Morgunblaðið - 30.10.2001, Síða 6
FRÉTTIR
6 ÞRIÐJUDAGUR 30. OKTÓBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
ALÞJÓÐLEGT samstarf í barátt-
unni gegn hryðjuverkum, sam-
skipti Íslands og Kína í menningar-
málum og á sviði viðskipta voru
einkum til umræðu á fundi Hall-
dórs Ásgrímssonar utanrík-
isráðherra og Zhu Rongji, for-
sætisráðherra Kína, á þriðja degi
opinberrar heimsóknar utanrík-
isráðherra til Kína í gær. Halldór
hitti einnig Tang Jiaxuan utanrík-
isráðherra og Wu Yi, fulltrúa í rík-
isráði Kína, að máli í gær.
Utanríkisráðherra Íslands og
forsætisráðherra Kína voru sam-
mála um mikilvægi þess að þjóðir
heims stæðu saman í baráttunni
gegn alþjóðlegri hryðjuverka-
starfsemi og um lykilhlutverk
Sameinuðu þjóðanna í þeirri bar-
áttu og við uppbyggingar- og end-
urreisnarstarf í Afganistan. Utan-
ríkisráðherra fjallaði um áherslur
Íslands varðandi umbætur á starf-
semi öryggisráðs Sameinuðu þjóð-
anna og aðild fastafulltrúa Íslands
að því starfi. Forsætisráðherra
Kína sagði að þótt Kínverjar hefðu
komist vel frá efnahagskreppunni í
Asíu árið 1997 væri hagkerfi Kína
nú opnara en áður og því viðkvæm-
ara fyrir efnahagssveiflum í öðrum
heimshlutum. Forsætisráðherra
Kína vonaðist jafnframt til þess að
neikvæð áhrif hryðjuverkanna í
Bandaríkjunum yrðu sem minnst.
„Ég sagði forsætisráðherranum
frá mikilvægustu málum Íslend-
inga, sem eru auðlindamálin á sviði
sjávarútvegs, jarðhita og vatns-
orku,“ sagði Halldór við Morg-
unblaðið í gærkvöldi.
Rætt um eflingu stofnana
Sameinuðu þjóðanna
Fundur Halldórs Ásgrímssonar
með starfsbróður sínum Tang
Jiaxuan stóð í rúmlega níutíu mín-
útur og sagði Halldór hann hafa
verið afar gagnlegan. Auk efna-
hags- og viðskiptasamvinnu ræddu
ráðherrarnir mannréttindamál, ör-
yggissamstarf og málefni Taívan.
Efling stofnana Sameinuðu þjóð-
anna var báðum ofarlega í huga og
greindi utanríkisráðherra frá fyr-
irhuguðu framboði af Íslands hálfu
til setu í öryggisráði Sameinuðu
þjóðanna 2009–2010 og til Alþjóða-
heilbrigðisstofnunarinnar árið
2003–2004. Ennfremur áréttaði ut-
anríkisráðherra áhyggjur Íslend-
inga af röskun jafnvægis í lífríki
sjávar sem orsakast af vexti hvala-
stofna.
„Við skiptumst á skoðunum
varðandi mannréttindamál. Ég
lýsti okkar skoðunum á þeim mál-
um og fór yfir stöðu þeirra í Evr-
ópu og með hvaða hætti Evr-
ópuráðið hefði haft þar áhrif,
meðal annars með afnámi dauða-
refsingar, og spurðist fyrir um það
hvort breytinga væri að vænta í
þeim efnum í Kína. Ráðherrann fór
ítarlega yfir þessi mál og lýsti sjón-
armiðum kínverskra stjórnvalda
og sagði það ekki stefnu stjórn-
arinnar að afnema slíkar refs-
ingar, enda væri ekki alþjóðleg
samstaða um slíkt. Hann sagðist þó
telja að aftökum muni fækka á
næstu árum,“ sagði Halldór enn-
fremur og bætti við að kínverski
utanríkisráðherrann hefði sér-
staklega nefnt það þróttmikla starf
sem Íslendingar sinntu á al-
þjóðavettvangi.
Á fundi utanríkisráðherra með
frú Wu Yi, fulltrúa í kínverska rík-
isráðinu, voru ört vaxandi sam-
skipti Íslands og Kína efst á baugi
og lýstu þau gagnkvæmum áhuga
á því að efla viðskipta- og efna-
hagssamstarf þjóðanna enn frekar.
