Morgunblaðið - 30.10.2001, Side 42
MINNINGAR
42 ÞRIÐJUDAGUR 30. OKTÓBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
arráðgjöf. Borghildur Sigurbergsdóttir
næringarráðgjafi. Umsjón Elínborg Lár-
usdóttir.
Seltjarnarneskirkja. Foreldramorgunn
kl. 10–12.
Árbæjarkirkja. Foreldramorgnar kl. 10–
12. Hittumst, kynnumst, fræðumst. TTT-
klúbburinn í Ártúnsskóla kl. 14.20–
15.20.
Breiðholtskirkja. Bænaguðsþjónusta
með altarisgöngu kl. 18.30. Bænaefn-
um má koma til sóknarprests í viðtals-
tímum hans.
Digraneskirkja. Leikfimi ÍAK, kirkjustarf
aldraðra, hefst með leikfimi kl. 11.15.
Léttur málsverður. Helgistund, samvera
og kaffi. Starf fyrir 10–12 ára á vegum
KFUM&K og Digraneskirkju. Húsið opn-
að kl. 16.30. Fótboltaspil, borðtennis og
önnur spil. Kvikmynd (II). Alfa-námskeið-
ið. Fræðari sr. Magnús B. Björnsson.
Kvöldverður kl. 19, fræðsla, hópumræð-
ur, helgistund.
Fella- og Hólakirkja. Starf fyrir 11–12
ára drengi kl. 17
Grafarvogskirkja. Opið hús fyrir eldri
borgara kl. 13.30. Helgistund, handa-
vinna, spil og kaffiveitingar. Kirkjukrakk-
ar í Engjaskóla fyrir börn 7–9 ára kl.
17.30–18.30. Kirkjukrakkar í Korp-
uskóla fyrir börn 7–9 ára kl. 17.30–
18.30. Æskulýðsfélag í Grafarvogs-
kirkju, eldri deild, kl. 20–22.
Hjallakirkja. Bæna- og kyrrðarstund kl.
18 á neðri hæð kirkjunnar.
Kópavogskirkja. Foreldramorgunn í dag
í safnaðarheimilinu Borgum kl. 10–12.
Seljakirkja. Mömmumorgunn. Opið hús
milli kl. 10 og 12. Kaffi og spjall.
Vídalínskirkja. Opið hús fyrir eldri borg-
ara kl. 13.30–16 í Kirkjuhvoli. Spilað og
spjallað. Helgistund í kirkjunni kl. 16.
Fjölbreytt kristilegt starf fyrir 9–12 ára
stúlkur í Kirkjuhvoli kl. 17.30 í umsjón
KFUK.
Bessastaðasókn. TTT – kristilegt æsku-
Áskirkja. Opið hús fyrir alla aldurshópa
kl. 10–14 í neðri safnaðarsal. Skemmti-
ganga um Laugardalinn eða upplestur
kl. 10.30. Umsjón Þóranna Þórarinsdótt-
ir. Bæna- og fyrirbænastund kl. 12 í kirkj-
unni. Umsjón Guðrún K. Þórsdóttir. Létt-
ur hádegisverður að stundinni lokinni.
Samvera foreldra unga barna kl. 14–16 í
neðri safnaðarsal. 12 spora starf kl. 19 í
neðri safnaðarsal.
Bústaðakirkja. TTT-starf fyrir 10–12 ára
kl. 17.
Grensáskirkja. Kyrrðarstund í hádegi kl.
12.10. Orgelleikur, ritningarlestur, altar-
isganga, fyrirbænir. Léttur hádegisverð-
ur í safnaðarheimili eftir stundina.
Hallgrímskirkja. Fyrirbænaguðsþjón-
usta í dag kl. 10.30. Beðið fyrir sjúkum.
Háteigskirkja. Ævintýraklúbburinn kl.
17. Fjölbreytt og skemmtilegt starf fyrir
börn úr 1.–3. bekk í umsjón Guðrúnar
Helgu, Sigrúnar, Völu og Jóhönnu. Öll
börn velkomin og alltaf hægt að bætast í
hópinn. Unglingaklúbburinn MeMe kl.
