Morgunblaðið - 30.10.2001, Síða 50
DAGBÓK
50 ÞRIÐJUDAGUR 30. OKTÓBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Skóg-
arfoss, Hannover, Nida,
Vædderen, Arnarfell
Arina Artica og Goða-
foss koma í dag.
Hafnarfjarðarhöfn: Sel-
foss kom til Straums-
víkur í gær.
Fréttir
Mæðrastyrksnefnd
Kópavogs, Hamraborg
20a. Fataúthlutun kl.
17–18.
Mannamót
Aflagrandi 40. Kl 9
vinnustofa og leirkera-
smíði, kl. 10 enska,
vinnustofa og postulín.
Árskógar 4. Kl. 9 bók-
band og öskjugerð, kl. 13
opin smíðastofa, kl. 10
púttvöllur opinn.
Bólstaðarhlíð 43. Kl. 9–
9.45 leikfimi, kl. 9–12
tréskurður, kl. 9–16
handavinna, kl. 10 sund,
kl. 13 leirlist, kl. 14 dans.
Fimmtud. 1. nóv. leið-
beinir Ragnar Að-
alsteinsson með vísna-
gerð, dansað á eftir.
Eldri borgarar Mos-
fellsbæ, Kjalarnesi og
Kjós. Félagsstarfið
Hlaðhömrum er á
þriðju- og fimmtud. kl.
13–16.30, spil og föndur.
Félagsstarf aldraðra
Dalbraut 18–20. Kl. 10
samverustund, kl.14 fé-
lagsvist.
Félagsstarf aldraðra,
Lönguhlíð 3. Kl. 13 fönd-
ur og handavinna.
Haustbasarinn verður
laugard. 3. og sunnud. 4.
nóv. Tekið á móti bas-
armunum þessa viku.
Félag eldri borgara
Hafnarfirði, Hraunseli.
Leikfimi í íþróttahúsinu
við Strandgötu kl. 11.30.
Saumar og brids kl.
13.30. Tréútskurður í
Lækjarskóla kl. 13. Á
morgun píla og mynd-
list. Á fimmtud. gler-
skurður kl. 13. Á laug-
ard. kórsöngur tveggja
kóra í Víðistaðakirkju,
Gleðigjafar frá Höfn í
Hornafirði og Gafl-
arakórinn.
Félagsmiðstöðin, Furu-
gerði 1. Sprautað verður
gegn inflúensu í dag,
þriðjud., kl. 13. Árleg
skemmtun Bandalags
kvenna verður fimmtud.
1. nóvember kl. 20.
Söngur, grín og gaman.
Uppl. í s. 553-6040.
Félagsstarfið Hæð-
argarði 31. Kl. 9–16.30
vinnustofa, tréskurður,
kl. 10 leikfimi, kl. 12.40
Bónusferð, kl. 13.15
bókabíll. Opið alla
sunnudaga frá kl. 14–16,
blöðin og kaffi.
Garðabær. Opið hús í
Kirkjuhvoli í dag kl. 13–
16. Spilað og spjallað.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði
Glæsibæ. Þriðjud.: Þor-
valdur Lúðvíksson lög-
fræðingur til viðtals kl.
10–12, panta þarf tíma.
Skák kl. 13 og alkort kl.
13.30. Miðvikud: Göngu-
Hrólfar fara í göngu frá
Ásgarði í Glæsibæ kl. 10.
Söngfélag FEB, kóræf-
ing kl. 17. Línudans-
kennsla fellur niður.
Bridsnámskeið kl. 19.30.
Skoðunarferð um
Krýsuvík 2. nóv. Brott-
för frá Ásgarði kl. 13.30.
Skráning hafin. Heilsa
og hamingja laugard. 10.
nóv. nk. í Ásgarði
Glæsibæ hefst kl. 13.30.
Skrifstofa félagsins er
flutt að Faxafeni 12,
sama símanúmer og áð-
ur.
Félagsstarfið er áfram í
Ásgarði Glæsibæ. Uppl.
á skrifstofu FEB kl. 10–
16, s. 588-2111.
