Morgunblaðið - 30.10.2001, Side 40
MINNINGAR
40 ÞRIÐJUDAGUR 30. OKTÓBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
✝ Indíana MargrétJafetssóttir
fæddist 22. nóvem-
ber 1962. Hún lést á
Landspítalanum við
Hringbraut 22.
október síðastliðinn.
Foreldrar hennar
eru Emma Þor-
steinsdóttir ljósmóð-
ir, f. 2.2. 1926, og
Jafet Sigurðsson
kennari, f. 1.5. 1934.
Indíana var yngst
fjögurra systkina.
Hin eru Þorsteinn
Sigurður Jafetsson,
f. 31.7. 1959, Ingibjörg Jafets-
dóttir, f. 3.7. 1960 og Hafliði
Jónsson, f. 19.3. 1950.
Af fyrri sambúð átti Indíana
son, Auðun Ófeig Helgason, f.
15.5. 1980.
Hinn 8. janúar 1988 giftist
Indíana Guðjóni Ingólfssyni
húsasmíðameistara, f. 25.11.
1960. Foreldrar hans eru Sigríð-
ur Runólfsdóttir, f. 23.11. 1925,
og Ingólfur Hannesson, f. 8.1
1924, d. 24.7. 1990.
Guðjón á fjórtán
systkini. Börn Ind-
íönu og Guðjóns
eru Ingólfur Hann-
es, f. 8.1 1992, og
Elísabet Ásta, f.
18.9. 1995. Guðjón
á einnig son af
fyrra hjónabandi,
Jóhann Bjarna, f.
14.5. 1984.
Indíana starfaði
um tíma hjá Bjössa
í Suðurveri og síð-
an hjá Agli Kol-
beinssyni tannlækni
við Grensásveg. Eftir fæðingu
yngri barna sinna átti hún kost
á að vera heimavinnandi hús-
móðir og sjá um uppeldi þeirra.
Einnig starfaði hún við hlið
Guðjóns í fyrirtæki þeirra. Síð-
astliðin ár starfaði Indíana á
Stellu-róló við Borgarholtsbraut
í Kópavogi.
Útför Indíönu fer fram frá
Kópavogskirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 13.30.
Elsku systir, það er sárt að þurfa
að kveðja þig unga konu í blóma lífs-
ins. Hver tilgangurinn er er erfitt að
skilja en minninguna um þig er ekki
hægt að taka frá mér, hún mun
fylgja mér áfram í hjarta mínu.
Það var svo yndislegt að við syst-
urnar fengum að njóta þess að hafa
sama áhugamál, hunda og hunda-
rækt, og í gegnum það eignuðumst
við sameiginlega vini.
Margar gleðistundir áttum við á
„hundaferðum“ hérlendis sem er-
lendis og var þá ekkert til sparað,
það var svo margt sem hugurinn
girntist, hvort sem það voru uppá-
haldshundategundirnar okkar eða
ýmis varningur tengdur hundum.
Stundum var básarápið mikið og oft
var hlegið að okkur ef augun héldust
ekki opin þegar kom að stóru stund-
inni, þ.e.a.s. úrslitum, t.d. á heims-
sýningum.
Þessar skemmtilegu ferðir urðu til
þess að við komumst í samband við
góða hundaræktendur og eignuð-
umst vini víða um heim sem leiddi
svo til þess að við létum drauma okk-
ar rætast og keyptum okkur hunda
og fluttum þá inn með það að leið-
arljósi að gerast nú alvöruhunda-
ræktendur. Þú varst ákveðin í að
rækta toy poodle hunda og hófst
handa við að vanda nú vel valið því í
upphafi skal endinn skoða. Meistari
Billy kom frá Finnlandi í vetur og
síðan ætlaðirðu að kaupa tvær úrval-
stíkur. En veikindi þín settu strik í
reikninginn um hríð svo þú frestaðir
komu þeirra en ekki léstu bugast og
áfram skyldi haldið í hugsjónastarf-
inu.
Eitt af þínum síðustu verkum var
að ganga frá kaupum á tík frá Finn-
landi en þú fékkst ekki að sjá hana
koma til landsins. Ætlunarverki þínu
var engu að síður hrint í framkvæmd
og Rose er komin, falleg og fín, eins
og þú óskaðir þér.
Í starfi mínu sem hjúkrunarfræð-
ingur hef ég kynnst mörgum hetjum
um dagana en þú, elsku systir, ert
stærsta hetjan mín.
Kvart og kvein var ekki þinn stíll
og alltaf reistu upp aftur keik, sama
hvað á dundi. Alltaf sástu ljósið góða
og þú varst full af bjartsýni og von.
Þú áttir aðdáun allra í kringum þig
fyrir þitt einstaka hugrekki og vilja-
styrk. Það sýndi sig best þegar þú
afrekaðir að flytja inn í nýja drauma-
húsið þitt nú í sumar. Það vantaði
ekki að allt gastu skipulagt og fært
að þínum smekk til þess að búa fjöl-
skyldunni yndislegt heimili.
