Morgunblaðið - 04.11.2001, Blaðsíða 7
Tillaga 5: Suður-Ameríka
Río de Janeiro - fegursta borg heims
Með stórferðum Heimsklúbbsins-Príma til Suður-Ameríku
hafa löndin Brasilía og Argentína sannarlega komist á kortið
hjá Íslendingum. Oft er talað um þessa áfangastaði sem lif-
andi leikhús undir berum himni, slík er tjáningin og lífs-
gleðin. Með stórlækkuðum fargjöldum, sem Heimsklúbbn-
um hefur í krafti reynslu sinnar og álits tekist að ná, má
kalla þessa skemmtilegustu álfu heimsins innan seilingar.
Río er ekki einungis talin fegursta borg í heimi, heldur er
hún heimsborg, þar sem fólk getur gengið úr húsdyrum sín-
um út á pálmaskrýddar baðstrendur næstum árið um kring. Río er engri annarri borg lík, svo falleg,
frjálsleg og fjörug er hún. Eftir skamma stund hefurðu rennt þér með kláfferjunni upp á Sætabrauðs-
tind, eða með sporbrautinni upp að Kristsstyttunni frægu á Corcovado. Lífið liðast áfram í sveiflu og
sömbu, og viss Karnivalstemmning ríkir alltaf í borginni, sem aldrei sefur.
Hótel Heimsklúbbsins eru við frægustu baðströnd heims, Copacabana, t.d. Plaza Copacabana 4* og í
einu þekktasta skemmtanahverfi Cariocas, eins og íbúarnir
eru kallaðir.
Verðtilboð: 9 d. flug, gist. m. morgunv., 7 nætur í
Río og flutn. milli flugv. og hótels frá kr. 159.600
+ flugv.sk. miðað við lágmark 25 manna hóp.
Staðfestingargjald kr. 25.000 á mann fylgi pöntun og
uppgjör minnst mánuði fyrir brottför.
Allt verð er háð gengisbreytingum.
Tillaga 4: Karíbahaf
Santo Domingo - Juan Dolio
Einn eftirsóttasti leikvangur fólks í fríi er tvímælalaust eyjar Karíba-
hafs. Heimsklúbburinn-Príma er brautryðjandi í að kynna þessa
heillandi, sólríku veröld, þar sem ljúfur andvarinn gælir við hörund
þitt undir krónum pálmanna, sem vaxa alveg niður í flæðarmál. Eyj-
an Dominíkana er undurfögur, á sér merka sögu landafundanna,
heillandi fólk, sem stjanar við þig, og hagstæðasta verðlag í Karíba-
hafi. Gististaðurinn Melia Juan Dolio stendur alveg á ströndinni, um
klukkustundar ferð frá höfuðborginni. Þar er allt innifalið: Gisting,
fullt fæði, allir drykkir, íþróttaaðstaða og skemmtanir. Með sérsamn-
ingi Heimsklúbbsins er verðið afar hagstætt, því að gestir þurfa ekki
að taka upp budduna, meðan þeir dveljast þar. Flug um Or-
lando/Miami eða New York til Sto. Domingo, gist eina nótt á útleið,
en heim samdægurs.
Verðtilboð: 9 d. flug, gisting USA 1 nótt, Juan Dolio 7
nætur - allt innifalið nema flugv.sk., frá kr. 148.800 miðað
við lágmark 25 manna hóp.
Tillaga 3: Suður-Afríka - Durban
Afríka er heillandi heimur, ekki síst vegna náttúrufars, sem ekki á sinn líka hvað snertir fjölbreytni.
DURBAN er 3. stærsta borg S-Afríku með rúmlega 3 milljónir íbúa, ein litríkasta borg heims hvað
snertir uppruna íbúanna, tungumál, siði og hefðir, sannkallaður kokkteill þjóða og ólíks menningar-
arfs. Durban er auk þess langstærsti og þekktasti baðstaður Afríku með breiða sandströnd, og yfir
henni er nýtískulegri og glæsilegri bragur en flestir vænta fyrirfram. Gullna mílan er heimsborgar-
leg með hótelum sínum, verslunum, veitingahúsum og endalausri röð sundlauga meðfram strönd-
inni, en fyrir utan brotnar hvítfext aldan, þar sem ungir kappar þreyta list sína á brimbrettum af
mikilli fimi. Sérkenni borgarinnar eru þó fyrst og fremst fólgin í hinu austræna yfirbragði, svo að
stundum getur þér fundist þú vera í Austurlöndum í stað Afríku. Í bland við hvíta og svarta sérðu margt austrænt fólk, einkum Indverja, og þar bjó frægasti Indverj-
inn, Faðir Indlands, Mahathma Gandi, í 20 ár.
Durban býður fjölbreytni, sem aðrir staðir á heimsbyggðinni geta naumast státað af: Dvöl á frægri baðströnd með góðum gististöðum, ágætum veitingahúsum með
ódýrum mat, fjölbreytt menningar- og skemmtanalíf, en umfram allt einhverjar frægustu villidýralendur heimsins rétt utan við borgarmörkin. Ekki er nema rúmlega
klukkustundarferð í hinn undurfagra „Game Valley“, með fjölda stórra villidýra, sem þú kemst ótrúlega nærri í sérhönnuðum Safaribílum. Nokkru lengra er í fyrsta
friðaða villidýrasvæði heims í Hluhluve-Umfolozi Park, eða í Drekafjöll, með nokkra fegurstu tinda heimsins. Flogið er um London og áfram til Durban með British
Airways. Gist á góðu 4* hóteli við ströndina í 7-10 nætur m. morgunverði, flutningi milli flugvallar-hótels og aðstoð fararstjóra.
