Morgunblaðið - 20.10.2001, Síða 12
FRÉTTIR
12 LAUGARDAGUR 20. OKTÓBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
„KÍNAFERÐIN árið 1955 var lærdómsrík,
mikil uppbygging stóð þá yfir og gerir ennþá
og Kínverjar eru gestrisnir með afbrigðum
og það fannst mér ekkert hafa breyst núna
en það sem hafði breyst var yfirbragð stór-
borganna, mér fannst ég allt eins geta verið
staddur í borg í Evrópulandi,“ sagði Stefán
Gunnlaugsson, fyrrverandi bæjarstjóri í
Hafnarfirði, í samtali við Morgunblaðið er
hann var beðinn að bera saman Kína fyrr og
nú en hann fór þangað nýverið í annað skipti.
Ferðafélagi hans í síðari ferðinni var Páll
Ásgeir Tryggvason, fyrrverandi sendiherra,
sem kvaðst ekki hafa komið til Kína fyrr, en
hann sagði það áhugavert land.
Stefán Gunnlaugsson kveðst hafa verið í
fimm manna hópi sem boðið var að heim-
sækja Kína árið 1955. „Þetta var á dögum
kalda stríðsins en þá kepptust bæði aust-
antjaldsríki og Bandaríkin við að bjóða til sín
sendinefndum til að kynna sér málefni landa
sinna,“ sagði Stefán og lét þess getið að þeg-
ar hann fékk boðið hefði hann heyrt að þeir,
sem ferðuðust til Kína eða ríkja austan tjalds,
fengju í framhaldi af því ekki að koma til
Bandaríkjanna og kvaðst hann hafa haft af
þessu eilitlar áhyggjur.
„Þær voru þó óþarfar því nokkrum vikum
eftir að ég kom heim úr Kínaferðinni var mér
boðið í hliðstæða ferð til Bandaríkjanna.“
Mikil uppbygging á sjötta áratugnum
Stefán sagði einungis eitt atriði hafa farið
svolítið fyrir brjóstið á sér en það var hvernig
viðhorf Kínverja var til Vesturlanda, þeir
hefðu ekki haft mikið álit á þeim en í ferðinni
hittu þeir meðal annarra utanríkisráðherra
landsins. Einnig sagði hann greinilega hafa
andað nokkuð köldu í garð Japana.
„Ferðin til Kína tók 30 tíma í flugi frá
Moskvu þar sem við urðum að gista á leiðinni.
Við fórum vítt og breitt um landið og urðum
ekki varir við skort eða atvinnuleysi á ferðum
okkar. Mikil uppbygging var greinilega hafin
í landinu og allt horfði í rétta átt hjá þeim í
efnahagslífinu,“ sagði Stefán og hann sagði
allan aðbúnað ferðalanganna hafa verið góð-
an og þeir hefðu líka kynnst matarvenjum
Kínverja sem honum hefði líkað ágætlega.
„Mér fannst því mjög áhugavert að komast
aftur til Kína vegna þessara fyrri kynna og
sjá hvað gerst hafði í landinu þennan tíma.
Eitt af því, sem ég tók til dæmis strax eftir,
var að annar hver maður var í svonefndum
Maóbúningi í fyrri ferðinni en í dag sést hann
ekki. Þá voru litlu vagnarnir, sem menn
hlupu með, líka algengir en í dag eru notuð
hjól til að draga þá áfram þar sem þeir eru
notaðir en annars fer bílum mjög fjölgandi í
landinu.“
Fljótlegt og þægilegt
ferðalag í dag
Eins og fyrr segir var Páll Ásgeir
Tryggvason, fyrrverandi sendiherra, með
Stefáni í ferðinni á dögunum. „Ég tók boðinu
fegins hendi,“ sagði Páll Ásgeir en hann var
um árabil sendiherra í þáverandi Sov-
étríkjum og fylgdu embættinu einnig nokkur
lönd í Asíu, meðal annars Mongólía. „Það fór
þó þannig að ég komst aldrei til Mongólíu og
ég hafði ekki heldur komið til Kína sem er
mjög áhugavert land og ferðin var fljótleg og
þægileg í beinu flugi frá Stokkhólmi á 10–11
tímum.
