óeðli-
legu eignatilfærslu með tilheyr-
andi búseturöskun, sem orðið hef-
ur á síðustu áratugum,“ segir í
stefnumótun Starfsgreinasam-
bandsins (SGS) í atvinnu- og
byggðamálum sem samþykkt var
samhljóða á ársfundi sambands-
ins í gær.
Þar segir einnig að ein megin-
forsenda fyrir áframhaldandi
byggð sé aukin áhersla á full-
vinnslu hráefnis og atvinnusköp-
un, ,,jafnvel þannig að afnotarétt-
ur að auðlindum sé að einhverju
leyti skilyrtur. Standa þarf vörð
um fjölbreytni í atvinnugreinum,“
segir í stefnumótun SGS.
Mikilvægt að nýta orku í
arðbærum iðnaði og stóriðju
Þar er einnig m.a. lögð áhersla
á að auðlindir landsins séu nýttar
á skynsamlegan máta. ,,Mikilvægt
er að nýta þá orku sem landsmenn
búa að til uppbyggingar á sam-
keppnishæfum og arðbærum iðn-
aði og stóriðju á landsbyggðinni,“
segir í stefnumótunarsamþykkt
ársfundar sambandsins.
Afnotaréttur af auð-
lindum sé skilyrtur
,,HALDI ríkisstjórnin og Seðla-
bankinn fast við stefnu sína og að-
gerðaleysi í lækkun vaxta og verð-
bólgu er einsýnt að verkalýðs-
hreyfingin er knúin til þess að segja
launalið samningana lausum og beita
samtakamætti sínum til þess að
sækja kjarabætur fyrir félagsmenn
sína,“ segir í kjaramálaályktun sem
samþykkt var samhljóða á ársfundi
Starfsgreinasambands Íslands í
gær.
Þríhliða samstarf sett í uppnám
Ályktunin var tekin til umræðu og
afgreiðslu eftir umfjöllun í málefna-
nefnd fundarins um hádegi í gær.
Gylfi Arnbjörnsson, framkvæmda-
stjóri ASÍ, mælti fyrir tillögunni en í
henni segir m.a.:
,,Ársfundur Starfsgreinasam-
bands Íslands mótmælir stefnu rík-
isstjórnarinnar í ríkisfjármálum og
boðuðum aðgerðum í skattamálum
og telur hana setja þríhliða samstarf
aðila vinnumarkaðar og stjórnvalda í
uppnám. Stefna sem gengur einhliða
út á að skerða lífskjör launafólks á
almennum vinnumarkaði er með öllu
óviðunandi. Hún getur ekki verið sá
grundvöllur sátta og stöðugleika
sem verkalýðshreyfingin vill eiga að-
ild að.“
Hvatt er til náins og víðtæks sam-
ráðs innan ASÍ við endurskoðun
kjarasamninganna í febrúar nk. og
lýst er miklum vonbrigðum með
efnahagsstefnu ríkisstjórnarinnar í
fjárlagafrumvarpinu. Síðan segir:
,,Áframhaldandi aðhaldsleysi í vexti
ríkissjóðs og algjört úrræðaleysi í
baráttunni við lækkun vaxta og verð-
bólgu leiðir til þess að okurvaxta-
stefna Seðlabankans mun áfram
þrengja að kaupmætti og atvinnu-
möguleikum almenns launafólks.
Fundurinn krefst því umtalsverðrar
lækkunar á vöxtum til þess að al-
menningur geti á eðlilegan hátt stað-
ið skil á greiðslubyrði íbúðalána.
Starfsgreinasambandið mótmælir
harðlega boðuðum aðgerðum ríkis-
stjórnarinnar í skattamálum. Með
þessum aðgerðum er verið að stór-
lækka skatta á hátekju- og stór-
eignafólki í stað þess að lækka skatta
á lágtekjufólki með hækkun al-
mennra skattleysismarka. Hækkun
tryggingargjaldsins eykur launa-
kostnað fyrirtækja, án þess að launa-
fólk fái kjarabætur. Með þessu er
ríkisstjórnin ekki aðeins að þrengja
mjög að möguleikum verkalýðs-
hreyfingarinnar til að ná til baka
þeirri kjaraskerðingu sem orðið hef-
ur undanfarna mánuði við endur-
skoðun kjarasamninga í febrúar,
heldur auka enn frekar á kjara-
skerðinguna. Verkalýðshreyfingin
mun ekki sætta sig við að stjórnvöld
færi skattbyrði af eignum og fjár-
magni yfir á laun og atvinnu.“
Skiptar skoðanir um tillögu
um stuðning við sjúkraliða
Halldór Björnsson, formaður
Starfsgreinasambandsins, mælti
fyrir tillögu um stuðning við kjara-
baráttu sjúkraliða á ársfundinum í
gær. Hlaut tillagan misjafnar und-
irtektir meðal þingfulltrúa. Þórður
Ólafsson lýsti miklum efasemdum
um tillöguna og hvort væri við hæfi
að lýsa yfir slíkum stuðningi þar sem
ljóst væri að opinber félög hefðu
fengið mun meiri kauphækkanir en
samið hefði verið um á almennum
vinnumarkaði. Samningar hins opin-
bera hefðu verið mikil mistök.
