Morgunblaðið - 07.11.2001, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 07.11.2001, Blaðsíða 36
UMRÆÐAN 36 MIÐVIKUDAGUR 7. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ www.yogastudio.is Yoga Studio – Halur og sprund ehf., Auðbrekku 14, Kópavogi, símar 544 5560 og 864 1445. Umboðsaðili fyrir Custom Craftworks nuddbekki og Oshadhi ilmkjarnaolíur o.fl. Jóga gegn kvíða með Ásmundi Gunnlaugssyni hefst 13. nóvember – Þri. og fim. kl. 20.00 4ra vikna uppbyggjandi námskeið, m.a. byggt á eigin reynslu Ásmundar, fyrir þá sem eiga við streitu, kvíða og fælni að stríða og/eða eru að ganga í gegnum miklar breytingar í lífinu. Kenndar verða leiðir til þess að slaka á og öðlast aukið frelsi og lífsgleði. Engin reynsla eða þekking á jóga nauðsynleg. Ásmundur tekur fyrir þætti eins og jógaleikfimi (asana), öndun, slökun og andleg lögmál sem stuðla að velgengni, jafnvægi og heilsu. Traust námskeið frá árinu 1994 — byggð á reynslu. (Sjá einnig www.yogastudio.is) Ásmundur Anna Jóga – breyttur lífsstíll með Önnu Hermannsdóttur hefst 14. nóvember – Mán. og mið. kl. 18.30 Grunnnámskeið fyrir fólk á öllum aldri sem vill læra eitthvað nýtt. Anna mun leggja áherslu á jógastöður (asana) og öndunaræfingar, sem hjálpa að losa um spennu auk slökunar. Reynsla af jóga er ekki nauðsynleg. Sjá stundaskrá opinna jógatíma á www.yogastudio.is FJÓRÐA ráðherra- þing Heimsviðskipta- stofnunarinnar, WTO, sem halda á í Doha í Katar dagana 9.–13. nóvember nk. hefur verið í nokkurri óvissu um tíma, en nú hafa Bandaríkin tilkynnt að það verði haldið eins og ráð var fyrir gert. Þetta eru vissulega góðar fréttir því margir hafa óttast að ekki næðist samstaða um þetta og eftir hryðjuverkin í Banda- ríkjunum í fyrri mán- uði heyrðist víða að líklega héldu menn ekki þing í Arabalandi fljótlega. En einmitt vegna þessa er mikilvægt fyrir Bandaríkin að halda þingið og stað- festa þar með að málið snýst ekki um átök á milli Araba annars vegar og vestrænna ríkja hins vegar. Stjórnendur gera sér grein fyrir að í kjölfar atburðanna og ásakana á hendur íslömskum hryðjuverka- mönnum er mikilvægt að undir- strika með því að halda ráðherra- þing WTO í Doha, að Arabalöndin og önnur lönd í Evrópu og Am- eríku eru ekki í átökum. Við Ís- lendingar hljótum að fagna þessu því það er afar mikilvægt fyrir okk- ur ekki síður en aðra að fríverslun og afnám hafta og viðskiptahindr- ana verði að veruleika sem víðast. Því skiptir meginmáli að hefja nýja samningalotu um heimsviðskiptin. SVÞ – Samtök verslunar og þjónustu sem eru landssamtök þessara greina á Íslandi eru aðili að Evrópusamtökum verslunarinn- ar, EuroCommerce, í Brussel og taka nokkurn þátt í störfum þar. Þessi samtök hafa undirbúið viða- mikla stefnumótun varðandi þingið í Doha þar sem einkum er lögð áhersla á að menn læri af mistök- unum í Seattle, taki fyrir að leysa á þinginu það sem ætla má að þeir komist yfir og leggi áherslu á eft- irfarandi fjögur meginatriði: 1. Að framfylgja samningum WTO með því að veita þróunar- löndunum aukna tæknilega og fjár- hagslega aðstoð frá alþjóðastofn- unum og eins frá iðnríkjunum. 2. Hraða opnun markaða fyrir þróunarlöndin og vinna þannig að því að þróunarlöndin samlagist al- þjóðaviðskiptakerfinu. 3. Að dagskrá og tímalengd samninga verði ákveðin. ESB, Kan- ada, Japan og Bandaríkin verða að koma sér saman um sameiginlega samningsstöðu með töluverðum til- hliðrunum fyrir þróunarlöndin og um skýra og skipulega dagskrá. 