Morgunblaðið - 04.11.2001, Blaðsíða 31
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. NÓVEMBER 2001 31
www.lipfinity.com
BYLTINGARKENND NÝJUNG
Helst á lengur en
nokkur annar varalitur
Kvikmyndir þar sem, Max Factor hefur séð um förðun, eru m.a. Bridget Jones’s Diary, Charlie’s
Angels, Anna and the King, Notting Hill, Titanic, The English Patient, Evita, Ever After, Bugsy Malone,
Alien, Interview with a Vampire, Midnight Express...
ÚTSÖLUSTAÐIR:
LYFJA - Smáralind, LYFJA - Lágmúla, LYFJA - Laugavegi, LYFJA - Smáratorgi,
LYFJA - Garðartorgi, LYFJA - Setbergi, NANA - Hólagarði, ÁRBÆJAR Apótek,
RIMA Apótek - Grafarvogi, LYF OG HEILSA - Austurvegi, LYF OG HEILSA - Hamra-
borg, LYF OG HEILSA - Glæsibæ, LYF OG HEILSA - Domus Medica, FÍNA - Mos-
fellsbæ, LYFJA - Grindavík, Húsavíkur Apótek, Sauðárkróks Apótek, Borgarness
Apótek, Snyrtihúsið - Selfossi, Vestmannaeyja Apótek, LYF OG HEILSA - Hrísa-
lundi Akureyri, LYF OG HEILSA - Akranesi, Lyfsalan Vopnafirði.
Meistaraskóli fyrir:
Bakara,
framreiðslumenn,
kjötiðnaðarmenn og
matreiðslumenn
Nánari upplýsingar veita kennslustjóri hótel- og
matvælagreina og deildarstjóri Meistaraskólans á
skrifstofutíma milli kl. 9.00 og 15.00.
Umsóknum fylgi staðfesting á sveinsprófi.
Kennsla hefst 14. janúar.
HÓTEL- OG MATVÆLASKÓLINN
MENNTASKÓLINN Í KÓPAVOGI
v/Digranesveg 200 Kópavogi.
Sími 594 4030 og 594 4080 Fax 594 4001
Netfang mk@ismennt.is
Nám til
meistara
Í SÝNINGARSAL Handverks
og hönnunar, sem er verkefni rekið
með fjárhagslegum stuðningi frá
forsætisráðuneyti, félagsmálaráðu-
neyti og Framleiðnisjóði landbún-
aðarins, er nú boðið upp á verk 18
hönnuða. Sýningin var öllum opin
en valnefnd valdi verk 18 hönnuða
úr umsóknum. Þema sýningarinnar
er ljós og ber hún titilinn Ljóslif-
andi, en samkvæmt frétt er mark-
miðið með sýningunni að skapa
hauststemmningu.
Það er skemmst frá því að segja
að hauststemmning er engin inni í
sýningarsalnum. Stemmningin er
meira eins og að ganga inn í IKEA
eða inn á snyrtilegt og vel búið
heimili í Reykjavík.
Í fyrstu er erfitt að sjá hvað er á
sýningu og hvað ekki. Sýningar-
rýmið er illa skilgreint og ekki
hjálpar til að starfsfólk Handverks
og hönnunar er að störfum á bakvið
lág skilrúm „inni í sýningarrým-
inu“. Húsnæðið lítur líka út eins og
íbúð sem gerir uppstillinguna enn
erfiðari. Verkin í salnum eru of
mörg og fá ekki nægjanlegt rými
hvert og eitt, og það að velja borð
og hillur frá IKEA sem undirstöð-
ur undir verkin er of ódýr lausn.
Hönnuðirnir fara ólíkar leiðir að
þema sýningarinnar, ljósi. Kerti,
kertastjakar, ljósleiðarar og lamp-
ar falla þannig vel að þemanu, en
púðar og ábreiður falla illa inn í
þemað. Á sýningunni eru margir
ágætir gripir og nokkrir athyglis-
verðir. Ég hafði mest gaman af
mjög raunsæislega unnum kertum
frá kertagerðinni Vaxandi, eins og
t.d. perukertunum og sítrónukert-
unum. Einnig voru skemmtilegar
tilraunir Guðlaugar Halldórsdóttur
þar sem hún vinnur með ullarlagða
sem lagðir hafa verið í ábreiðu og
púðar með útklipptum filtbútum
sem festir eru að því er virðist laus-
lega utan á. Einnig má minnast á
skemmtilegan lampa Margrétar
Guðnadóttur úr sefgrasi og kerta-
stjaka Ragnheiðar Ágústsdóttur,
en þar vinnur hún greinilega út frá
líkamanum, sveigjum hans og
beygjum.
Athygli vekur að allir sýnendur
eru kvenkyns, sem þýðir vonandi
ekki að karlmennirnir séu horfnir
úr stéttinni.