Sigurður T. Sigurðsson, formaður
Hlífar, tók í sama streng og sagðist
ætla að skila auðu þegar tillagan yrði
borin undir atkvæði. Sagði hann að
Hlíf hefði aldrei fengið stuðning frá
sjúkraliðum í kjarabaráttu sinni. Til-
lagan var síðan borin undir atkvæði
og samþykkt með miklum meirihluta
þeirra sem atkvæði greiddu en fjöldi
fundarmanna sat hjá við atkvæða-
greiðsluna.
Harðorð kjaramálaályktun ársþings Starfsgreinasambandsins
Knúin til að segja launalið samn-
inga upp að óbreyttri stefnu
INNLENT
ÍSLAND hefur, ásamt 16 öðrum
NATO-ríkjum, verið ákært fyrir
stríðsglæpi í Júgóslavíu og hefur
Mannréttindadómstóll Evrópu fall-
ist á að taka málið fyrir. Ákærendur
segja sprengiárás NATO á höfuð-
stöðvar sjónvarpsstöðvarinnar Rad-
io-Television Serbia (RTS) 23. apríl
1999, sem gerð var þegar loftárásir á
Júgóslavíu stóðu yfir vegna Kosovo-
deilunnar, vera brot á mannréttind-
um og stríðsglæp.
Þeir sem standa að ákærunni eru
allir Júgóslavar, þ.á m. einn sem lifði
árásina af en aðrir eru ættingjar
þeirra 16 starfsmanna RTS sem lét-
ust í árásinni. Ákærendur líta svo á
að ríkin 17 beri hvert fyrir sig
ábyrgð á árásinni, þó svo hún hafi
verið gerð í nafni NATO. Verði ríkin
dæmd til ábyrgðar getur í því falist
að greiða verði skaðabætur þeim
sem lifðu árásina af og ættingjum
hinna látnu.
Samkvæmt upplýsingum sem
fengust frá utanríkisráðuneytinu er
málið í skoðun, en verið er að bíða
eftir frekari gögnum frá útlöndum
vegna ákærunnar.
NATO-ríkjum
stefnt fyrir
Mannrétt-
indadómstól
ÖKUMAÐUR vélhjóls sinnti ekki
stöðvunarmerkjum lögreglu í fyrri-
nótt og stakk lögregluna af, en að-
eins í bili.
Lögreglan veitti honum athygli á
Snorrabraut en aksturslag hans
þótti undarlegt og hugðist lögreglan
stöðva manninn. Hann sinnti hins
vegar ekki stöðvunarmerkjum lög-
reglu og jók hraðann. Lögreglan
veitti honum eftirför vestur Hring-
braut, um Hofsvallagötu, Neshaga
og Birkimel en missti af honum þar
sem hann ók á öðru hundraðinu aust-
ur Hringbrautina.
Þetta reyndist þó skammgóður
vermir fyrir vélhjólamanninn því
lögreglan hafði séð skráningarnúm-
er mótorhjólsins. Lögreglan gat því
vitjað ökumannsins á heimili hans í
Kópavogi nokkru síðar. Hann var
fluttur á lögreglustöð þar sem hann
játaði að hafa ekið hjólinu, sam-
kvæmt upplýsingum frá lögreglunni
í Reykjavík. Hann verður sviptur
ökuleyfi og þarf að greiða háa sekt.
Stakk lögreglu af
en náðist síðar
ÖLLUM vegaslóðum á heiðum í um-
dæmi lögreglunnar í Borgarnesi hef-
ur verið lokað vegna aurbleytu. Þeir
verða væntanlega ekki opnaðir aftur
fyrr en jörð frýs.
Þórður Sigurðsson, yfirlögreglu-
þjónn í Borgarnesi segir að slóðarnir
séu einfaldlega svo blautir að þeir
þoli ekki umferð. Eins og greint hef-
ur verið frá í Morgunblaðinu eru
vegaslóðar á heiðum víða stór-
skemmdir á köflum en mikil umferð
rjúpnaskyttna hefur verið á Vestur-
landi síðustu viku. Þá hefur nokkuð
borið á gróðurskemmdum þegar
ökumenn reyna að krækja fyrir aur-
bleytu á vegaslóðum með því að aka
út fyrir þá.
Lögreglan í Borgarnesi mun fylgj-
ast með ástandinu úr lofti um
helgina en þannig vill til að tveir lög-
reglumenn við embættið hafa at-
vinnuflugsmannspróf.
Þórður hvetur rjúpnaskyttur til að
virða náttúruna. „Það er betra að
menn njóti útivistarinnar með því að
ganga til rjúpna en sleppi því að
keyra til rjúpna,“ segir hann.
Vegaslóðum á
heiðum lokað
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