Morgunblaðið - 20.10.2001, Qupperneq 58
DAGBÓK
58 LAUGARDAGUR 20. OKTÓBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Í dag
er Snorri Sturluson
væntanlegur.
Fréttir
Stuðningsfundir fyrr-
verandi reykingafólks.
Fólk sem sótt hefur
námskeið gegn reyk-
ingum í Heilsustofnun
NLFÍ í Hveragerði,
fundur í Gerðubergi á
þriðjud. kl. 17.30.
Mannamót
Aflagrandi 40. Mánu-
dagur: Kl. 9 leikfimi, kl.
9 vinnustofa, kl. 10
boccia, kl. 13 bað og
vinnustofa, kl. 14 fé-
lagsvist.
Eldri borgarar í Mos-
fellsbæ, Kjalarnesi og
Kjós. Félagsstarfið
Hlaðhömrum er á
þriðjudögum og fimmtu-
dögum kl. 13–16.30, spil
og föndur. Jóga á föstu-
dögum kl. 13.30. Kóræf-
ingar hjá Vorboðum,
kór eldri borgara í Mos-
fellsbæ, á Hlaðhömrum
fimmtudaga kl. 17–19.
Uppl. hjá Svanhildi í s.
5868014 kl. 13–16. Tíma-
pöntun í fót-, hand- og
andlitssnyrtingu, hár-
greiðslu og fótanudd, s.
5668060 kl. 8–16.
Félag eldri borgara í
Hafnarfirði, Hraunseli,
Reykjavíkurvegi 50.
Ganga kl. 10, rúta frá
miðbæ kl. 9.50. Á morg-
un fer rúta frá Hraun-
seli kl. 18.15 á Töfra-
flautuna í Óperunni. Á
mánudag verður fé-
lagsvist kl. 13.30. Á
þriðjudag verður púttað
í Bæjarútgerðinni kl. 10.
Saumar og brids í
Hraunseli kl. 13.30.
Tréútskurður hefst í
Lækjarskóla.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði
Glæsibæ. Kaffistofan
opin alla virka daga frá
kl. 10–13. Kaffi – blöðin
og matur í hádegi.
Sunnudagur: Félagsvist
kl. 13.30. Dansleikur kl.
20. Caprí-tríó leikur fyr-
ir dansi.
Mánudagur: Brids kl.
13. Danskennsla Sig-
valda, framhald kl. 19
og byrjendur kl. 20.30.
Þriðjudagur: Skák kl. 13
og alkort kl. 13.30.
Miðvikudagur: Göngu-
Hrólfar fara í létta
göngu frá Hlemmi kl.
9.45.
Söngvaka kl. 20.45 í um-
sjón Sigurbjargar
Hólmgrímsdóttur.
Á vegum Fræðslu-
nefndar FEB verður
farin fræðsluferð í Há-
skólann í Reykjavík
þriðjudaginn 23. októ-
ber. Brottför frá Ás-
garði Glæsibæ kl. 13.45.
Ath. takmarkaður fjöldi
þátttakenda.
Skráning hafin á skrif-
stofu FEB.
Landssamband eldri
borgara og Skálholts-
skóli bjóða til fræðslu-
daga í Skálholti 29.–31
október með fyr-
irlestrum og almennum
umræðum. Auk þess
verða kvöldvökur,
gönguferðir, stað-
arskoðun og boðið til
tíðasöngs að hætti fyrri
tíðar í Skálholtskirkju.
Sr. Bernharður Guð-
mundsson rektor hefur
umsjón með fræðslu-
dögunum. Nánari upp-
lýsingar og skráning hjá
FEB.
Silfurlínan er opin á
mánudögum og mið-
vikudögum frá kl. 10 til
12 fh. í síma 588-2111.
Skrifstofa félagsins er
flutt að Faxafeni 12,
sama símanúmer og áð-
ur. Félagsstarfið er
áfram í Ásgarði
Glæsibæ. Upplýsingar á
skrifstofu FEB kl. 10 til
16 í síma 588-2111.
