Morgunblaðið - 30.10.2001, Page 52
FÓLK Í FRÉTTUM
52 ÞRIÐJUDAGUR 30. OKTÓBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
það nálgast almyrkva. Miller er í
raun algert aukaatriði í þessari bók.
Sú litla saga sem hægt er að njörva
niður er í raun bara uppkast; strigi
fyrir myndmálið. Aðalsöguhetjan er
vélmenni sem sér um að ganga frá
samkeppnisaðilum vonda ofurfyrir-
tækisins, Willeford. Hann veit þó
ekki hvers kyns er; heldur sjálfur
að hann sé skattinnheimtumaður af
holdi og blóði og reynir að halda í
þá trú með öllum tiltækum ráðum.
Blade Runner svífur yfir vötnum.
Að lokum kemst hann þó að hinu
sanna og verður við það alveg
bandbrjálaður og allt fer í bál og
brand.
Miller hefur ávallt verið harður
andstæðingur
ritskoðunar í
allri sinni mynd.
Hann neitaði til
dæmis snemma
að merkja blöð
sín og bækur
með merki Com-
ics Code sem var
eins konar Kvik-
myndaeftirlit rík-
isins í myndasög-
um. Ég hef því
lúmskan grun
um það að Hard
Boiled sé and-
svar við þeirri
hreinlyndisstefnu
sem einkenndi
vinsælar banda-
rískar mynda-
sögur á árum áð-
ur.
En eins og áð-
ur sagði, er það
Darrow sem ber
hér sigur úr být-
um. Hann notar
stórt brot bókar-
innar til hins ýtr-
asta og fyllir
hverja síðu með
ótrúlegum fjölda
smáatriða. Sum-
ar myndirnar, sem flestar taka yfir
heila síðu, eru líkari Hvar er Valli?
(Where is Waldo?) myndaleikjum
en teiknimyndasögum. Lesandinn
skimar endurtekið yfir síðurnar til
að greina allar duldu smásögurnar
sem eru í bakgrunninum. Ná-
kvæmnin jaðrar við að vera ofstæk-
isfull. Þetta er „distópía“ (myrk
framtíðarsýn) af bestu/verstu gerð.
Söguhetjan er Dirty Harry á raf-
hlöðusýru og umhverfi hennar er
skítugt, ömurlegt, spillt og rotið.
Ofbeldi og kynferðisleg úrkynjun
eru daglegt brauð og götur borg-
arinnar eru undirlagðar hinum
versta sora sem Darrow nær á ein-
hvern furðulegan hátt að lýsa af
miklu hugviti.
Þetta er ekki falleg lýsing en
snemma kemur í ljós að höfund-
arnir eru bara að leika sér. Það er
lítil alvara á ferð og nákvæmlega
engum boðskap fyrir að fara. Bókin
er fyndin frekar en óhugguleg.
Þetta er einskonar ,,splattermynd“
í bókarformi þar sem ýkjurnar
verða svo stórkostlegar að viðfangs-
efnið snýst upp í andhverfu sína.
Hard Boiled er ekki bara harð-
soðin. Hún er mauksoðin og ekki
fyrir viðkvæm meltingarfæri.
ÞAÐ ER ekki oft sem mig rekur
í rogastans við lestur myndasögu-
bókar. Hard Boiled varð til þess og
gott betur. Hún er eins og árekstur
við stöðvunarskyldumerki.
Höfundur sögunar er Frank Mill-
er. Miller þekkja væntanlega flestir
lesendur þessa dálks en hann hefur
getið af sér framúrskarandi verk
eins og Daredevil, Electra Assassin,
Sin City, 300 og meistaraverkið
Batman: The Dark Knight Returns,
bestu úttekt á þeirri fornfrægu
hetju sem sést hefur. Miller hefur
oftast séð um það sjálfur að teikna
sögur sínar samhliða skrifunum og
rýrir það svo sannarlega ekki gildi
þeirra.
Í Hard Boiled fær hann til liðs
við sig teiknarann Geof Darrow
sem leysir úr læðingi eina svakaleg-
ustu djöflareið síðari tíma. Ég
þekki ekki önnur verk Darrows en
Wachowski-bræður fengu hann til
að teikna stíliseraðar bardagasen-
urnar (story board) í mynd sinni,
The Matrix. Eftir lestur þessarar
bókar kemur það ekki á óvart. Dar-
row er sannkallaður senuþjófur og
auga hans fyrir sláandi myndmáli
er engu líkt. Í bókinni tekst honum
að búa til dantískt infernó á jörðu
þar sem ljósglætan er svo lítil að
MYNDASAGA
VIKUNNAR
Ofbeldis-
full ná-
kvæmni
Myndasaga vikunnar er Hard
Boiled eftir Frank Miller og
Geoff Darrow. Útgefið af
Dark Horse Comics, 1992.
