Morgunblaðið - 07.11.2001, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 07.11.2001, Blaðsíða 23
ERLENT MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. NÓVEMBER 2001 23 MÖRG hundruð arabískir hermenn sem talið er að hafi tengsl við Osama bin Laden fengu afganskan ríkis- borgararétt í tíð fyrrverandi ríkis- stjórnar landsins, en leiðtogar hennar njóta nú aðstoðar Bandaríkjanna í baráttu sinni við stjórn talibana. Kemur þetta fram í skjölum sem fulltrúar talibana sýndu fréttamanni Associated Press í Kabúl. Skjölin eru rituð á dari, tungumáli sem talað er í Afganistan, og sýna að 604 mönnum frá löndum á borð við Alsír, Líbýu, Sádi-Arabíu og Egypta- land var veittur afganskur ríkisborg- araréttur í mars 1993 af þáverandi forseta landsins, Burhanuddin Rabb- ani. Rabbani var steypt af stóli af talib- önum 1996 og er nú leiðtogi Norður- bandalagsins, sem berst gegn yfirráð- um talibana. Bandaríkjamenn hafa gert loftárásir á stöðvar talibana í þeirri von að Norðurbandalagið nái borginni Mazar-e-Sharif, í norður- hluta landsins, og öðrum stórum borgum. Í skjölunum eru ekki nafngreindir neinir sem vitað er að séu félagar í al- Qaeda-samtökum bin Ladens er tengjast hryðjuverkunum í Banda- ríkjunum 11. september, sem urðu 4.500 manns að bana. En skjölin renna stoðum undir fullyrðingar þeirra, sem gagnrýnt hafa Norður- bandalagið á þeim forsendum að sum- ir frammámenn í því hafi haft náin tengsl við öfgafulla múslima allar göt- ur síðan í stríðinu gegn Sovétmönn- um 1979–89. Arabískir hermenn eru kjarninn í al-Qaeda-hreyfingunni, og komu sumir þeirra til Afganistans til að berjast gegn sovésku innrásarliði. Aðrir hafa ekki getað snúið aftur til síns heima vegna niðurrifsstarfsemi þar. Með því að veita þeim ríkisborg- ararétt gerði ríkisstjórn Rabbanis hermönnunum – sem nefndir eru af- ganskir arabar – kleift að vera um kyrrt í Afganistan til frambúðar. Sjálfur flutti bin Laden til Afgan- istans 1996, nokkrum mánuðum áður en stjórn Rabbanis var steypt af stóli í Kabúl, en ekki er vitað hvort bin Laden var nokkurntíma veittur rík- isborgararéttur. Hann kom til Afgan- istans frá Súdan eftir að þrýstingur frá Bandaríkjamönnum varð til þess að súdönsk yfirvöld báðu hann að fara úr landi. Talið er að þegar bin Laden var kominn til Afganistans hafi hann leit- að stuðnings arabískra hermanna úr stríðinu gegn Sovétríkjunum – bæði í Afganistan og annars staðar – og hvatt þá til að halda baráttunni áfram sem liðsmenn al-Qaeda. Gagnrýnendur óttast margir að Bandaríkjamenn og bandamenn þeirra muni á endanum sitja uppi með nýja leiðtoga í Afganistan sem hafi sjálfir tengsl við meðlimi í al-Qaeda, ef Norðurbandalagið kemst til valda. Hamid Gul, fyrrverandi hershöfðingi og yfirmaður pakistönsku leyniþjón- ustunnar, kveðst telja að sumir ráða- menn Norðurbandalagsins hafi enn sambönd við arabíska öfgamenn, og að „einn góðan veðurdag muni þeir beina byssum sínum“ að Bandaríkja- mönnum og bandamönnum þeirra. Bandarískir embættismenn hafa ítrekað sagt að þeir eigi sameiginlegt með Norðurbandalaginu það mark- mið