Morgunblaðið - 30.10.2001, Side 22
NEYTENDUR
22 ÞRIÐJUDAGUR 30. OKTÓBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Psyllium Husk Caps
FRÁ
Fyrir meltinguna,
með GMP gæðaöryggi
H
á
g
æ
ð
a
fra
m
le
ið
sla
Apótekin
FRÍHÖFNIN
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
KANADÍSKA fiskvinnslufyrirtækið
Fishery Products International á
Nýfundnalandi festi nýlega kaup á
keppinautnum Clearwater Fine
Foods á Nova Scotia. Með því varð til
langstærsta sjávarútvegsfyrirtæki
Kanada, en Sölumiðstöð hraðfrysti-
húsanna á 15% í FPI. Þetta gerðist
eftir töluverð átök um yfirráðin í FPI,
sem stjórnendur Clearwater stóðu
meðal annars að ásamt SH. Fjand-
samleg yfirtaka þessara aðila, og
fleiri, tókst ekki en síðan náðu þeir yf-
irhöndinni með kaupum á hlutabréf-
um í FPI, steyptu stjórnni og réðu
nýja stjórnendur.
„Við höfum kynnt samning um að
við höfum keypt Clearwater og erum
mjög ánægðir með þann áfanga,“
segir hinn nýi framkvæmdastjóri
FPI, Derrick Rowe, í samtali við
Morgunblaðið.
Veltan 65 milljarðar króna
„Hann er hluti af markmiðum okk-
ar sem eru að auka viðskiptin og við
vonum að þessi viðskpti séu þau
fyrstu af mörgum, sem við munum
kynna á einu eða tveimur næstu ár-
um.
FPI er fyrir vikið langstærsta sjáv-
arútvegsfyrirtæki Kanada og veltan
á ári verður ríflega 65 milljarðar
króna. Við gerum ráð fyrir að kaupin
á Clearwater færi okkur hagnað að
upphæð 4,9 milljarðar króna fyrir
fjármagnsliði og skatta og að við-
bættum áætluðum tekjum FPI verð-
ur hagnaðurinn ríflega 6,5 milljarðar
króna.
Nú er framundan hjá okkur að
kynna samrunann, meðal annars fyr-
ir Samkeppnisstofnun Kanada. Við
höfum einnig skipað sérstaka óháða
nefnd til að yfirfara samrunann, en
hún leggur síðan niðurstöður sínar
fyrir hluthafa og vonandi mun hún
mæla með samrunanum. Fari svo
verður samruninn lagður fyrir hlut-
hafafund í febrúar á næsta ári og tek-
ur hann þá afstöðu til samrunans. Á
þeim fundi hefur Clearwater ekki
leyft að greiða atkvæði, en hlutur
þeirra í FPI er 14%. Tveir aðrir
stærstu hluthafarnir eru Sölumiðstöð
hraðfrystihúsanna og Sanford Sea-
food á Nýja-Sjálandi, bæði fyrirtækin
með um 15%. Samtök framleiðenda á
frystum fiski á Nýfundnalandi eiga
um 10% og um 35% eru í eigu fjár-
málastofnana, sem að mestu leyti eru
í Kanada. Við vonum hið bezta enda
teljum við okkur hafa meirihluta-
stuðning við kaupin á Clearwater og
tel SH vera í þeim hópi.“
Í hverju felst starfsemin nú?
„Starfsemi FPI hefur í raun verið
skipt upp í tvo meginþætti. Annars
vegar eru fiskveiðar okkar og Clear-
water, sem eru að langmestu leyti
stundaðar við strendur Kanada, en
með Clearwater kemur einnig leyfi til
veiða á hörpudiski við Argentínu.
Hins vegar er svo fiskvinnsla okkar í
Kanada og Bandaríkjunum og alþjóð-
leg viðskipti með fisk, bæði kaup og
sala.
Töluverð tækifæri
Við teljum að það séu töluverð
tækifæri í sjávarútvegi, bæði veiðum
og vinnslu, til að byggja upp verulega
stórt fyrirtæki. Fyrirtæki sem hefur
meiri aðgang að hráefni og við
stefnum einnig að því að fjárfesta í
öðrum sjávarútvegsfyrirtækjum og
stofna til samvinnu við þau til að afla
okkur meira hráefnis og geta þannig
aukið umsvif okkar á mörkuðunum.
