Morgunblaðið - 20.10.2001, Qupperneq 20
LANDIÐ
20 LAUGARDAGUR 20. OKTÓBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Ármúla 21 - 108 Reykjavík - Sími 533 2020
Tilboð á
hreinlætistækjum o.fl.
20%-50% afsláttur
LUNDAVEIÐIMENN rekast á hverju ári á nokkra
sérkennilega lunda. Lundinn hefur sterk einkenni
og því stinga þeir í stúf sem hafa annan lit en hinn
hefðbundni „prófastur“. Á lundavertíðinni í Vest-
mannaeyjum í ár veiddust m.a. þessir tveir fuglar.
Björn Sigursteinsson situr með lundaprins sem
pabbi hans, Sigursteinn Leifsson, veiddi í Siggaflesi
í Álseyjum. Hin mynd er af furðufugli sem er með
fjaðrabolta á hálsinum. Það er engu líkara en þessi
„prófastur“ sé með hökutopp.
Það var Ingi Sigurjónsson, fugla- og dýra-
uppstoppari, sem setti fuglana upp.
Þess má geta að um síðustu helgi var haldið
lundaball í Vestmannaeyjum og þar með má segja
að lundavertíðinni hafi formlega lokið. Fjölmennt var á
ballinu og mættu m.a. margir af fastalandinu til að fagna
eftir velheppnaða vertíð.
Morgunblaðið/Sigurgeir
Furðufuglar í Eyjum
OPINN kynningarfundur um til-
lögu að aðalskipulagi fyrir sveitar-
félagið Austur-Hérað var haldinn í
vikunni. Um er að ræða fyrstu til-
lögu að skipulagi fyrir árin 2002 til
2017.
Grunnvinnu við skipulagstillög-
una er lokið og kynningarferillinn
að hefjast. Hún verður þó áfram til
umfjöllunar hjá nefndum og ráðum
sveitarfélagsins.
Tillagan verður til afgreiðslu í
umhverfisráði A-Héraðs á næstu
dögum og fljótlega til fyrri umræðu
í bæjarstjórn. Þar verður væntan-
lega tekin ákvörðun um að senda
hana áfram til Skipulagsstofnunar,
sem hefur fjórar vikur til að skila
athugasemdum. Eftir það verður
tillagan auglýst og hafa íbúar sex
vikur til að senda inn skriflegar at-
hugasemdir. Vonast er til að unnt
verði að samþykkja aðalskipulag
sveitarfélagsins á fyrstu mánuðum
ársins 2002.
Eyþór Elíasson, formaður um-
hverfisráðs og forseti bæjarstjórn-
ar, kynnti aðdraganda og ferli að-
alskipulagsvinnunnar á fundinum. Í
máli hans kom fram að markmið
skipulagsins er m.a. að styrkja
ímynd svæðisins og gera það að
fýsilegum kosti til búsetu. Gera á
aðkomuleiðir að þéttbýlinu Egils-
stöðum aðlaðandi. Hesthúsabyggð í
þéttbýlinu, sem hefur verið ýmsum
þyrnir í augum, verður fundinn nýr
staður og bregðast á við vaxandi
lóða- og þjónustueftirspurn, vegna
hugsanlegrar uppbyggingar á raf-
orkuframleiðslu og stóriðju á að-
liggjandi svæðum.
2.500 manna íbúðarbyggð
til suðurs
Þrjú þéttbýli eru skilgreind á
Austur-Héraði og eru það Egils-
staðir, Hallormsstaður og Eiðar. Í
tillögunni fyrir Egilsstaði er gert
ráð fyrir að byggðin þróist í aðal-
atriðum til suðurs, þar sem gert er
ráð fyrir allt að 2.500 manna íbúð-
arbyggð, auk atvinnustarfsemi,
þjónustukjarna og skóla. Er svæðið
talið gott byggingarland með við-
ráðanlegu jarðvegsdýpi, en það hef-
ur verið nokkurt vandamál við
byggingu nýrra húsa norðvestan til
í þéttbýlinu. Ef mikið lóðaframboð
þarf á næstu árum vegna virkj-
unarframkvæmda og stóriðju gera
bæjaryfirvöld ráð fyrir að umrætt
svæði verði opnað.
Þá er í tillögunni sett fram þétt-
ing byggðar í núverandi byggðar-
kjarna. Þar er um að ræða íbúð-
arbyggð fyrir 400–500 íbúa, sem
duga mun í næstu framtíð ef ekki
kemur til verulegra fólksflutninga
inn á svæðið. Stofnbrautir í þéttbýli
Egilsstaða verða fyrst um sinn með
óbreyttum hætti frá gildandi að-
alskipulagi.
Í dreifbýli er byggt
á samþykktu skipulagi
Hvað dreifbýlið varðar er tillagan
að mestu byggð á samþykktu svæð-
isskipulagi Héraðssvæðisins og
verða minni háttar breytingar frá
því. Þar er helst að nefna staðsetn-
ingu sumarhúsasvæða, breytingu á
kafla þjóðvegar 1 um Skriðdal og á
Borgarfjarðarvegi um Eiða. Hverf-
isverndarákvæðum er beitt á fjall-
lendi sveitarfélagsins, en þau eru
almenns eðlis og ekki ætluð til að
takmarka eðlilega nýtingu landsins.
Þá er hverfisvernd einnig beitt á
ýmsar búsetuminjar.
Gestir fundarins gerðu ýmsar at-
hugasemdir við framsetta upp-
drætti og má nefna sem dæmi teng-
ingu Borgarfjarðar- og
Seyðisfjarðarvega, ásamt vegteng-
ingum við þjóðveg 1.
Vinna aðalskipulagstillögunnar
hefur verið í höndum Sigbjörns
Kjartanssonar, arkitekts hjá
Glámu-Kím, Þráins Haukssonar,
landslagsarkitekts hjá Landslagi
ehf., og Þórhalls Pálssonar, arki-
tekts og forstöðumanns umhverf-
issviðs Austur-Héraðs.
Kynningarfundur á aðalskipulagi Austur-Héraðs fyrir árin 2002–2017
Hluti af tillögu að aðalskipulagi Austur-Héraðs sem tekur til þéttbýlis á
Egilsstöðum. Sjá má að gert er ráð fyrir útþenslu byggðar til suðurs.
Búið í haginn
vegna virkj-
ana og stóriðju
Egilsstaðir
MANNLAUS bíll valt nánast ofan í
Varmá í fyrra kvöld, sem rennur í
gegnum Hveragerði. Eftir því sem
vitni segja rann bíllinn mannlaus að
ánni og valt síðan niður kamb rétt of-
an við árbakkann. Verið er að byggja
göngubrú rétt ofan við fossinn
Reykjafoss og var bíllinn þess vegna
svo nálægt ánni. Fljótlega var bíllinn
hífður upp og fjarlægður. Engin slys
urðu á fólki.
Bílvelta í
Hveragerði
Hveragerði
Morgunblaðið/Magnús