Elsku Guðjón og börn, megi góður
Guð vernda og styrkja ykkur um
ókomna tíð.
Elsku systir mín, þú verður ávallt
hetjan mín og við munum ferðast
meira saman seinna. Ég veit að þú
verður hjá mér áfram í blíðu og
stríðu þar til við hittumst á ný.
Þín systir,
Ingibjörg.
Fallin er frá langt fyrir aldur fram
mágkona mín hún Inda. Ég á bágt
með að trúa þessu. Ég skil ekki
hvers vegna öll þessi veikindi voru
lögð á eina manneskju.
Manni finnst ekki eðlilegt að fólk
skuli kallað í burtu áður en það hefur
náð að fylgja börnum sínum fram á
fullorðinsár. Inda fær ekki það tæki-
færi og það er erfitt að þurfa að
horfa á eftir henni frá svona ungum
börnum, börnum sem voru henni
allt.
Það lá langur undirbúningur að
baki byggingar framtíðarheimilis
Indu og Guðjóns sem þau reistu síð-
an í Jórusölum í Kópavoginum.
Þetta var eitthvað sem Indu hafði
dreymt um í mörg ár og hún tók
virkan þátt í skipulagningu hússins
allt frá hönnunarstigi og til þess að
velja innréttingar, húsgögn og gólf-
efni. Hún lagði mikið upp úr því að fá
að njóta nýja hússins og þrátt fyrir
að vera á sjúkrahúsi þá helgi sem
flutt skyldi inn í húsið vildi hún endi-
lega að Guðjón og börnin héldu sínu
striki og flyttu á réttum tíma. Hún
náði síðan að búa nokkra mánuði í
nýja húsinu sínu þar sem hún kunni
mjög vel við sig.
Þótt að Inda sé farin lifir hún enn í
minningum okkar. Við eigum marg-
ar góðar minningar um Indu sem við
munum varðveita. Ég er svo ánægð
að Inda og Guðjón héldu upp á sex
ára afmælið hennar Elísabetar í
september þrátt fyrir veikindin og
að þau skyldu bjóða okkur yngstu
systrum Guðjóns og fjölskyldum í
mat eftir afmælið. Þar var margt
rætt, meðal annars trúmál og pólitík,
og Inda var í essinu sínu og lá ekki á
skoðunum sínum frekar en fyrri dag-
inn. Þá héldum við að Inda væri jafn-
vel að hafa betur í baráttu sinni við
krabbameinið en annað kom síðan á
daginn.
Ég kveð með þessum orðum:
Kallið er komið,
komin er nú stundin,
vinaskilnaðar viðkvæm stund.
Vinirnir kveðja
vininn sinn látna,
er sefur hér hinn síðsta blund.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
(V. Briem)
Við Gunnar vottum Guðjóni, Auð-
uni, Jóhanni, Ingólfi og Elísabetu
okkur dýpstu samúð. Megi Guð veita
ykkur styrk til að takast á við sorg-
ina.
Sólveig Ingólfsdóttir.
Elsku Inda, mín kæra vinkona,
það er svo sárt, svo óendanlega sárt,
að þurfa að kveðja þig í hinsta sinn.
Eftir sitja minningar um góða vin-
konu og þær mun ég varðveita fyrir
börnin þín, sem alltof ung misstu þig.
Allt sem þú tókst þér fyrir hendur
gerðir þú af heilum hug og fullum
krafti, þá var sama hvort þú varst að
iðka trú þína, vinna að sjálfsrækt eða
að fara í „hundana“, en þær litlu
skepnur urðu þér mjög hugleiknar
hin síðari ár. Þú varst hreinskilin og
vissum við sem vorum í kringum þig
alltaf hvar við höfðum þig og því var
gott að umgangast þig. Þú kallaðir
ekki allt ömmu þína og sendir okkur
hinum tóninn ef þér þótti við þurfa á
því að halda. Alltaf var stutt í glettn-
ina og húmorinn sem þú hélst fram á
síðustu stundu og með engum var
eins gaman að skemmta sér og þér,
er þú varst í stuði.
Þú hafðir alla tíð hug á að ganga
menntaveginn lengra en raunin
varð, þú hafðir á stundum áhyggjur
af þessu menntunarleysi þínu en oft
þótti mér þú hafa lært meira í skóla
lífsins en margur annar, lærði ég t.d.
meira af þér en mörgum öðrum sam-
ferðamönnum okkar sem áttu lengri
skólagöngu að baki en þú.
Þú varst heilsteypt, raunsæ og
ráðagóð og kunnir leiðir til að leita
svara við mörgum lífsins gátum og
áttir auðvelt með að miðla af reynslu
þinni og hjálpa þannig til við að losa
um sálarflækjur sem við hin vorum
að burðast með. Þú varst mjög glögg
á mannlegt eðli og góður mann-
þekkjari.