Á Ljóslifandi eru margir ágætir
gripir eins og ég sagði áðan en
sáralítið af ferskum hugmyndum,
en hlutverk Handverks og hönn-
unar er einmitt að hvetja til ný-
sköpunar í hönnun. Ég held að
hönnuðirnir ættu að sleppa aðeins
meira fram af sér beislinu fyrir
næstu sýningu. Til samanburðar vil
ég minnast á stórgóða sýningu sem
haldin var í Listasafni ASÍ á síð-
asta ári sem ég vona að sem flestir
hafi séð. Sýningin hét Ljósasögur
og þar sýndu 8 ungir hönnuðir frá
Danmörku, með Íslendinginn Að-
alstein Stefánsson í broddi fylking-
ar, ljósahönnun sína og var hún
leiftrandi af lífi og hugmyndaauðgi.
Reynt við
haust-
stemmn-
ingu
MYNDLIST
H a n d v e r k o g h ö n n u n
Opið alla daga nema mánudaga frá
12–17 til 4. nóvember.
HÖNNUN
18 HÖNNUÐIR
Þóroddur Bjarnason
Morgunblaðið/Þorkell
Perukerti frá Vaxandi.
Í Leikhúskjallaranum verð-
ur dagskrá í tilefni af ald-
arafmæli Magnúsar Ás-
geirssonar á morgun,
mánudag, kl. 20.30, en hann
hefði orðið hundrað ára
hinn 9. nóvember. Magnús
var afkastamesti ljóðaþýð-
andi Íslendinga á fyrri hluta
20. aldar. Af sígildum þýð-
ingum hans má nefna
Vögguþuluna eftir García
Lorca og Síðasta blómið eftir James
Thurber.
Sölvi B. Sigurðsson bókmennta-
fræðingur, dóttursonur Magnúsar,
fjallar um afa sinn, þýðand-
ann og skáldið, en hann hef-
ur umsjón með útgáfu á
nýju úrvali kvæða Magnús-
ar og þýðinga sem væntan-
legt er frá Máli og menningu
á næstu dögum. Leikararnir
Anna Kristín Arngrímsdótt-
ir, Arnar Jónsson, Erlingur
Gíslason, Helga E. Jóns-
dóttir, Jóhann Sigurðarson
og Kristbjörg Kjeld flytja
þýdd og frumsamin ljóð eftir Magn-
ús Ásgeirsson. Söngkonan Kristjana
Stefánsdóttir syngur við undirleik
Agnars Más Magnússonar.
Dagskrá í Leikhúskjallaranum
Magnúsar
Ásgeirssonar minnst
Magnús
Ásgeirsson
Í HJALLAKIRKJU verða haldnir
tónleikar tileinkaðir minningu lát-
inna í dag, sunnudag, kl. 17. Þeir eru
sérstaklega helgaðir minningu
Kristjáns Einars Þorvarðarsonar,
fyrrverandi sóknarprests í Hjalla-
sókn í Kópavogi.
Kór Hjallakirkju flytur Requiem
op. 48 eftir Gabriel Fauré ásamt ein-
söngvurunum Margréti Bóasdóttur
sópran og Lofti Erlingssyni baríton.
Orgelleikari er Lenka Mátéová og
söngstjóri Jón Ólafur Sigurðsson.
Látinna
minnst í
Hjallakirkju
Margrét
Bóasdóttir
Loftur
Erlingsson
KVIKMYND Sergeis Eisenstein,
Október, verður sýnd í bíósal MÍR,
Vatnsstíg 10, í dag, sunnudag, kl. 15.
Myndin var gerð í tilefni 10 ára af-
mælis Októberbyltingarinnar í
Rússlandi og fjallar um hina sögu-
legu daga í október og nóvember
1917.
Aðgangur er ókeypis.
Október í MÍR
♦ ♦ ♦HEIMILDARMYNDIN Fiðlan verð-ur sýnd í sal 2 í Háskólabíói í dag,
sunnudag, kl. 13.30, en hún hefur
verið tilnefnd til Edduverðlauna
sem besta íslenska heimildarmyndin
og er sýningin af því tilefni.
Myndin lýsir tilurð fiðlu, frá trjá-
bol til tónleika. Fylgst er með fiðlu-
smiðnum Hans Jóhannssyni smíða-
hljóðfæri fyrir lúxembúrgska
einleikarann Sandrine Cantoreggi.
Samtímis er varpað ljósi á ýmsar
goðsagnir sem tengjast fiðlunni og
hvernig smiðurinn leitast við að
móta rödd hljóðfærisins í eilífri leit
að fullkomnun. Leikstjóri mynd-
arinnar er Steinþór Birgisson,
handrit skrifaði Fríða Björk
Ingvarsdóttir og Arnar Þór Þór-
isson sá um kvikmyndatöku.
Aðgangur er ókeypis.
Fiðlan í
Háskólabíói
Hans Jóhannsson fiðlusmiður að
störfum í heimildarmyndinni.
M O N S O O N
M A K E U P
lifandi litir
Ungbarnafatnaður
Komdu í bæinn og skoðaðu úrvalið og
verðið. Allt fyrir mömmu.
Þumalína, Pósthússtr. 13, s. 551 2136.