Flestir í þessum atvinnuvegi eru á
því að samrunar og hagræðing sé
nauðsynleg í sjávarútveginum til
þess að fiskvinnslan geti orðið arð-
bær keppinautur þeirra sem fram-
leiða önnur matvæli, eins og kjöt af
fuglum, svínum og nautgripum. Við
teljum okkur eiga þarna góða mögu-
leika og ætlum okkur að nýta þá til
hins ítrasta.
Svo virðist sem búast megi við
nokkuð stöðugu framboði af botn-
fiski. Þrátt fyrir að Atlantshafsþorsk-
urinn eigi nú undir högg að sækja,
gengur betur með aðrar tegundir, svo
útlitið er bara nokkuð gott. Við þurf-
um að standa okkur í markaðssetn-
ingunni og baráttunni um peninga
neytendanna og fá nógu hátt verð
fyrir afurðir okkar. Fiskurinn okkar
er að langmestu leyti úr veiðum og af-
urðirnar því afar náttúrulegar og
hollar. Því þarf að leggja áherzlu á
mikil gæði og hátt verð fyrir þann
fisk sem við tökum úr sjónum.“
Lítil áhrif af hryðjuverkunum
Hafa hryðjuverkin í Bandaríkjun-
um haft áhrif á viðskiptin hjá ykkur?
„Við seljum mest af fiskinum okkr
til Bandaríkjanna og við höfum orðið
varir við smáslaka í sölunni. Við selj-
um afurðir okkar til veitingageirans
og stofnana af ýmsu tagi. Það hefur
komið okkur á óvart hve lítil áhrif
hryðjuverkin hafa haft, til dæmis á
veitingahúsin. Það sem skiptir máli
nú er hvort áhrifin frá Bandaríkjun-
um breiðist út yfir heimsbyggðina.
Hingað til höfum við ekki orðið varir
við neinn samdrátt í Evrópu eða As-
íu,“ segir Derrick Rowe.
Vinnsla sjávarafurða hjá FPI er afar fjölbreytt.
Hagræðing
nauðsynleg
Derrick Rowe, forstjóri FPI,
vill stórt og öflugt fyrirtæki
ALMENNINGUR getur skilað
fjórum dekkjum til endurvinnslu-
stöðva Sorpu án endurgjalds, sam-
kvæmt upplýsingum frá fyrirtæk-
inu. Þeir sem skilja gömul dekk eftir
hjá hjólbarðaverkstæðum þurfa hins
vegar að greiða sérstakt gjald fyrir,
þar sem gjaldskrá Sorpu vegna
förgunar bíldekkja er 21 króna og 87
aurar fyrir kílóið. Samkvæmt upp-
lýsingum frá Sorpu geta dekkja-
verkstæði farið með gömul dekk
beint til Furu í Hafnarfirði og
sleppa þá við að greiða flutnings-
gjald, að auki, en Fura hefur búnað
til þess að tæta dekk.
Þrjú hundruð krónur á dekk
Arnar Jónsson, framkvæmda-
stjóri Hjólbarðaviðgerðar Vestur-
bæjar, kveðst taka 300 krónur á
dekk fyrir að senda það í endur-
vinnslu. „Þessi þjónusta var við-
skiptavinum að kostnaðarlausu, þar
til í júlí í sumar, að Sorpa tífaldaði
kostnaðinn við förgun dekkja. Þá
hættum við að geta sinnt þessu
ókeypis. Samkvæmt mínum útreikn-
ingum var minn kostnaður við að
losa viðskiptavini við gömul dekk
300.000 krónur árið 2000 og ég sá
fram á að hann yrði þrjár milljónir
með þessu framhaldi. Því ráðlegg ég
fólki að fara sjálft með dekkin sín á
næstu endurvinnslustöð án endur-
gjalds. Ef það er gert falla þau sjálf-
krafa undir heimilisúrgang einstak-
lings,“ segir Arnar Jónsson.
Sá möguleiki er líka fyrir hendi að
geyma dekkin sín hjá hjólbarða-
verkstæðum og segir Arnar þann
kost góðan fyrir þá sem hvorki hafi
burði til né áhuga á því að burðast
Hægt að skila fjórum
dekkjum án endurgjalds
Teikning/Andrés
SJÓNUM er beint í sífellt meira
mæli frá bætiefnum að lækningajurt-
um ýmiss konar, þar sem megin-
markmiðið er að styrkja ónæmis-
varnir líkamans, segir Örn
Svavarsson eigandi Heilsuhússins,
en nýjasta efnið í þeim flokki er
þykkni unnið úr greipaldinkjörnum.
