Morgunblaðið - 04.11.2001, Side 51
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. NÓVEMBER 2001 51
DAGBÓK
Tilboð -10%
Sérmerkt
með nafni og
símanúmeri
Nú kr. 1.782
Nu kr. 1.890
Lei
kskólapokar Ge
islad
iskahlustur
Póstlistinn
sími 557-1960
Íslenski
www.postlistinn.is
auðvelt-hringdu!
til 15. nóv.
LAGERSALAN TUNGUHÁLSI 7
HELDUR ÁFRAM
Opið föstud. frá kl. 11-18, laugard. og sunnud. 11-17.
Tökum bæði debet- og kreditkort.
Tunguháls 7 er fyrir aftan Sælgætisgerðina Kólus.
Sími okkar er 567 1210
HEILDVERSLUN MEÐ JÓLA- OG GJAFAVÖRUR Í 35 ÁR
FORELDRAR!
Hjálpum börnum okkar að öðlast innri frið
Námskeið í lífsfærni verður haldið frá 8. til 21. nóvember
fyrir foreldra og börn þeirra fædd 1994 og 1995.
Viðfangsefni námskeiðsins er
FRIÐUR
Upplýsingar í síma 693 0113 og 861 4498
Viltu ráða því í hvaða framhaldsskóla þú ferð í næsta
haust? Til þess þarftu góðar einkunnir og þá er
NÁMSAÐSTOÐ
fyrir sæmræmdu prófin góður kostur.
Nemendaþjónustan sf. sími 557 9233 namsadstod.is
Félag harmonikuunnenda
heldur skemmtifund kl. 15
í dag í Skipholti 50a.
Meðal þeirra sem koma fram eru Ágústa Sigrún
Ágústsdóttir, sem kynnir tónlist af disknum Hittumst
heil, ennfremur Vindbelgirnir auk margra fleiri.
Allir eru velkomnir. Takið með ykkur gesti.
Félag
harmonikuunnenda
fyrir byrjendur og lengra
komna. Úrval hugmynda.
Listakonan Aldís Ívarsdóttir kennir.
Uppl. í síma 659 9965
Trölladeigsnámskeið
STJÖRNUSPÁ
eft ir Frances Drake
SPORÐDREKI
Afmælisbarn dagsins:
Þú ert vinalegur náungi og
margir misskilja það og telja
þig veiklyndan. En þeir
komast sko að öðru!
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Gleymdu ekki samskiptunum
við vini og vandamenn. Þótt
ekkert bjáti á er sjálfsagt að
ræða saman og njóta um-
hyggju hver annars og björtu
hliðanna.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þú hefur lengi velt málunum
fyrir þér og nú er komið að því
að þú segir hug þinn og sjáir
hvaða undirtektir hugmyndir
þínar fá. Vertu þolinmóður.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Það er eitthvert eirðarleysi í
þér. Reyndu að einbeita þér
að því sem þú átt að gera, því
annars gengur ekkert upp hjá
þér í tæka tíð.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Einhverjir draugar úr fortíð-
inni eru að gera þér lífið leitt.
Hættu að forðast þá og gerðu
málin upp því aðeins þá getur
þú haldið ótrauður áfram.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Láttu þér ekki bregða þótt
vinir þínir hafi aðrar skoðanir
á málum en þú. Kannaðu fyrst
hvað þeir hafa fram að færa
og berðu það saman við þín
mál.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Þegar okkur finnst fokið í
flest skjól eigum við þó alltaf
eitt hjálpræði. Vertu óragur
við að leita þess því þá skipast
veður fljótt í lofti.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Þú ættir að hætta að hugsa
um það sem þér finnst vera
efst á baugi og hvíla hugann.
Þú mætir til leiks á ný hress
og endurnærður eftir slíkt
hlé.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Nú getur þú ekki lengur vikist
undan því að gera þá hluti
heima fyrir sem þú hefur
skotið ítrekað á frest. Gakktu
glaður til verksins og kláraðu
það.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Þótt þú eigir bágt með að skila
hugmyndir vinar þíns er eng-
in ástæða til þess að leggja
vináttuna á ís. Reyndu að
setja þig í hans spor og skilja.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Nú er rétti tíminn til að hefj-
ast handa við heilsubót. Byrj-
aðu smátt því farirðu of geyst
af stað er hætta á því að út-
haldið bili fljótlega.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Gefðu þér tíma til þess að
skoða heiminn með augum
barnsins. Ekkert er eins end-
urnærandi og að þurfa ekki að
standa skil á öllum sköpuðum
hlutum.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Gefðu þér tíma til þess að
skipuleggja þig betur. Þeim
tíma, sem í það fer, er vel var-
ið. Þér mun vinnast betur og
árangurinn verður miklu
betri.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Árnað heilla
60 ÁRA afmæli. Nk.þriðjudag 6. nóvem-
ber er sextugur Sigurður
Gunnsteinsson, Rauðalæk
45, Reykjavík. Eiginkona
hans er Guðmunda Jó-
hannsdóttir. Þau taka á
móti vinum og vandamönn-
um á afmælisdaginn milli kl.
17-19 í Félagsheimili Orku-
veitu Reykjavíkur í Elliða-
árdal.
PETER Weichsel tók
góð sér langan umhugs-
unartíma áður en hann
stökk í slemmu með spil
suðurs. En hann var
fljótur að spila úr spilinu,
enda hafði hann gert upp
við sig leiðina áður en að
blindur kom upp!
Norður gefur; enginn
á hættu.
