Morgunblaðið - 30.10.2001, Side 38
MINNINGAR
38 ÞRIÐJUDAGUR 30. OKTÓBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
✝ Erlendur Þórðar-son fæddist í
Reykjavík 11. októ-
ber 1945. Hann lést
föstudaginn 19. októ-
ber síðastliðinn. For-
eldrar hans eru hjón-
in Guðlaug
Erlendsdóttir, f.
15.11. 1918, og Þórð-
ur Sigurðsson, f. 13.8.
1917, d. 21.5. 1988.
Eiginkona af fyrsta
hjónabandi var
Ólafia Guðnadóttir, f.
28.11. 1944, d. 6.8.
1996, þau slitu sam-
vistum. Börn þeirra eru: 1) Þórð-
ur, f. 15.10. 1964, kvæntur Piu
Luoto, f. 7.11. 1972, barn þeirra
Emil Andri, f. 2.1. 1995. 2) Guð-
laug, f. 26.5. 1967, gift Vilhjálmi
Wiium, f. 17.12. 1964, dætur þeirra
Dagmar Ýr, f. 4.6. 1988, og Tinna
Rut, f. 20.4. 1992. 3) María Dröfn,
f. 27.9. 1971, gift Ásgeiri Ingólfs-
syni, f. 23.8. 1969, börn þeirra eru
Alexandra Þöll, f. 4.10. 1990, Ing-
ólfur Arnar, f. 7.2. 1993, og Aron
Snær, f. 5.7. 1997. Eiginkona af
öðru hjónabandi er Katrín Jóna
Gunnarsdóttir, f. 25.9. 1933. Þau
slitu samvistum. Erlendur kvænt-
ist eftirlifandi eiginkonu sinni,
Unu Hlín Gunnarsdóttur, f. 1.10.
1947, hinn 26.12. 1992. Börn henn-
ar frá fyrra hjóna-
bandi eru: 1) Gerður
Gestsdóttir, f. 6.1.
1966, börn hennar
Daníel Þór Lindsay,
f. 23.7. 1994, og Kar-
en Björg Lindsay, f.
17.4. 2001. 2) Geir
Gestsson, f. 6.1. 1967,
kvæntur Jóhönnu
Gísladóttur, f. 4.12.
1970. Barn Geirs frá
fyrra sambandi er
Guðríður Hlín, f. 1.4.
1987, börn Geirs og
Jóhönnu eru Vic-
toría Kristín, f.
22.10. 1996, og Gabríel Már, f. 3.1.
2000. 3) Áskell Gestsson, f. 4.5.
1974, sambýliskona hans er Mál-
fríður Anna Gunnlaugsdóttir, f.
3.11. 1975, sonur þeirra er Arnar
Geir, f. 23.12. 1998. 4) Ingibjörg
Gestsdóttir, f. 22.5. 1975, sam-
býlismaður hennar er Steingrím-
ur Ólafsson, f. 23.2.1968, sonur
þeirra er Róbert Andri, f. 17.11.
1998.
Erlendur var búfræðingur frá
Bændaskólanum á Hvanneyri,
starfaði um árabil sem leigubíl-
stjóri og var nú umsjónarmaður
Öskjuhlíðarskóla.
Útför Erlendar fer fram frá
Hjallakirkju í dag og hefst athöfn-
in klukkan 13.30.
Elsku fóstri minn og tengdapabbi,
þótt ótrúlegt sé ertu farinn frá okk-
ur, við trúum því ekki, hver hringir
þá í okkur bara til að segja „hæ“? Þú
skilur svo margt eftir að við vitum
ekki á hverju er hægt að byrja,
sveitaheimsóknir, réttir, skólaheim-
sóknir og svo auðvitað þegar við hitt-
umst um helgar og fengum okkur
bakkelsi úr bakaríinu. Þú komst víða
við og þekktir margt. Ég (Inga) man
það svo vel þegar þú loksins komst
mér upp í hesthús og settir mig á bak
á Væng, hestinum hennar mömmu.
