Morgunblaðið - 20.10.2001, Page 26
HEILSA
26 LAUGARDAGUR 20. OKTÓBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Spurning: Hvað er „snus“ og
hvers vegna er það bannað hér á
landi? Er þetta einhver venjuleg
tegund af munntóbaki – eða eitt-
hvað allt annað? Tilefni spurningar
er að ég sá nýlega frétt um þetta í
sjónvarpi og þar með að snus væri
flokkað til fíkniefna.
Svar: Tóbak inniheldur nikótín
sem er eitt allra öflugasta fíkniefni
sem þekkist. Fíkn í nikótín mynd-
ast mjög fljótt við notkun, verður
sterk á stuttum tíma og erfitt er að
venja nikótínfíkla af fíkninni.
Reykingar og notkun neftóbaks og
munntóbaks eru verulegt og vax-
andi heilbrigðisvandamál sem
kostar samfélagið, um allan heim,
stöðugt meiri fjármuni vegna veik-
inda og ótímabærs dauða neyt-
endanna. Það er af þessum ástæð-
um sem heilbrigðisyfirvöld reyna
að takmarka tóbaksnotkun þótt
hvergi í heiminum hafi verið stigið
það skref að banna hana. Vegna
þess hve erfitt er að hætta tóbaks-
notkun er forvarnastarf mikilvægt
og sérstaklega það sem beinist að
börnum og unglingum. Á síðustu
áratugum hefur notkun á reyk-
lausu tóbaki (neftóbaki og munn-
tóbaki) farið minnkandi hér á landi
þó að það hafi gengið í nokkrum
bylgjum. Upp úr 1980 fór að bera á
fínkornóttu nef- og munntóbaki í
Evrópu sem reynt var að markaðs-
setja meðal barna og unglinga.
Vegna þess að tóbakið er fínkorn-
ótt berst nikotínið hratt út í blóðið í
miklu magni og efnið er því mjög
ávanabindandi. Þetta tóbak hefur
verið kallað snus (skandinavíska)
eða snuff (enska), það inniheldur
allt að fjórum sinnum meira nikótín
en reyktóbak og er því mjög hættu-
legt. Sums staðar var notkunin orð-
in veruleg meðal grunnskólanema
og var því mikilvægt að berjast
gegn þessari þróun. Vitað er að
notkun munntóbaks meðal ung-
menna leiðir oft til reykinga síðar.
Ástæður þessa faraldurs voru ýms-
ar, þetta er reyklaust efni og þess
vegna hægt að neyta þess víða,
auglýsingar framleiðenda beindust
að ungu fólki í Evrópu (tóbaks-
auglýsingar hafa lengi verið bann-
aðar hér á landi), frægir íþrótta-
menn voru notaðir sem fyrirmynd
og breiddur var út sá misskilningur
að reyklaust tóbak væri hættulaust
eða a.m.k. hættuminna en sígar-
ettur. Staðreyndin er aftur á móti
sú að reyklaust tóbak er álíka
hættulegt og sígarettur. Gamal-
dags neftóbak höfðar ekki til ung-
menna en munntóbak gerir það ef
áðurnefndri sölumennsku er beitt.
Ný könnun hefur leitt í ljós að 8%
framhaldsskólanema á Íslandi á
aldrinum 18–19 ára hafa neytt
munntóbaks oftar en 20 sinnum og
er það áhyggjuefni. Afleiðingar
munntóbaksnotkunar eru að tenn-
ur gulna og skemmast, tannhold
bólgnar og gómar rýrna en við það
verður tannlos og andfýla. Bragð
og lyktarskyn minnkar, slímhúð í
munni þykknar og þar getur mynd-
ast krabbamein. Svipað gerist í nefi
og nefkoki þeirra sem taka í nefið.
