Morgunblaðið - 07.11.2001, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 07.11.2001, Blaðsíða 1
255. TBL. 89. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 7. NÓVEMBER 2001 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS STOFNAÐ 1913 MORGUNBLAÐIÐ 7. NÓVEMBER 2001 GEORGE W. Bush Bandaríkjafor- seti varaði í gær leiðtoga Austur-Evr- ópuríkja við því að samtök hryðju- verkaforingjans Osama bin Ladens, al-Qaeda, væru að reyna að komast yfir kjarnavopn og líkti hryðjuverka- ógninni við hættuna sem stafaði af Sovétríkjunum í kalda stríðinu og þýskum nasistum. „Þeir sækjast eftir efna-, sýkla- og kjarnavopnum. Óvinir okkar geta þannig ógnað öllum þjóðum heims og að lokum gervallri siðmenningunni,“ sagði Bush í ávarpi sem var sjónvarp- að um gervihnött á fundi leiðtoga 17 ríkja Mið- og Austur-Evrópu í Varsjá. Eftir hrun kommúnismans í Aust- ur-Evrópu fyrir rúmum áratug hafa margir látið í ljósi áhyggjur af örygg- isgæslu á stöðum þar sem efni í kjarn- orkusprengjur og önnur gereyðingar- vopn eru geymd. „Í rúma hálfa öld hafa þjóðirnar í löndum ykkar mátt þola kúgun kenn- ingakerfa sem tröðkuðu á mannlegri reisn,“ sagði Bush. „Frelsi okkar er nú enn einu sinni í hættu. Eins og fas- istarnir og alræðissinnarnir á undan þeim reyna nú hryðjuverkamennirnir – liðsmenn al-Qaeda, talibanastjórnin sem styður þá og önnur hryðjuverka- samtök úti um allan heim – að þröngva upp á aðra róttækum skoð- unum með hótunum og ofbeldi.“ Bush bætti við að hópar stuðnings- manna al-Qaeda störfuðu í meira en 60 löndum, meðal annars nokkrum ríkjum Mið- og Austur-Evrópu, með það að markmiði að valda pólitísku umróti. Aleksander Kwasniewski, forseti Póllands, skipulagði fundinn í Varsjá til að leiðtogar Mið- og Austur-Evr- ópuríkjanna gætu rætt hvernig þau ættu að auka samstarf sitt í barátt- unni við hryðjuverkastarfsemi. Leiðtogarnir samþykktu áætlun sem miðar m.a. að því að hindra að hryðjuverkamenn geti aflað sér fjár með eiturlyfja- og vopnasölu. Enn- fremur er stefnt að því að auka sam- starf leyniþjónusta Austur-Evrópu- ríkjanna og herða landamæraeftirlit. Leiðtogar Austur-Evrópuríkjanna gerðu góðan róm að ávarpi Bush og margir þeirra hvöttu til þess að stækkun Atlantshafsbandalagsins og Evrópusambandsins yrði flýtt til að tryggja að baráttan gegn hryðju- verkastarfsemi bæri meiri árangur. Þjóðverjar leggja til hersveitir Bush ræddi í gær við Jacques Chir- ac, forseta Frakklands, í Washington og hvatti ríki heims til að veita Banda- ríkjunum meiri stuðning í baráttunni við hryðjuverkamennina í Afganistan. „Bandamenn okkar verða að gera meira en að lýsa yfir stuðningi, þeir verða að sýna hann í verki,“ sagði Bush. Chirac sagði að Frakkar væru til- búnir að senda sérsveitir til Afganist- ans ef þeir fengju að taka þátt í skipu- lagningu aðgerðanna. Þýska stjórnin skýrði frá því að hún væri tilbúin að leggja til allt að 3.900 hermenn, meðal annars 100 sér- sveitarmenn og 800 hermenn sem hægt verður að senda til Afganistans í brynvögnum sem voru hannaðir til að verjast efna-, sýkla- eða kjarnorku- árás. Bush segir að allri heimsbyggðinni stafi ógn af hryðjuverkamönnum Segir al-Qaeda reyna að komast yfir kjarnavopn Varsjá. AFP, AP. AP Afganar virða fyrir sér brak sem talibanar sýndu í Kabúl í gær og sögðu vera úr bandarískri þyrlu sem þeir hefðu grandað um helgina. Banda- ríkjastjórn neitaði því að bandarísk þyrla hefði verið skotin niður.  