Bókin fæst í Nexus IV á
Hverfisgötu.
Heimir Snorrason
heimirs@mbl.is
RÚSSÍBANARNIR eru ein mesta
fjörsveit sem hér starfar og hefur
sannast á breiðskífum og böllum. Í
nokkurn tíma hefur lítið farið fyrir
þeim Rússíbanafélögum saman, enda
hafa þeir haft í nógu að snúast hver í
sínu lagi. Það er því vel að þeir komi
saman að nýju til
að taka upp plötu,
enda framúrskar-
andi tónlistarmenn
á ferð.
Eins og fram
kemur í inngangi
þessarar umsagn-
ar er sveitin skipuð eins og forðum, en
með einni viðbót þó því til liðs við þá
Guðna, Jón, Einar Kristján og Tatu
er genginn slagverksmaðurinn
Matthías M.D. Hemstock, sem
kryddar af snilld það sem fram fer.
Sérstaklega ber hann með sér aust-
ræn áhrif, sem verður að teljast við-
eigandi í ljósi þess hvert þeir félagar
sækja sinn innblástur, til Mið-Austur-
landa og Balkanskaga að mestu leyti.
Matthías er áberandi í slagverki og
trommuleik, nær að laga hljóminn að
þörfum hvers lags, til að mynda í
„Ungverskum dansi nr. 6“, öðru lagi
plötunnar, og einnig í „Ta pedzou ðo
Pirea“, þar sem hann nær vel hefð-
bundnum rebetikoáslætti um miðbik
lagsins, en leyfir sér líka að skreyta
með annars kyns slagverki. Einnig er
„Khassidasöngurinn“ sem opnar plöt-
una sérdeilis skemmtilegur en þar
bregður Guðni á leik með didgeridoo.
Veit á gott hvað þeir félagar eru
ófeimnir við að stokka saman menn-
ingarheima.
Hljómur í slagaranum hans Hadji-
dakis, „Ta pedzou ðo Pirea“, sem
margir þekkja úr myndinni Aldrei á
sunnudögum, finnst mér full róman-
tískur, sérstaklega hefði verið gaman
að fá ögn meiri hörku í gítarhljóminn,
en það verður ekki af Einari Kristjáni
skafið að hann spilar á gítarinn í því
lagi af mikilli fimi og smekkvísi.
Takturinn í búlgarska hora-dansin-
um, „Horra-Bulgar-Horra“, er heldur
ekki nógu snarpur og gjarnan hefði
ég viljað vera án „Nava nagela“, sem
hentar eflaust vel til að trylla fólk á
böllum, en endist illa á plötu.
Í heild er platan þó bráðskemmti-
leg og styrkist við hverja hlustun.
Hún er kannski full fjörug, því þó
Rússíbanarnir séu mikil stuðsveit er
þeim líka gefið að leika tregafullt og
hægt eins og heyra má í besta lagi
plötunnar, „Nigun“, og einnig um
miðbik „Horra-Bulgar-Horra“.
Allir standa þeir félagar sig af-
burðavel, þó eðlilega beri mismikið á
þeim. Ástæða er til að benda á spila-
mennsku Guðna og Tatu í „Horra-
Bulgar-Horra“, Einars Kristjáns og
Tatu í „Khassidasöngnum“ og „Brej-
ero“ og Einars Kristjáns í „Ta pedzou
ðo Pirea“. Jón Skuggi er traustur og
Matthías fer á kostum í slagverkinu,
til að mynda í „Ungverska dansinum“
og sérstaklega „Brejero“.
Tónlist
Stokkaðir
saman menn-
ingarheimar
RÚSSÍBANARNIR
Gullregnið
Fljúgandi diskar/Edda
Rússíbanarnir eru Guðni Franzson, sem
leikur á klarinett, saxófón og didgeridoo,
Einar Kristján Einarsson, sem leikur á
gítar, Jón „Skuggi“ Steinþórsson sem
leikur á bassa, Tatu Kantomaa, sem leik-
ur á harmónikku, og Matthías M.D. Hem-
stock, sem leikur á slagverk ýmiskonar.
Árni Matthíasson
Morgunblaðið/Golli
Rússíbanarnir hafa margsannað
að þeir eru hin mesta fjörsveit.
Hafnarstræti 15, sími 551 3340
Restaurant
Pizzeria
Gallerí - Café
Í HLAÐVARPANUM
Veröldin er vasaklútur
ICELANDIC TAKE AWAY THEATRE
Leikstjóri: Neil Haigh, Leikmynd og búninga-
hönnun Katrín Þorvaldsdóttir.
