Morgunblaðið - 07.11.2001, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 07.11.2001, Blaðsíða 29
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. NÓVEMBER 2001 29 Lagersala á Fiskislóð 73 (úti á Granda), 101 Reykjavík. Miðvikudaga kl. 14:00 til 18:00 Fimmtudaga kl. 14:00 til 18:00 Föstudaga kl. 14:00 til 18:00 Laugardaga kl. 12:00 til 16:00 Outlet Mikið úrval af skóm á ótrúlegu verði !!! Opnunartími: B ú s e t i h s f . S k e i f u n n i 1 9 s í m i 5 2 0 - 5 7 8 8 www. b u s e t i . i s Allar nánari upplýsingar fást á skrifstofu Búseta hsf. Opið virka daga frá 8:30 til 16:00. Með umsóknum um íbúðir á leiguíbúðalánum þarf að skila: síðustu skattskýrslu og launaseðlum síðustu sex mánaða. Úthlutun íbúðanna fer fram miðvikudaginn 14. nóvem- ber kl. 12:00 - 12:30 að Skeifunni 19. Umsækjendur verða að mæta á tilskyldum tíma og staðfesta úthlutun sína að öðrum kosti geta þeir misst réttindi sín og íbúðinni yrði úthlutað til annars félagsmanns. Búseturéttur til sölu Umsóknarfrestur til 13. nóvember Vantar þig íbúð í vor Erum að byggja glæsilegt 18 íbúða fjölbýlishús á Kristnibraut 65-67 í Grafarholtinu. Tólf íbúðir eftir: Lyftuhús – Sérinngangur – Bílskýli Fjórar hæðir – Geymslur á jarðhæð Stærðir: 3ja og 4ra herb. – 84 til 111m2 Búsetur.: 3ja: 1.676.135-1.871.916,alm.lán Búsetur.: 4ra. 2.201.550-2.213.537,alm.lán Búsetugj.: 3ja: 70.902-78.959 Búsetugj.: 4ra: 92.524-93.017 Búsetugj: allur rekstur nema rafmagn Vaxtab.: Hjón 250.931 einstakl. 151.738 Verðdæmi 3ja herb. Búseturéttur: 1.676.135 Kostnaður: 40.000 Alls: 1.716.135 Búsetugjald: 70.902 Vaxtab*: 20.911 Alls: 49.991 *byrja að skerðast við 5 mill. tekjur 4ra herb. 5 herb. 2ja herb. Nýtt hús - ein íbúð eftir Þrastarás 12, Hafnarfirði 151m2 íb. 101 - Alm.lán Búseturéttur: 2.258.612 Búsetugjald: 97.856 Afhending 23. nóvember nk. Miðholt 3, Hafnarfirði 81m2 íbúð 201 Leiguíb.lán Búsetur. frá 937.333 til 993.880 Búsetugj.: 39.765 Laus Kirkjustétt 9, Reykjavík 101m2 íbúð 305 Alm.lán Búsetur. frá 1.823.890 til 1.922.812 Búsetugj.: 75.198 Laus fljótlega 3ja herb. Miðholt 9, Mosfellsbæ 85m2 íbúð 101 Alm.lán Búsetur. frá 1.079.406 til 1.105.300 Búsetugj.: 66.566 Laus í febrúar nk. Kirkjustétt 11, Reykjavík 87m2 íbúð 206 Alm.lán Búsetur. frá 1.561.948 til 1.646.664 Búsetugj.: 64.687 Laus í febrúar nk. TÓNVERKIÐ Víst mun vorið koma verður flutt á þremur stöð- um sunnanlands í þessari viku. Verkið, sem er eftir Sigvalda Tveit og Eyvind Skei, var frumflutt á Skálholtshátíð sl. sumar. Fyrsti flutningurinn er á opinni æfingu í Skálholti í kvöld kl. 21. Þá verða tónleikar í Þorlákskirkju í Þor- lákshöfn annað kvöld kl. 20:30 og í Langholtskirkju í Reykjavík á laugardag kl. 16. Flytjendur verða Skálholtskór- inn, Kór Menntaskólans á Laug- arvatni, hljóðfæraleikarar undir stjórn Carls Möller annast und- irspil og einsöngvarar verða þau Páll Rósinkrans og Maríanna Más- dóttir. Stjórnandi er Hilmar Örn Agnarsson. Texti tónverksins er byggður á Opinberunarbók Jóhannesar, en íslensku þýðinguna gerði sr. Árel- íus Níelsson fyrir áeggjan sr. Tómasar Guðmundssonar. Í Lang- holtskirkju mun tónlistarfólkið heiðra minningu sr. Árelíusar, en þýðing á