Gerðuberg, félagsstarf.
Kl. 9–16. 30 vinnustofur
opnar, kl. 9–12 opið hús í
Miðbergi, leik-
tækjasalur og fleira, kl.
13 boccia, veitingar í vet-
ingabúð.
Fimmtudaginn 1. nóv-
ember kl. 13.15, fé-
lagsvist í samstarfi við
Fellaskóla, stjórnandi
Eiríkur Sigfússon. Allir
velkomnir.
Gjábakki, Fannborg 8.
Handavinnustofa opin
frá kl. 10–17, kl. 9.05 og
9.50 leikfimi, kl. 9.30
glerlist, kl. 14 fer þriðju-
dagsganga frá Gjá-
bakka, kl. 14 boccia, kl.
16.20 og kl. 17.15 kín-
versk leikfimi.
Gullsmári, Gullsmára
13. Postulínsmálun kl.
9.15, jóga kl. 9.05,
handavinnustofan opin
kl. 13–16, leiðbeinandi á
staðnum, spænska.
Þjóðleikhúsið verður
með kynningu á leikrit-
inu Vilji Emmu kl. 14 í
Gullsmára, miðvd. 31.
okt.
Miðar afgreiddir í Gull-
smára næstu daga.
Hvassaleiti 56–58. Kl. 9
leikfimi, kl. 9.45 banka-
þjónusta, kl. 13 handa-
vinna, kl. 13.30 bæna-
stund.
Hraunbær 105. Kl. 9
postulínsmálun, kl. 9
glerskurður og tré-
málun, kl. 10 boccia, kl.
11 leikfimi, kl. 12.15
verslunarferð í Bónus,
kl. 13 myndlist.
Háteigskirkja, eldri
borgarar, á morgun,
miðvikudag, fyrirbæna-
stund kl. 11, súpa í Setr-
inu kl. 12, spil kl. 13.
Norðurbrún 1. Kl. 9–
16.45 tréskurður og opin
vinnustofa, kl. 10 boccia.
Vesturgata 7. Kl. 9.15–
16 bútasaumur, kl. 9.15–
15.30 handavinna, kl. 11
leikfimi, kl. 13 spilað.
Flóamarkaður verður
haldinn fimmtud. 8. nóv.
og föstud. 9. nóv. frá kl.
13–16.
Helgistund verður
fimmtud. 1. nóv. kl.
10.30, í umsjón séra Jak-
obs Ágústs Hjálm-
arssonar dóm-
kirkjuprests.
Vitatorg. Kl. 9 smíði, kl.
9.30 glerskurður og
morgunstund, kl. 10
leikfimi, kl. 11 boccia, kl.
13 handmennt og körfu-
gerð, kl. 14 félagsvist.
ÍAK, Íþróttafélag aldr-
aðra í Kópavogi. Leik-
fimi kl. 11.15 í Digra-
neskirkju.
Bridsdeild FEBK Gjá-
bakka. Brids í kvöld kl.
19.
Félag ábyrgra feðra.
Fundur í Shell-húsinu,
Skerjafirði, á mið-
vikudögum kl. 20, svarað
í síma 552 6644 á fund-
artíma.
Eineltissamtökin. Fund-
ir á Túngötu 7, á þriðju-
dögum kl. 20.
Félag áhugafólks um
íþróttir aldraðra, leik-
fimi kl. 11 í Bláa salnum.
Kvenfélag Hreyfils.
Vetrarstarfið hafið.
Fyrsti fundur verður
miðvikudaginn 31. okt.
kl. 20. Ath. breyttan
fundardag.
Reykjavíkurdeild SÍBS
verður með félagsvist í
húsnæði Múlalundar,
vinnustofu SÍBS, í Há-
túni 10c, í kvöld, þriðju-
daginn 30. október. Fé-
lagar fjölmennið og
takið með ykkur gesti.
Byrjað að spila kl. 20.
Mæting kl. 19.30. Hús-
inu lokað kl. 20.
Félag Snæfellinga og
Hnappdæla í Reykjavík,
árshátíð laugard. 3. nóv.
