Morgunblaðið - 30.10.2001, Side 17
SUÐURNES
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. OKTÓBER 2001 17
AÐALFUNDUR sveitarfélaga á
Suðurnesjum, sem haldinn var föstu-
dag og laugardag í Reykjanesbæ,
samþykkti að skora á stjórnvöld að
banna olíuflutninga um Grindavíkur-
veg vegna þeirra ógnar sem vatns-
bólum Suðurnesja stafar af olíuflutn-
ingum á landi. Ályktunin var lögð
fram í kjölfar erindis sem Magnús H.
Guðjónsson, framkvæmdastjóri
Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja, flutti
á aðalfundinum, en þar kom fram að
stærsta vandamál Reyknesinga í
umhverfismálum væri veruleg hætta
á grunnvatnsmengun, sér í lagi ef ol-
ía myndi leka niður í jörðina nálægt
vatnsbólum á Svartsengissvæðinu.
Það ætti jafnframt við um vatnsból
Vogamanna.
Umhverfismál voru ofarlega á
baugi á aðalfundinum. Stefán Gísla-
son, verkefnisstjóri Staðardagskrár
21, kynnti verkefnið hér á landi og
Kjartan Már Kjartansson, formaður
stýrihóps Staðardagskrár 21, fjallaði
um verkefni í Reykjanesbæ. Sagði
Kjartan verkefnið hafa tekist vel, þó
þau viðhorf hefðu komið fram að
verkefnið væri dýrt og því fylgdi
óþarfa „vesen“ og vandræði. Krist-
ján Pálsson alþingismaður varpaði
þeirri spurningu fram hvort menn
væru hugsanlega komnir fram úr
sjálfum sér í Staðardagskrá 21 þar
sem grænt bókhald og umhverfismál
væru hvort sem er á dagskrá sveitar-
félaga, samkvæmt lögum, og því
gæti verkefnið orðið að óþarfa bákni
hjá sveitarstjórnum. Taldi Kristján
rétt að beina átakinu meira að skól-
um og heimilum.
Stefán Gíslason sagði Staðardag-
skrá 21 alls ekki bákn heldur væri
verkefninu þvert á móti ætlað að
samræma aðgerðir sem í gangi væru
í umhverfismálum hjá sveitarfélög-
um. Kjartan Már benti á að þegar
væri hafin vinna við að innleiða verk-
efnið í skóla bæjarins og Ólafur
Thordersen, bæjarfulltrúi Reykja-
nesbæjar, sagði að staða verkefnis-
ins væri góð hjá leikskólum bæjarins
og reyndar til fyrirmyndar.
Of stórt mál fyrir
Heilbrigðiseftirlit Suðurnesja
Magnús H. Guðjónsson, fram-
kvæmdastjóri HES, fór yfir um-
hverfismál sveitarfélaganna á Suð-
urnesjum. Í erindinu kom fram að
hætta á grunnvatnsmengun væri
mikil, sérstaklega varðandi stærsta
vatnsbólið í kringum Svartsengis-
svæðið og vatnsból Voga. Að sögn
Magnúsar yrði afar erfitt viðureign-
ar að ráða við mengun sem hlytist af
t.d. ef olíubíll færi á hliðina á ákveðn-
um kafla á Grindavíkurvegi og olían
læki ofan í hraunin og mengaði vatn-
ið. Mjög erfitt væri að hefta út-
breiðslu olíunnar og ná henni aftur
upp vegna aðstæðna í hrauninu.
„Þetta er okkar höfuðverkur og ég
held að allir geri sér ekki grein fyrir
þessu,“ sagði Magnús.
Hann sagði að þetta væri of stórt
mál fyrir heilbrigðiseftirlitið og
stjórnvöld yrðu að koma að málinu. Í
umræðum eftir erindið sagðist
Magnús tvímælalaust telja að banna
ætti olíuflutninga á Grindavíkurvegi
með lagasetningu til að koma í veg
fyrir hugsanlegt mengunarslys, sem
gæti haft afdrifaríkar afleiðingar
fyrir vatnsból Suðurnesjamanna.
Hörður Guðbrandsson, bæjar-
fulltrúi í Grindavík, lagði til að aðal-
fundur SSS samþykkti ályktun þar
sem skorað væri á að þar til bær
stjórnvöld bönnuðu olíuflutninga um
Grindavíkurveg, enda væri nú unnt
að koma olíunni á áfangastað sjóleið-
is eftir hafnarbætur í Grindavík.