Bætiefni og jákvæðir eiginleikar
þeirra hafa reyndar verið skoðaðir
ofan í kjölinn og nefnir Örn sem
dæmi að E-vítamín hafi verið rann-
sakað fram og tilbaka í ein tíu ár.
Lækningajurtir fyrri tíðar voru að-
allega þurrkaðar og malaðar eða
settar í upplausn, en nú færist í vöxt
að unnin séu þykkni með virkustu
efnum jurtanna og stöðluð, til þess að
tryggja að áhrifamátturinn sé hinn
sami milli skammta. Eitt nýjasta efn-
ið sem fólk tekur sér til heilsubótar er
þykkni unnið úr kjörnum greipald-
ins, sem notað hefur verið um skeið
til þess að styrkja ónæmiskerfið, en
er tiltölulega nýkomið hingað til
lands að Arnar sögn.
Margir þættir í nútímanum
taldir trufla ónæmiskerfið
Hann segir bætiefni úr jurtum og
ávöxtum einkum tekin inn í þrenns
konar tilgangi. Í fyrsta lagi til hress-
ingar, vegna umgangspesta í öðru
lagi og vegna magasýkinga og þess
háttar í því þriðja. „Efni þessi styrkja
ónæmiskerfið, hvort sem sýkingin
nefnist kvef eða krabbamein, það er
þekkt staðreynd. Ónæmiskerfið
glímir við afbrigðilegar frumur allt
lífið og því sterkara sem það er, því
meiri líkur eru á að það ræki hlutverk
sitt vel,“ segir hann.
Örn bendir á að í umhverfi okkar
sé fjöldi þátta sem líklegt megi telja
að dragi úr virkni ónæmiskerfisins.
„Þekktar stærðir í því sambandi eru
rangt mataræði, mikil neysla matar
með aukaefnum ýmiss konar, um-
hverfismengun, reykingar og hreyf-
ingarleysi. Hreinn sykur og mikið
unnin kolvetni eru stórir þættir í al-
mennum neysluvenjum og ekki gott
til þess að hugsa hversu algengt er að
sykri sé bætt saman við matvæli.
Einnig er ég hissa á því hversu gjarnt
fólk er á að kaupa mikið unnin mat-
væli, með tilheyrandi rotvarnar-, lit-
ar- og aukaefnum. Að vísu er það um-
deilt, en vísbendingar hafa komið
fram um að þessir þættir stuðli að
myndun margra svokallaðra menn-
ingarsjúkdóma,“ segir hann.
Fjöldi bætiefna kemur á markað
„með hávaða og látum“ en fjarar síð-
an út aftur, segir Örn ennfremur, og
nefnir Jónsmessurunna sem dæmi,
St. John’s Worth, sem í ljós kom að
ynni ágætlega á mildu þunglyndi að
hans sögn. „Nokkur stór erlend viku-
blöð fjölluðu um Jónsmessurunna á
4–5 síðum sem leiddi til algerrar
sprengingar. Síðar kom í ljós að þetta
efni hefði ýmsar milliverkanir væri
það tekið með öðrum lyfjum og þá
var það allt í einu talið stórhættulegt.
Það má því segja að raunveruleikinn í
þessari umræðu fáist helst fram með
því að deila með tveimur,“ segir
hann.
Eitt gramm bindur sem svarar
dagskammti í hitaeiningum
Eitt söluhæsta bætiefni síðustu
ára er Q10, sem Örn segir hafa verið
afar vinsælt til þess að byrja með, en
hreyfist nú jafnt og þétt. „Ætli sala á
Q10 sé ekki um þriðjungur af því sem
mest var um þessar mundir,“ segir
hann. Nú hefur fengist leyfi frá
bandaríska matvæla- og lyfjaeftirlit-
inu að merkja Q10 frá tilteknum
framleiðanda með þeirri ábendingu
að efnið gagnist vel við óreglulegum
hjartslætti og ýmsum hjartsláttar-
truflunum. Umrætt fyrirtæki fram-
leiðir öll bætiefni sem pakkað er sér-
staklega fyrir Heilsuhúsið og seld
eru með gulum merkimiðum.
„Önnur bætiefni sem notið hafa
mikillar hylli eru ólífulaufsþykkni
sem byrjaði með látum en er enn að
Bætiefni til styrktar
ónæmiskerfinu vinsælust
Morgunblaðið/Ásdís
Bandaríska matvæla- og lyfjaeftirlitið hefur samþykkt að merkja megi
Q10 með ábendingu um góð áhrif vegna hjartsláttartruflana.
Grenningarefni
sem bindur kol-
vetni í meltingar-
veginum væntan-
legt á markað hér