í Breiðfirðingabúð,
Faxafeni 14.
Uppl. gefa Ásthildur, s.
586-8311, Guðbjörg, s.
587-7092, Guðný, s. 567-
9232, og Hrafnhildur, s.
554-5354.
Öldungaráð Hauka
Fundur verður miðviku-
daginn 31. okt. kl. 20 í
Félagsheimilinu á Ás-
völlum
Hana-nú Kópavogi
Fundur í Hláturklúbbi í
kvöld kl. 20 í félagsheim-
ilinu Gullsmára 13. Val-
gerður Snæland Jóns-
dóttir „hláturtæknir“ frá
Líf & leikir gestur
kvöldsins.
Nokkrir miðar eru til á
Töfraflautuna í Íslensku
óperunni sunnud. 11.
nóv. Miðasala stendur
yfir á galakvöldið laug-
ard. 3. nóv. Uppl. í Gjá-
bakka, s. 554-3400 og
Gullsmára, s. 564-5261.
Kvenfélag Hallgríms-
kirkju, fundur verður
fimmtud. 1. nóv. kl. 20 í
safnaðarsal, á fundinum
verður afhentur skírn-
arfontur. Biskupinn, sr.
Karl Sigurbjörnsson,
flytur hugvekju.
Kvenfélag Fríkirkj-
unnar í Reykjavík, held-
ur fund 1. nóv. í safn-
aðarheimilinu
Laufásvegi 13, kl. 20.
Ath. breyttan fund-
artíma. Gestur verður
Ingibjörg María Reyn-
isdóttir sem kennir jóla-
kortagerð.
Þjóðdansafélagið. Opið
hús í kvöld í Álfabakka
14a. Gömlu dansarnir
frá kl. 20.30–23.
Félagsstarf aldraðra
Garðabæ. Vetrarfagn-
aðurinn verður 8. nóv. í
Garðaholti.
Í dag er þriðjudagur 30. október,
303. dagur ársins 2001. Orð
dagsins: Fyrirætlanir hjartans eru
á mannsins valdi, en svar
tungunnar kemur frá Drottni.
(Orðskv. 16, 1.)
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
LÁRÉTT:
1 nefna, 8 glufa, 9 tætir
sundur, 10 veðurfar, 11
skakka, 13 fyrir innan, 15
vænsta, 18 vondar, 21
ungviði, 22 upptök, 23
viðurkennt, 24 skjálfti.
LÓÐRÉTT:
2 gyðja, 3 týna, 4 hlífði, 5
tangarnir, 6 mynni, 7
konur, 12 megna, 14 fljót,
15 húsgagn, 16 náði í, 17
nytjalönd, 18 starfið, 19
dánu, 20 tala.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 frekt, 4 fátæk, 7 engið, 8 neytt, 9 ann, 11 ilma,
13 hani, 14 sulla, 15 hark, 17 ljót, 20 egg, 22 látur, 23 ríg-
ur, 24 torfi, 25 tæran.
Lóðrétt: 1 freri, 2 elgum, 3 tuða, 4 fönn, 5 teyga, 6 ketti,
10 nýleg, 12 ask, 13 hal, 15 helft, 16 rytur, 18 júgur, 19
tíran, 20 ermi, 21 græt.
K r o s s g á t a
Víkverji skrifar...
AF ÞEIM fjölmörgu útvarps-stöðvum sem standa hlustend-
um hér á landi til boða hefur Rás 1
Ríkisútvarpsins í gegnum tíðina ver-
ið í hvað mestu uppáhaldi hjá Vík-
verja dagsins. Hann er reyndar kom-
inn á þann aldur að hann man vel þá
tíð þegar útvarp Reykjavík var eina
íslenska útvarpsstöðin og íslenskt
sjónvarp var aðeins fjarlæg framtíð-
arsýn. Alla tíð hefur Víkverji haldið
tryggð við gömlu gufuna og þótt
hann hafi stöku sinnum freistast til
að halda framhjá henni hefur það
aldrei náð að eyðileggja það trausta
samband sem stofnað var til á sínum
tíma.