Samþykkti fundurinn ályktunina og
minnti jafnframt á þá ógn sem vatns-
bólum Suðurnesja stafaði af olíu-
flutningum landleiðina.
Villandi umræður um
mengun á Nikkelsvæðinu
Í erindi framkvæmdastjóra HES
kom einnig fram að núverandi sorp-
eyðingarstöð væri valdur að mestri
loftmengun á svæðinu og mjög brýnt
væri að taka nýja stöð í gagnið. Þá
sagði Magnús að umræðan um
mengun á Nikkelsvæðinu væri oft á
tíðum villandi og sagði að þar væri
alls ekki um hættulega mengun að
ræða. Jafnframt ætti að vera mjög
auðvelt að hreinsa svæðið og engin
ástæða til að hafa áhyggjur af hættu-
legri mengun á þessu svæði. Að-
spurður um hávaðamengun af völd-
um flugumferðar sagði Magnús of
mikinn hávaða vera af flugi í Reykja-
nesbæ og miðað við ströngustu regl-
ur mætti í raun aðeins byggja austan
við nýju Go-Kart-brautina í Reykja-
nesbæ.
Fjallað um mengunarhættu vatnsbóla Suðurnesja á aðalfundi SSS
Olíuflutningar verði bann-
aðir á Grindavíkurvegi
Ljósmynd/Páll Ketilsson
Magnús H. Guðjónsson, framkvæmdastjóri HES, flutti erindi um
umhverfismál sveitarfélaga á Suðurnesjum.
Reykjanes
PÁLL Pétursson
félagsmálaráð-
herra hélt erindi á
aðalfundi SSS á
laugardag. Þar
þakkaði hann góð-
ar móttökur sem
flóttamennirnir
fengu í Reykja-
nesbæ fyrr á
árinu og sagði
það gleðilegt hve
heimamenn hefðu alls staðar verið
jákvæðir í garð þeirra flóttamanna
sem hér hefðu fengið hæli á und-
anförnum árum. Páll sagði óhjá-
kvæmilegt að sinna málefnum út-
lendinga vel hér á landi, enda væru
þeir m.a. mikilvægt vinnuafl, en
hann hefði því miður orðið var við
vaxandi andúð eða tortryggni í garð
útlendinga hér á landi.
Þá sagðist Páll ætla að leggja
fram nokkur frumvörp sem varða
sveitarstjórnarmál á næstunni. Þar
má m.a. nefna frumvarp um breyt-
ingu á félagsþjónustulögum sem
gefa mun langveikum börnum sama
rétt og fötluðum börnum. Einnig
ætlar félagsmálaráðherra að leggja
fram frumvarp um breytingar á
lögum um sveitarstjórnarmál, þar
sem opnað verður á þann möguleika
að kosið verði í sveitarstjórnir á raf-
rænan hátt, þ.e. svokallaðar raf-
rænar kosningar.
Alvarleg mistök að veita Seðla-
bankanum svo mikið frelsi
Í ræðu sinni sagði Páll að hann
teldi það alvarleg mistök af hálfu
ríkisstjórnarinnar að veita Seðla-
bankanum svo mikið frelsi sem raun
ber vitni. Hann sagði að vaxtastigið
sem Seðlabankinn héldi uppi væri
stórhættulegt efnahagslífi þjóð-
arinnar og spurning hvort að sveit-
arfélög og atvinnulífið þyldu slíka
vexti.
„Ég tel að ríkisstjórnin hafi gert
alvarleg mistök með því að veita
Seðlabankanum þetta mikla sjálf-
stæði. Vald á helstu þáttum efna-
hagsmála verður að vera hjá kjörn-
um fulltrúum lýðræðisríkis,“ sagði
Páll.
Opnað fyrir möguleika
á rafrænni kosningu
Páll
Pétursson
NOKKUR umræða varð um lög-
gæslumál á Suðurnesjum á aðal-
fundi SSS og var á fundinum sam-
þykkt að mótmæla harðlega
fækkun stöðugilda á svæðinu. Í
ályktun fundarins segir að fyrir
ári hafi legið fyrir að lögreglan
teldi sig ekki geta sinnt eðlilegri
löggæslu á svæðinu þar sem aukið
fjármagn hefði ekki fengist frá
hinu opinbera. Þá hafi á þessum
tíma komið fram að fækkað hafi
verið um nokkur stöðugildi í lög-
reglunni á Reykjanesi.