að koma talibönum á kné – en ekki sé þar með sagt að bandarísk stjórnvöld og Norðurbandalagið hafi sömu langtímamarkmið. John Stufflebeem, talsmaður bandaríska varnarmálaráðuneytisins, komst svo að orði í síðustu viku: „Við hvikum ekki frá leikáætlun okkar, markmiðum okkar ... Þegar hún er sú sama og það sem Norður- bandalagið hefur í huga er ekki nema gott eitt um það að segja. En við mun- um ekki samræma leikáætlun okkar þeirra áætlun, og við væntum þess heldur ekki að þeir samræmi sína okkar. Þannig að við veitum hvorir öðrum gagnkvæman stuðning.“ Óttast tengsl Norðurbanda- lagsmanna við öfgasinna Reuters Hermenn Norðurbandalagsins hlýða á fyrirmæli í þjálfunarbúðum skammt frá Deshitiqala í norðurhluta Afganistans. Kabúl. AP. MIKIL umræða fer nú fram í Sví- þjóð um hlutleysisstefnuna sem Sví- ar hafa haldið sig við í alþjóðamálum undanfarin tvö hundruð ár. Endalok kalda stríðsins og breytt heimsmynd hafði þegar valdið því, að Svíar fóru í naflaskoðun hvað hlutleysið varðaði, en eftir atburðina 11. september sl. viðurkenna sænskir stjórnmála- menn nú að erfitt sé að komast hjá því að taka afstöðu eftir að menn hafi horft upp á árásir sem beinist gegn sjálfum lífsgildum Vesturlandaþjóð- anna. Svíar voru hlutlausir í báðum heimsstyrjöldunum á síðustu öld og jafnframt í kalda stríðinu, sem skipti veröldinni í áhrifasvæði stórveld- anna tveggja, Bandaríkjanna og Sovétríkjanna sálugu. Fyrir um ári boðaði ríkisstjórn Jafnaðarmanna- flokks Görans Perssons hins vegar endurmat á viðhorfi Svía í öryggis- og varnarmálum og sagði þá að fall járntjaldsins í Austur-Evrópu hefði nánast eytt þeirri gjá milli austurs og vesturs sem mótaði stefnu Sví- þjóðar. Hafa stjórnmálamenn úr öllum flokkum lýst þeirri skoðun, í kjölfar árásanna á Bandaríkin í september, að hlutleysi sé nú ekki aðeins úrelt hugtak heldur óverjandi afstaða við núverandi aðstæður. „Þótt hlutleysi sé einn af kostum okkar er ekki þar með sagt að við séum tilneydd til að vera hlutlaus. Við erum sannarlega ekki hlutlaus í baráttunni gegn hryðjuverkum. Við tökum þátt í þeirri baráttu rétt eins og allir aðrir vinir Bandaríkjanna,“ segir Hans Dahlgren, aðstoðarutanríkisráð- herra Svíþjóðar. Hafa tekið upp samstarf við NATO Göran Persson og Anna Lindh, ut- anríkisráðherra Svíþjóðar, hafa bæði heitið Bandaríkjunum aðstoð í þeim hernaðaraðgerðum sem nú standa yfir og beinast gegn Osama bin Lad- en, sem grunaður er um hryðjuverk- in 11. september, og talibanastjórn- inni í Afganistan. Fram að þessu hefur sú aðstoð aðeins falið í sér mór- alskan stuðning en hún markar engu að síður þáttaskil enda hefði hvers konar stuðningsyfirlýsing við hern- aðaraðgerðir sem þessar fengið fjarska slæmar undirtektir fyrir aðeins nokkrum árum. Svíar hafa í gegnum tíðina verið býsna ánægðir með hlutleysis- stefnuna en tilraunir stjórn- valda á undan- förnum áratug til að taka á sig stærri byrðar í al- þjóða öryggis- málum njóta þó dágóðs stuðnings meðal almenn- ings, a.m.k. ef eitthvað er að marka nýlegar skoðanakannanir. Þar er t.d. um að ræða þátttöku í friðargæslusveitum