4. Bæta samskipti við atvinnu- lífið! Frjáls samtök þurfa betri upplýsingar og óheft- ari aðgang að opin- berum WTO-skjölum, þ.e.a.s. það þarf aukið gegnsæi. Það verður að virkja þróunarríkin til auk- innar þátttöku í samn- ingum og ákvörðunar- töku innan WTO. Lítill árangur af ráð- herraþinginu í Seattle hefur leitt í ljós að iðnríkin geta ekki lengur skellt skolla- eyrum við hagsmunum þróunarríkjanna. En umfram allt verða hin iðnvæddu Vesturlönd að bjóða þróunarríkjunum skýran ávinning af frekari viðræðum í Doha. Það er alls ekki ljóst meðal þróunarríkjanna hvaða ávinning Úrúgvæsamningarnir færðu þeim. Annars vegar er þetta vegna þess að niðurstöðurnar náðu aðeins fram að ganga að hluta. Hins vegar er ekki hægt að framkvæma Úr- úgvæskuldbindingarnar án tækni- legs og fjárhagslegs stuðnings frá iðnríkjunum og verulega hefur skort á að það hafi verið gert. Ný samningalota um viðskipti grundvallast á því að vekja veru- lega áhuga þróunarlandanna og þetta þýðir sanngjarnar kröfur um opnun markaða iðnríkjanna og að léttvægari mál verði lögð til hliðar. Aukin fríverslun hlýtur greinilega að vera það atriði sem ofar öðru verður áberandi á þinginu í Doha. Mikilvægt er að við tilraun til að hefja á ný samninga um heims- viðskiptin einbeiti menn sér að því sem hægt er að koma í verk en leggi annað til hliðar um stund. Fríverslun stuðlar að hagvexti um allan heim og eykur velsæld. Al- þjóðlegir viðskiptahættir sem grundvallast á jafnræði, gegnsæi og sem minnstri takmörkun byggja upp heimsviðskipti og jafnframt laga- og stofnanaumhverfi sem við- heldur og eflir kerfið. Þrátt fyrir þetta hefur Heims- viðskiptastofnuninni,WTO, ekki tekist sem skyldi að ná árangri og hún nýtur ekki viðurkenningar í öllum aðildarríkjunum. Það voru iðnríkin og nýlega orðin iðnríki sem nutu fyrst og fremst ávinnings af auknu frelsi í kjölfar fyrri samn- ingalotnanna. Úrúgvæsamningarn- ir skiluðu árangri á nýjum sviðum eins og t.d. varðandi þjónustu (GATS), verndun hugverkaréttar (TRIPS), minnkun viðskiptahindr- ana (TBT) og lágmarksviðmið varðandi heilbrigðis- og plöntuheil- brigðisaðgerðir (SPS). Eins og seinna kom í ljós þá voru þróun- arríkin ekki enn nægilega undirbú- in fyrir þessar nýju skyldur. Ráðstefnan í Seattle undirstrik- aði þýðingu þess að taka tillit til málefna þróunarlandanna og nú reynir á iðnríkin að aðstoða þau við að meta aðstæður raunhæft. Það verður að veita þessum löndum tæknilegan og fjárhagslegan stuðn- ing og opna markaði iðnríkjanna fyrir framleiðsluvörum þróunar- landanna. Hraða verður markaðs- aðgangi vefnaðarvara og fatnaðar og tryggja að þegar fríverslunar- ákvæði ESB varðandi þessar vörur taka gildi árið 2005 komist vörur þróunarríkjanna inn á þann mark- að. Landbúnaðarstefna ESB sem nú er afar óhagstæð þróunarríkj- unum þarf að taka breytingum þannig að kvótar og hindranir verði afnumdar í áföngum. „Everything free but arms“ átakið sem ESB hefur samþykkt og felur í sér að allar vörur frá minnst þróuðu lönd- unum (LLDCs) nema vopn og skot- færi megi flytja inn í ESB-löndin án takmarkana og tolla er spor í rétta átt en þarf að framkvæma hraðar. Hvaða máli skiptir allt þetta fyr- ir Ísland? Óhætt er að slá því föstu að á margan hátt er þýðingarmikið fyrir Ísland að heimsviðskiptin þró- ist með þeim hætti sem hér hefur verið tæpt á. Viðmið um heilbrigð og eðlileg viðskipti berast skjótt á milli landa, ekki síst þeirra sem eiga í miklum viðskiptum og því má ætla að viðskiptavenjur Evrópu þættu fljótt eðlileg viðmið hér. SVÞ – Samtök verslunar og þjónustu hafa ásamt fleirum hvatt til þess að fríverslun verði aukin á Íslandi, m.a. með því að fella niður kvóta og innflutningsgjöld á grænmeti og fleiri landbúnaðarvörur. Þetta ger- ist ekki á einni nóttu, en mikilvægt er að ákveða takmarkið og tíma- og magnsetja skrefin þangað. Vonandi tekst að koma á nýrri samningalotu WTO og ná þar þeim árangri að sjálfgert verði fyrir stjórnvöld að gera þessar og fleiri breytingar til hagsbóta fyrir neytendur og versl- un á Íslandi. Ný samningslota WTO er afar mikilvæg Sigurður Jónsson Höfundur er framkvæmdastjóri SVÞ – Samtaka verslunar og