„Aðalfundurinn mótmælir harð-
lega umræddri fækkun stöðugilda
og telur í ljósi upplýsinga um
stöðu málsins að auka þurfi fjár-
framlög til löggæslu á svæðinu
umtalsvert. Ljóst er að embættið
getur ekki með nokkru móti sinnt
löggæslumálum með þeim hætti
að sveitarfélögin á svæðinu geti
við unað. Skorað er því á dóms-
málaráðherra að taka á umræddu
máli hið fyrsta,“ segir í ályktun-
inni.
Kristján Pálsson, þingmaður
Sjálfstæðisflokks, sagði á fundin-
um að ekki væri hægt að fullyrða
um það fyrirfram að búið væri að
skera niður í löggæslumálum á
Suðurnesjum, enda hefði ekki ver-
ið sýnt fram á að svo væri. Hann
sagði samning sem gerður hefði
verið við Grindavíkurbæ um lög-
gæslu hafa tekist vel og löggæslan
þar væri í góðum málum. Þessu
mótmælti Hörður Guðbrandsson,
bæjarfulltrúi minnihlutans í
Grindavík, og sagði það af og frá
að löggæsla í Grindavík væri í góð-
um málum. Eftir að lögreglustöðin
var lögð niður sé ekki lengur um
neina grenndargæslu að ræða og
reyndir lögreglumenn hafi horfið
úr lögreglunni í Grindavík. Þá
sagði Hörður að lögreglan væri
alltaf síðust á vettvang, samkvæmt
upplýsingum frá slökkviliðinu.
Hins vegar hafi gæsla á Grinda-
víkurvegi batnað með auknu eft-
irliti og hraðamælinum, en Hörður
varpaði því framt hvort það væri
rétt áhersla þegar fíkniefnavandi
herjaði að í bæjarfélaginu.
Telja fleiri lögreglubíla
vanta á Suðurnes
Ómar Jónsson, forseti bæjar-
stjórnar Grindavíkur, sagðist lýsa
yfir stuðningi við ályktun um
aukna löggæslu og sagði ljóst að
ekki væri nóg að hafa þrjá lög-
reglubíla á svæðinu. Hann sagðist
hins vegar telja samning Grinda-
víkur um löggæslu til fyrirmyndar
og eftirbreytni fyrir önnur sveit-
arfélög og betra væri að vinna að
bættri löggæslu með slíkum samn-
ingum.
Sigurður Valur Ásbjarnarson,
bæjarstjóri Sandgerðisbæjar,
sagði Suðurnesjamenn í mjög
slæmum málum hvað löggæslu
varðaði og augljóst að fleiri bíla
vantaði á svæðið. Að sögn Sigurð-
ar sjást aðeins lögreglubílar í
Sandgerði við vaktaskipti í lög-
reglunni vegna þess að nokkrir
lögregluþjónar búi í Sandgerði.
Fækkun stöðugilda í lög-
reglunni harðlega mótmælt
RAGNAR Ingason, 19 ára Njarðvík-
ingur, var kosinn herra Suðurnes
2001 á föstudagskvöld fyrir fullu húsi
í Festi í Grindavík,
en tíu herrar
kepptu um titilinn
að þessu sinni. Í
öðru sæti varð Jón
Oddur Sigurðsson,
sem jafnframt var
kjörinn K-Sport
strákurinn og ljós-
myndafyrirsæta
herra á Suðurnesjum. Í þriðja sæti
varð Tómas Guðmundson og Jóhann
Freyr Einarsson var kjörinn vinsæl-
asti strákurinn.
Þeir sem höfnuðu í þremur efstu
sætunum fara í keppnina um Herra
Ísland 2001, auk þeirra Ingva Þórs
Hákonarsonar og Gunnars Arnar
Einarsonar sem einnig fara í sömu
keppni þetta árið, en keppnin fer
fram í Broadway 22. nóvember nk.
Ragnar
Ingason
kosinn herra
Suðurnes
Grindavík