Morgunblaðið - 30.10.2001, Blaðsíða 2
FRÉTTIR
2 ÞRIÐJUDAGUR 30. OKTÓBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.isÆtlar að verða kóngur
á Old Trafford/B5
Ragnar hættur að
þjálfa Haukakonur/B1
12 SÍÐUR48 SÍÐUR
Sérblöð í dag
Á ÞRIÐJUDÖGUM
FJÖLSKIPAÐUR dómur Héraðsdóms Reykjavík-
ur dæmdi í gær Þórunni Sigurveigu Aðalsteins-
dóttur, 67 ára, í tveggja ára fangelsi fyrir að beita
skipulögðum blekkingum til að fá sjö karlmenn til
að lána sér tæpar 30 milljónir króna á árunum 1992
til 2000. Að auki var ákærða sakfelld fyrir misneyt-
ingu með því að hafa fengið enn einn karlmann til
að lána syni hennar hálfa aðra milljón króna og til
að veðsetja íbúð sína til tryggingar 1,2 milljóna
króna veðskuldabréfi sem sonur ákærðu var skuld-
ari á. Ákærða var hinsvegar sýknuð af ákæru fyrir
að hafa notað sér félagsleg og andleg bágindi síð-
asttalda mannsins til að afla sér rúmra 23 milljóna
króna sem var endurgjald sem hún áskildi sér fyrir
heimilisaðstoð hjá honum.
Ákærða var dæmd til að greiða fjórum mann-
anna rúmar 3 milljónir í skaðabætur, en bótakröf-
um hinna fjögurra, um 52 milljónum króna, var vís-
að frá dómi. Ákæru á hendur syni ákærðu var vísað
frá dómi en hann var ákærður fyrir aðild að fjár-
svikunum og fyrir að hagnýta sér hluta fjárins.
Hafði samband við
mennina símleiðis
Í dómi héraðsdóms kemur fram að ákærða hafði
samband við mennina að fyrra bragði símleiðis og
blekkti þá til að lána sér peninga. Er það niðurstaða
dómsins að hún hafi stundað fjársvikin óslitið í
mörg ár og mikið fjártjón orðið af brotum hennar
sem væri virt til refsihækkunar. Segir ennfremur
að ákærða hafi beitt „ótrúlegum ósannindum gagn-
vart einstökum karlmannanna, eins og þeim að
segja börn sín alvarlega veik og jafnvel að þau væru
látin“. Taldi dómurinn þetta til merkis um styrkan
og einbeittan brotavilja ákærðu, sem einnig væri
virt henni til þyngingar við ákvörðun refsingar.
Dómur héraðsdóms var skipaður Guðjóni St.
Marteinssyni dómsformanni, og héraðsdómurun-
um Gretu Baldursdóttur og Hirti O. Aðalsteins-
syni.
Verjandi ákærðu var Örn Clausen hrl. og verj-
andi meðákærða var Sveinn Andri Sveinsson hrl.
Af hálfu efnahagsbrotadeildar ríkislögreglu-
stjóra sótti málið Helgi Magnús Gunnarsson
fulltrúi.
67 ára kona dæmd í 2 ára fangelsi fyrir að blekkja milljónatugi út úr karlmönnum
Ákærða talin hafa beitt
ótrúlegum ósannindum HÉRAÐSDÓMUR Reykjavík-
ur hefur dæmt þrjá karlmenn
fyrir innflutning á tæplega einu
kílói af hassi.
Mennirnir sammæltust um
innflutninginn en efnið keyptu
þeir í Kaupmannahöfn og
sendu til Íslands í pósti. Toll-
verðir fundu efnið í póstsend-
ingu 28. nóvember sl.
Tveir mannanna hlutu
þriggja mánaða fangelsisvist
en sá þriðji var dæmdur í fimm
mánaða fangelsi en hann hafði
fyrr á árinu verið handtekinn
með nokkurt magn af kókaíni
og amfetamíni.
Þrír dæmd-
ir fyrir
innflutn-
ing á hassi
TUTTUGU og fimm
ára karlmaður, Ásbjörn
Leví Grétarsson, hefur
við yfirheyrslur hjá lög-
reglunni í Reykjavík
játað að hafa orðið
manni að bana í íbúð við
Bakkasel í Breiðholti
aðfaranótt sunnudags.
Hinn látni hét Finn-
bogi Sigurbjörnsson,
fæddur 22. september
1957, til heimilis á Lind-
argötu 58 í Reykjavík.
Hann var ókvæntur og
barnlaus.
Héraðsdómur
Reykjavíkur hefur úr-
skurðað Ásbjörn Leví í
gæsluvarðhald til 16.
nóvember nk.