Halldór Ásgrímsson lýsti yfir
áhuga Íslendinga á því að hraða
tollalækkunum á sjávarafurðum í
tengslum við inngöngu Kínverja í
alþjóðaviðskiptastofnunina (WTO).
Slíkt gæti orðið grundvöllur að
auknum útflutningi sjávarafurða
frá Íslandi til Kína. Enn fremur
kom fram áhugi á því efla samstarf
þjóðanna á sviði jarðhitanýtingar
en Wu Yi kynnti sér þau mál sér-
staklega í opinberri heimsókn
sinni til Íslands í september í fyrra.
Heimsókn utanríkisráðherra til
Kína hófst á laugardag með form-
legri opnun íslenskrar mat-
vælakynningar, Icelandic Food
Festival, á SAS Radisson hótelinu í
Peking. Matvælakynningin er sam-
starfsverkefni Viðskiptaþjónustu
utanríkisráðuneytisins, Útflutn-
ingsráðs Íslands og kínversk-
íslenska verslunarráðsins. Tíu ís-
lensk fyrirtæki taka þátt í kynn-
ingunni.
Á sunnudag skoðuðu Halldór og
eiginkona hans, Sigurjóna Sigurð-
ardóttir, Kínamúrinn og kynntu
sér starfsemi kínverskra sam-
starfsaðila íslenska orkufyrirtæk-
isins Enex hf. Þá var utanrík-
isráðherra viðstaddur opnun
íslenskrar kvikmyndahátíðar í
Peking en þar verða á næstu dög-
um sýndar sjö íslenskar kvikmynd-
ir.
Á morgun, þriðjudag, 30. októ-
ber, heldur utanríkisráðherra til
borgarinnar Qingdao. Þar mun
hann ávarpa ráðstefnu um sjáv-
arútvegsmál, „Forum on Sustai-
nable Development of Fisheries“
og heimsækja alþjóðlegu sjáv-
arútvegssýninguna „China Fisher-
ies and Seafood Expo 2001“ og
kynna sér þátttöku íslenskra fyr-
irtækja á sýningunni.
Á miðvikudag hefst opinber
heimsókn utanríkisráðherra til
Rússlands og mun hann m.a. hitta
Igor Ivanov, utanríkisráðherra, að
máli í Moskvu sem og Kasayanov
forsætisráðherra.
Opinber heimsókn Halldórs Ásgrímssonar utanríkisráðherra til Kína
Átti fund með Zhu
Rongji forsætisráðherra
Morgunblaðið/Lárus Karl Ingason
Utanríkisráðherrahjónin Halldór Ásgrímsson og Sigurjóna Sigurðardóttir skoðuðu Kínamúrinn á sunnudag í
mjög fallegu veðri. Með þeim í för var Ólafur Egilsson, sendiherra Íslands í Kína.
Fundur Zhu Rongji, forsætisráðherra Kína, og Halldórs Ásgrímssonar.
EIGENDUR íbúðarinnar í Klukku-
rima sem skemmdist mikið í elds-
voða í síðustu viku voru ekki með
innbústryggingu. Íbúðin er í fjór-
býlishúsi og er aðeins ein íbúð í hús-
inu með slíka tryggingu.
Halldór Eyjólfsson, forstöðumað-
ur tjónasviðs hjá Sjóvá-Almennum
segir innbústryggingu meðal annars
bæta tjón af völdum bruna og einnig
reykskemmda vegna bruna í nær-
liggjandi íbúðum. „Ef eldur kemur
upp í íbúð og reykskemmdir verða á
annarri íbúð en eldurinn kemur upp
í, þá tekur innbústrygging eða fjöl-
skyldutrygging þeirrar íbúðar á
þeim reykskemmdum sem kunna að
verða,“ segir Halldór.
Reykur fór um allt húsið í Klukku-
rima, aðallega í sameign en einnig
urðu minniháttar skemmdir í öðrum
íbúðum vegna reyksins.
Trygging, sem öllum húseigend-
um er skylt að hafa, bætir tjón á fast-
eigninni sjálfri og föstum innrétting-
um, en ekki á innbúinu, en verðmæti
þess getur hlaupið á mörgum millj-
ónum króna.