19.30. Kröftugt starf fyrir unglinga í um-
sjón Gunnfríðar og Jóhönnu.
Laugarneskirkja. Morgunbænir kl.
6.45–7.05. TTT-fundur kl. 16 fyrir krakka
í 5.–7. bekk. Fullorðinsfræðsla kl. 20.
Gengið inn um merktar dyr á austurgafli
kirkjunnar. Sóknarpresturinn, Bjarni
Karlsson, kennir biblíufræðin á lifandi og
auðskilinn hátt. Efni kvöldsins: Húmor-
istinn Jesús. Allir velkomnir. Þriðjudagur
með Þorvaldi kl. 21. Lofgjörðarstund þar
sem Þorvaldur Halldórsson leiðir söng
og lofgjörð við undirleik Gunnars Gunn-
arssonar. Sóknarprestur flytur guðs orð
og bæn. Fyrirbænaþjónusta kl. 21.30 í
umsjá bænahóps kirkjunnar undir stjórn
Margrétar Scheving sálgæsluþjóns. (Sjá
síðu 650 í Textavarpi).
Neskirkja. Litli kórinn, kór eldri borgara,
kl. 16.30. Stjórnandi Inga J. Backman.
Nýir félagar velkomnir. Foreldramorgunn
miðvikudag kl. 10–12. Fræðsla: Næring-
lýðsstarf fyrir 10–12 ára í Álftanesskóla,
stofu 104, kl. 17.30. Rúta ekur börn-
unum heim.
Fríkirkjan í Hafnarfirði. Kyrrðarstund í
kirkjunni kl. 18. Opið hús kl. 17–18.30
fyrir 7–9 ára. Kl. 20–22 æskulýðsfélag
yngri félaga.
Víðistaðakirkja. Barnastarf fyrir 8–9 ára
börn í dag kl 17. Kyrrðar- og fyrirbæna-
stund með Taizé-söngvum í dag kl. 18.
Hægt er að koma fyrirbænaefnum til
sóknarprests eða kirkjuvarðar.
Hafnarfjarðarkirkja. Opið hús fyrir 10–
12 ára börn í safnaðarheimilinu Strand-
bergi, Vonarhöfn, frá kl. 17–18.30.
Landakirkja í Vestmannaeyjum. Kl.
16.30 kirkjuprakkarar fyrir 6–9 ára
krakka. Stór og mikill kraftakarl kemur í
heimsókn. Kl. 17.30 TTT – kirkjustarf
10–12 ára krakka. Kl. 20 fundur um sorg
og viðbrögð við missi. Stutt erindi og
spjall um tilfinningar syrgjenda.
Keflavíkurkirkja. Kirkjulundur opinn kl.
14–16 með aðgangi í kirkjuna og Kap-
ellu vonarinnar eins og virka daga vik-
unnar. Gengið inn frá Kirkjuteigi. Starfs-
fólk verður á sama tíma í Kirkjulundi.
Fermingarundirbúningur í Kirkjulundi: Kl.
14.30–15.10 8.A og B í Holtaskóla. Kl.
15.15–15.55 8. ST í Myllubakkaskóla.
Kl. 16–16.40 8. IM Myllubakkaskóla.
Grindavíkurkirkja. Foreldramorgunn kl.
10–12.
Borgarneskirkja. TTT – tíu–tólf ára starf
alla þriðjudaga kl. 17–18. Helgistund í
kirkjunni sömu daga kl. 18.15–19.
Þorlákskirkja. Mömmumorgnar á þriðju-
dögum kl. 10–12.
Hvammstangakirkja. Æskulýðsfundur í
Hrakhólum í kvöld kl. 20.
Krossinn. Almenn samkoma kl. 20.30 í
Hlíðasmára 5. Allir velkomnir.
AD KFUK, Holtavegi 28. Fundur í kvöld
kl. 20. Hvernig er himinninn? Guðlaugur
Gunnarsson fjallar um efnið. Allar konur
velkomnar.
Safnaðarstarf
>
9
/
/
%
!
*
" !
!
2
$ =#
5'$ %
4
9
& 8 .)+,
.', ' .' )'+,
,) )+()
)*3.4 * .' )'+, G5' )+()
'$'34 )(*')*'$'34 )%
!