texta verksins var eitt það síðasta sem hann gerði um dagana. Dr. Pétur Pétursson mun ávarpa tónleikagesti í Langholts- kirkju og guðfræðinemar undir stjórn Péturs munu fara með texta Opinberunarbókarinnar, en í Þor- lákskirkju mun sr. Tómas annast þann hluta. Víst mun vorið koma flutt TÓNLEIKARNIR hófust og enduðu á orgeleinleik. Sigurður Guðmundsson vígslubiskup ávarpaði gesti í upphafi tónleika og minntist þeirra þriggja skyld- menna Jóhanns Más og mágkonu hans, sem tónleikarnir voru til- einkaðir og látist höfðu um aldur fram. Það voru þau: Dorriett Kav- anna söngkona, Konráð Oddgeir, elsti bróðir Jóhanns Más, Sindri Konráðsson, bróðursonur hans, og faðir Jóhanns Más, tenórinn landskunni, Jóhann Konráðsson. Einnig gat Sigurður þess sem kemur fram í efnisskránni, að all- ur aðgangseyrir rynni til Um- hyggju, félags til stuðnings lang- veikum börnum. Í upphafi lék Rögnvaldur orgelútsetningu á Svaninum úr Karnevali dýranna eftir Saint-Saëns og í lokin eigin orgelútsetningu á lagi Páls Ísólfs- sonar, Brennið þið vitar. Í upphafi síðari hluta tónleikanna lék Rögn- valdur Elisbethan serenade eftir Ronald Bingham. Fyrsta lagið sem Jóhann Már söng var lag Ás- kels Snorrasonar Sólkveðja. Það átti einstaklega vel við að velja þetta tiltekna lag. Lagið og ljóðið er einkar ljúft og fallegt. Upptaka á laginu með söng Jóhanns Kon- ráðssonar er til í safni Ríkisút- varpsins frá árinu 1948 eða 49, tekið upp í Akureyrarkirkju, þar sem orgelleikari um árabil, Jakob Tryggvason, lék á hið gamla ham- mondorgel kirkjunnar. Ég varð svo heillaður af þeim flutningi þegar ég hlustaði á upptökuna fyr- ir nokkrum árum að mér fannst ég vart hafa heyrt fegurri tenórsöng. Jóhann Már flutti lagið af miklu næmi og innlifun og það að lagið væri honum kært duldist engum. Sönglögin á tónleikunum voru flest ljúfsár saknaðarljóð og hefði ég gjarnan viljað heyra fleiri lög sem með gleði og birtu lýsa veginn fram í stað þess að vera of mikið í skugga ljóssins. Jóhanni Má er gefin einstaklega góð tenórrödd. Hann hefur lært að beita henni af hófstillingu og næmi, og mér fannst styrkur raddarinnar meiri og hæðin léttari hjá Jóhanni Má en ég hef heyrt áður. Framsögn orða var skýr og tónninn vel studdur. Helsta spurningin er með dýpsta sviðið og fannst mér t.d. í lag- inu Ég man hverja stund að betur hefði farið á að tónflytja lagið einum eða tveimur tónum hærra. Hið fallega alþýðulag Rósin eftir Friðrik Jónsson frá Halldórs- stöðum í Reykjadal fluttu þeir félagar á hrífandi hátt og jafn- vel enn betur sem aukalag með litla kór- orgelinu frammi við kór kirkjunnar. Reyndar bíður lag- ið þess að útsett verði fyrir það sérstakt undirspil, en þarna var það flutt í einfaldri hljómsetningu. Í upphafi lagsins Vetrarsól eftir Gunnar Þórðarson við ljóð Ólafs Hauks voru samtök organista og söngvara ekki alveg nógu nákvæm og tónhækkun í lokin örlítið tæp, en lagið naut sín vel að öðru leyti. Faðir vor við lag Albert Hay Mal- otte fluttu Jóhann Már og Rögn- valdur af trúarhita. Ég er hins vegar aldrei sáttur við þessa út- færslu og finnst mér að megin- merking í Faðirvorinu og áherslur og hápunktar í laginu fari oft ekki saman. Auk þess