Að sögn lögreglunn-
ar í Reykjavík hitti
hann Finnboga á veit-
ingastað í miðborg
Reykjavíkur á laugar-
dagskvöld. Þeir fóru
saman á heimili hans í
Bakkaseli þar sem
hann leigir herbergi í
kjallara raðhúss. Þar
kom til átaka sem lauk
með því að hann lagði til
Finnboga með hnífi.
Samkvæmt upplýs-
ingum frá lögreglu bar
hann Finnboga yfir í garð skammt frá
þar sem hann fannst látinn. Nokkur
stungusár fundust á líkinu, á hálsi og
víðar, en niðurstöður krufningar
liggja ekki fyrir.
Lögregla fékk tilkynningu um há-
reysti við húsið aðfaranótt laugar-
dags. Lögregla sá blóðbletti fyrir ut-
an húsið og merki um átök. Ásbjörn
Leví var handtekinn skömmu síðar
og við húsleit fann lögreglan hníf sem
talinn er hafa verið notaður við
verknaðinn. Ásbjörn var nokkuð ölv-
aður þegar hann var handtekinn en
við yfirheyrslur á laugardag játaði
hann á sig morðið. Ekkert bendir til
þess að fleiri hafi verið viðriðnir
verknaðinn, að sögn lögreglu.
25 ára karlmaður úrskurðaður í þriggja vikna gæsluvarðhald
Játaði að hafa orðið
manni að bana í íbúðinni
Finnbogi
Sigurbjörnsson
VERSLUNARFÓLK í Kringlunni
er komið í jólaskap og verið er að
setja upp jólaljós, kransa og annað
skraut sem tilheyrir hátíð ljóss og
friðar í verslunarmiðstöðinni.
Ívar Sigurjónsson, markaðsstjóri
Kringlunnar, segir að skreyting-
arnar séu tveimur vikum fyrr á
ferðinni þetta árið en hingað til
hefur tíðkast. Skreytingar inni í
verslunum bíða þó enn um sinn.
Ívar segir ástæðuna fyrir því að
snemma er skreytt í Kringlunni í
ár vera þá að mönnum þar á bæ
hafi þótt tilefni til að létta mönn-
um skammdegið í fyrra fallinu
með ljósum og ilmandi grenigrein-
um jafnt innandyra sem utan. Jóla-
lögin fara þó ekki að hljóma fyrr
en 1. desember og jólasveinarnir
halda sig í fjöllunum þar til í jóla-
mánuðinum.
Morgunblaðið/Ásdís
Helgi Sigurbjartsson var í óðaönn að hengja upp jólaskraut í Kringlunni í gær.
Jólaskrautið
snemma á
ferðinni í ár
SLÖKKVILIÐI Akureyrar barst
beiðni um hjálp vegna manns sem
hafði farið úr hnjálið uppi í Bröndu-
gili í Djúpadal í Eyjafjarðarsveit á
sjötta tímanum í gær. Maðurinn
var að leita að kind sem sést hafði
til í gilinu er slysið átti sér stað.
Eiginkona mannsins var með hon-
um og hringdi í Neyðarlínuna sem
hafði síðan samband við slökkvilið-
ið.
Fjórir sjúkraflutningamenn og
læknir voru komnir á slysstað með
sjúkrabíl um klukkustund síðar.
Jón Knútsen, varðstjóri hjá
Slökkviliði Akureyrar, segir að að-
stæður hafi verið mjög erfiðar á
slysstað, mikið stórgrýti sé í gilinu,
en slysið varð töluvert hátt uppi í
gilinu.
Fleiri björgunarmenn
kallaðir til aðstoðar
Kalla þurfti fleiri til aðstoðar og
komu sjö menn frá Björgunarsveit-
inni Dalbjörgu í Eyjafjarðarsveit á
vettvang og hjálpuðu til við að
koma manninum niður úr gilinu.
Var hann fluttur á slysadeild
Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri
til frekari aðhlynningar. Var líðan
hans eftir atvikum góð.
Slasaðist
í fjárleitum
Erfiðar aðstæður á slysstað
ÖKUMAÐUR bíls sem ekið
var í suðurátt á Vesturlands-
vegi er talinn hafa sofnað und-
ir stýri skammt frá Grund-
artanga síðdegis á sunnudag.
Bifreið hans fór yfir á rang-
an vegarhelming og skall á
annarri bifreið sem kom úr
gagnstæðri átt.
Alls voru sex manns í bíl-
unum. Þremur var ekið til
Akraness til aðhlynningar en
meiðsli þeirra voru ekki alvar-
leg. Bílarnir voru óökufærir
og eru jafnvel taldir ónýtir.
Dráttarbílar drógu þá af vett-
vangi.
Talinn
hafa sofn-
að undir
stýri