Að sögn Stefáns og Páls Ásgeirs var skipu-
lögð fyrir þá viðamikil dagskrá. „Við byrj-
uðum á að taka þátt í hátíðarkvöldverði
kvöldið fyrir þjóðhátíðardag Kínverja, hinn 1.
október,“ sagði Páll Ásgeir, „en þar voru
meðal annars allir helstu fyrirmenn landsins
á borði stutt frá okkur, til dæmis þeir Jiang
Zemin og Li Peng og þar hittum við líka
sendiherra Íslands, Ólaf Egilsson.“
Þeir félagar heimsóttu einnig Shanghai
þar sem þeir dvöldu í þrjá daga, einnig
Hangzhou en alls stóð ferðin í 7 daga.
„Hangzhou hjá þeim er eiginlega svipuð og
Þingvellir hjá okkur, þetta er gróðursæl sveit
og mikill ferðamannastaður og þangað er far-
ið með alla helstu gesti sem heimsækja landið
og þar í sveit átti Maó formaður til dæmis
sumarhús,“ sagði Stefán.
Greið umferð í stórborgum
Páll Ásgeir sagði það hafa verið eftirtekt-
arvert í stórborg eins og Shanghai hversu
umferð gekk vel.
„Þarna eru 13 milljónir íbúa og þar liggur
sérstök hraðbraut um borgina og tók nánast
enga stund að aka hana þvera og endilanga
eftir þeirri braut. Þeir virðast líka hafa verið
óhræddir við að rífa niður gamlar byggingar
til að rýma til fyrir nýjum og stærri og hvar
sem við fórum mátti sjá miklar framkvæmdir
þar sem verið var að
reisa ný hús, umferð-
armannvirki og skýja-
kljúfa.“
Stefán og Páll Ásgeir
sögðu líka greinilegt að
mikil uppbygging væri
framundan vegna Ól-
ympíuleikanna í landinu
árið 2008. Kínverjar
ætluðu sér að gera vel í
þeim efnum og standa
undir öllum væntingum.
Vaxandi
gjaldeyristekjur
Í áðurnefndri mót-
töku vegna þjóðhátíð-
ardags Kínverja sögðu
þeir að forsætisráð-
herra landsins, hefði sagt
í ræðu sinni að allt
stefndi í rétta átt varð-
andi efnahag landsins og hagvöxt. Ríkisfjár-
málin væru í góðu lagi og gjaldeyristekjur
færu vaxandi.
„Það er greinilegt að Kínverjar vilja vax-
andi samskipti við umheiminn og koma vel út
í augum annarra þjóða. Þeir kunna að meta
þann vilja annarra þjóða, sem þeir eiga sam-
skipti við, að auka við þá viðskipti og önnur
samskipti. Í haust verður þess minnst að 50
ár eru frá því Ísland og Kína tóku upp stjórn-
málasamband og þeir vilja greinilega leggja
rækt við samskipti við smáþjóð eins og Ís-
lendinga,“ sagði Stefán.
Í því sambandi minnist Stefán þess að þeg-
ar Li Peng kom hér í opinbera heimsókn í
fyrra hafi það komið í hlut Guðmundar Árna
Stefánssonar, sem staðgengils forseta Al-
þingis, að standa fyrir móttöku fyrir Li Peng
sem haldin var í Perlunni. Þar bauð Li Peng
Guðmundi Árna í heimsókn til Kína og segir
Stefán að í kínverskum fjölmiðlum hafi verið
sagt frá því og fleiru úr heimsókninni og jafn-
framt verið spurt hvenær Guðmundur Árni
kæmi til Kína. Þá hafi einnig verið sagt frá
því að Halldór Blöndal hafi komið í slíka
heimsókn, ásamt eiginkonu sinni, þegar hann
gegndi embætti samgönguráðherra.