er lagið það hægt og tónar langir að það heftir eðli- legt flæði orðanna. Þessari skoðun deili ég örugglega ekki með fjölda aðdáenda þessa lags og verður svo að vera. Guð faðir dýrð og þökk sé þér, gregorískur helgisöngur við sálm Sigurbjörns Einarssonar, var of hægt fluttur og of mikið nótu fyrir nótu. Betur hefði farið á að flytja helgisönginn eins og tón- les þar sem hraði og streymi orða er sveigjanlegt allt eftir merkingu þeirra og framvindu laglínu. Ég saknaði þarna og víðar í efnisskrá að ekki var getið útsetjara, en helgisöngurinn var þarna að mér heyrðist í útsetningu Róberts Abrahams Ottósonar. Jóhann Már glansaði á þeim síunga Allsherjar Drottni eftir César Franck. Einn- ig fannst mér túlkun lags Jakobs Hallgrímssonar við ljóð Þorsteins Valdimarssonar: Ó, undur lífs bæði vera heillandi og áhrifa- mikil. Lag Jakobs er einkar vel samið og nær sterkum tökum á áheyrendum í ein- faldleika sínum. Stíg- andi tónaröð í seinni hluta lagsins styður vel merkingarlegan hápunkt ljóðsins. Rögnvaldur lék af mikilli smekkvísi á orgelið, en hefði þó mátt nota fleiri radd- ir (registur) í orgel- inu til að auðga litinn og draga fram and- stæður. Svaninn eftir Saint-Saëns, trúlega í orgelút- setningu Germani, lék Rögnvald- ur af öryggi, en hefði mátt gefa laglínunni meira frelsi og rubato- hraða. Útsetning fyrir orgel á lagi Páls Ísólfssonar, Brennið þið vit- ar, er vel gerð, en þar hefði Rögn- valdur mátt auka verulega á kraft og dramatísk áhrif með djarfara vali orgelradda, sem reyndar komst vel til skila í lokatöktum lagsins. Flytjendur uppskáru mik- ið lófaklapp í lokin og fluttu þeir tvö aukalög, þess fyrra var áður getið, en það seinna var Lindin eftir Eyþór Stefánsson, sem var í túlkun Jóhanns Más fagurtær og svalandi í besta skilningi þess orðs. Engum blöðum er um það að fletta að Jóhann Már er tenór af Guðs náð og ég tel að mikill fengur væri okkur njótendum slíks söngs að fá miklu meira og oftar í honum að heyra. Tenór af Guðs náð TÓNLIST A k u r e y r a r k i r k j a Jóhann Már Jóhannsson tenór flutti innlend og erlend sönglög föstudaginn 2. nóv. kl. 20. Við orgelið var Rögnvaldur Valbergsson. EINSÖNGSTÓNLEIKAR Jón Hlöðver Áskelsson Jóhann Már Jóhannsson HÖRÐUR Jörundsson myndlist- armaður hefur opnað mál- verkasýningu í kaffihúsinu Við árbakkann á Blönduósi. Hörður er að mestu sjálfmennt- aður myndlistamaður en er mál- arameistari að mennt og lagði stund á marmara- og viðarmáln- ingu í Kaupmannahöfn . Einnig stundaði hann nám hjá Jónasi Jakobssyni myndhöggvara. Hörð- ur Jörundsson sem nú stendur á sjötugu hefur málað og skreytt nokkrar kirkjur á Norðurlandi og má þar nefna Möðruvallakirkju í Hörgárdal, Hríseyjarkirkju og Goðdalakirkju í Skagafirði. Þetta er fimmta einkasýning Harðar en auk þess hefur hann tekið þátt í nokkrum samsýn- ingum. Flestar myndirnar á sýn- ingunni eru unnar á síðasta ári og myndefnið að mestu sótt í Eyjafjörðinn. Sýningu Harðar lýkur um næstu mánaðamót og eru allar myndirnar til sölu. Morgunblaðið/Jón Sigurðsson Eitt verka Harðar Jörundssonar. Hörður Jörundsson sýnir á Blönduósi Blönduósi. Morgunblaðið.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.