*
" !
!
22=!
2)*.''@@
2 "
9
'(
#''(
8 %
?9
@ " ")' &) ))' +,
' *2 )++,
34 ) )*+'34 )(*3' )'34 )%
1
"
!/!
'$)
#.'5&
&
.
% %
+9
-%#''(
=,
++()
+ :' &'+,
)+' '=, ' +,
'*)+ ))' +,
,'))!'$()
)+&!'$+, %
>
9 * % ! 9
/
%
%
!
*
!
!
">=
2!"
.'& %
)+ *'() =, ))!45'+,
=( )) *'() - $ & - )'+,
3' )'34 )(*3' )'3' )'34 )%
1
"
">-" 228!
' * HH
#.'5&
" , +"
,
$
.! 9
-%#&((
:'*)1 )+()
)+ :'*)1()
*J, :'*)1() 9'+&!
,)'+,
8 3.4 ):'*)1() *' :'*)1()
3' )'34 )(*3' )3' )'34 )%
1
K28
-
=( )*4 L@
( *' )
4 ; !
-
1& 0()%
✝ Karl Sigurðssonfæddist á Húsa-
vík 15. apríl 1943.
Hann lést á heimili
sínu 17. október síð-
astliðinn. Foreldrar
hans voru Guðrún
Karlsdóttir, f. 29. maí
1917, d. 15. sept.
1999, og Sigurður
Gunnarsson skóla-
stjóri, f. 10. okt. 1912,
d. 23. apríl 1996.
Bræður Karls, sem
var elstur þriggja
bræðra, eru Gunnar,
f. 18. des. 1944, og
Vilhjálmur, f. 4. júlí 1954.
Sambýliskona Karls var Erla
Reynisdóttir, þau slitu samvistir.
Félagi Karls sl. 15 ár var Elín E.
Steinþórsdóttir.
Karl lauk landsprófi frá Gagn-
fræðaskóla Húsavíkur 1960 og pí-
anókennaraprófi frá
Tónlistarskóla
Reykjavíkur 1967.
Allan sinn starfsald-
ur stundaði Karl pí-
anókennslu, lengst
af við Tónlistarskóla
Garðabæjar. Karl
starfaði ötullega
með Guðspekifélagi
Íslands og gegndi
ýmsum trúnaðar-
störfum fyrir félag-
ið, var m.a. forseti
þess um skeið og rit-
stjóri Ganglera,
tímarits félagsins.
Hann flutti mörg fræðandi erindi
á fundum félagsins og lauk þeim
ófáum með ljúfum tónum slag-
hörpunnar.
Útför Karls fer fram frá Lang-
holtskirkju í dag og hefst athöfnin
klukkan 13.30.
Kveðja frá Tónlistarskóla
Garðabæjar
Á einum af þessum fögru haust-
dögum, þegar náttúran skartar öllu
sínu fegursta og litadýrðin er slík
að mannfólkið tekur andköf af gleði
og hrifningu, fór um okkur í Tón-
listarskóla Garðabæjar kaldur næð-
ingur. Fegurð himinsins varð á and-
artaki að því sem minnti okkur á að
ekki er langt í hryssing og myrkur
vetrarins og daglegt amstur og yf-
irvofandi verkfall, afleiðingar þess
og áhrif sem það óhjákvæmilega
myndi hafa á líf okkar, gleymdist.
Okkur barst sú harmafregn að
hann Karl væri allur. Það var hníp-
inn hópur samstarfsmanna hans,
sumra í áratugi, sem var minntur á
að enginn á sér tryggan morgun-
dag, hvorki ungur né gamall.
Kynni okkar Karls voru því mið-
ur alltof stutt en mikið afskaplega
voru þau ljúf. Ég stóð í miðju
galdrafári sem þeir einir þekkja
sem í hafa lent, þegar þessi ljúfling-
ur vatt sér inn á skrifstofu mína,
faðmaði mig að sér og sagði: Ég er
hann Kalli og ég stend með þér.