5. sýn. í kvöld, þri. 30. okt. kl. 21
Tveir fyrir einn — örfá sæti laus
6. sýn. lau. 3. nóv. kl. 21 - örfá sæti laus
7. sýn. þri. 6. nóv. kl. 21 Tveir fyrir einn
8. sýn. þri. 13. nóv. kl. 21 - Tveir fyrir einn
9. sýn. fim. 15. nóv. kl. 21
Ath. Takmarkaður sýningafjöldi
Tónleikar mið. 31. okt. kl. 21
Stórsveit Reykjavíkur
undir stjórn Greg Hopkins. Aðgangseyrir 1.200 kr.
Rísandi sól
Finnur Torfi Stefánsson: Ad amore
Toru Takemitsu: Gitimalya fyrir marimbu
og hljómsveit
Tan Dun: Dauði og eldur
Hljómsveitarstjóri: Hermann Bäumer
Einleikari: Steef van Oosterhout
Sinfónían
Háskólabíó við Hagatorg
Sími 545 2500
sinfonia@sinfonia.is
www.sinfonia.is
blá áskriftaröð
fimmtudaginn 1. nóvember
kl. 19:30 í Háskólabíói
AÐALSTYRKTARAÐILI SINFÓNÍUNNAR
M
Á
T
T
U
R
IN
N
&
D
Ý
R
Ð
IN
Á þessum tónleikum kallast
á íslenska tímamótaverkið
Ad amore, sem nú er frum-
flutt á tónleikum á Íslandi,
og áhrifamikil austræn verk.
BLÍÐFINNUR e. Þorvald Þorsteinsson
í leikgerð Hörpu Arnardóttur
Lau 3. nóv kl. 14 - UPPSELT
Su 4. nóv kl. 14 - NOKKUR SÆTI
Lau 10. nóv. kl. 14 - ÖRFÁ SÆTI
Su 11. nóv. kl. 14 - UPPSELT
KRISTNIHALD UNDIR JÖKLI
e. Halldór Laxness
Fi 1. nóv kl. 20 - NOKKUR SÆTI
Fö 2. nóv kl. 20 - NOKKUR SÆTI
Lau 10. nóv kl. 20 - ÖRFÁ SÆTI
Su 18. nóv. kl. 20 - LAUS SÆTI
MEÐ VÍFIÐ Í LÚKUNUM e. Ray Cooney
Lau 3. nov kl. 20 - UPPSELT
Su. 11. nóv. kl. 20 - NOKKUR SÆTI
Fi. 15. nóv. kl. 20 - ÖRFÁ SÆTI
Fö 16. nóv kl. 20 - LAUS SÆTI
ÍSLENSKI DANSFLOKKURINN
HAUST 2001 - 3 NÝ ÍSLENSK VERK
"Da", eftir Láru Stefánsdóttur
Milli heima, eftir Katrínu Hall
Plan B, eftir Ólöfu Ingólfsdóttur
Fö 2. nóv kl. 20 - NOKKUR SÆTI
Lau 3. nóv kl. 20 - LAUS SÆTI
Fö 9. nóv kl. 20 - LAUS SÆTI
BEÐIÐ EFTIR GODOT e. Samuel Beckett
Su 4. nóv. kl. 20 - LAUS SÆTI
Lau 10. nóv. kl. 20 - LAUS SÆTI
URL ÞRÖNGSÝNI ÚTGÁFUTÓNLEIKAR
Mi 31. okt kl. 21 - húsið opnar 20.30.
MEGAS MYND OG TÓNLEIKAR
Fi 1. nóv. kl. 20 - LAUS SÆTI
PÍKUSÖGUR e. Eve Ensler
Fi 1. nóv kl. 20 - NOKKUR SÆTI
Fö 2. nóv kl. 20 - UPPSELT
Lau 10. nóv kl. 20 UPPSELT
Su 11. nóv kl. 20 - LAUS SÆTI
DAUÐADANSINN eftir August Strindberg
í samvinnu við Strindberghópinn
Fi 1. nóv. kl. 20 - NOKKUR SÆTI
Lau 3. nóv. kl. 20 - LAUS SÆTI
Fö 9. nóv. kl. 20 - LAUS SÆTI
Stóra svið
3. hæðin
Nýja sviðið
Litla sviðið
Miðasala: 568 8000
Miðasalan er opin kl. 13-18 og fram að sýningu
sýningardaga. Sími miðasölu opnar kl. 10 virka daga.
Fax 5680383 midasala@borgarleikhus.is
#' /! %( !"#$
#: /'%#$ !"#$
#& /! $%(%#$
#- / ##%#6 !"#$
#6 /! #-%(%#$
# /#6%#$%#$
$& '()*))+
A+
" !#& #$
/
/
4" #( #$%
+
,-
/! %(
/'%(./
0)12342)
B!
, &C
%"
15)62
2
7
8 1*))0
*)) + ,9-
,
2
!"#$%#!&'""()&' "(*
MOGGABÚÐIN
mbl.is
SMS FRÉTTIR
mbl.is