Morgunblaðið - 07.11.2001, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 07.11.2001, Blaðsíða 47
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. NÓVEMBER 2001 47 Laugavegur 17 Til leigu skemmtilegt húsn. undir verslun (baklóð), áður verslunin Jónas á milli. Upplýsingar í s. 565 1144 og 892 4454. R A Ð A U G L Ý S I N G A R ATVINNUHÚSNÆÐI HÚSNÆÐI Í BOÐI TILKYNNINGAR Snæfellsnesvegur um Kolgrafafjörð í Eyrarsveit og Helgafellssveit Mat á umhverfisáhrifum — athugun Skipulagsstofnunar Vegagerðin hefur tilkynnt til athugunar Skipu- lagsstofnunar matsskýrslu um Snæfellsnesveg um Kolgrafafjörð í Eyrarsveit og Helgafells- sveit. Tillaga að ofangreindri framkvæmd og skýrsla um mat á umhverfisáhrifum hennar liggur frammi til kynningar frá 7. nóvember til 19. desember 2001 á eftirtöldum stöðum: Á skrifstofu Eyrarsveitar, hjá oddvita Helga- fellssveitar og á Bókasafni Eyrarsveitar. Einnig liggur skýrslan frammi í Þjóðarbókhlöðunni og hjá Skipulagsstofnun í Reykjavík. Mats- skýrslan er aðgengileg á heimasíðu Vegagerð- arinnar: www.vegagerdin.is . Allir hafa rétt til að kynna sér framkvæmdina og leggja fram athugasemdir. Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 19. desember 2001 til Skipulagsstofnunar, Laugavegi 166, 150 Reykjavík. Þar fást enn- fremur nánari upplýsingar um mat á umhverf- isáhrifum. Birt samkvæmt lögum um mat á umhverfisáhrifum, nr. 106/2000. Skipulagsstofnun. SMÁAUGLÝSINGAR TILKYNNINGAR Sálarrannsóknarfélag Reykjavíkur, Síðumúla 31, s. 588 6060. Miðlarnir, spámiðlarnir og hug- læknarnir, Þórhallur Guð- mundsson, Ólafur Hraundal Thorarensen, Bíbí Ólafsdóttir, Lára Halla Snæfells, Erla Alex- andersdóttir, Margrét Haf- steinsdóttir og Garðar Björg- vinsson michael-miðill starfa hjá félaginu og bjóða félags- mönnum og öðrum uppá einka- tíma. Upplýsingar um félagið, einka- tíma og tímapantanir eru alla virka daga ársins frá kl. 13—18. Utan þess tíma er einnig hægt að skilja eftir skilaboð á sím- svara félagsins. Netfang: mhs@vortex.is . Sálarrannsóknarfélag Reykjavíkur starfar í nánum tengslum við Sál- arrannsóknarskólann á sama stað. SRFR. FÉLAGSLÍF I.O.O.F. 18  1821178   GLITNIR 6001110719 I  Njörður 6001110719 I I.O.O.F. 7  1821177½  8.I. I.O.O.F. 9  1821178½   HELGAFELL 6001110719 VI Hörgshlíð 12. Boðun fagnaðarerindisins. Bænastund í kvöld kl. 20.00. Háaleitisbraut 58—60. Samkoma í kristniboðssalnum í kvöld kl. 20:30 í umsjón kristni- boðsflokksins Vökumenn. Upphafsorð: Elísabet Jónsdóttir. Happdrætti. Bjarni Gunnarsson flytur hugleiðingu. Allir hjartanlega velkomnir. sik.is Sunnudagur 11. nóvember Hveragerði — Kambabrún Gengið verður um gamla vegi. Brottför frá BSÍ kl. 13.00. Fararstjóri Sigurður Jóhannsson. Verð kr. 1.100 félagar, 1.300 aðrir. Nú styttist í aðventuferðir og áramót. Betra að bóka fyrr en seinna. www.utivist.is Til leigu í Garðabæ 150 m² 5—6 herbergja íbúð í einbýlishúsi, miðsvæðis í Garðabæ, til leigu strax eða frá 1. janúar. Vinsamlega sendið tilboð í tölvu- pósti: leiga@torg.is . EINN þáttur í öruggari og slysa- lausri umferð er stöðugt og virkt eftirlit með því að öll ökutæki séu í góðu lagi, þannig að