Morgunblaðið - 30.10.2001, Blaðsíða 18
LANDIÐ
18 ÞRIÐJUDAGUR 30. OKTÓBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Skipholti 35 sími 588 1955
King
Koil
Ein mesta selda heilsudýnan í heiminum
Alþjóðasamtök Chiropractora mæla með
King Koil heilsudýnunum.
Amerískar lúxus
heilsudýnur
Tilboð!
Verðdæmi:
King áður kr. 184.350 nú kr. 136.420
Queen áður kr. 134.900 nú kr. 99.840
HAFRANNSÓKNASTOFNUN
boðaði til kynningarfundar í Dugg-
unni í Þorlákshöfn í vikunni þar sem
forstjóri stofnunarinnar, Jóhann Sig-
urjónsson, ásamt starfsmönnum sín-
um Einari Hjörleifssyni og Hrafnkeli
Eiríkssyni, fór yfir starfsemina. Vart
fer á milli mála að dregið hefur úr
þeim háværu og neikvæðu röddum
sem heyrðust í garð Hafró eftir út-
komu síðustu skýrslu og tillögur um
aflaheimildir.
Í framsöguerindunum var farið vel
í hvar skýringa er helst að leita á
skekkjum sem reynst hafa í stofn-
stærðarmælingum undanfarin ár.
Sigurður Bjarnason skipstjóri sagði
eftir að hafa hlustað á framsöguerindi
að menn væru að öðlast trú á Hafró á
ný og vildi hann þakka stofnuninni
fyrir þessa fundaherferð sem hann
taldi gagnlega. Að loknum framsög-
um voru fyrirspurnir leyfðar og urðu
þær líflegar og stóðu lengi.
Erlingur Ævarr Jónsson skipstjóri
spurði hvort það hefði ekki áhrif á
stofnstærð ef loðnuflotinn þurrkaði
upp loðnuna í kapp við hvalina. Er-
lingur sagði að stórþorskur sæist ekki
orðið á hrygningarslóð hér suðvest-
anlands enda væri hér engin loðna.
„Gildir ekki það sama með þorskinn
og mennina, ef maður fær ekkert að
éta heima þá fer maður eitthvað ann-
að?“ spurði Erlingur.
Jóhann sagðist vera sammála Er-
lingi með það að loðnan væri stór ör-
lagavaldur í fæðu þorsksins en meðan
loðnustofninn væri jafnsterkur og
hann væri í dag væri erfitt að segja að
flotinn væri of stór. „Það vantar meiri
fróðleik um samband loðnu og þorsks.
Það er spurning um orsök og afleið-
ingu, er loðnustofninn stór af því að
þorskstofninn er lítill?“
Hvað varð um netarallið?
Ármann Einarsson skipstjóri
spurði um netarall hvort það væri
ekki mikilvægt og hví því hefði verið
sleppt. Hann vildi einnig vita um áhrif
loftslagsbreytinga og hvort þorskur
sem við ekki veiddum færi ekki á
flakk og væri veiddur af öðrum eins
og t.d. Færeyingum.
Ármann vildi líka fá að vita hvað
væri raunhæf stofnstærð á næstu ár-
um og að hverju væri stefnt. Einar
Hjörleifsson sagði að ekki mætti úti-
loka flakk en þorskurinn væri heima-
kær og Færeyingar veiddu ekki það
mikið að sú veiði ruglaði dæmið. Jó-
hann sagði að netarall ætti sér ekki
langa sögu og væri því ekki stór þátt-
ur í mati á stofnstærðinni en vissulega
væri ástæða til að halda því áfram.
Hann vildi ekki gera of mikið úr hlýn-
un sjávar en vissulega vekti það já-
kvæðar vonir og ekki síður fyrir aðrar
tegundir en þorsk, t.d væri aukning á
skötusel. Þeir töldu raunhæft að
stefna að 350 þúsund tonna stofn-
stærð.
Hannes Sigurðsson útgerðarmað-
ur spurði hvort ekki væri athugandi
að sökkva einhverju dóti á botninn til
að búa til skjól, það hefði t.d. verið
reynt í USA, einnig vildi hann vita
hvað mikil áhrif það hefði ef hvalir
fengju áfram að fjölga sér óáreittir.
Jóhann sagði að ef hvalir fengju að
vera óáreittir kæmu þeir til með að
minnka sóknarmöguleika allt að 10%.
Hann taldi að vel mætti athuga með
að sökkva hlutum til botns og auka
þannig þrívíddina og skapa skjól.
Lúðvík Börkur Jónsson útgerðar-
maður spurði um fjölnotamódel. Jó-
hann sagði að þau væru ekki gömul en
lofuðu góðu og kæmu örugglega að
gagni síðar meir, því samspil fiski-
stofnanna innbyrðis og áhrif breyttra
veiðiaðferða og skipa skipti allt máli.