Gerðuberg, félagsstarf.
Myndlistarsýning Val-
garðs Jörgensen opin kl.
13–16.30 laugard. og
sunnud. Listamaðurinn
á staðnum.
Mánudaginn 22. okt.:
Kl. 13.30 „Hittumst
heil“. Ágústa Sigrún
Ágústsdóttir kemur í
heimsókn og syngur lög
eftir föður sinn, Ágúst
Pétursson, af nýút-
komnum geisladiski.
Þriðjudagur:
Opið hús í Miðbergi kl.
9–12, m.a. borðtennis,
snóker og innipútt. Allir
velkomnir.
Sund og leikfimiæfingar
í Breiðholtslaug á veg-
um ÍTR á mánudögum
og fimmtudögum kl.
19.30, umsjón Edda
Baldursdóttir íþrótta-
kennari. Boccia á þriðju-
dögum kl. 13 og föstu-
dögum kl. 9.30, umsjón
Óla Kristín Freysteins-
dóttir. Allar veitingar í
veitingabúð Gerðu-
bergs. Upplýsingar um
starfsemina á staðnum
og í síma 575-7720.
Kirkjustarf aldraðra
Digraneskirkju. Opið
hús á þriðjudag kl. 11.
Leikfimi, matur, helgi-
stund og fleira.
Félag fráskilinna og
einstæðra. Fundur í
kvöld kl. 21 í Konnakoti,
Hverfisgötu 105. Nýir
félagar velkomnir. Mun-
ið gönguna mánud. og
fimmtudaga.
Sjálfsbjörg, félagsheim-
ilið Hátúni 12. Dagskrá
félagsheimilisins: Í dag,
laugardag, bingó kl. 14.
Gigtarfélagið. Leikfimi
alla daga vikunnar. Létt
leikfimi, bakleikfimi
karla, vefjagigtarhópar,
jóga, vatnsþjálfun. Einn
ókeypis prufutími fyrir
þá sem vilja. Nánari
uppl. á skrifstofu GÍ, s.
530 3600.
Átthagafélag Stranda-
manna heldur hinn ár-
lega haustfagnað í
kvöld, laugardaginn 20.
okt., í Breiðfirðingabúð
við Faxafen. Húsið opn-
að kl. 22. Hljómsveitin
Upplyfting spilar fyrir
dansi. Stjórn og
skemmtinefnd.
Breiðfirðingafélagið.
Félagsvist. Á morgun,
sunnudag, er fyrsti dag-
ur í fjögurra daga
keppni. Spilin hefjast
alla dagana stundvíslega
kl. 14. Fyrstu verðlaun
kvenna og karla hvern
dag verða 3.000 kr. og
önnur verðlaun 1.500 kr.
Auk þess fær sá sem
oftast situr við sama
borðið svolitlar sárabæt-
ur. Góðar kaffiveitingar
eru eftir spilin og miða-
verð er 600 kr. Vetr-
arfagnaður félagsins
verður 27. okt. frá kl.
22–3. Breiðbandið leik-
ur. Fjölmennið og takið
með ykkur gesti.
Minningarkort
Kristniboðssambandið.
Minningarspjöld fást í
skrifstofunni Holtavegi
28 (húsi KFUM & K
gegnt Langholtsskóla),
sími 588-8899.
Minningarkort Sjálfs-
bjargar, félags fatlaðra
á höfuðborgarsvæðinu,
eru afgreidd í síma 551-
7868 á skrifstofutíma og
í öllum helstu apótek-
um. Gíró- og kred-
itkortagreiðslur.
Minningarkort For-
eldra- og vinafélags
Kópavogshælis
fást á skrifstofu end-
urhæfingadeildar Land-
spítalans í Kópavogi
(fyrrverandi Kópavogs-
hæli), síma 560-2700, og
skrifstofu Styrkt-
arfélags vangefinna, s.
551-5941, gegn heim-
sendingu gíróseðils.
Félag MND-sjúklinga
selur minningarkort á
skrifstofu félagsins á
Norðurbraut 41, Hafn-
arfirði. Hægt er að
hringja í síma 565-5727.