Stefán Gunnlaugsson og Páll Ásgeir Tryggvason nýkomnir úr Kínaferð
Maó-búningar
sjást ekki lengur
Morgunblaðið/Kristinn
Kínafararnir, Stefán Gunnlaugsson (t.h.) og Páll Ásgeir
Tryggvason, létu vel af viðkynningu sinni við Kínverja.
„VIÐ erum orðin þreytt á neikvæðri umræðu um
bílinn þar sem honum hefur verið kennt um meng-
un, viðskiptahallann og að of stór hluti ráðstöf-
unartekna fjölskyldunnar fari í bílinn. Hann á ekki
skilið þetta neikvæða álit því það er svo margt sem
við eigum bílnum að þakka í daglegu lífi og fæst
komumst við af án hans,“ segir Erna Gísladóttir,
formaður Bílgreinasambandsins, um herferð gegn
neikvæðri umræðu um bílinn sem nú stendur yfir.
Að herferðinni standa regnhlífarsamtök Bíl-
greinasambandsins, bílaumboða, tryggingafélaga
og lánafyrirtækja og vilja þau vekja athygli á mik-
ilvægi bílsins í samfélaginu og hafa áhrif á for-
dóma og misskilning varðandi notkun og eignar-
hald hans.
„Sem dæmi um neikvæða ímynd sem bíllinn er
settur í má nefna að með fréttum af viðskiptahalla,
ofþenslu eða miklum vaxtakostnaði heimilanna
birtast iðulega myndir af bílaflota á hafnarbakk-
anum. Þetta hefur áhrif og kemur inn þeirri hug-
mynd að kenna megi bílnum um nánast allt sem
illa fer hjá okkur sem er vitanlega tómur misskiln-
ingur.“ Hún segir ekki hægt að kenna bílnum um
stóran þátt í viðskiptahallanum því síðustu sjö ár
hafi hlutur bílar verið 5,8% af heildarinnflutningi
landsmanna.
Samdráttur nálægt 50%
Erna segir að samdráttur í innflutningi fólksbíla
verði nálægt 50% á árinu og er talið að nú verði
fluttir inn um 7.400 fólksbílar. „Þetta er miklu
meiri samdráttur en bílaumboðin bjuggust við.
Flestir áttu von á 20 til 30% samdrætti í mesta
lagi og þessi mikli samdráttur þýðir að meðalald-
ur bílaflotans hækkar. Við þurfum að flytja inn
um 15 þúsund bíla til að anna eðlilegri endurnýjun
og meðalaldur bílaflotans er í dag um 8,8 ár og
stefnir í að verða 10 ár. Það er hærra en í öðrum
Evrópulöndum þar sem hann er 7,6 ár sem er
sambærilegt við það sem hann var hér árin 1988
til 1991. Samdrátturinn er líka mun meiri hér en í
öðrum Evrópulöndum þar sem hann er að með-
altali 3-4% í ár þótt hann sé hærri í einstaka landi
eins og t.d. Svíþjóð þar sem hann er 17-18%.“
Þá segir Erna einnig oft mikla sveiflu í sölu bíla
á bílaleigurnar en síðustu árin hafi hún verið vax-
andi og leigurnar keypt nærri þúsund bíla árlega.
Nú sé nokkur óvissa framundan í ferðamálum eft-
ir hryðjuverkin í Bandaríkjunum og spurning
hvort það þýði samdrátt hjá íslenskri ferðaþjón-
ustu eða hvort litið verði á Ísland sem öruggt land
og það muni hafa áhrif á stöðu bílaleiganna.
Formaður Bílgreinasambandsins bendir líka á
að hagstæðast sé að endurnýja bílinn reglulega,
sé því skotið of lengi á frest verði það dýrara.
„Menn mega því ekki skammast sín fyrir að end-
urnýja fjölskyldubílinn því það er bara jákvætt og
menn eiga að vera stoltir af því.“
Þá segir Erna miklar sveiflur jafnan óþægileg-
ar fyrir bílaumboðin, best væri ef salan gæti verið
nokkuð stöðug. „Við höfum búið við þessar sveifl-
ur lengi og fyrirtækin laga sig auðvitað að þeim að
vissu marki og fækka fólki þegar samdráttur
verður,“ segir hún og nefnir að sum umboðin hafi
sagt upp starfsfólki en aðrir reyni að fækka með
því að ráða ekki í stað þeirra sem hætta. Einnig
grípa umboðin til hagræðingar, draga úr breidd í
bílaframboðinu og reyna á ýmsan hátt að ná niður
kostnaði. Þá segir hún gengisþróun hafa verið
óhagstæða undanfarin misseri, gengið hafi hækk-
að kringum 20% en bílverðið um 11-12%.
