Morgunblaðið - 20.10.2001, Qupperneq 39
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. OKTÓBER 2001 39
ELDHÚS - BAÐ - FATASKÁPAR
G
æ
ð
i
á
N
e
tt
o
ve
rð
i.
..
ASKALIND 3, KÓP., SÍMI: 562 1500
BAÐINNRÉTTINGAR
Mikið úrval – Gott verð
VIÐ undirritaðar erum á útskrift-
arári í blásarakennaradeild Tónlist-
arskólans í Reykjavík. Við höfum
ekki einungis verið að læra þetta
fag síðastliðin þrjú ár heldur höfum
við verið að búa okkur undir það
síðan við vorum sex ára. Okkur
langar til að vekja athygli á því sem
bíður okkar eftir útskrift og þeim
litlu breytingum sem verða á laun-
um okkar við það að fá kennararétt-
indi. Nú er bráðum ár síðan samn-
ingar tónlistarkennara voru lausir,
en það var í nóvember á síðasta ári.
Höfum við miklar áhyggjur af stöðu
tónlistarkennara, margir góðir
kennarar eru farnir yfir í önnur
störf, sem er ekki skrýtið því eins
og staðan er í dag eru laun tónlist-
arkennara þessi:
Eftir þriggja ára nám á háskóla-
stigi í tónlistarskóla fáum við kr.
102.020 í byrjunarlaun fyrir 100%
stöðu.
Eftir þriggja ára framhaldsnám í
háskóla erlendis eru laun tónlistar-
kennara kr. 114.825. Þar sem launa-
hækkunin er svona lítil sjáum við
lítinn tilgang í því að fara utan og
afla okkur frekari reynslu og þekk-
ingar. Hver sættir sig við kr.
114.825 eftir sex ára háskólanám?
Ekki við!
Við höfum verið að kenna jafn-
hliða náminu og erum við núna með
í laun kr. 99.048 fyrir 100% stöðu
eftir að vera búnar að kenna í þrjú
ár og fyrir það að klára okkar nám
hækkum við aðeins um einn launa-
flokk, við hækkum um heilar 2.972
krónur. Þeir sem ljúka prófi frá ein-
leikaradeildum skólans eru í sama
launaflokki og menntaðir tónlistar-
kennarar, þrátt fyrir að hafa ekki
tekið kennslufræði, sálar- og upp-
eldisfræði eða fengið æfingakennslu
undir leiðsögn. Ef við aftur á móti
útskrifumst einnig úr einleikara-
deildum skólans hækkum við samt
ekki um launaflokk. Ekki er það
mikil viðurkenning á námi okkar.
Á sama tíma og verið er að hrekja
tónlistarkennara úr starfi vegna
lágra launa dásama ráðamenn þjóð-
arinnar gildi tónlistar.
Í nýútkominni Aðalnámskrá tón-
listarskóla ritar Björn
Bjarnason mennta-
málaráðherra inngang
um gildi tónlistar og
tónlistarkennslu.
Hann segir m.a. að
tónlist sé óaðskiljan-
legur hluti af menn-
ingararfi þjóða. En að-
allega vekur önnur
málsgrein athygli okk-
ar. Þar segir hann:
„Gildi tónlistarnáms
er margþætt. Mark-
visst tónlistaruppeldi
miðar að auknum
þroska einstaklinga,
þjálfar huga og eflir
tjáningarhæfni nem-
enda. Auk þess veitir gott tónlist-
arnám lífsfyllingu og hefur víðtækt
félagslegt gildi.“
Í aukablaði Morgunblaðsins um
Jazzhátíð Reykjavíkur, hinn 4. sept-
ember síðastliðinn, ritar Ingibjörg
Sólrún Gísladóttir borgarstjóri
ávarp. Þar tekur hún svo vel til orða
„… að þangað sem geislar sólarinn-
ar nái ekki að skína nái tónlistin“.
Ef þetta er viðhorf borgarstjóra til
tónlistar skiljum við ekki af hverju
það er ekki löngu búið að semja við
tónlistarkennara. Hvar væri menn-
ingarnóttin, listahátíðin, jazzhátíðin,
sinfóníuhljómsveitin og allt tónlist-
arlíf á landinu án tónlistarkennara?!
Við hvetjum sveitarfélögin til að
virða tónlistarkennara vegna fram-
lags þeirra til menningarlífs lands-
ins og semja strax við þá.
Björt framtíð?
Dagný
Marinósdóttir
Kjarabarátta
Hvar væri menning-
arnóttin, listahátíðin,
djasshátíðin, sinfón-
íuhljómsveitin og allt
tónlistarlíf í landinu,
spyrja Dagný Mar-
inósdóttir og Fjóla
Dögg Sverrisdóttir, án
tónlistarkennara?
Höfundar eru nemar í blásara-
kennaradeild Tónlistarskólans í
Reykjavík.
Fjóla Dögg
Sverrisdóttir
Merinó ullarpeysur
Persónuleg þjónusta
Laugavegi 63, sími 551 4422
Hrei
nsum
viðar-, rimla-,
strimla-, plíseruð-
og sólargluggatjöld.
Hlíðarhjalla 26, s. 897 3634.