í Kosovo, er lúta yfirstjórn Atlantshafsbandalagsins, NATO, auk annarra friðargæslu- starfa á vegum Sameinuðu þjóðanna. Jafnframt hafa Svíar á vettvangi Evrópusambandsins tekið þátt í að móta eins konar Evrópuher, er væri ætlað að geta brugðist skjótt við vá er að álfunni steðjaði. Flestir eru enn andsnúnir aðild að NATO „Breytingin er sú að Svíar hafa núna sjálfdæmi um það hvort þeir láta til sín taka. Við getum núna gert hluti í samstarfi við önnur lönd sem við hefðum ekki getað á tímum kalda stríðsins,“ segir Dahlgren og vísar Svíar í naflaskoðun Hlutleysisstefnan á undanhaldi í kjölfar hryðjuverka Los Angeles Times. þar til samstarfsins við NATO, sem án efa hefði reitt nágrannann í austri til reiði þegar Sovétríkin voru og hétu. Sænska stjórnin er sem fyrr mót- fallin formlegri aðild að NATO, rétt eins og meirihluti þjóðarinnar. Þann- ig sýna kannanir að 65% Svía eru andsnúin NATO-aðild en á sama tíma eru flestir Svíar hlynntir þátt- töku í friðargæsluverkefnum og mót- un varnarstefnu á vettvangi ESB. Stjórnmálaleiðtogar telja eigi að síð- ur aukin færi á samstarfi við NATO með það að markmiði að leggja nokk- uð af mörkum til friðsamlegri heims- myndar. Hlutleysi er því ekki lengur óhagganleg stjórnarstefna í Svíþjóð þegar kemur að þeim deilum, sem hæst ber í heiminum á hverjum tíma. Hitt er ljóst að flestir eru Svíar á þeirri skoðun að enga nauðsyn beri til þess að svo stöddu að leggja alger- lega þeirri stefnu, að landið skuli standa utan hernaðarbandalaga. Hætt er hins vegar við að naflaskoð- un Svía aukist enn að umfangi ef NATO býður Eystrasaltsríkjunum þremur, Lettlandi, Litháen og Eist- landi, inngöngu í bandalagið. PAKISTANSKIR stjórnarerindrek- ar sögðu í gær að bandarísk herþyrla hefði brotlent í Balúkistan í Suðvest- ur-Pakistan á mánudag eftir að hafa lent í skothríð frá hersveitum talib- ana í Afganistan. Talibanar sögðu fjóra bandaríska hermenn hafa fallið í árásinni en þyrlan er sögð hafa hrapað til jarðar nærri Dalbandin- herflugvellinum, við landamæri Afg- anistans og Pakistans. Fulltrúar Bandaríkjastjórnar báru fregnirnar til baka en Pakist- anar sögðu hins vegar að enn mætti sjá brak úr þyrlunni á staðnum, þar sem hún skall til jarðar. „Þyrlan varð fyrir skothríð yfir Afganistan en tókst að fljúga yfir til Pakistans þar sem hún brotlenti. Bandaríkjamenn reyndu í kjölfarið að fjarlægja brak- ið,“ sagði ónafngreindur stjórnarer- indreki í Balúkistan. „Þeim tókst að hafa meirihluta þess á brott með sér en það má þó enn finna leifar úr þyrl- unni á slysstaðnum.“ Jay Steuck, talsmaður bandaríska varnarmálaráðuneytisins í Pakistan, sagðist ekki geta staðfest þessar fregnir. Pakistanskar fréttastöðvar höfðu hins vegar eftir íbúum á svæð- inu að atburður þessi hefði átt sér stað aðfaranótt mánudags. Bandarísk herþyrla brotlenti í vondu veðri í Afganistan á föstu- dag en fjögurra manna áhöfn var bjargað. Bandarískar her- flugvélar eyði- lögðu síðar þyrluna. Segjast hafa grandað þyrlu Quetta í Pakistan. AFP. Göran Persson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.