Þetta var upphafið að kærleiks-
ríkri vináttu, sem svo sannarlega
hefði mátt vara lengur. Hann var
fæddur á Húsavík og hóf þar tón-
listarnám, en fór síðan unglingur til
Reykjavíkur og stundaði fram-
haldsnám. Hann talaði oft um það
hversu gjarnan hann hefði viljað
hefja tónlistarnámið yngri að árum
og hve árangur hans hefði þá orðið
annar og meiri, hann talaði oft um
þann mun sem er á tónlistarnámi þá
og nú. Karl var allra kennara lengst
starfandi við Tónlistarskóla Garða-
bæjar eða frá 1967, þar af um tíma
sem yfirkennari, og hann þekkti þar
allt út og inn. Hann var svolítið
hreykinn af því að hafa fylgt skól-
anum svo að segja frá upphafi og að
hafa haft þar áhrif. Lét jafnvel að
því liggja að hann hefði látið hausa
fjúka og aukið hróður þeirra sem
hann hafði velþóknun á. Hann var
stoltur af skólanum sem hann hafði
helgað ævistarf sitt og hann var
stoltur af framvindu hans. Hann var
góður og natinn kennari og mikið
gladdi það hann og okkur öll nú í
vor þegar í ljós kom að það var ein-
mitt nemandi hans til margra ára
sem hæsta einkunn hlaut.
Karl var hvers manns hugljúfi ef
hann vildi svo vera láta og lifði lífi
sínu með reisn. Hann var í nánum
tengslum við náttúruna og átti sínar
mestu yndisstundir í litla sumarbú-
staðnum sínum. Og alltaf var kátína
og gleði þegar hann kom með eigin
kartöfluppskeru og gaf þeim sem
hann hafði velþóknun á. Hann átti
við mikla vanheilsu að stríða. Sjúk-
dómur, sem því miður hefur ekki
mátt tala mikið um, þjáði hann og
hindraði í leik og störfum í áratugi.
Okkur starfsfólki skólans finnst
foreldrar stundum harðir í horn að
taka þegar kennarar eiga í hlut.
Það er búið að borga og allir vilja fá
sitt. Þá er ekki alltaf hugsað um það
að tónlistarkennarar eru líka fólk
sem verður veikt, á við sín vanda-
mál að stríða, eru jafnvel oft ber-
skjaldaðri en aðrir fyrir hretum lífs-
ins, en standa samt á meðan stætt
er, eins og sást á Karli.
Hann var félagslyndur og
skemmtilegur og tók það nærri sér
hve sjúkdómur hans kom oft í veg
fyrir að hann gæti átt eðlileg sam-
skipti við fólk. Mikil og einlæg var
gleðin þegar líðan hans leyfði slík
samskipti, og að geta þó stundum
eygt von um að fá að lifa því lífi sem
honum fannst eftirsóknarvert.
Skáldið Gabriel Garcia Márquez
segir í litlum greinarstúf sem ný-
lega birtist: Þú munt örugglega
harma daginn þann þegar þú gafst
þér ekki tíma fyrir bros, faðmlag,
koss og þú varst of önnum kafinn til
að verða við óskum annarra. Karl
fór fram á það við mig í haust að
hann fengi að byrja hvern vinnudag
á því að við föðmuðumst. Það var
svo sannarlega auðsótt, en ég vildi
að ég hefði notið hvers faðmlags
enn betur, hlýjunnar og vináttunnar
sem það tjáði og ég vildi að mér
hefði tekist að gefa honum meiri
styrk. En kannski erum við hrædd
við að þröngva okkur um of í líf
samferðafólksins. Er jafnvel helgi
einkalífsins gagnvart vinnustað orð-
in þannig að við látum okkur náung-
ann ekki nóg varða? Þær eru marg-
ar spurningarnar og ef-in sem koma
í hugann á slíkum sorgarstundum
sem vonandi hjálpa okkur til að
bregðast betur við á lífsleiðinni.
Við kennarar, nemendur og
starfsfólk Tónlistarskóla Garða-
bæjar vottum ættingjum og vinum
Karls einlæga samúð um leið og við
kveðjum góðan kennara, vin og
samstarfsmann.
Agnes Löve
skólastjóri.
KARL
SIGURÐSSON
Fleiri minningargreinar um Karl
Sigurðsson bíða birtingar og munu
birtast í blaðinu næstu daga.