þjónustu. Heimsviðskipti Það verður að virkja þróunarríkin til auk- innar þátttöku, segir Sigurður Jónsson, í samningum og ákvörð- unartöku innan WTO. FYRIR fáeinum dögum ritaði ég grein í Morgunblaðið til þess að vekja athygli á nauðsyn þess að at- vinnurekendur mis- beittu ekki valdi sínu gegn fólki sem komið er á miðjan aldur og þar yfir. Á Alþingi er til umfjöllunar þing- mál þar sem lagt er til að kanna hvort unnt er með lagasetn- ingu að styrkja stöðu þessa fólks. Þetta mætti hugsanlega gera með því að for- gangsraða í þágu þeirra sem hafa lengstan starfs- aldur þegar kemur til uppsagna vegna erfiðs fjárhags fyrirtækja eða stofnana; með lengingu á upp- sagnarfresti í þágu þeirra sem hafa langan starfsaldur; með löngum biðlaunarétti, svo dæmi séu tekin. Ég skal fúslega játa þótt ég sé flutningsmaður þing- málsins að ég geri mér grein fyrir því að það kann að vera erfiðleik- um háð að tryggja réttlæti í þess- um efnum með lögum þótt ég vilji láta kanna með opnum og jákvæð- um huga hvort það sé unnt. Hugarfarið mikilvægt Í umsögn frá Samtökum at- vinnulífsins um þetta þingmál er vísað í að löggjöf til að styrkja stöðu eldra fólks á vinnumarkaði myndi að öllum líkindum verða á kostnað „snerpu og viðbragðsflýt- is“. Ég ætla að leyfa mér að ætla að ummæli af þessu tagi séu sett fram í fljótræði og ekki að mjög yfirveguðu máli og hef ég óskað eftir því að SA skýri sinn málstað á opinberum vettvangi. Eitt er víst að mikilvægt er að tryggja rétt hugarfar hjá atvinnurekendum og þar tel ég að tvennt þurfi að vera upp á teningnum. Í fyrsta lagi þurfa menn að meta reynslu og þekkingu að verð- leikum. Það er ein- faldlega rangt að ungt fólk sé betri starfs- menn aldurs síns vegna. Reynsla og þekking skiptir máli. Sú æskudýrkun sem hefur verið við lýði í atvinnulífinu hefur að mínum dómi heldur komið okkur í koll, ekki síst þegar litið er til fjármálageirans þar sem ungt ákafa- fólk hefur alltof oft farið offari vegna reynsluleysis og ungæðisháttar. Siðferðilegar skyldur atvinnurekenda Í öðru lagi þá hafa atvinnurek- endur siðferðilegar skyldur gagn- vart fólki sem starfað hefur um langan tíma hjá fyrirtæki eða stofnun. Fólk sem allan sinn starfsaldur hefur starfað af trú- mennsku og áhuga hjá fyrirtæki eða stofnun á það ekki skilið að vera varpað á dyr á fullorðinsaldri. Hjá stórum fyrirtækjum eða stöndugum stofnunum hafa for- stjórar og ráðamenn ekki leyfi til þess að ganga á þennan hátt á rétt starfsmanna. Þetta er réttur þótt hann sé ekki skráður í lög og hann ber að virða. Uppsagnir Nú kreppir að í sumum greinum atvinnulífsins. Uppsagnir eru því miður orðnar alltof tíðar. Það er ástæða til þess að hvetja atvinnu- rekendur til þess að sýna sann- girni og ábyrgð gagnvart öllum starfsmönnum, ekki síst þeim sem eru gamalgrónir í starfi. Það fyr- irtæki og sú stofnun sem ekki rís undir þessari ábyrgð mun ekki uppskera velvild fólks sem við hana skiptir. Fólk ætlast til þess að farið sé fram af sanngirni. Réttlæti Flestir gera sér grein fyrir því að reynslumikið starfsfólk er verð- mætt. Hitt snýr svo að réttlætinu: Starfsmenn sem hafa starfað hjá tiltekinni stofnun eða fyrirtæki, nánast allt sitt starfslíf, eiga það ekki skilið að vera vísað á dyr þeg- ar hillir undir starfslok – eða at- vinnuleysi. Mismunun vegna aldurs og ábyrgð atvinnurekenda Ögmundur Jónasson Höfundur er alþingismaður og formaður BSRB. Atvinna Það er ástæða til þess, segir Ögmundur Jónasson, að hvetja at- vinnurekendur til þess að sýna sanngirni og ábyrgð gagnvart starfsmönnum. Súrefnisvörur Karin Herzog Vita-A-Kombi olía Byggir upp og nærir NAGLANÆRING G læ si le g a r g ja fa vö ru r Skál kr. 8.350 Mörkinni 3, sími 588 0640 Opið mán.-fös. frá kl. 12-18. Lau. frá kl. 11-14.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.