Allur ágóði rennur til
starfsemi félagsins.
Landssamtökin Þroska-
hjálp.
Minningarsjóður Jó-
hanns Guðmundssonar
læknis. Tekið á móti
minningargjöfum í síma
588-9390.
Minningarsjóður
Krabbameinslækn-
ingadeildar Landspít-
alans. Tekið er við
minningargjöfum á
skrifst. hjúkrunarfor-
stjóra í síma 560-1300
alla virka daga milli kl.
8 og 16. Utan dagvinnu-
tíma er tekið á móti
minningargjöfum á
deild 11-E í síma 560-
1225.
Minningarkort Minn-
ingarsjóðs Maríu Jóns-
dóttur flugfreyju eru fá-
anleg á eftirfarandi
stöðum: Á skrifstofu
Flugfreyjufélags Ís-
lands, s. 561-4307/fax
561-4306, hjá Halldóru
Filippusdóttur, s. 557-
3333, og Sigurlaugu
Halldórsdóttur, s. 552-
2526.
Minningarkort Minn-
ingarsjóðs hjónanna
Sigríðar Jakobsdóttur
og Jóns Jónssonar á
Giljum í Mýrdal við
Byggðasafnið í Skógum
fást á eftirtöldum stöð-
um: Í Byggðasafninu
hjá Þórði Tómassyni, s.
487-8842, í Mýrdal hjá
Eyþóri Ólafssyni, Skeið-
flöt, s. 487-1299, í
Reykjavík hjá Frí-
merkjahúsinu, Laufás-
vegi 2, s. 551-1814, og
hjá Jóni Aðalsteini
Jónssyni, Geitastekk 9,
s. 557-4977.
Í dag er laugardagur 20. október,
293. dagur ársins 2001. Orð dagsins:
Sannlega segi ég yður: Þessi
kynslóð mun ekki líða undir lok,
uns allt er komið fram.
(Lúk. 21, 32).
LÁRÉTT:
1 gulls ígildi, 8 óákveðnu,
9 líkamshlutann, 10
tangi, 11 gremjist, 13
glataða, 15 vatnagangs,
18 vegurinn, 21 nöldur,
22 jarða, 23 endurtekið,
24 spaugs.
LÓÐRÉTT:
2 örlaganorn, 3 borgi, 4
tryllist, 5 eyddur, 6 ókjör,
7 setja dæld í, 12 mis-
kunn, 14 fiskur, 15 fið-
urfé, 16 hugaða, 17 fífl-
djarfa, 18 kátínu, 19
nafnbót, 20 líkamshluti.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 tuska, 4 kenna, 7 lygin, 8 refil, 9 afl, 11 ausa, 13
maur, 14 gervi, 15 görn, 17 skap, 20 Sif, 22 lesta, 23 leifa,
24 reimt, 25 rotta.
Lóðrétt: 1 telja, 2 seggs, 3 Anna, 4 kurl, 5 nefna, 6 allur,
10 forði, 12 agn, 13 mis, 15 gælur, 16 risti, 18 Krist, 19
plaga, 20 satt, 21 flær.
K r o s s g á t a
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Víkverji skrifar...
VÍKVERJI var ekki fyrr búinnað hella úr skálum reiði sinn-
ar á síðum Morgunblaðsins yfir
þeirri ósvífni sölumanna að of-
sækja blásaklaust fólk með stöð-
ugum hringingum að kvöldlagi
þegar hann var óþægilega minntur
á aðra markaðssetningaraðferð
sem virðist ekki síður vera vinsæl
um þessar mundir. Það er sá dóna-
skapur að senda tölvupóst með
upplýsingum til fólks sem ekki
hefur beðið um slíka þjónustu né
skráð sig á sérstaka lista, þar sem
veitt er leyfi fyrir því að slíkar
sendingar séu sendar til viðkom-
andi.