Talibanar/22  Lífið í Kabúl/30 UM 95 manns særðust, þar af fjórir alvarlega, þegar öflug sprengja sprakk í bíl í Madrid í gærmorgun. Lögreglan sagði að aðskiln- aðarhreyfing Baska, ETA, hefði staðið fyrir tilræðinu. Sprengjan sprakk nálægt banka við fjölfarin gatnamót í hverfinu Prosperidad í norðurhluta borg- arinnar. Talið er að markmiðið með sprengjutilræðinu hafi verið að myrða hátt settan embættismann í vísindaráðuneyti Spánar, Juan Jun- quera, sem starfaði áður í innan- ríkis- og varnarmálaráðuneyt- unum. Hann var í bíl við gatnamótin og varð fyrir minni- háttar meiðslum á andliti. Er þetta í fyrsta sinn sem talið er að ETA hafi reynt að ráða spænsk- an embættismann af dögum frá hryðjuverkunum í Bandaríkjunum 11. september. Karlmaður og kona, sem eru grunuð um tilræðið, voru hand- tekin nokkrum mínútum eftir sprenginguna. Þau voru með sprengiefni og skammbyssur og tal- ið er að þau séu félagar í ETA. Meðal þeirra sem særðust alvar- lega var bresk kona, sem missti auga, og þriggja ára stúlka. Nær 100 særast í Madrid AP Slökkviliðsmenn að störfum við 20 bíla sem eyðilögðust eða skemmdust í sprengjutilræðinu í Madrid. Rúður brotnuðu í nálægum byggingum. SEÐLABANKI Bandaríkj- anna lækkaði stýrivexti sína í gær um hálft prósentustig, úr 2,5% í 2%, og hafa þeir ekki verið jafnlágir frá september 1961. Þetta er í tíunda sinn sem bankinn lækkar vextina á árinu og hann gaf til kynna að þeir yrðu hugsanlega lækkaðir frek- ar á næstu mánuðum til að blása lífi í efnahaginn. Þetta er í þriðja sinn sem seðlabankinn lækkar vextina um hálft prósentustig frá hryðjuverkunum 11. septem- ber. Búist er við að viðskipta- bankarnir í Bandaríkjunum lækki einnig vexti sína um hálft prósentustig, í 5%, en þeir hafa ekki verið svo lágir frá því í júní 1972. Gengi hlutabréfa hækkar Vaxtalækkunin varð strax til þess að gengi hlutabréfa í bandarískum fyrirtækjum hækkaði. Dow Jones-vísitalan hækkaði um 150 stig, eða 1,59%, og Nasdaq um 41,43 stig og 2,31%. Vaxtalækkunin kom ekki á óvart en fjárfestar sögðust vera ánægðir með að seðlabankinn skyldi halda opnum þeim möguleika að vextirnir yrðu lækkaðir frekar. Seðlabanki Bandaríkjanna Lægstu vextir frá 1961 Washington, New York. AFP, AP. SAS-flugfélagið skýrði frá því í gær að það hygðist segja upp 2.500 starfsmönnum til viðbótar allt að 1.100 sem þegar hafa fengið upp- sagnarbréf vegna mikillar fækkunar farþega eftir hryðjuverkin í Banda- ríkjunum 11. september. Tap SAS á þriðja fjórðungi ársins fyrir skatta nam 213 milljónum sænskra króna (andvirði 2,1 milljarðs íslenskra), en hagnaður flugfélagsins á sama tíma í fyrra nam 343 milljónum sænskra króna. Starfsmenn SAS eru nú 27.000 og rúmlega 10% þeirra verður sagt upp. Með uppsögnunum og fleiri aðgerð- um sparar flugfélagið 3,5 milljarða sænskra króna (35 milljarða ís- lenskra). Gert er nú ráð fyrir því að tap fyrirtækisins á árinu verði 1,5–2 milljarðar sænskra króna fyrir skatta og hagnað af sölu eigna, að sögn danska dagblaðsins Jyllands- Posten. Norska blaðið Aftenposten segir að farþegar SAS hafi verið 9,3% færri í október en í sama mánuði í fyrra. Samdrátturinn hafi verið mestur í viðskiptaferðum, eða tæp 16%, og farþegunum fækkað mest í flugi til og frá London, um 40%. Stjórn flugfélagsins Sabena ósk- aði eftir því í gær að dómstóll í Belg- íu lýsti það gjaldþrota í dag. Sabena er eitt af elstu og þekktustu flug- félögum Evrópu og fyrsta stóra flug- félagið sem verður gjaldþrota eftir hryðjuverkin 11. september. Hagnaður British Airways minnkar um 85% British Airways skýrði frá því í gær að hreinn hagnaður flugfélags- ins á þriðja fjórðungi ársins hefði minnkað um 85%, úr 125 milljónum punda í 19 milljónir (úr 19 milljörð- um kr. í 2,9 milljarða). Breska dag- blaðið The Independent segir að verðbréfamiðlarar flugfélagsins spái því að tap þess á árinu verði um 775 milljónir punda (118 milljarðar króna). British Airways hefur aldrei verið rekið með tapi frá því flug- félagið var einkavætt árið 1987. SAS segir upp 3.600 manns Flugfélagið Sabena gjaldþrota
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.