Morgunblaðið - 07.11.2001, Blaðsíða 31
AP
m nú eru í Norðurbandalaginu.
AP
úl, og íbúar hafa einungis efni á veigalitlum
eins og þeim sem börnin ganga hér framhjá.
AP
búrs Mongólakeisara. Þegar allt lék í lyndi í
m, sem eru helgidagar. Nú eru öll tré horfin.
AP
Khana-hverfinu í norðurborginni. Síðan loft-
mdir í hverfinu stöðvast vegna þess að sprengj-
nnvirki í grenndinni.
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. NÓVEMBER 2001 31
INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttirborgarstjóri segir að borginhafi varið umtalsverðum fjár-munum í að fegra og endur-
bæta miðborgina auk þess sem þró-
unaráætlun miðborgar hafi verið
unnin.
„Þróunaráætlunin er einmitt
mjög mikilvægt stjórnunartæki til
að tryggja ákveðna blöndun á starf-
semi í miðborginni, meðal annars til
að ná tökum á útþenslu veitinga-
reksturs. Einnig höfum við verið að
vinna að deiliskipulagi nærri allrar
miðborgarinnar. Mikil uppbygging
hefur verið í miðborginni og má þar
nefna listasafnið í Hafnarhúsinu og
Borgarbókasafnið í Grófarhúsi.
Bæði húsin draga til sín mikinn
fjölda fólks og þessi aukni gesta-
fjöldi nýtist auðvitað miðborginni.
Við höfum einnig unnið að fegrun
gatna þar sem Laugavegurinn,
Austurstræti, Aðalstræti og um-
hverfi Austurvallar og Hallgríms-
kirkju hafa fengið andlitslyftingu.
Allt er þetta unnið í samráði við
mjög marga hagsmunaaðila,“ segir
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir.
Gunnar Guðjónsson og Jón Sig-
urjónsson, kaupmenn við Laugaveg-
inn og félagar í Laugavegssamtök-
unum, sögðust í viðtali við
Morgunblaðið sl. laugardag vera
ósáttir við hvernig borgaryfirvöld
hefðu tekið á málefnum miðborgar-
innar og sögðu að ekkert samráð
væri haft við þá um ákvarðanir sem
vörðuðu svæðið og að Laugavegs-
samtökin væru svo gott sem útskúf-
uð úr stjórnkerfi borgarinnar.
Kaupmennirnir segja að fyrir vikið
hafi fasteignir fallið í verði og að fari
sem horfi muni gæði verslunar í mið-
bænum minnka.
Ingibjörg segist ekki geta tekið
undir þau orð og hún vilji benda á að
annar umræddra kaupmanna hafi
setið í stjórn Þróunarfélagsins og
því getað fylgst með öllum málum
sem þar hafi snúið að Laugavegin-
um. „Framkvæmdastjóri Þróunar-
félagsins situr alla fundi miðborgar-
stjórnar og í miðborgarstjórn situr
líka kaupmaður eins og Bolli Krist-
insson svo því fer fjarri að kaup-
menn séu ekki hafðir með í ráðum
þegar ákvarðanir um miðborgina
eru teknar. Ég geri ráð fyrir að ein-
hverjir samsinni þessum tveimur
kaupmönnum en ég veit fyrir víst að
það eru margir kaupmenn við
Laugaveginn sem myndu vilja setja
miðborgina í annað ljós en þessir
tveir gera.“
Borgarstjóri segist ekki viss um
að aðrir kaupmenn á Laugavegi séu
sammála um að þessir tveir kaup-
menn séu bestu talsmenn kaup-
manna eða að þeir hafi haldið á mál-
um í samræmi við það sem
kaupmenn á Laugaveginum hefðu
kosið. „Mér vitanlega hafa þeir ekki
verið útnefndir sem sérstakir tals-
menn kaupmanna á Laugaveginum.
