Morgunblaðið - 30.10.2001, Síða 21
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. OKTÓBER 2001 21
ÞAÐ ERU vissulegu viðsjárverðir
tímar í íslensku efnahagslífi en ekki
dugar þó að láta tal um samdrátt,
lægðir og taprekstur draga úr sér
allan kraft. Fyrirhugaðar breytingar
á skattaumhverfi fyrirtækja munu
skapa ný sóknarfæri fyrir íslensk
fyrirtæki og jafnframt leynast sókn-
arfæri fyrir íslensk fyrirtæki víðar.
Ef fyrirtækin beina sjónum sínum
inn á við má einnig koma auga á
tækifæri til þess að auka sparnað og
nýta betur fjárfestingar sem þegar
hefur verið ráðist í.
Þetta kom fram í erindi Elvars
Steins Þorkelssonar, forstjóra
Teymis, á haustþingi félagsins, sem
haldið var í fimmta sinn.
Ráðstefnan var haldin í samstarfi
við Opin kerfi og Símann og fluttu
erindi bæði innlendir og erlendir
sérfræðingar, m.a. frá Oracle,
Teymi, Hewlett-Packard, Price-
waterhouseCoopers og Símanum.
Fundinum var varpað á Netið í
beinni útsendingu og að sögn Elvars
fylgdust á bilinu 200 til 300 manns
með honum á Netinu.
Fyrirtækjunum bjóðast
nú mun öflugri lausnir
Elvar Steinn sagði að á stuttum
tíma hafi upplýsingatækninni fleygt
verulega fram og möguleikar fyrir-
tækjanna til þess að hagræða, nýta
betur fjárfestingar sínar í upplýs-
ingatækni og breyta gögnum í upp-
lýsingar hafi margfaldast á stuttum
tíma. „Hvað snertir gagnavinnslu og
Netið leynast fjölmörg sóknartæki-
færi fyrir íslensk fyrirtæki því öll
safna þau miklu magni upplýsinga
sem varða þau sjálf og viðskiptavini
þeirra. Gögnin koma þeim hins veg-
ar fæstum að miklu gagni þar sem
þau hafa ekki réttu verkfærin. Þess-
um gögnum þarf að breyta í aðgengi-
legar upplýsingar því í viðskiptaum-
hverfi samtímans er sú þekking sem
fyrirtæki búa yfir einn helsti úrslita-
valdur í samkeppni og forsenda þess
að þau geti nýtt sóknarfæri sem gef-
ast.“
Elvar Steinn sagði að nú sé auð-
veldara en nokkru sinni að gera gögn
að upplýsingum og verðmætri þekk-
ingu; fyrirtækjum standi til boða öfl-
ugri lausnapakkar en áður sem taki
á öllu er við kemur gögnum, geymslu
þeirra, meðhöndlun og úrvinnslu í
verðmætar upplýsingar. „Öll viljum
við gera vel og þar skiptir rétta
tæknin miklu máli. En það er ekki
nóg að hafa getuna og viljann, menn
verða að láta verkin tala.“
Frá gögnum í verð-
mætar upplýsingar
Haustþing Teymis í samstarfi við Opin kerfi og Símann um upplýsingatækni og viðskipti
TAP Ericsson á þriðja fjórð-
ungi ársins nam liðlega 56 millj-
örðum íslenskra króna en á
sama tímabili í fyrra skilaði fé-
lagið hagnaði upp á tæpa 40
milljarða króna. Sérfræðingar
höfðu gert ráð fyrir heldur
minna tapi en áður en uppgjör-
ið var birt voru sögusagnir á
kreiki um að tapið kynni að
verða enn meira en sérfræðing-
ar höfðu spáð og hækkaði gengi
bréfa félagsins um 8,6% í kaup-
höllinni í Stokkhólmi í kjölfar
birtingar uppgjörsins.
Forstjóri Ericsson, Kurt
Hellström, sagðist alls ekki
vera sáttur við afkomuna, ekki
síst í ljósi þess að engin teikn
virðast vera á lofti um að mark-
aðurinn fyrir farsíma sé að lifna
við aftur en um 80% af veltu
Ericsson eru af sölu farsíma.
Sala Ericsson á farsímum hélt
áfram að dragast saman á
þriðja ársfjórðungi en vegna
meiri stöðugleika í verði var
samdrátturinn ekki eins mikill í
krónum talið.
Ericsson hafði stefnt að birt-
ingu uppgjörsins snemma á
föstudaginn en félagið ákvað að
birta það á fimmtudagskvöldið
þar sem tölur úr uppgjörinu
höfðu þá þegar lekið út og á fé-
lagið yfir höfði sér tugmilljóna
króna sektir vegna þessa að því
er segir í Aftenposten.
Tap
Ericsson
56 millj-
arðar
ÚTFLUTNINGSRÁÐ, Euro Info-
skrifstofan á Íslandi og fram-
kvæmdastjórn ESB boða til ráð-
stefnu um málefni evrunnar í tilefni
af upptöku gjaldmiðilsins um ára-
mót. Ráðstefnan verður haldin mið-
vikudaginn 31. október kl. 9–12, í
Skála á Hótel Sögu. Samskonar ráð-
stefnur eru haldnar í öllum aðildar-
ríkjum ESB ásamt nánustu sam-
starfsríkjum þess. Á ráðstefnunni
hér á landi verður spurt hvort upp-
taka evrunnar í 12 aðildarríkunum
ESB hafi áhrif á Íslandi.
Dagskráin verður undir stjórn
Pálls Sigurjónssonar. Ávörp flytja:
Valgerður Sverrisdóttir, Herve
Carre, Birgir Ísleifur Gunnarsson,
Olaf Sleijpen, Baldur Guðlaugsson,
Þorsteinn Þorgeirsson og Gerhard
Sabathil, sendiherra fastanefndar.
Boðið verður upp á léttar veiting-
ar í ráðstefnulok. Ráðstefnan er
ókeypis og öllum opin. Þátttöku þarf
að tilkynna til Útflutningsráðs í
tölvupósti á; mottaka@utflutnings-
rad.is
Hefur
evran áhrif
á Íslandi?