Þannig fékk Víkverji nýlega
óumbeðna tölvupóstsendingu frá
bílaleigunni AVIS á Íslandi og var
sagt í inngangi bréfsins að fyr-
irtækið langaði „mikið til að kynna
fyrir þér kosti þess að versla við
okkur bæði hérlendis og erlendis“.
Ekki veit Víkverji hvar AVIS
hefur fengið þá ranghugmynd að
hann hefði áhuga á að móttaka
slíkar upplýsingar né hvar fyrir-
tækið gróf upp netfang hans.
Reyndar fékk fjöldi vinnufélaga
Víkverja sama auglýsingapóst og
rennir Víkverja því í grun að löng-
un AVIS til að kynna kosti sjálfs
sín hafi verið svo yfirþyrmandi að
fyrirtækið hafi brugðið á það ráð
að senda öllum starfsmönnum
Morgunblaðsins póstinn. Þetta er
auðvitað ágiskun ein en hitt er víst
að niðurstöður skyndikönnunar
sem Víkverji gerði á þakklæti við-
takendanna yfir því að fá send-
inguna sýndu að það var hverf-
andi. Raunar virtist sendingin hafa
skapraunað viðtakendunum svo, að
flestir höfðu orð á því að þeir
myndu aldrei versla við fyrirtæki
sem þrengdu sér óbeðin upp á fólk
með þessum hætti.
x x x
ÖNNUR og enn undarlegri aug-lýsing varð á vegi Víkverja á
dögunum. Sú dúkkaði upp undan
rúðuþurrkunni á fjölskyldubifreið-
inni sem stóð á bílastæðinu utan
við fjölbýlishúsið þar sem Víkverji
býr. Við fyrstu sýn var að sjá sem
einhver aflögufær náungi hefði
stungið fimm dollara seðlum undir
rúðuþurrkurnar á öllum bílunum á
planinu og var ekki laust við að
Víkverji táraðist yfir gjafmildinni
á þessum síðustu og verstu eig-
inhagsmunatímum. Aukinheldur
gat Víkverji ekki annað en dáðst
að þeirri fyrirhyggju að lauma
aurunum að fólki í erlendum gjald-
miðli, eins og gengi krónunnar
hefur nú verið að undanförnu.
En, nei, þegar betur var að gáð
kom í ljós að um eftirlíkingu af
dollaraseðli var að ræða og það
svo sérstaka að við hliðina á stoltu
andliti Lincolns blasti við áritunin
„The United Kingdom of God“.
Þótti Víkverja heldur mikið í lagt
að kenna Lincoln gamla við sjálft
almættið þótt vissulega hafi hann
verið voldugur herra.
Ekki varð undrun Víkverja
minni þegar hann sneri blaðinu við
og í ljós kom texti með yfirskrift-
inni „Dauði og skattar“. Var þar
fullyrt að lítið væri hægt að gera
til að breyta skattinum en hægt
væri að losna algerlega við alla
hræðslu vegna dauðans. Var les-
andinn hvattur til að taka við fyr-
irgefningu Guðs, játa syndir sínar
fyrir honum og gefa honum líf sitt.
Undir pistilinn skrifaði síðan
„LÆKUR – lifandi vatns“ og
fylgdi með símanúmer.
Víkverji er kannski bara svona
vitlaus en hann er ennþá að bisast
við að reyna að skilja samhengið!
Egilshús
MIG langar til að leiðrétta
þann þráláta misskilning
að Egilshús í Stykkis-
hólmi heiti Egilsenshús.
Ég sá þessa villu síðast í
nýjasta hefti Breiðfirð-
ings. Húsið átti og byggði
Egill Egilsson, sonur
Sveinbjarnar Egilssonar
rektors. Börn Sveinbjörns
voru Þuríður Kúld, Bene-
dikt Gröndal yngri, Egill
alþingismaður og Þor-
steinn, útgerðarmaður í
Hafnarfirði. Egill og Þor-
steinn skrifuðu sig Egils-
son og sama gerði Svein-
björn, ritstjóri Ægis, sem
var sonur Þorsteins. Ég
vona að Hólmarar og aðr-
ir taki þetta til greina.