Bílgreinin skiptir máli í samfélaginu
Erna segir að fyrirtæki í bílgreininni skili um
30 milljörðum í ríkissjóð að meðtöldum gjöldum
bíleigenda af eldsneyti og skipti bílgreinin því
miklu máli í samfélaginu.
Sér formaðurinn fyrir sér bullandi bílasölu ef
mögulegt verður að snúa almenningsálitinu við
með herferð sem þessari?
„Við sjáum ekki endilega fram á bullandi bíla-
sölu en við viljum helst hafa hana nokkuð jafna frá
ári til árs og reyna að jafna sveiflurnar sem mest,
því það er heldur ekkert betra þegar salan rýkur
upp úr öllu valdi. En við viljum reyna að snúa um-
ræðunni við, viljum ekki viðhafa neinn barlóm
heldur er ætlunin að benda á jákvæða ímynd bíls-
ins og síðan ætla umboðin að efna til sameiginlegs
sölu- og kynningarátaks um næstu helgi. Hvert
umboð sýnir á sínum stað, menn setja fram ýmis
tilboð og bjóða uppákomur en þetta verður kynnt
sameiginlega næstu daga og þannig verður reynt
að fá eina góða sölutörn fyrir árslok.
Við viljum að menn horfi jákvætt á bílinn því við
erum á því að kostir bílsins vegi margfalt upp
ókosti hans.“
Formaður Bílgreinasambandsins vill snúa við neikvæðri ímynd bílsins
Eigum bíln-
um margt
að þakka í
daglegu lífi Morgunblaðið/Þorkell
Erna Gísladóttir, framkvæmdastjóri B&L og formaður Bílgreinasambandsins.
DAGINN sem Smáralind var opnuð
var aðsókn í Kringluna 9% minni en
sama dag fyrir ári. Í vikunni sem
Smáralind var opnuð var aðsókn að
meðaltali 12% minni en í sömu viku í
fyrra. Það sem af er þessari viku er
aðsókn í Kringluna 8% minni en sömu
viku í fyrra, segir í fréttatilkynningu.
Þar segir ennfremur: „Fyrirfram
höfðu forráðamenn og kaupmenn
Kringlunnar búið sig undir að aðsókn
mundi minnka mun meira fyrstu dag-
ana vegna opnunarhátíðar Smára-
lindar. Nú er ljóst að áhrif keppinaut-
arins í Kópavogi urðu alls ekki þau
sem búist var við hvað þetta varðar.
Aðsókn í Kringluna hefur verið
mæld með sama hætti í mörg ár.
Sjálfvirkir teljarar skrá umferð inn á
bílastæðin og er fjöldi gesta í húsinu
reiknaður út frá meðalfjölda í bíl.
Þessi skráningaraðferð hefur reynst
mjög vel og gefið góða og samfellda
mynd af gestafjölda Kringlunnar.“
Aðsókn að
Kringlunni
8% minni í
þessari viku
RAUÐI kross Íslands og Hjálpar-
starf kirkjunnar bjóða öllum sem
vilja leggja íbúum Afganistans lið að
fjölmenna við Hallgrímskirkju á
Skólavörðuholti í Reykjavík kl. 12.15
á morgun, sunnudag.
KK og Ellen Kristjánsdóttir
syngja, lesið verður ljóð eftir afg-
anskan dreng og framkvæmdastjór-
ar Hjálparstarfs kirkjunnar og
Rauða krossins tala.
Með því að hringja í 907 2003 legg-
ur fólk 1.000 krónur af mörkum.
Minnast fólks
sem þjáist í
Afganistan
♦ ♦ ♦