Til að berjast gegn þessu var
sett reglugerð hjá Evrópusam-
bandinu árið 1992 sem takmarkaði
sölu munntóbaks og á Íslandi var
sett árið 1997 reglugerð um bann
við sölu á munntóbaki og fínkorn-
óttu neftóbaki. Samkvæmt þessari
reglugerð er eina reyklausa tób-
akið sem heimilt er að selja hér á
landi gamaldags, grófkornótt nef-
tóbak og skrotóbak sem er tuggið í
bitum eða laufum. Allt fínkornótt
tóbak er bannað og einnig munn-
tóbak í grisjum. Samkvæmt tölum
frá ÁTVR seldust 11 kg á árinu
1999 og einungis 6 kg á árinu 2000
en grunsemdir eru um töluvert
smygl. Það er ánægjuleg þróun að
sala á öllu tóbaki fer minnkandi en
við verðum að halda vöku okkar
vegna þess að tóbaksframleið-
endur leita sífellt nýrra leiða til
þess að koma vöru sinni á markað.
Oft eru þessi ráð óvönduð og óheið-
arleg og oftar en ekki beinast þau
að ungu fólki.
Hvað er snus?
MAGNÚS JÓHANNSSON LÆKNIR SVARAR SPURNINGUM LESENDA
Eitt öflugasta
fíkniefnið
Lesendur Morgunblaðsins geta spurt lækn-
inn um það sem þeim liggur á hjarta. Tekið
er á móti spurningum á virkum dögum milli
klukkan 10 og 17 í síma 5691100 og bréfum
eða símbréfum merkt: Vikulok. Fax
5691222. Einnig geta lesendur sent fyrir-
spurnir sínar með tölvupósti á netfang
Magnúsar Jóhannssonar: elmag@hot-
mail.com.
MEGRUNARLYFIÐ orlistat, sem
er markaðssett undir heitinu Xeni-
cal, virðist skila góðum árangri og
hjálpa notendum bæði að léttast og
forðast að aftur sæki í sama farið
eftir þyngdartap. Á vefsíðunni
MDHealth (webmd.com) var nýlega
sagt frá tveimur skýrslum um áhrif
lyfsins sem kynntar voru á ráðstefnu
um offitu (North American Associ-
ation for the Study of Obesity) sem
haldin var í Quebec-borg í Kanada.
Samkvæmt upplýsingum á vefsíð-
unni netdoktor.is segir að lyfið Xen-
ical sé notað „ásamt hitaeininga-
skertu fæði, fyrir þá sem þurfa að
léttast, oftast sem meðferð hjá of-
fitusjúklingum þegar óskað er eftir
frekara þyngdartapi en náðst hefur
eftir öðrum leiðum“. Ólíkt megrun-
arlyfjum sem hafa áhrif á svengd-
artilfinningu og draga úr matarlyst
hefur Xenical áhrif á upptöku fitu í
meltingarveginum.
Blóðþrýstingur og mittismál
Fyrri rannsóknin náði til 430
karla og kvenna sem tóku lyfið tvisv-
ar á dag. Helmingur hópsins minnk-
aði daglegan matarskammt sem
nam 500 hitaeiningum en hinn helm-
ingurinn sem nam 1.000 hitaeining-
um. Að sögn Hermanns Toplak, við
Karl-Franzens háskólann í Graz í
Austurríki, náðu 83% þátttakenda
marktækum árangri á fyrstu 12 vik-
um meðferðar og léttust a.m.k. sem
nam 5% líkamsþyngdar. Að loknum
þessum 12 vikum var þyngdartap
þáttakenda að meðaltali 7% af upp-
haflegri líkamsþyngd. Léttingin
hafði einnig góð áhrif á blóðþrýsting
og var breytingin ör til hins betra á
fyrstu fjórum vikunum. Batinn jókst
eftir því sem á meðferðina leið. Þá
sagði Toplak að mittismál þátttak-
enda hefði minnkað að meðaltali um
rúma 6 sentimetra.
Önnur rannsókn var gerð til að at-
huga hvort notkun lyfsins kæmi í
veg fyrir að þeir sem höfðu grennst
bættu aftur á sig aukakílóum. Aila
Rissanen við háskólasjúkrahúsið í
Helsinki í Finnlandi stjórnaði rann-
sókninni sem náði yfir tveggja ára
tímabil. Fylgst var með hópi ein-
staklinga sem ýmist áttu við of-
þyngd (overweight) eða offitu (obes-
ity) að stríða. Helmingur
þátttakenda í rannsókninni neyttu
Xenical og hinir fengu gervilyf auk
þess að halda sig við eilítið hitaein-
ingaskert mataræði.