Sveinn Jónsson skipstjóri spurði
hvort allsherjarveiðibann kæmi til
greina svipað og gert var við Ný-
fundnaland. Einar sagði að allsherj-
arbann hefði verið sjálfgefið í Kanada
vegna hruns á stofninum en hann sæi
ekki ástæðu til þess hér enda yrði það
of mikið áfall fyrir þjóðarbúið.
Hvar er ufsinn sem
var við Suðurland?
Erlingur Ævarr spurði hvort rann-
sóknir hefðu farið fram á ufsastofn-
inum við Suðurland. „Er ufsi ekki
flökkufiskur og er hann ekki veiddur
af öðrum ef við gerum það ekki?“
spurði Erlingur. Hann spurði einnig
hve mikið af seiðum mætti vera í
rækjutonni til að veiðar væru bann-
aðar.
Hrafnkell sagði að miðað væri við
900 seiði á móti tonni af rækju og væri
þá haft í huga að rækjutonnið væri
30% verðmætara en sá fiskur sem
þessi 900 seiði gæfu af sér. Jóhann
sagði að ufsi væri vissulega flökku-
fiskur en hann væri langlífur og kæmi
á heimaslóð aftur. Einar sagði að að-
alvandamál okkar væri að flotinn
væri í heild sinni of stór. Miklar um-
ræður urðu síðan um skarkola og
sandkola en þær veiðar vega þungt í
afla og vinnslu í Þorlákshöfn. Jóhann
vildi meina að hluti vandans væri í
fiskveiðistjórnuninni en ekki í fisk-
veiðirannsóknunum.
Einnig var rætt um möskvastærð
og benti Sveinn Steinarsson skip-
stjóri á að menn yrðu að hafa tíma
fyrir sér með allar svoleiðis breyting-
ar því menn pöntuðu net og veiðar-
færi í tíma.
Loðnustofninn stór af því
að þorskstofninn er lítill?
Svo virðist sem dregið hafi úr háværri gagn-
rýni á starf Hafrannsóknastofnunar sem
fram kom í kjölfar síðustu skýrslu stofnunar-
innar um stofnstærð nytjafiska. Jón H. Sig-
urmundsson sat fund sérfræðinga og heima-
manna í Þorlákshöfn í vikunni en þar var haft
á orði að tiltrú sjómanna og útvegsmanna í
garð stofnunarinnar færi vaxandi á ný.
Þorlákshöfn
HIN nýja Borgarfjarðarbraut var
opnuð formlega á föstudaginn.
Fjöldi boðsgesta var mættur á stað-
inn til að fagna þessum áfanga í
samgöngumálum Vestlendinga.
Þarna voru m.a. Sturla Böðvarsson
samgönguráðherra, nýkjörinn for-
maður samgöngunefndar Alþingis,
Guðmundur Hallvarðsson, þing-
menn Vesturlands, vegamálastjóri,
ráðuneytisstjóri samgönguráðu-
neytisins, starfsmenn Vegagerð-
arinnar í Borgarnesi og í Reykjavík,
oddviti og sveitarstjóri Borgarfjarð-
arsveitar, nefndarmenn úr sam-
göngunefnd SSV og fulltrúar Borg-
arbyggðar, að ógleymdum
starfsmönnun og verktökum sem
byggðu hinn nýja veg og brýrnar yf-
ir Grímsá og Flóku.
Athöfnin við brúna hófst með því
að vegamálastjóri lýsti með fáum
orðum hinum nýja vegi, sem lagður
var í tveimur áföngum. Verktaki
með fyrri áfangann var Leifur Guð-
jónsson í Borgarnesi en um seinni
áfangann sá Ingileifur Jónsson frá
Svínavatni. Þá gat vegamálastjóri
hinnar hatrömmu deilu sem varð um
val á veglínu hins nýja vegar – en
hann hafði aldrei upplifað slíka
hörku í vegamálum eins og raunin
varð í uppsveitum Borgarfjarðar.
Um leið og hann afhenti sam-
gönguráðherra mannvirkið, vonaðist
hann til að allir sættust á þá nið-
urstöðu sem nú væri orðin. Sturla
Böðvarsson þakkaði Vegagerðinni
og verktökum fyrir glæsilegan veg
og vel gerðar brýr. Mundaði síðan
skærin og með aðstoð vega-
málastjóra klippti hann á silkiborða
sem strengdur var yfir brúna. Um
leið lýsti hann yfir að vegurinn væri
nú formlega opinn fyrir allri umferð.
Að lokinni athöfninni á Grímsár-
brú var boðið til samsætis á Hótel
Reykholti. Vegamálastjóri tilnefndi
Ríkharð Brynjólfsson, oddvita
Borgarfjarðarsveitar, sem veislu-
stjóra. Samgönguráðherra, Sturla
Böðvarsson, tók fyrstur til máls og
lýsti mikilli ánægju með verklok
þessa nýja vegar og tók undir þá
ósk með vegamálastjóra að vegdeil-
ur um Borgarfjarðarbraut heyrðu
nú sögunni til. Upplýsti viðstadda
um að ekki yrði staðar numið við
þessi verklok hér í Borgarfirði því
strax á næsta ári yrði haldið áfram
með veginn frá Reykholti í átt að
Húsafelli eins og gert er ráð fyrir í
samþykktri vegaáætlun.