x x x
DAGSKRÁRGERÐ á Rás 1 hefurí flestum tilfellum verið ákaf-
lega vel unnin að mati Víkverja, og
þangað hefur verið hægt að sækja
margvíslegan fróðleik og skemmtun
af ýmsu tagi, auk þess sem tónlistar-
efni hefur verið fjölskrúðugt og
vandað. Það hefur vart farið framhjá
neinum að Ríkisútvarpið hefur átt í
fjárhagserfiðleikum og á dögunum
bárust fréttir af tillögum útvarps-
stjóra um hvernig bregðast skuli við
þeim vanda. Fram kom að tillögurn-
ar eru meðal annars settar fram í
ljósi þess að fyrstu níu mánuði ársins
var 190 milljóna króna halli á rekstri
Sjónvarpsins og 48 milljóna króna
halli á rekstri Útvarpsins. Um er að
ræða frumtillögur sem fela m.a. í sér
að útsending sjónvarpsins verði stytt
umtalsvert, verði frá klukkan 18:30–
22:30 á virkum dögum og ekki lengur
en til miðnættis um helgar. Þá leggur
útvarpsstjóri fram tillögu þess efnis
að tíufréttir verði lagðar niður og
mjög dregið úr sýningum frá íþrótta-
viðburðum sem hafa hækkað mikið í
innkaupum að undanförnu. Lagt er
til að rekstur textavarps og vefjar
Ríkisútvarpsins verði einfaldaður og
að dagskrá Rásar 1 verði gerð eins
einföld og ódýr og mögulegt er. Ef
farið verður eftir þessum tillögum út-
varpsstjóra er ljóst að skert þjónusta
Ríkisútvarpsins verður mörgum til
ama og sá er þetta skrifar staldrar
sérstaklega við þá hugmynd „að dag-
skrá Rásar 1 verði gerð eins einföld
og ódýr og mögulegt er“. Verði þetta
gert er hætt við að sú vandaða dag-
skrárgerð sem hér hefur verið gerð
að umtalsefni heyri að einhverju leyti
fortíðinni til og sama flatneskjan og
yfirleitt ræður ríkjum á öðrum út-
varpsrásum haldi innreið sína í það
menningarmusteri sem Rás 1 hefur
verið og á skilyrðislaust að vera. Það
er langt frá því að vera tilhlökkunar-
efni í huga Víkverja.
x x x
ÞÓTT VEL sé vandað til dag-skrárgerðar á Rás 1 í langflest-
um tilvikum hefur það farið dálítið í
taugarnar á Víkverja stöku sinnum
að málfar einstaka þáttastjórnenda
er ekki í samræmi við það sem hann
telur sæma á þessum vettvangi. Hér
verða ekki tínd til nein einstök dæmi
um það sem miður hefur farið, en oft
á þetta sér stað þegar um beinar út-
sendingar er að ræða á umræðum og
þeir sem við stjórnvölinn sitja
gleyma sér í hita leiksins. Að sjálf-
sögðu er það afsakanlegt að menn
geri einstaka málfarsleg mistök und-
ir þessum kringumstæðum, en von-
andi verður sá ásetningur að gera
dagskrána einfaldari og ódýrari frá
því sem nú er ekki til þess að ambög-
ur og slettur nái yfirhöndinni á Rás 1.
Sammála
Helgu
ÉG VAR að lesa pistil í Vel-
vakanda sl. miðvikudag eft-
ir Helgu Bærings um þátt-
töku Íslendinga í
stríðsrekstri. Vil ég koma
því á framfæri að ég er al-
veg sammála því sem hún
skrifar þar.
Höskuldur Eyjólfsson.
Lambakjöt nátt-
úrulega gott
ÞAR sem ég borða meira af
lambakjöti en öðru kjöti fór
ég út í búð og ætlaði að
kaupa frosið súpukjöt. Þar
sá ég kjöt frá KEA sem
kostaði 712 kr. kílóið. Er
þetta hægt? Að selja kjötið
á þessu okurverði? Kjötið
er það feitt að maður hend-
ir næstum helming af því.