Þeir sem tóku lyfið höfðu lést um
11% líkamsþyngdar á árunum
tveimur. Rannsóknin sýndi einnig
góð áhrif lyfsins á hjarta- og æða-
kerfið. Kólesteról minnkaði um 9%
og blóðþrýstingur lækkaði, að sögn
Rissanen.
Árangursríkt megrunarlyf
Reuters
Yfirþyngd og offita er vaxandi vandamál víða um heim, bókstaflega
sagt. Þybbnum börnum fjölgar ekki síður en fullorðnum og má til dæmis
nefna að 13 af hundraði barna í Hong Kong eru talin of feit.
NOKKUR virt vísindarit á sviði
læknisfræði tilkynntu nýlega um að-
gerðir til að hamla gegn áhrifum
lyfjafyrirtækja á rannsóknaniður-
stöður, að
því er segir
á heimasíðu
CNN. Að-
gerðir þess-
ar eiga að
sporna við
því að fyrir-
tæki sem
kosta rannsóknir geti hagrætt nið-
urstöðum eða falið niðurstöður sem
þykja vera þeim í óhag.
Um er að ræða tólf virt læknavís-
indarit í átta löndum. Þeirra á meðal
eru Journal of the American Med-
ical Association, New England
Journal of Medicine, Lancet og
Annals of Internal Medicine.
Vísindaritin hafa kynnt sam-
ræmdar kröfur sem gerðar verða
um niðurstöður rannsókna sem ósk-
að er birtingar á. Þetta á að tryggja
að þeir sem fjármagna rannsóknir
virði vísindalegt sjálfstæði þeirra
sem vinna að rannsóknunum og leit-
ist ekki við að hagræða niðurstöðum
lyfjaframleiðslu sinni í hag. Tímarit-
in birtu forystugreinar í byrjun
september þar sem m.a. kom fram
að styrktarfyrirtæki hafi getað sett
skilyrði um þátttöku í tilraunum,
skilyrði sem hafa ekki alltaf verið
sett með tilliti til hagsmuna þeirra
sem vinna að rannsókninni, þátttak-
enda í rannsókninni eða framfara í
vísindum almennt séð. Í vissum til-
vikum hafi þeir sem unnu rannsókn-
ina haft lítið eða ekkert um það að
segja hvernig rannsóknin var skipu-
lögð, ekki haft aðgang að frumgögn-
um og takmörkuð áhrif á túlkun
gagna. Í skrifum ritstjóra vísindarit-
anna segir m.a.: „Jafnvel þótt þeir
sem rannsóknina vinna hafi haft
töluvert um tilhögun rannsóknar-
innar og túlkun gagna að segja,
kunna rannsóknarniðurstöður því
miður að vera faldar fremur en
kynntar séu þær neikvæðar fyrir
framleiðsluvörur stuðningsaðilans.“
Sum vísindaritanna munu krefj-
ast þess að vísindamenn, sem senda
rannsóknaniðurstöður til birtingar,
undirriti yfirlýsingu þar sem þeir
axla alla ábyrgð á niðurstöðunum og
lýsi því yfir að þeir hafi haft aðgang
að gögnum og haft áhrif á þá
ákvörðun að birta niðurstöðurnar.
Lyfjafyrirtæki eru veigamiklir bak-
hjarlar rannsókna í læknavísindum.
Þau þarfnast þess að niðurstöður
slíkra rannsókna birtist í virtum
læknavísindaritum, því læknar taka
mið af því sem þar birtist við ávísun
lyfja.
Tímarit um læknisfræði sporna
við áhrifum lyfjafyrirtækja
Morgunblaðið/Arnaldur
Linoleum gólfdúkar
Ármúla 23, sími 533 5060
Glæsilegir samkvæmiskjólar
og dress, stærðir S-XXXL.
Telpusparikjólar, drengjaspariföt.
Opið mán.—fös. frá kl. 10—18 lau. 10—14.
Ný sending