Morgunblaðið - 30.10.2001, Side 24
ERLENT
24 ÞRIÐJUDAGUR 30. OKTÓBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
STARFSMAÐUR franska ríkis-
lestafyrirtækisins SNCF hleypti
af byssu á vegfarendur í frönsku
borginni Tours í gærmorgun og
varð fjórum mönnum að bana.
Tíu særðust í skothríðinni,
þeirra á meðal tveir lögreglu-
menn.
Sjónarvottar sögðu að árásar-
maðurinn hefði stigið út úr bíl
nálægt dómhúsi borgarinnar og
hafið skothríð á gangandi veg-
farendur og bíla. Hann flúði síð-
an inn í neðanjarðarbílageymslu
og lögreglumönnum tókst að
handtaka hann þar eftir að hafa
sært hann í skotbardaga.
Ekki er vitað hvers vegna
maðurinn hóf skotárásina, en
hermt er að hann hafi þjáðst af
þunglyndi. Lionel Jospin, for-
sætisráðherra Frakklands, lýsti
árásinni sem „helberu brjálæði“
og sagði að maðurinn hefði ekki
verið á sakaskrá.
Þeir sem biðu bana voru allir
karlmenn á aldrinum 36-66 ára.
Varð fjór-
um að
bana í
morðæði
Tours. AFP.
BANDARÍSKA leyniþjónustan
(CIA) sendi fjarstýrða flugvél,
vopnaða flugskeytum, til að
vernda Abdul Haq, leiðtoga
stjórnarandstöðunnar í Afganist-
an, þegar hann var á flótta undan
talibönum. Eldflaugum var skotið
á sveit talibana, en ekki tókst að
koma í veg fyrir að þeir næðu
Haq og tækju hann af lífi.
Haft er eftir ónafngreindum
heimildarmanni í Washington að
fjarstýrð flugvél á vegum leyni-
þjónustunnar hefði verið send
Haq til hjálpar. Leyniþjónustan
notar fjarstýrðar Predator-
flugvélar yfir Afganistan við leit
sína að Osama bin Laden og leið-
togum talibanastjórnarinnar. Vél-
arnar voru hannaðar af banda-
ríska flughernum til njósnaflugs.
Fyrir skömmu voru sett á þær
flugskeyti sem gerð eru til árása
á skriðdreka.
Það var sl. föstudag sem sveitir
talibana sátu fyrir Haq og liðs-
mönnum hans á fjallvegi skammt
frá borginni Jalalabad í austur-
hluta Afganistans. Haq hringdi
úr gervihnattasíma í stuðnings-
menn sína í Bandaríkjunum, og
þeir snéru sér til yfirherstjórnar
Bandaríkjanna, sem stýrir hern-
aðaraðgerðunum í Afganistan.
Fjarstýrða flugvélin var komin
á staðinn nokkrum klukkustund-
um síðar og gerði árás á sveit
talibana. En Haq og menn hans
náðust og voru hengdir fyrir
njósnir, að því er frændi Haqs í
Pakistan greindi frá. Haq og
menn hans höfðu farið til Pakist-
ans til að hvetja þar til uppreisn-
ar gegn talibönum.
Reuters
Haji Mohammed Din, bróðir Abduls Haq, tekur á móti syrgjendum við
minningarathöfn um Haq í Peshawar á sunnudag.
Haq bað um hjálp
Washington. AP.
AÐSTOÐARMAÐUR fyrrverandi
konungs Afganistans, Mohammads
Zahirs Shahs, sagði í gær að það væri
„sárt“ að fylgjast með því hvernig sí-
fellt fjölgaði þeim óbreyttu borgurum
sem féllu í sprengjuárásum Banda-
ríkjamanna á landið. Sagði aðstoðar-
maðurinn ennfremur að árásirnar
hefðu staðið mun lengur en Zahir
Shah hefði búist við.
Talið er að hundruð óbreyttra
borgara hafi fallið í árásunum, sem
staðið hafa í þrjár vikur. Ógerningur
er þó að fá staðfestingu á tölu fallinna
borgara.