Ég hélt ég gæti þetta ekki en þú
sagðir: „Auðvitað getur þú þetta,
stelpa, mamma þín gerir þetta og
þetta er ekkert mál.“ Uppá hestinn
fór ég og þú sagðir mér að ég sæti
hestinn vel. Og gleymum við aldrei
þeirri stund vorið 1998 þegar við
komum til þín og mömmu til að til-
kynna ykkur að frumburður okkar
væri á leiðinni. Þú varst svo glaður
og alla meðgönguna mína hringdirðu
næstum daglega til að spyrja um
hann „Ella“ litla. Svo kom litli dreng-
urinn okkar í heiminn og þú varst
alltaf svo góður við hann, fórst með
hann í leigubílinn sem var rauða ljón-
ið ykkar, þið fóruð saman á hestbak
og deilduð um það hvort liðið væri
betra, Manchester United eða Liver-
pool. Það getur enginn lýst því hvað
þú varst stórt númer í lífi Róberts
Andra. Þú ert vonandi kominn á ró-
legri og betri stað þar sem þú getur
setið við hlið föður þíns og fylgst með
mömmu og börnunum ykkar, svo
ekki sé nú minnst á öll barnabörnin
sem dreifast út um allt land, Svíþjóð
og Namibíu. Þín verður sárt saknað
og megi Guð gefa mömmu og Löllu
ömmu styrk til að komast í gegnum
þennan sára og mikla missi.
Þú varst minn vetrareldur.
Þú varst mín hvíta lilja,
bæn af mínum bænum
og brot af mínum vilja.
Við elskuðum hvort annað,
en urðum þó að skilja.
Ég geymi gjafir þínar
sem gamla helgidóma.
Af orðum þínum öllum
var ilmur víns og blóma.
Af öllum fundum okkar
slær ævintýraljóma.
Og þó mér auðnist aldrei
neinn óskastein að finna,
þá verða ástir okkar
og eldur brjósta þinna
ljós á vegum mínum
og lampi fóta minna.
(Davíð Stefánsson.)
Ingibjörg og Steingrímur.
Er ég sest niður og rita þessi
minningarorð um tengdaföður minn,
minnist ég þegar ég sá hann í fyrsta
sinn. Þetta var fyrir rúmum 17 árum,
kvöldið sem við Gulla kynntumst og
var Elli á vappi á milli túra á leigu-
bílnum að fylgjast með dóttur sinni.
Man ég að á þeim tíma þótti mér
þetta óttaleg afskiptasemi, en eftir
að hafa eignast tvær dætur sjálfur þá
skil ég vel að hann hefði áhyggjur af
henni og vildi vita hvar hún væri.
Fljótlega sættist Elli á að ég væri
að gera hosur mínar grænar fyrir
dóttur hans; ég gæti ekki verið al-
slæmur, vildi hann meina, úr því ég
væri stúdent. Ekki veit ég hvort
þetta sé góð regla, svona almennt
séð, en vil þó halda fram að hún hafi
dugað vel í þetta sinn.
Það var erfitt að vita hvað Elli var
að hugsa. Hann var frekar dulur og
ég, rúmlega tvítugur, átti oft erfitt
með að sjá hvar ég hafði hann. Hins
vegar var sagan önnur þegar hann
var innan um hestana sína. Þeir áttu
hug hans allan og innan um þá var
hann svo sannarlega í essinu sínu.
Var ég svo lánsamur einn vetur að fá
að snúast með honum í hesta-
mennskunni. Ég held honum hafi
ekki þótt mikið koma til tilburða
tengdasonarins á hestbaki, en þegar
ég lít til baka sýnist mér að honum
hafi þótt gaman að hafa mig þarna,
og þarna kynntumst við vel hvor öðr-
um og hefði ég alls ekki vilja missa af
þessum tíma.
Eitt sem einkenndi Ella var
hversu þrjóskur hann gat verið.
Þrjóska getur haft slæmar afleiðing-
ar, og það kom fyrir hjá Ella. Hins
vegar, þegar ég lít til baka, þá gat
Elli beint þrjóskunni í góðan farveg
og nýtt hana til góðs. Er ég á því að
þrjóskan hafi verið meginástæðan að
honum tókst að sigra í baráttunni við
Bakkus, en við það gjörbreyttist líf
hans til hins betra. Eins lenti hann
fyrir allnokkrum árum í hræðilegu
bílslysi og var einstök mildi að hann
skyldi komast lífs af, og þá hjálpaði
þrjóskan honum í endurhæfingunni
sem var löng og ströng. Margur mað-
urinn hefði gefist upp í þeim erfið-
leikum og vitjað Bakkusar á ný.
