Morgunblaðið - 20.10.2001, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. OKTÓBER 2001 47
fræðinema og Jens Guðjónssonar,
menntaskólanema kl. 13. Jón Þorsteins-
son.
HAFNARFJARÐARKIRKJA: Guðsþjónusta
kl. 11. Gídeonfélagar koma í heimsókn.
Pétur Ásgeirsson prédikar. Jón B. Jónsson
leikur á gítar. Börn borin til skírnar. Félagar
úr Kór Hafnarfjarðarkirkju leiða söng. Org-
anisti Natalía Chow. Prestur sr. Þórhallur
Heimisson. Sunnudagaskóli fer fram á
sama tíma í safnaðarheimilinu Strandbergi
og Hvaleyrarskóla. Tónlistarguðsþjónusta
kl. 17. Ragnheiður Sara Grímsdóttir sópr-
an og Kristján Helgason baritón syngja tví-
söng. Félagar úr Kór Hafnarfjarðarkirkju
leiða söng. Organisti Natalía Chow.
FRÍKIRKJAN í Hafnarfirði: Barnasamkoma
kl. 11:00 – Umsjón Edda, Sigríður Kristín,
Hera og Örn Arnarson gítarleikari og söngv-
ari. Leikir og leikin biblíusaga, brúður koma
í heimsókn, léttir söngvar og barnasálmar.
Starf fyrir börn á öllum aldri og alla fjöl-
skylduna. Hinn árlegi kirkjudagur safnaðar-
ins. Guðsþjónusta kl. 13:00. Athugið
breyttan messutíma í vetur. Organisti og
kórstjóri Þóra V.Guðmundsdóttir. Örn Arn-
arson syngur einsöng og leiðir sönginn
ásamt kór og organista og spilar jafnframt
á gítar. Fjölbreyttur tónlistarflutningur. Hin
árlega, glæsilega kaffisala kvenfélags
kirkjunnar hefst í safnaðarheimilinu Lin-
netstíg 6 strax að lokinni guðsþjónustu.
Einar Eyjólfsson
KÁLFATJARNARSÓKN: Kirkjuskólinn í dag
laugardag 20. október kl. 11:00, í Stóru-
Vogaskóla. Nýtt og skemmtilegt efni. Mæt-
um vel. Prestarnir.
VÍDALÍNSKIRKJA: Guðsþjónusta sunnu-
dag kl. 11:00. Kór kirkjunnar leiðir almenn-
an safnaðarsöng. Sunnudagaskóli yngri og
eldri deild á sama tíma í kirkjunni. Ferming-
arbörn lesa ritningarlestra. Fermingarbörn
eru hvött til að mæta vel og helst með for-
eldrum sínum. Fermingarbörn munið að
hafa með ykkur ,,vegabréfið“ til innfærslu
vegna mætinga til guðsþjónustu. Munum
10 skiptin að lágmarki yfir veturinn sem
eðlilegan hluta af fermingarfræðslunni.
Organisti Jóhann Baldvinsson. Sr. Hans
Markús Hafsteinsson þjónar við athöfnina.
Prestarnir.
GARÐAKIRKJA: Messa með altarisgöngu í
Garðakirkju kl. 14:00. Kór kirkjunnar leiðir
almennan safnaðarsöng. Fermdar verða
tvær stúlkur Gunnur Líf Gunnarsdóttir,
Löngumýri 27, Garðabæ og Una Emilsdótt-
ir, Kirkjulundi 8, íbúð 210, Garðabæ. Ferm-
ingarbörn næsta vors eru velkomin og eru
hvött til að mæta vel með foreldrum sínum.
Sr. Hans Markús Hafsteinsson og Nanna
Guðrún Zoëga djákni þjóna við athöfnina.
Rúta fer frá Kirkjulundi kl. 13:30 og frá
Hleinum kl. 13:40. Prestarnir.
BESSASTAÐASÓKN: Sunnudagaskóli í
Álftanesskóla kl. 13:00. Nýtt og skemmti-
legt efni. Rúta ekur hringinn á undan og eft-
ir. Prestarnir.
GRINDAVÍKURKIRKJA: Sunnudagaskóli
kl. 11. Fjölbreytt og skemmtilegt barnaefni.
Foreldrar eru hvattir til að mæta með börn-
in sín. Sóknarnefndin.
ÚTSKÁLAKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11.
Kórar Hvalsness- og Útskálakirkju syngja
ásamt barnakór Útskálakirkju. Organisti
Pálína Fanney Skúladóttir. Sóknarprestur
Björn Sveinn Björnsson.
YTRI-NJARÐVÍKURKIRKJA: Sunnudaga-
skóli kl. 11. Foreldrar hvattir til að mæta
með börnunum. Sóknarprestur.
NJARÐVÍKURKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
14. Nemendur úr Tónlistarskóla Reykja-
nesbæjar koma fram. Sunnudagaskóli
sunnudag kl. 11. Foreldrar hvattir til að
mæta með börnunum. Sóknarprestur.
KEFLAVÍKURKIRKJA: Fjölskylduguðsþjón-
usta og sunnudagaskóli kl. 11 árd. Altaris-
ganga. Undirleikari í sunnudagaskóla Helgi
Már Hannesson. Prestur sr. Sigfús Baldvin
Ingvason. Kór Keflavíkurkirkju syngur. Org-
anisti Hákon Leifsson. Meðhjálpari Björg-
vin Skarphéðinsson.
SELFOSSKIRKJA: Messa og sunnudaga-
skóli kl. 11. Súpa og brauð eftir messu.
Morguntíð sungin þriðjudaga til föstudaga
kl. 10. Kaffi og brauð að henni lokinni. For-
eldrasamvera miðvikudaga kl. 11. Krakka-
klúbbarnir hafa verið sameinaðir og verða
kl. 16.10–17 á miðvikudögum. Sóknar-
prestur.
EYRARBAKKAKIRKJA: Barnaguðsþjón-
usta kl. 11. Sóknarprestur.
ÞORLÁKSKIRKJA: Sunnudagaskóli kl. 11.
Sóknarprestur.
STRANDARKIRKJA: Messa kl. 14. „Veiði-
mannamessa“. Prestur sr. Svavar Stefáns-
son. Söngfélag Þorlákshafnar leiðir söng.
Organisti Stefán Þorleifsson. Sóknarprest-
ur.
KOTSTRANDARKIRKJA: Sunnudagaskóli
kl. 11. Rútuferð frá Hveragerðiskirkju kl.
10.45. HNLFÍ: Guðsþjónusta kl. 11. Sókn-
arprestur.
ODDAKIRKJA á Rangárvöllum: Guðsþjón-
usta kl. 11. Organisti Nína María Morávek.
Kirkjuskóli 6–9 ára barna er í grunnskól-
anum á Hellu á fimmtudögum kl. 13.30.
Sóknarprestur.
KELDNAKIRKJA á Rangárvöllum: Guðs-
þjónusta kl. 14. Skírn. Organisti Nína
María Morávek. Aðalsafnaðarfundur
Keldnasóknar verður haldinn í kirkjunni að
athöfn lokinni. Sóknarnefnd Keldnasóknar
og sóknarprestur
SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA: Messa sunnu-
dag kl. 11. Sóknarprestur.
ÓLAFSVALLAKIRKJA: Guðsþjónusta
sunnudag kl. 14. Tvö börn verða færð til
skírnar. Sóknarbörn og sér í lagi ferming-
arbörn og foreldrar þeirra eru hvött til að
koma til helgihaldsins. Sr. Eiríkur í Hruna
þjónar fyrir altari og prédikar.
ÍSAFJARÐARKIRKJA: Messa kl. 11. Sr.
Agnes M. Sigurðardóttir.
GLÆSIBÆJARKIRKJA: Messa sunnudag
kl. 14. Allir hjartanlega velkomnir. Sóknar-
prestur. Biblíulestur verður fyrir allt presta-
kallið á prestssetrinu á Möðruvöllum í
Hörgárdal mánudagskvöldið 22. október
kl. 21. Allir hjartanlega velkomnir. Sóknar-
prestur.
EGILSSTAÐAKIRKJA: Sunnudagaskóli kl.
11. Mánud. 22. okt: Kl. 18 kyrrðarstund og
opinn 12 spora fundur til kl. 20. Sóknar-
prestur.
framfarir í rannsóknum á gena-
mengi mannsins og til hvers þær
geta leitt. Kl. 11 hefst guðsþjón-
usta og barnastarf. Prestur er
séra Jón Dalbú Hróbjartsson.
Æðruleysismessa
Dómkirkjunnar
ÆÐRULEYSISMESSA Dómkirkj-
unnar tileinkuð fólki í leit að bata
eftir 12 spora kerfinu verður í
Dómkirkjunni í Reykjavík sunnu-
dagskvöldið 21. október kl. 20.30.
Þar eru allir velkomnir til til-
beiðslu og æðruleysis. Einnig er
hægt að mæta hálftíma fyrir
messu og fá sér kaffisopa uppi í
kirkjuturninum á Dómkirkjunni.
Lofgjörðina leiðir söngkonan lífs-
glaða Anna Sigríður Helgadóttir
við undirleik bræðranna Birgis og
Harðar Bragasona. Jóna Hrönn
Bolladóttir miðborgarprestur, sr.
Karl V. Matthíasson og Bryndís
Valbjarnardóttir guðfræðingur
þjóna að orðinu og borðinu en alt-
arisganga verður í lok messunnar.
