Morgunblaðið - 20.10.2001, Page 61
Andrea Corr úr The Corrs
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. OKTÓBER 2001 61
Hryllingshverfið
(Terror Tract)
Gamanmynd
Leikstjóri: Lance W. Deesen. Handrit:
Clint Hutchison. Aðalhlutverk: John Ritt-
er. Bandaríkin, 2000. Bergvík. (97 mín.)
Bönnuð innan 16 ára.
HÉR er á ferðinni gamansöm
hryllingsmynd sem skiptist í þrjár
stuttar sögur innan rammafrá-
sagnar, eins og löng hefð er reynd-
ar fyrir. Rammafrásögnin í þetta
skipti er tilraun heldur ógæfusams
fasteignasala að selja ungum hjón-
um fasteign. Sök-
um heiðarleika og
sterks vinnusið-
ferðis finnur fast-
eignasalinn sig
knúinn til að segja
hjónunum allan
sannleikann um
húsin sem þau eru
að skoða. Og kem-
ur þá í ljós að í
fortíð allra fasteignanna búa held-
ur óskemmtilegar sögur.
Hinir væntanlegu kaupendur
eru lítt hrifnir og eftir því sem
áhugi þeirra dofnar breytist fram-
koma fasteignasalans. Sögurnar
sem hann segir eru allar gam-
alkunnar úr hryllingshefðinni, ekki
illa gerðar en koma vönum hryll-
ingsaðdáendum vafalaust lítt á
óvart. Þannig er Hryllingshverfið
fremur skondin afþreying en hroll-
vekjandi. Myndbönd
Örvænting
fasteigna-
salans
Heiða Jóhannsdóttir
Blood Simple
Spennumynd
Leikstjórn Joel Coen. Aðalhlutverk Franc-
es McDormand, John Getz, Dan Heydan,
M. Emmet Walsh. (95 mín.) Bandaríkin
1984. Háskólabíó VHS. Bönnuð innan 16
ára.
ÞESSI fyrsta mynd Coen-
bræðra var tekin í gegn í fyrra,
mynd og hljóð hreinsað upp og
klippt betur til eftir höfði höfunda.
Það þarf ekki að fara mörgum
orðum um gæði þessarar kald-
hæðnislegu rökkurmyndar. Hún
olli einfaldlega
þvílíkum straum-
hvörfum í banda-
rískri kvikmynda-
gerð að leitun er
að sambærilegu
dæmi á síðustu
tveimur áratug-
um. Á þar ekki
einvörðungu við
áður óþekkt efnis-
tök og ferskleika sem Coen-bræð-
ur kynntu til sögunnar heldur
einnig hversu mikil áhrif hún hafði
á sjálfan iðnaðinn og þróun hans
vestanhafs. Hún átti nefnilega
stóran þátt í að gera kvikmynda-
gerðarmönnum á tímum gengdar-
lauss fjárausturs í Hollywood
grein fyrir að það væri vel hægt að
gera góða kvikmynd fyrir lítið fé
og það án aðstoðar stóru kvik-
myndaveranna.
Þessi endurútgáfa er og kær-
komin því að myndin er löngu orð-
in illfáanleg á myndbandaleigum.
Hreinsunarstarfið hefur og rennt
enn frekari stoðum undir styrk
myndarinnar og sýnir fram á að
hún á enn fullt erindi við unnendur
Coen-bræðra og góðra rökkur-
krimma. Skarphéðinn Guðmundsson
Blóði
drifin snilld
SÖNGKONA írska systkinakvartettsins The
Corrs, Andrea Corr, hafnaði gullnu tækifæri á
dögunum til þess að hasla sér völl í kvikmynda-
leik. Henni var boðið að leika aðalkvenhlut-
verkið í endurgerð á gömlu stórmyndinni hans
Davids Leans, Dr. Zhivago, hlutverkið sem
gerði Julie Christie að stjörnu á sjöunda ára-
tugnum, og var þar meira að segja tekin fram
yfir Kate Winslet.
En eftir að hafa lesið handritið hafnaði Corr
gylliboðinu kurteislega. Ástæðan er að henni
þótti ástarsenur of nærgöngular og gat ekki
hugsað sér að þurfa að fækka fötum framan við
myndavélarnar.
Corr er hins vegar ennþá æst í að fá stóra
tækifærið í kvikmyndunum. Hún hefur þegar
leikið lítil hlutverk í Evitu og The Commit-
ments og vonast til að fá að sýna að henni sé
treystandi til að fara með viðameiri hlutverk,
hlutverk sem henni líður vel í, en stúlkan er
líkt og systkini hennar kaþólikki af heilum hug.
Hafnar Dr.
Zhivago vegna
nektaratriða
Hin spéhrædda
Andrea Corr
baðar út öllum
öngum.
MEL C er orðin forfall-
inn níðþungarokksunn-
andi og segist ætla að
leita þangað að inn-
blæstri fyrir sína aðra
sólóskífu.
Síðan fyrsta platan,
Northern Star, kom út
hefur stúlkan fallið kylli-
flöt fyrir níðþungarokk-
sveitum á borð við Papa
Roach, Alien Ant og
Linkin Park og mun taka
sér þær til fyrirmyndar í
framtíðinni. „Ég er hel-
tekin af öflugum gít-
arhljómum þessa stund-
ina þannig að plata
númer tvö mun rokka.“
Mel C rokkar rokk
Húðflúrið er komið svo
að rokkið ætti að fylgja
af sjálfu sér.
Reuters