Norður
♠ KDG3
♥ D3
♦ K10832
♣95
Vestur Austur
♠ 8542 ♠ 1076
♥ K972 ♥ 6
♦ G94 ♦ D75
♣76 ♣KD8432
Suður
♠ Á9
♥ ÁG10854
♦ Á6
♣ÁG10
Weichsel og gamli fé-
lagi hans Alan Sontag
spila í öðru bandaríska
liðinu á HM í París og
þetta spil er frá fyrsta
hluta keppninnar gegn
Áströlum. Sontag vakti
létt á tígli í norður og
austur hindraði með
þremur laufum. Sagnir
þróuðust svo þannig:
Vestur Norður Austur Suður
-- 1 tígull 3 lauf 3 hjörtu
Pass 3 spaðar Pass 4 lauf
Pass 4 hjörtu Pass 6 hjörtu
Pass Pass Pass
Það tók Weichsel heila
eilífð að stökkva í sex
hjörtu. Hann bjóst við að
makker ætti 11-13
punkta og taldi líkleg-
ustu skiptinguna 4-2-5-2.
Slemmunni stóð helst
ógn af því að vörnin ætti
slag á tromp og annan á
lauf. En eftir mikla íhug-
un sá Weichsel að hann
var í góðum málum ef
makker ætti kóng annan
í trompi – þá mætti taka
ÁK í trompi og henda
svo tveimur laufum niður
í spaða og/eða tígul. Hitt
var verra ef tromp
makkers var drottning
önnur. En Weichsel var
undir það búinn líka.
Fyrst þurfti hann að
meta hvort lauf varnar-
innar skiptist 7-1 eða 6-2.
Hann ákvað að fylgja út-
spilinu, ef það væri hár
hundur ætlaði hann að
reikna með 6-2 legu og
spila þannig: Taka á lauf-
ás og hjartaás, og henda
síðan tveimur laufum
niður.
Allt þetta fór í gegnum
huga Weichsels áður en
hann stökk loks í slemm-
una. Vestur kom út með
laufsjöu og nú kom
Weichsel öllum á óvart
með því að spila á leift-
urhraða: laufás, hjartaás
og fjórum sinnum spaði:
tólf slagir í hvelli!
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson.
LJÓÐABROT
TÍÐARFAR
Órrar tíðar sá orðinn er bragur,
að því nákvæmast skynja eg bezt:
sérhver dónsinn sýnast vill fagur,
svíkjast um vinnu, en eyða sem mest.
Jón Thoroddsen
1. e4 e6 2. d4 d5 3. Rd2 Rf6
4. e5 Rfd7 5. c3 c5 6. Bd3
Rc6 7. Re2 cxd4 8. cxd4 f6 9.
Rf4 Rxd4 10. Dh5+ Ke7 11.
Rg6+ hxg6 12. Dxh8 Rxe5
13. Bb1 Dc7 14. Kd1 Bd7 15.
b3 Hc8 16. Bb2 Rc2 17. Dg8
Rg4 18. Rc4 dxc4 19. Bxc2
Dd6+ 20. Ke1 c3 21. Bxc3
Hxc3 22. Bxg6 De5+ 23. Kf1
Rh6 24. Dh7 Bb5+ 25. Kg1
Þessi óvenjulega staða
kom upp í minningarmóti
Jóhanns Þóris Jónssonar.
Það verður ekki
ofsagt að þungu
menn hvíts eru í
meira lagi óvirk-
ir. Jón Árni Hall-
dórsson (2.143)
hafði svart gegn
Guðjóni Heiðari
Valgarðssyni
(2.083). 25...He3!
og svartur gafst
upp enda yrði
hann mát eftir 26.
fxe3 Dxe3#.
9. bikarmót
Striksins og
Taflfélagsins
Hellis fer fram í
kvöld, 4. nóvember, kl. 20.00
á ICC. Allar nánari upplýs-
ingar eru veittar á skak.is.
Næsta atkvöld Hellis verður
svo haldið á morgun, mánu-
daginn 5. nóvember, og
hefst kl. 20 í Hellisheimilinu.
Ljúffeng verðlaun í boði
Dominos.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Svartur á leik.
Ljósmynd/Rut
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 25. ágúst sl. í Árbæj-
arkirkju af sr. Guðmundi
Þorsteinssyni Júlía Eva
Menzinger og Vilhjálmur
Páll Einarsson.
Ljósmynd/Rut
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 25. ágúst sl. í Dóm-
kirkjunni af sr. Önnu Sigríði
Pálsdóttur Kristín Hrund
Whitehead og Balema Alou.
Heimili þeirra er í Freiburg
í Þýskalandi.
Ljósmyndaverið Skugginn
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 22. september sl. í
Dómkirkjunni í Reykjavík
af sr. Jakobi Ágústi Hjálm-
arssyni Lilja Ósk Snorra-
dóttir og Erlendur Cassata.
STÖKUR
Enginn skyldi ýta bróður illa ræma,
þegar síðast allur er hann
alda lýður glöggvast sér hann.
Leiðast stundum lífið fer
löngu vöxnum fljóðum,
betri samt þeim biðlund er
en bendlast erkislóðum.
FRÉTTIR
Skelltu vindubrúnni
niður aftur. Það var
örugglega einhver
að kalla ...
Smælki
ANNA Soffía Hauksdóttir, pró-
fessor í rafmagns- og tölvuverk-
fræði við Háskóla Íslands, heldur
fyrirlestur á
vegum IEEE á Íslandi og raf-
magns- og tölvuverkfræðiskorar
Háskóla Íslands. Fyrirlesturinn
verður haldinn þriðjudaginn 6.
nóvember kl. 17.15 í Odda, stofu
101, í húsakynnum Háskóla Ís-
lands.
Fyrirlesturinn nefnist Fjöll og
dalir í svörunum yfirfærslufalla og
fjallar um nýlegar rannsóknir
hennar á þessu efni. Allir velkomn-
ir.
Fyrirlestur
um yfirfærsluföll