Verðtilboð 9 d. skv. lýsingu - frá kr. 148.900 + flugv.sk. (má framl.) - lágmark 25 m.
Langt
fyrir lítið!
út í heim
FÁIÐ NÁNARI FERÐALÝSINGU Á SKRIFST.
PÖNTUNARSÍMI: 56 20 400
Austurstræti 17, 4. hæð, 101 Reykjavík, sími 562 0400, fax 562 6564,
netfang: prima@heimsklubbur.is, heimasíða: http://www.heimsklubbur.is
Ef þú og félagar þínir eruð í ferðahugleiðingum og ykkur
langar að gera eitthvað alveg sérstakt, er HEIMSKLÚBB-
URINN-PRÍMA fyrirtækið, sem getur hjálpað ykkur að láta
drauminn rætast og í krafti samninga sinna og sambanda
nánast galdrað fram handa ykkur frábæra ferð á bestu kjör-
um. Það hefur Heimsklúbburinn margsannað með öruggri
þjónustu sinni í mörg ár, sem nýtur viðurkenningar á heims-
mælikvarða og fjöldi útskriftarhópa, félagasamtaka, tónlist-
arfólks o.fl. hafa notið. Við getum annast ferð ykkar nánast
hvert sem er, en leyfið okkur að hafa hönd í bagga með und-
irbúningi og gerð ferðaáætlunar, ykkur til hagræðis og hags-
bóta. Hér á eftir eru nokkur dæmi um hve fjölbreyttar og
spennandi ferðir geta staðið ykkur til boða. Síðan gætum við
sniðið þær til og lagað að ykkar þörfum.
Tillaga 1: Austurlönd:
Bangkok - ódýrasta heimsborgin + Jomtien/Phuket - sól og fjör
Flug Flugleiða til Kaupmannahafnar og beint áfram með THAI-flugfélaginu til Bangkok. Gist á
góðu 4* hóteli í 3 nætur með morgunverði, rétt við fræg verslunar- og skemmtihverfi, djörfustu
skemmtiborgar í Austurlöndum og á heimsvísu. Fjöldi glæsilegra stórhýsa, verslunarhalla og
gæðahótela prýða þessa fjölbreyttu, stórmerku borg, þar sem verðlag er með því allra hag-
stæðasta í heiminum. Inn á milli eru fegurstu musteri, sveipuð austrænni dulúð. Vöruúrval er ein-
stakt og verðið ótrúlegt. Bangkok býður allt sem fólk girnist á ferðalögum.
Eftir 3ja daga dvöl er haldið til baðstrandar, annað hvort í Jomtien, sunnan við Pattaya, eða flog-
ið til Phuket, frægasta bað- og skemmtistaðar í Asíu í dag, dvöl á 3-4* hóteli m. morgunv. 5 n.
Verðtilboð 10 d., flug, gisting m. morgunverði, flutn. milli staða, aðst. fararstjóra, frá
kr. 118.400 + flugv.sk. miðað við lágmark 25 manna hóp.
Tillaga 2: Austurlönd: Austur- og Vestur-Malasía + Bangkok + Phuket
Malasía er eitt fjölbreyttasta ríki heims að náttúrufari, einkum ef heimsótt er bæði Vestur- og Austur-Malasía með Borneo, eins og boðið er uppá hér. Flogið er gegn-
um London beint til KUALA LUMPUR, höfuðborgar ríkisins, sem er ein sérstæðasta og fegursta nútímaborg í heimi, með blandaðan byggingarstíl, þar sem austræn
og vestræn áhrif blandast saman á alveg töfrandi hátt, m.a. í hæstu turnum heimsins, PETRONAS, beint fyrir framan hótelgluggann þinn. Borgin er einstaklega fag-
urlega lýst á kvöldin og býður margar lystisemdir. Þaðan er tæplega 2 stunda flug til KUCHING, höfuðborgar Sarawak-fylkis, þar sem aldagamlir þjóðhættir hinna
hraustu og harðgerðu frumbyggja eru enn við lýði. Dvalist er á góðu 4* hóteli í 5 nætur og ferðast um nágrennið, inn í frumskóga og meira að segja gist í „Langhúsi“
að hætti innfæddra. Öllum, sem reynt hafa ber saman um að þetta sé einhver merkilegasta ferðareynsla, sem þeir hafi orðið fyrir á ævinni. Eftir þessa dvöl er flogið til
BANGKOK að njóta lystisemda einnar mestu skemmtiborgar heimsins í 3 daga, og endað með 5 daga dvöl á hinni geysivinsælu eyju PHUKET, þar sem gist er á 3-4*
nýju hóteli rétt við frægustu baðströnd Thailands, Patong. Í lokin flug um Kuala Lumpur og London heim til Íslands eftir 18 daga ævintýraferð.
Verðtilboð: 18 d. - flug, gist. m. morg., flutn. milli staða, aðstoð fararstj. frá kr. 119.800 (10 d.) + flugv.sk. - miðað við lágmark 25 m. hóp,
frá kr. 158.800, 18 d. + flugv.sk. - miðað við lágmark 25 m. hóp .
Sumardýrð um hávetur - á verði fyrir þig!