Við sátum oft og rifjuðum upp
gamla tíma, og síðast núna í vor þeg-
ar þið Elísabet komuð norður um
það leyti sem þú byrjaðir að veikjast.
Við áttum góðan tíma þá og minnt-
umst þess meðal annars er við réð-
um okkur sem ráðskonur til Jóa á
Víðimýri, þetta var mjög skemmti-
legt sumar en á stundum tolldi þakið
illa á húsinu þegar við vorum ekki
sammála um hver ætti að vinna
verkin og hvernig. Ekki gáfumst við
upp hvor á annarri þó að á unglings-
árunum mætti vinátta okkar þola
ýmislegt. Fljótlega eftir að við kom-
umst á þrítugsaldurinn ákváðum við
að flytja að heiman og leigðum þá
saman á Tómasarhaganum með
Auðun lítinn og fóru þá í hönd okkar
„Hollywood“-ár þar til Gaui kom að
lokum í spilið og nam þig á brott í
Kópavoginn þar sem þið bjugguð
saman síðan.
Þau tuttugu og fjögur ár sem við
þekktumst vorum við vinkonur og
ríkti ætíð traust og kærleikur milli
okkar og ekki voru þau mörg leynd-
armálin sem við gátum ekki sagt
hvor annarri. Það skarð sem þú skil-
ur eftir þig verður því erfitt að fylla.
Ég er mjög þakklát fyrir þann
tíma, sem við áttum samleið hér í
þessari jarðvist. Ég vil trúa því að á
þeim stað þar sem þú ert nú líði þér
vel og bið góðan Guð að varðveita
sálu þína.
Kæra vinkona, þú veist að við Er-
lendur og Sævör verðum alltaf tilbú-
in að hjálpa og gæta að Gauja, Auð-
uni, Ingólfi og Elísabetu.
Okkar innilegustu samúðarkveðj-
ur til fjölskyldu Gauja, og Emmu,
Jafets, Ingu, Steina og Halla.
Anna, Erlendur og
Sævör Dagný.
„Þótt ég sé látinn, þá harmið mig
ekki með tárum. Hugsið ekki um
dauðann með harmi og ótta. Ég er
svo nærri, að hvert eitt tár ykkar
snertir mig og kvelur. En þegar þið
hlæið og syngið með glöðum hug,
lyftist sál mín upp í mót til ljóssins.
Verið glöð og þakklát fyrir allt sem
lífið gefur, og ég tek þátt í gleði ykk-
ar yfir lífinu.“
Elsku Indan mín. Loksins ertu
frjáls. Ég veit ekkert hvað ég á að
skrifa, sit bara hér og hugsa um allt.
Bíóferðirnar okkar og um allt það
sem við gátum talað um. Þú varst til
dæmis alltaf svo forvitin um hvernig
strákamálin gengu og ég gat treyst
þér svo vel fyrir öllu. Þú varst ekki
bara mamma litlu englanna sem ég
passa, heldur vinkona mín. Þú
treystir mér fyrir lífi litlu augastein-
anna okkar og þurftir aldrei að hafa
neinar áhyggjur þegar þau voru og
eru í mínum höndum.
Ég sakna þín svo mikið og það er
eins og það vanti eitthvað hjá mér.
Þú sagðir alltaf að þú ættir helming-
INDÍANA MARGRÉT
JAFETSDÓTTIR)
*
C>:>
.'' )+7+
#
"%
:
! ;0
#%#''(
8 %
20
;0 - ' )<8 .)+,
)' .4 )+,
:'*)19 .4 )()
( *+ 8 3.4 )+, :'*)1!'()
8 )):'*)1()
5''&*.':'*)1+,
!:'*)1()%
4
% -2D
2
4+
')4
, +"
" %
!
#$
.!"090
4
9*%
7 <
3
+
5+!
;6 , +"
" %
0
!"%
8 &)
%2 &+,
)%()
)+, 4 5' '+ ()
))' )'
)+, $)% ))' ()
2 & '*
)() ' =( )+,
)%8') %+' )++,
/ # )+ '() 8) +5 )%
1
+
22
-$' 76
'$)' $
%
2
%
'#
#&((
'+, 'E )++,
%9' 2)' () 1)' '
#
,+,
,)()
/'))#
,+, 2)' * ()
2++'9' )++,
=, '9' )++,
,%
,)() =, ))$+,
,)
,)() =, +,
'+, '2)' +,
,'))( $()
2)' 2)' () .4 *C ' +,
*2)' ()
(*')*'$'34 )%
)
*
--2!
(*4 6
'$
"!
-
/
,'))() * ,* ' +,
* &
,'))+, '))8 .)()
9**,
,'))() 2#+&! .' ' +,
)+
,'))()
8 ))
,'))()
3' )'34 )(*3' )'3' )'34 )%
)
*
-2D=!9:
$# 5 ')+? '
/# * ')+'@F
, +"
% 2
# ' ))' *+,
1)# '- )'+,
2 )+ )) )'()%