Síðastliðinn laugardag vörpuðu
bandarískar herflugvélar sprengjum
á þorpið Ganikhil, sem er á yfirráða-
svæði Norðurbandalagsins, og lést að
minnsta kosti einn óbreyttur borgari
og um tíu særðust. Var þetta í fimmta
sinn, í það minnsta, sem sprengjur
Bandaríkjamanna hafa lent öfugum
megin við víglínuna norðan við Kabúl.
Samkvæmt upplýsingum frá
sjúkrahúsi sem Ítalar reka létust þrír
aðrir á laugardaginn þegar bandarísk
orrustuflugvél réðst á þorpið Raqi,
sem einnig er á yfirráðasvæði Norð-
urbandalagsins í grennd við víglín-
una. Þetta hafði ekki fengist staðfest.
Þá herma fregnir að 13 óbreyttir
borgarar, þar á meðal börn, hafi fallið
í Kabúl á sunnudaginn þegar sprengj-
ur sem miðað var á stöðvar talibana
lentu í staðinn á íbúðarhverfi.
Sjónarvottar sögðu að tíu hefðu lát-
ið lífið er tvær sprengjur lentu á þétt-
býlu hverfi húsa sem gerð eru úr leir,
nyrst í borginni. Fréttamaður AP sá
sex lík þar, fjögur af börnum. Íbúar
sögðu að fjórir aðrir hefðu látist. Þrír
létust í hverfi í austurhluta borgar-
innar.
„Þeir miða á húsin okkar, guð minn
góður. Hvers vegna gera þeir þetta?“
hrópaði kona þegar verið var að bera
fórnarlömbin til grafar nokkrum
klukkustundum síðar. „Ég missti alla
fjölskyldu mína. Ég er búin að vera,“
sagði önnur kona. „Maðurinn minn,
sonur minn. Ég missti alla fjölskyld-
una. Hvað get ég gert?“ hélt hún
áfram og grét.
Loftárásir Bandaríkjamanna á Afganistan
Sífellt fleiri
óbreyttir
borgarar falla
AP
Sayed Ehmed vakir yfir fimm ára frænda sínum, Shabir Ehmed, á gjörgæsludeild sjúkrahúss í Quetta í Pak-
istan í gær. Foreldrar þeirra beggja létu lífið í árásum Bandaríkjahers á Kandahar í Afganistan um helgina.
París, Kabúl, Ganikhil í Afganistan. AFP, AP, Los Angeles Times.
MÖRG þúsund manns tóku þátt í lík-
fylgd í Bahawalpur í Pakistan í gær, þar
sem 16 kristnir Pakistanar voru myrtir
af íslömskum öfgamönnum á sunnudag-
inn. Þrír byssumenn réðust þá inn í
kirkju, þar sem guðsþjónusta stóð yfir,
og hófu skothríð á söfnuðinn. Talið er að
fjöldamorðið hafi verið hefnd fyrir árás-
ir Bandaríkjamanna á Afganistan.
Sjónarvottar sögðu að allt að tíu þús-
und manns hefðu fylgt fórnarlömbunum
til grafar í gær. Margir hrópuðu slagorð
og kröfðust þess að kristnir Pakistanar,
sem eru lítill minnihluti í landinu þar
sem flestir eru múslimir, nytu verndar,
og að morðingjarnir yrðu tafarlaust
handsamaðir og þeim refsað.
Meðal þeirra sem voru myrtir voru
konur og börn. Þetta er mesta fjölda-
morð á kristnum mönnum í sögu Pakist-
ans. Talið er að morðingjarnir tilheyri
einum af nokkrum hópum öfgasinnaðra
múslima sem hafa verið áberandi í Pak-
istan síðan stríðið við Sovétmenn geisaði
í Afganistan 1979-89.
Öryggisgæsla hefur verið hert við
kirkjur kristinna og í byggðum þeirra í
Pakistan eftir tilræðið á sunnudaginn,
að sögn lögreglu í Karachi.
Sextán manns myrtir í kirkju kristinna í bænum Bahawalpur í Pakistan
Reuters
Ættingjar fórnarlamba skotárásarinnar í Bahawalpur hugga hver annan við jarðarför í gær.
Kristnir krefjast verndar
Bahawalpur í Pakistan. AFP.