Elli var ekkert allof sáttur við þeg-
ar ég tók upp á því að leggjast í vík-
ing og flytja til útlanda með dóttur
hans og litlu barnabörnin tvö. Oft var
spurt hvernær við ætluðum nú að
hætta þessari vitleysu og koma aftur
heim. En þrátt fyrir þetta, þá var Elli
alltaf mættur út á flugvöll þegar við
komum í heimsókn til Íslands, og oft
beið okkar Egils appelsín í bílnum,
því svoleiðis guðaveigar fást jú ekki í
útlandinu. Án efa verður skrýtið að
koma til Íslands í framtíðinni án þess
að Elli bíði eftir okkur á flugvellin-
um.
Elli skilur eftir sig mikið skarð í lífi
ættingja sinna og ástvina. Við mun-
um öll sakna hans, en minning hans
mun lifa í huga okkar um alla tíð.
Vilhjálmur Wiium.
Elsku afi minn núna ertu farinn til
allra englanna sem eru á himninum.
Ég skil ekki alveg að þú ert farinn en
ég veit að þú hugsar til okkar og ég
hugsa til þín.
Ég nefni nafnið þitt,
og næturmyrkrið flýr,
Því ljóma á loftið slær
hið liðna ævintýr.
Ég nefni nafnið þitt
og nýja heima sé;
þar grær hið villta vín,
þar vagga pálmatré.
Ég nefni nafnið þitt,
og nóttin verður hlý.
Ég heyri klukknaklið
frá kirkju í Assisí.
Þú kemur móti mér
í minninganna dýrð.
Í sólskini og söng
er sál mín endurskírð.
(Davíð Stefánsson.)
Róbert Andri.
Það er tvennt sem ég man mest
eftir afa mínum. Alltaf þegar ég kom
heim til hans þá gaf hann mér nokkra
sykurmola, sem mér fannst mjög
gott. En þegar ég sagði mömmu frá
þessu, þá var hún alls ekki glöð, eig-
inlega mjög reið, og skammaði afa
mikið. En hann hætti samt ekki að
gefa mér sykurmola. Svo sagði afi að
þegar ég mundi flytja aftur heim til
Íslands, þá mundi hann gefa mér
hest. Ég hlakkaði mikið til þess. Allt-
af þegar við komum til Íslands þá
sáum við afa í gegnum glerið á flug-
vellinum, en núna verður einhver
annar að sækja okkur og það verður
erfitt að venjast því.
Dagmar Ýr.
Mér finnst mjög leiðinlegt að hann
afi dó, af því hann var einn af bestu
öfunum mínum. Einu sinni heimsótt-
um við hann og Unu ömmu og það
voru kjötbollur í kvöldmatinn, sem
mér finnst ekki góðar. Afi sagði að
hann mundi gefa mér nokkra súkku-
ERLENDUR
ÞÓRÐARSON
!"
!"
!
#$
%
%
&%#''(
#$ %&'() )*' ))' +,
-$ &'+, .' )/0()
!%&'() 1)'*)'2+,
3' )'34 )(*3' )'3' )'34 )%
)
*
"
+
!-!
')+'5*67
, +"
!
-
.!
/
" 0!! 0 8 .) % )+()
,'8 .)()%
1
9:":"
1'& ' '
/,'*4 ;#.'5&
2
30%"
)+ 9'+' () 2&'3 9' )++,
/(9'+' () ))'&'+,
'*9'+' () ))$ & * ' +,
*'9'+' +, < )+ ()
* 1)9'+' +, * )+ ()
-+&9'+' +, =, ))' ()
' $#9'+' +, - )
,'))()
9'+&9'+' +, +($)
2 )'9'+' +, $) $)()
3' )'34 )(*3' )'3' )'34 )%
)
*
">8
-!
8,?'5(*3 '
4""5+%
6
! %
#%#('(
5')+ 2 )'
,)+,
!'$()
=, +& *'
( )
(A)
( )
,)'
,)() ,$ & - )'+,
1)8 &)
,)+, ' '()
3' )'34 )(*3' )'3' )'34 )%
1
0
*
2:"!
0 !!
-
* 1)=( )+, * '+, ()
$* ' +, '$)'$)()
))' )''$)+,
,)- )'()%
7 >=
:! ')+'5*67
#.'5&
.! %
+!
%#''(
8 %
%
"
9
1) )+ =( , (*:' * B %