óhöpp verði ekki vegna ónógs viðhalds eða bil- ana sem unnt hefði verið að koma í veg fyrir. Til þess að vekja bifreiðaeig- endur til meiri umhugsunar um ör- yggi bílsins, og ekki síður með tilliti til umhverfismála og stöðugt auk- innar mengunar, hafa Frumherji hf. og Flugleiðir hf. tekið höndum saman og standa að lukkuleik sem ber yfirskrifina: „Flug og bíll með Frumherja og Flugleiðum“. Um er að ræða flug til einhvers af áfanga- stöðum Flugleiða í Evrópu og bíla- leigubíll í nokkra daga. Allir þeir bílaeigendur sem koma með farartæki sín til skoðunar á réttum tíma, verða sjálfkrafa þátt- takendur í leiknum. Nú nýverið var dregið nafn úr pottinum í átt- unda sinn, og að þessu sinni var hinn heppni Björn Sverrisson, Fellstúni 13 á Sauðárkróki. Kom hann ásamt eiginkonu sinni Hrefnu Björgu Guðmundsdóttur og dóttur, Erlu Björt, til að taka á móti vinn- ingnum, en vinningin afhenti Böð- var Finnbogason bifreiðaskoð- unarmaður á Sauðárkróki. Böðvar sagði við þetta tækifæri, það sérstaklega ánægjulegt að fá að afhenda þennan vinning og hlyti þetta að vera hvatning til allra bíl- eigenda hvar sem væri á landinu til þess að koma með bíla sína til skoð- unar á réttum tíma. Flug og bíll til Evrópu Sauðárkróki. Morgunblaðið. Ljósmynd/Björn Björnsson Björn Sverrisson ásamt eiginkonu sinni, Hrefnu Björgu Guðmunds- dóttur, og dóttur sinni, Erlu Björt. STUÐNINGSHÓPUR um krabba- mein í blöðruhálskirtli verður með rabbfund í húsi Krabbameinsfélags- ins í Skógarhlíð 8 í Reykjavík í dag, miðvikudaginn 7. nóvember, kl. 17. Gestur á fundinum verður Jón Krist- jánsson heilbrigðisráðherra. Þorsteinn Gíslason þvagfæra- skurðlæknir flytur erindi um krabbamein í blöðruhálskirtli. Þor- steinn útskrifaðist frá læknadeild Háskóla Íslands 1974 og var við framhaldsnám, að loknu kandidats- ári hér heima, í skurðlækningum og þvagfæraskurðlækningum við St. Louis University Hospitals, St. Louis í Missouri á árunum 1975– 1980. Hann hefur starfað við þvag- færaskurðlækningar á Íslandi síðan, fyrst á St. Jósefsspítalanum Landa- koti, þá Sjúkrahúsi Reykjavíkur og nú síðast Landspítalanum – háskóla- sjúkrahúsi. Þorsteinn mun einnig svara fyrirspurnum. Fundurinn er einkum ætlaður þeim sem greinst hafa með krabba- mein í blöðruhálskirtli og aðstand- endum þeirra, segir í frétttatilkynn- ingu. Rabbfundur um krabba- mein ÍSLENSKI Alpaklúbburinn verður með námskeið í ísklifri í kvöld, mið- vikudagskvöldið 7. nóvember, kl. 20.30 í risinu í Mörkinni 6. Farið verður í grunnatriði ísklif- urs, ferli þess og öryggisatriði. Um helgina verða verklegar æfingar. Allir velkomnir. Ísklifurnámskeið NÁMSKEIÐ fyrir ungt fólk um notkun digital-myndavéla og vinnslu mynda verður haldið í Hinu húsinu v/ Ingólfstorg fimmtudaginn 8. nóvem- ber kl. 10. Alla fimmtudagsmorgna milli 10 og 12 eru ungir foreldrar velkomnir með börnin sín á Geysi – kakóbar. Leitast er við að skapa góða stemmningu fyrir foreldra og börn, þar eru leikföng og barnateppi. Allir velkomnir, segir í fréttatilkynningu. Námskeið fyrir ungt fólk með börn PÁLL Óskar og Monika Abendroth halda aukatónleika í Háteigskirkju sunnudaginn 11. nóvember kl. 