Tvær nýjar brýr
Auk ráðherra ávörpuðu margir
samkomuna og þeirra á meðal var
umdæmisverkfræðingur Vegagerð-
arinnar í Borgarnesi, Magnús Valur
Jóhannsson. Hann sagði m.a.:
„Lengd þess vegarkafla á Borg-
arfjarðarbraut sem nú verður form-
lega opnaður er alls 20,6 km. Einnig
voru endurbyggðir kaflar á Skorra-
dalsvegi, 3,2 km og á Flókadalsvegi,
0,5 km, auk styttri tenginga, m.a.
við Bæjarsveitarveg og Hvanneyr-
arveg. Heildarlengd nýrra og end-
urbyggðra vega er um 27 km.
Byggðar voru nýjar brýr á
Grímsá og Flókadalsá. Brúin yfir
Grímsá er 88 m löng. Brúin yfir
Flókadalsá er um 68 m löng. Breidd
brúa er 7 m.
Nýbygging þessa vegar bætir
mjög allar samgöngur við uppsveitir
Borgarfjarðar. Nú er kominn góður
uppbyggður vegur með bundnu slit-
lagi sem liggur um Borgarfjörð frá
Hringvegi við Seleyri að Hringveg-
inum aftur, í Stafholtstungum. Þessi
samgöngubót mun án efa hafa já-
kvæð áhrif á atvinnulíf og búsetu-
skilyrði á svæðinu. Kaflinn milli
Andakílsár og Bæjarsveitarvegar
nr. 513 (Vatnshamraleið) styttir t.d.
leiðina um 3,5 km.
Helstu magntölur verksins:
Skeringar 20.000 m3,
Fyllingar og fláafleygar 370.000
m3 (þar af sig um 100.000 m3).
Burðarlög 170.000 m3.
Klæðning 150.000 m².
Verkið var boðið út í tveimur
áföngum. Fyrri áfanginn, frá Bæj-
arsveitarvegí að Kleppjárns-
reykjum, var boðin út í nóvember
1998 og lauk þeim áfanga í október
1999. Vegurinn var að mestu end-
urbyggður á eldra vegstæði. Síðari
áfangi verksins, frá Andakílsá að
Bæjarsveitarvegi, var boðin út í
nóvember 1999 og lauk honum nú í
október. Kaflinn, sem gekk undir
vinnuheitinu Vatnshamraleið, fór í
matsmeðferð samkvæmt lögum um
mat á umhverfisáhrifum fram-
kvæmda í mars 1999. Þar var lögð
til ný leið frá Andakílsá að Hesti
sem stytti vegalengdir um 3,5 km.
Góð sátt náðist um þessa hugmynd
og var fallist á tilhögun fram-
kvæmdar.
Lægstbjóðandi í fyrri áfanga
verksins var LG vöruflutningar
Borgarnesi og lægstbjóðandi í þann
síðari var Ingileifur Jónsson, Svína-
vatni. Samið var við lægstbjóðendur
í báðum tilvikum.
Samhliða þessum tveimur áföng-
um voru byggðar brýr á Flókadalsá
og Grímsá. Smíði á burðarvirki úr
stáli fyrir brýrnar var boðið út og
var Formaco ehf, umboðsaðili Fair-
field Mabey í Bretlandi lægstbjóð-
andi í bæði verkin. Bygging brúnna
var að öðru leyti í höndum brúa-
vinnuflokks Vegagerðarinnar. Auk
þessara aðila kom fjöldi und-
irverktaka að framkvæmdunum.
Hönnun vegarins var í höndum
áætlanadeildar Vegagerðarinnar í
Borgarnesi. Brúadeild Vegagerð-
arinnar sá um hönnun brúa. Veg-
hönnunardeild annaðist jarðvegs-
könnun og sigspár en
rannsóknadeild sá um námukönnun
og jarðvegslýsingar. Sigurbjörg Ósk
Áskelsdóttir landslagsarkitekt ann-
aðist gerð matsskýrslu vegna mats á
umhverfisáhrifum framkvæmdar á
Vatnshamraleið.
Eftirlit og umsjón með þessari
framkvæmd hefur verið í höndum
framkvæmdadeildar Vegagerð-
arinnar á Vesturlandi.“
Samsætið var síðan slitið um kl.
17 eftir að gestir höfðu gert veislu-
föngum góð skil.
Borgarfjarðar-
brautin opnuð
formlega
Morgunblaðið/Davíð Pétursson
Sturla Böðvarsson samgönguráðherra klippti á borða með aðstoð Helga Hallgrímssonar vegamálastjóra og
opnaði þar með Borgarfjarðarbraut formlega á Grímsárbrú 26. október sl.
Skorradalur