Jafnframt verður reynslusögu
deilt með viðstöddum. Æðruleys-
ismessur eru einstakar og helgar
stundir þar sem fólk kemur og
leitar af heiðarleika og einlægni
eftir samfélagi vð Guð og með-
bræður sína. Það sem einkennir
messurnar er létt sveifla í helgri
alvöru. Æðruleysismessur eru 21.
aldar messur og það eru allir vel-
komnir.
Unglingakór í
Hjallakirkju
SUNNUDAGINN 21. október
kemur Unglingakór Selfosskirkju
í heimsókn í guðsþjónustu í Hjalla-
kirkju í Kópavogi kl. 11. Stjórn-
andi kórsins er Margrét Bóasdótt-
ir. Kór þessi hefur getið sér gott
orð innan kirkjunnar og farið
víða. Í guðsþjónustunni mun kór-
inn syngja nokkur lög ásamt því
að leiða safnaðarsöng með fé-
lögum úr kór Hjallakirkju. Síðar
þennan sama dag verður tónlist-
arstund kl. 17 í kirkjunni þar sem
stjórnandi kórsins, Margrét Bóas-
dóttir, syngur við orgelundirleik
Lenku Mátéová. Allir eru hjartan-
lega velkomnir.
Kvöldmessa með
hressandi tónlist
NÆSTKOMANDI sunnudags-
kvöld 21. okt. verður haldin kvöld-
messa í Seljakirkju og hefst hún
kl. 20.30. Sr. Valgeir Ástráðsson
prédikar og stýrir messunni
ásamt sr. Ágústi Einarssyni. Þor-
valdur Halldórsson tónlist-
armaður ætlar að spila og syngja
með okkur eins og honum einum
er lagið. Þessi messa og sú tónlist
sem einkennir hana er fyrir alla,
börn, konur og karla. Sjáumst á
sunnudagskvöldið í hressandi
kvöldmessu. Seljakirkja.
Neskirkja. Félagsstarf aldraðra kl. 14.
Farið verður í skoðunarferð í verslunarmið-
stöðina Smáralind. Kaffiveitingar í kaffi-
teríu Perlunnar. Sr. Frank M. Halldórsson.
Laugarneskirkja. Kl. 9-13.30 sálgæslu-
námskeið Teo van der Weele „Hjálpað
með blessun“.
Hvammstangakirkja. Barnamessa kl. 11.
Fíladelfía. Brauðsbrotning kl. 11. Ræðu-
maður Ari Guðmundsson. Almenn sam-
koma kl. 16.30. Lofgjörðarhópur Marita
leiðir söng. Ræðumaður Vörður L. Trausta-
son. Allir hjartanlega velkomnir.
Safnaðarstarf
FRÉTTIR
AGNAR Erlingsson, aðalræð-
ismaður Noregs í Reykjavík og
framkvæmdastjóri Norske Veri-
tas á Íslandi, hefur af Haraldi
Noregskonungi verið útnefndur
til riddara hinnar konunglegu
norsku heiðursorðu, „Ridder av
første klasse av Den kongelige
norske fortjenstorden“. Agnar
hlaut heiðursmerkið fyrir starf
sitt sem aðalræðismaður Noregs
á Íslandi og veitti því viðtöku úr
hendi sendiherra Noregs, Kjell H.
Halvorsen (t.v.), á fundi sem hald-
inn var í sendiráðinu nýlega fyrir
alla ræðismenn Noregs hér á
landi.
Sæmdur
norskri
heiðursorðu
Morgunblaðið/Kristinn
IB ehf. og Bílasala Suðurlands
opna um helgina formlega nýtt
húsnæði á Fossnesi 14 á Selfossi.
Gestum býðst að skoða húsið og
þiggja veitingar. Húsnæðið er í
eigu IB ehf. Í húsinu er rekin al-
hliða þjónusta fyrir bifreiðaeigend-
ur á Suðurlandi.
Reksturinn skiptist þannig að
IB flytur inn bandarískar bifreiðir,
ýmis tæki og varahluti, rekur hjól-
barðaverkstæði, smurstöð, vara-
hlutaverslun, verkstæði og er
þjónustuaðili Toyota á Suðurlandi.
Bílasala Suðurlands sem er um-
boðsaðili Toyota á Suðurlandi rek-
ur bílasölu með sýningarsal og úti-
svæði við þjóðveg 1. Boðið verður
upp á reynsluakstur á flestum
gerðum Toyota bifreiða, þar á
meðal 38“ breyttum Landcruiser
70.
IB ehf.
og Bílasala
Suðurlands
í nýtt
húsnæði
IB ehf. og Bílasala Suðurlands opna um helgina formlega nýtt húsnæði
á Fossnesi 14 á Selfossi.