20.30. Forsala aðgöngumiða er hafin í Skíf- unni, miðaverð kr. 1.200. Aukatónleikar SKOTVEIÐIFÉLAG Íslands efnir til fundar um framtíð Þjórsárvera, miðvikudaginn 7. nóvember kl. 20.30 í Ráðhúskaffi í Ráðhúsinu í Reykja- vík við Tjörnina. Guðjón Jónsson og Arnór Þórir Sigfússon halda erindi um fram- kvæmdina. Framtíð Þjórsárvera Í NOKKUR ár hefur Guðmundur Ragnarsson staðið fyrir „Selaveislu“ sem er orðin árviss viðburður og verður hún nú haldin laugardaginn 10. nóvember í Fáksheimilinu, Víði- dal, kl. 20. Miðaverð er 3.500 kr. og eru miðar seldir á veitingahúsinu Lauga-Ási, Laugarásvegi 1, fimmtudaginn 8. nóvember kl. 19–21. Selaveisla í Fáksheimili SAMKEPPNISSTOFNUN hefur skriflega farið þess á leit við for- ráðamenn Bræðranna Ormsson hf. að fyrirtækið hætti birtingu dekkjaauglýsingar þar sem segir m.a. að loftbóludekk af gerðinni Bridgestone Blizzak séu „best í snjó og hálku“. Samkeppnisstofnun telur þá fullyrðingu ekki standast, hún sé röng, villandi og ósanngjörn gagnvart keppinautum og neytend- um þar sem verið sé að skírskota til óviðkomandi mála. Er auglýsingin ekki talin standast samkeppnislög. Til staðfestingar þessari fullyrð- ingu hefur í auglýsingunum verið vísað til niðurstöðu tilraunar með hemlunarvegalengdir mismunandi vetrardekkja sem unnin var að frumkvæði Umferðarráðs og niður- stöður hennar gefnar út af Rann- sóknastofnun byggingariðnaðarins. Anna Birna Halldórsdóttir, for- stöðumaður markaðsmálsviðs Samkeppnisstofnunar, sagði við Morgunblaðið að í kjölfar ábend- ingar hefði stofnunin kannað málið, kynnt sér sérstaklega niðurstöður fyrrnefndrar tilraunar og borið þær saman við auglýsingar Bræðr- anna Ormsson. Fljótlega hefði komið í ljós að meðal þess sem ekki var prófað í tilrauninni var virkni dekkjanna í snjó og blautum ís. Á einum stað í niðurstöðum til- raunarinnar segir að ekki sé mark- tækur munur á hemlunarvega- lengd negldra dekkja og loftbóludekkja á þurrum ís með við- námsstuðul 0,1. Standa við fullyrðinguna Karl Ottó Karlsson hjá Bræðr- unum Ormsson sagðist í samtali við Morgunblaðið hafa haft samband við Samkeppnisstofnun á mánudag og tilkynnt að auglýsingunum yrði breytt og orðalagið í þeim mildað. Skírskotað væri til fleiri athugana en þeirrar íslensku, m.a. einnar norskrar sem sýndi að loftbóludekk jafnast á við nagladekk í snjó og hálku, ef þau væru ekki betri. Karl Ottó sagði birtingu lokið á fyrri gerð auglýsinganna og að næsta pakka yrði breytt til samræmis við tilmæli Samkeppnisstofnunar. Einnig væri eftir að breyta auglýs- ingunni á heimasíðunni. „Við ætlum að laga auglýsing- arnar en samt sem áður teljum við að þessi fullyrðing standist. Allar prófanir eru gerðar á nýjum dekkj- um og naglar eru bestir þegar þeir eru óbrýndir og allir í dekkinu. Um leið og þeir fara að týna tölunni og slípast missa þeir marks. Loftbólu- dekkin halda ágæti sínu yfir vet- urinn en nagladekkin veita falskt öryggi,“ sagði Karl Ottó. Samkeppnisstofnun áminnir Bræðurna Ormsson Dekkjaauglýsing í and- stöðu við samkeppnislög B. Ormsson ætla að milda orðalag og vitna einnig í erlendar rannsóknir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.