Með þökk fyrir birt-
inguna.
Sigurborg Skúladóttir.
Þörf skrif
um nagladekk
Í UMRÆÐUNNI föstu-
daginn 12. okt. var verið
að skrifa um nagladekk.
Finnst mér þetta þörf
skrif og vil þakka fyrir
greinina. Miðað við skað-
semi dekkjanna hefur allt
of lítið verið skrifað um
þetta mál.
Ökumaður.
Tekur ekki
afsláttarkort
LESANDI hafði samband
við Velvakanda og vildi fá
að vita hvenær Krabba-
meinsfélagið hætti að taka
við afsláttarkortum frá
Tryggingastofnun? Segist
lesandi hafa getað notað
þau þar áður. Eins varð
lesandi hissa á því að vera
spurður af hverju hann
væri með afsláttarkort.
Tapað/fundið
Hjólið mitt
er horfið!
HJÓLIÐ mitt (rauðfjólu-
blátt Pelican Diamond
stelpuhjól með beinu
stýri) hvarf föstudaginn
12. október frá Goðheim-
um 2. Ef þú hefur séð það
eða veist hvar það er, viltu
þá láta mig vita í síma
553 1110. Kristín Lilja.
Þrífótur í óskilum
ÞRÍFÓTUR fannst í ná-
grenni Reykjavíkur. Upp-
lýsingar í síma 566-6041.
Gullhringur
fannst í Smáralind
GULLHRINGUR fannst
sl. laugardag í Smáralind.
Upplýsingar í síma
483 4065 eða 863 2865.
Dýrahald
Páfagaukurí óskilum
PÁFAGAUKUR fannst í
Rimahverfi sl. þriðjudag.
Upplýsingar í síma
588 7112 eða 865 7112.
Herkúles
er týndur
HERKÚLES er svartur
og hvítur fress, áberandi
stór. Hann er ómerktur og
ólarlaus og týndist í Norð-
urmýrinni. Þeir sem hafa
séð hann vinsamlegast láti
vita í síma 697 8490.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15.
Netfang velvakandi@mbl.is
Í VELVAKANDA Morgunblaðsins 12.
október spyr Íslendingur, búsettur í
Danmörku, hvort einhverjir fróðir
menn þekki ekki seinnipartinn við
eftirfarandi rímþraut:
Seint munu fyllast Són og Boðn,
seint munu Danir vinna Hveðn …
Undirritaður þekkir einn botn sem
fer hér á eftir:
Ekkert minnkar Ásgeirs loðn’
olíublettir sjást á Héðn’.
Ekki er mér kunnugt um höfund en
finnst sennilegt að kveðskapurinn sé
frá fjórða áratug síðustu aldar. Þarna
er fjallað um tvo stjórnmálamenn sem
mjög komu við sögu á þeim tíma, Ás-
geir Ásgeirsson, síðar forseta, og Héð-
in Valdimarsson, sem var formaður
Dagsbrúnar og róttækur sósíalisti
samhliða því að vera forstjóri Olíu-
verslunar Íslands. Hið síðasttalda er
efalaust tilefni þeirrar umsagnar sem
hann fær í vísupartinum.
Á þessum tíma var stjórnmálabar-
átta hérlendis mjög harðvítug og ekki
spöruð stóryrðin. Ásgeir Ásgeirsson
skar sig úr að því leyti að vera maður
sátta og málamiðlunar. Þess vegna
var honum brugðið um að vera loðinn
í afstöðu sinni til manna og málefna
og sú einkunn festist nokkuð við hann
í umtali manna á milli.
Þrátt fyrir umsögnina hér á undan
hefi ég eina tillögu um höfund án þess
að geta nokkuð fullyrt þar um. Sá er
Bjarni Ásgeirsson, þingmaður Mýra-
sýslu á þeim árum, lipur hagyrðingur
og alls ekki gersneyddur kímnigáfu.
Guðmundur Gunnarsson,
Vanabyggð 17, Akureyri.
„ …seint munu Danir vinna Hveðn