Matarreikningur hjá mér
einni hefur hækkað um 4
þús. kr. á mánuði síðan í
ágúst.
Unnandi lambakjöts.
Víða pottur brotinn
BLAÐBURÐARKONA
hafði samband við Velvak-
anda og sagði hún að það
væri víða pottur brotinn í
sambandi við launa-
greiðslur blaðburðarfólks.
Sagðist hún hafa borið út
Dag-Tímann í febrúar og
mars og er hún ekki ennþá
búin að fá launin greidd
fyrir mars.
Áskorun
ÉG SKORA á blaðbera (og
foreldra þeirra eftir atvik-
um) Fréttablaðsins, DV og
Morgunblaðsins að sýna
samstöðu og hafa samband
við stéttarfélagið Eflingu
og knýja á um gerð kjara-
samnings fyrir blaðbera.
Pétur Þorleifsson,
fyrrverandi blaðberi.
Holtið
hreinsað
MIG langaði að vekja at-
hygli á ótrúlegu magni af
rusli á Skólavörðuholti
austan Hallgrímskirkju. Í
runnunum hjá Iðnskólan-
um og Austurbæjarskóla,
allt niður að Eiríksgötu.
Þvílíkur subbuskapur.Bið
um að holtið sé hreinsað.
Með kveðju,
Lesandi.
Tapað/fundið
Nike-úlpa týndist
BLÁ Nike-úlpa týndist í
Fossvogi fyrir 2 vikum.
Skilvís finnandi hafi sam-
band í síma 581 4377 eða
553 1222.
Gleraugu
í óskilum
GLERAUGU fundust fyrir
utan Listann í Akralind 7 í
Kópavogi. Eigandi hafi
samband við búðina.
Gullkross
í óskilum
LÍTILL gullkross í fallegri
keðju fannst í vor á torginu
milli Blindrabókasafnsins
og pósthússins við Digra-
nesveg í Kópavogi.
Upplýsingar í síma
588 6838.
Barnahjól í óskilum
BARNAHJÓL er í óskilum
á Laugavegi. Upplýsingar í
síma 893 2132.
Dýrahald
Bröndótt
læða týndist
LÍTIL, bröndótt, hvít og
gul læða týndist frá heimili
sínu í miðbænum sl. sunnu-
dag, 21. okt.
Þeir sem hafa orðið
hennar varir hafi samband í
síma 561 3498 eða 899 2905.
Páfagaukur
týndist
LJÓSGRÆNN páfagauk-
ur, Sydney, týndist um há-
degisbilið 25. október frá
Öldugötu 51, Reykjavík.
Finnandi vinsamlega hafi
samband í síma 552 4678.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15.
Netfang velvakandi@mbl.is
SOPRANO-þættirnir
hafa fengið margar til-
nefningar fyrir vinsældir
og eru mikið auglýstir á
þeim nótum. Sumt er þar
vel gert, leikur og leik-
stjórn, en í gærkveldi, 22.
okt., tók út yfir allan
þjófabálk.
Við spyrjum: Hvers
vegna eru þessir þættir
svona vinsælir? Vilja
menn horfa á ofbeldi,
sóðaorðbragð, klám og
lítilsvirðingu beggja
kynja? Okkur er sama
þótt þetta sé sýnt seint að
kveldi. Þetta er ekki
sæmandi, það er umhugs-
unarvert hvers vegna
svona þættir fá eins
margar tilnefningar og
raun ber vitni og verður
okkur hugsað sér-
staklega til Bandaríkj-
anna.
Við beinum þeim til-
mælum til dagskrár-
stjórnar RÚV að taka til
endurskoðunar sýningu á
þessum ofbeldisfullu
þáttum sem eru þar að
auki fullir af tvískinn-
ungi, ekki síst í garð
kvenna og ungra stúlkna.
Guðrún Kristinsdóttir
og Hrefna Sigurjóns-
dóttir við Kennarahá-
skóla Íslands.
Soprano-þættir vinsælir?