Innbústrygging tekur á þjófnaði
og skemmdum á innbúi og er í senn
ferða-, farangurs-, ábyrgðar- og
slysatrygging. Halldór segir að inn-
bústrygging sem taki á öllum þess-
um atriðum kosti um 2000 krónur á
ári fyrir hverja milljón sem tryggð
er. „Nauðsynlegt er að endurmeta
verðmæti innbús reglulega,“ segir
Halldór. „Því miður koma oft upp
mál þar sem innbú er tryggt fyrir
mun minna en það er vert og fólk fær
því ekki bætur í samræmi við það
tjón sem verður. Það er því mikil-
vægt að hafa vátryggingarupphæð-
ina rétta.“
Halldór segist því ráðleggja öllum
að endurskoða trygginguna á nokkra
ára fresti, en tryggingafélögin geta
aðstoðað við mat á innbúi, t.d. með
leiðbeinandi upplýsingum fyrir mat
á fatnaði og fleiru.
Jólin nálgast
„Brunar aukast verulega á tíma-
bilinu nóvember til janúar ár hvert,“
segir Halldór. „Nú þegar jólin nálg-
ast með tilheyrandi ljósadýrð fer sá
tími í hönd sem hvað mest hætta er á
bruna.“ Halldór hvetur fólk eindreg-
ið til þess að aðgæta hvort kerta-
skreytingar séu eldfimar. „Yfirleitt
verða brunar vegna þess að kerti
brennur hægt og lítið sést í logann
og það einfaldlega gleymist að
slökkva á því. Gleymið ekki opnum
eldi og athugið vel hvar kertum er
stillt upp.“
Íbúðin í Grafarvogi sem stórskemmdist í eldsvoða
Innbú ekki tryggt
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Íbúðin í Klukkurima, þar sem eldur kom upp, er mikið skemmd.
TÖLUVERÐA hálku gerði á
Hellisheiði og víðar á vegum á
Suðurlandi í gær og urðu allmörg
umferðaróhöpp sem rekja má til
hennar.
Fyrsta óhappið var tilkynnt
klukkan 7.24. Í Kömbunum hafði
ökumaður jeppa misst stjórn á bíl
sínum sem snerist og rann yfir á
rangan vegarhelming og í veg fyr-
ir fólksbíl. Enginn meiddist í
árekstrinum en fólksbíllinn var
fluttur á brott með kranabíl.
Um tuttugu mínútum síðar var
tilkynnt um að ung stúlka hefði
velt bíl sínum út af Þorlákshafn-
arvegi. Vegfarandi ók henni á
heilsugæslustöðina á Selfossi en
hún var jafnvel talin handleggs-
brotin.
Um klukkan hálf níu valt bíll út
af veginum um Hellisheiði. Ekki
urðu meiðsli á fólki en bíllinn var
dreginn á brott.
Nokkru síðar rann bíll til í
Kömbunum og út af veginum en
stöðvaðist á vegriði.
Lögreglan á Selfossi minnir
ökumenn á að þegar sól hefur
brætt mestu hálkuna geta enn
leynst hálkublettir þar sem bygg-
ingar eða hólar skyggja á veginn.
Í fyrrinótt var brotist inn í þrjá
báta í smábátahöfninni í Þorláks-
höfn. Engu var stolið en skemmdir
unnar á tækjabúnaði. Þá var brot-
ist inn í tvo bíla sem stóðu á Herj-
ólfsbryggju í Þorlákshöfn.
Fjögur um-
ferðarslys
sem rekja
má til hálku
HÉRAÐSDÓMUR Vestfjarða hef-
ur dæmt tæplega tvítugan pilt til að
greiða 140.000 krónur í sekt fyrir
brot gegn lögum um fíkniefni og
fyrir umferðarlagabrot. Jafnframt
var brauðhnífur sem hann notaði til
að skera hass gerður upptækur
ásamt tæplega 35 grömmum af
hassi og 9.000 krónum sem hann
fékk fyrir að selja öðrum manni
hass.
Í dómnum kemur fram að pilt-
urinn er talinn hafa hætt neyslu
fíkniefna og farið í meðferð til að
hemja fíknina. Hann hafi stundað
vinnu og leggi nú stund á iðnnám.
Þá hafi hann verið samvinnufús við
lögreglu. Erlingi Sigtryggssyni
dómstjóra þótti refsing hans því
hæfileg 140.000 króna sekt. Greiði
hann ekki sektina þarf hann að
sæta fangelsi í 24 daga.
Brauðhníf-
ur gerður
upptækur
♦ ♦ ♦