Ég verð að játa að ég skil ekki af
hverju Morgunblaðið kýs að velja
einmitt þessa tvo tilteknu einstak-
linga því ef farið er yfir alla umfjöll-
un um Laugaveginn hafa þeirra við-
brögð alltaf verið á eina lund það er
neikvæð. Það hefur því mjög ein-
hliða mynd verið miðlað af viðhorf-
um kaupmanna á Laugaveginum og
ég er sannfærð um að það eru fleiri
skoðanir þar uppi en þessar. Ég geri
ráð fyrir að ýmsir kaupmenn á
Laugaveginum telji að þetta séu
ekki góðir talsmenn og þessir tveir
einstaklingar meti málflutninginn,
sem þeir hafa haft uppi um Lauga-
veginn misserum saman, sé að vega
að hagsmunum miðborgarinnar og
setja hana í flokkspólitískt ljós sem
ég tel ekki vera neinum til fram-
dráttar. Þeir eru með þessum mál-
flutningi ekki einvörðungu að saga
greinina sem þeir sitja sjálfir á held-
ur einnig greininga sem margir aðr-
ir sitja á,“ segir Ingibjörg Sólrún.
Laugavegsmál lokuð
inni í Ráðhúsinu
Inga Jóna Þórðardóttir, oddviti
minnihlutans í borgarstjórn, segir
hins vegar gagnrýni kaupmanna við
Laugaveginn réttmæta. Hún segir
afdrifaríka ákvörðun hafa verið
tekna fyrir nokkrum árum þegar
svokölluð miðborgarstjórn var
stofnuð og borgarstjóri gerður að
formanni hennar. Miðborgarstjórn-
in var sett sem hluti af stjórnkerfi
borgarinnar en áður hafði verið til
Þróunarfélag miðborgarinnar þar
sem í áttu sæti fulltrúar borgarinnar
ásamt þeim sem starfa í miðbænum
og gæta hagsmuna hans. „Þessi
breyting hefur að mínu viti leitt til
hins verra því hún hefur slitið bönd-
in milli þeirra aðila sem starfa í mið-
borginni og þeirra sem stjórna borg-
inni. Þessi mál eru nú lokuð inni í
Ráðhúsinu í stað þess að vera unnin í
samstarfi við fólk sem vinnur í mið-
borginni,“ segir Inga Jóna.
„Út af þessu ástandi í miðborginni
finnst mér ástæða að taka það fram
að skipulagsmál Laugavegarins eru
í miklum seinagangi. Undirbúningur
að deiliskipulagi hefur staðið yfir í
þrjú ár og borgaryfirvöld þurfa að
taka stefnu varðandi það hvað eigi
að leyfa mikla nýja uppbyggingu við
Laugaveginn. Það er algjörlega úti-
lokað að sjá fyrir sér að við þessar
aðstæður sem eru í dag geti orðið
einhver endurreisn eða uppbygging
á nýjan leik. Skipulagsskilmálar
gera það að verkum að menn eru
með mjög bundnar hendur og þessu
þarf að breyta. Það þarf að rýmka
skilmálana og skipulagsyfirvöld
þurfa að taka afgerandi stefnu til
þess að skapa skilyrði fyrir nýrri
uppbyggingu,“ segir Inga Jóna
Spurð um þróun verslunar í mið-
bænum segir Inga Jóna að þróunin
virðist vera sú sama og varð í Kvos-
inni. „Sú þróun var á margan hátt
fyrirsjáanleg, því hér voru teknar
rangar ákvarðanir sem leiddu til
þess að verslun hopaði úr Kvosinni
og veitingahús tóku yfir svæðin. Við
sjáum þetta sama gerast núna með
neðri hluta Laugavegar og Banka-
strætis og það er hætt við að þessi
þróun haldi áfram upp með Lauga-
veginum. Það sem við sjáum líka
gerast er að eðli verslana er að
breytast. Áherslan er að færast út í
ódýrari verslanir og þar af leiðandi
verða samkeppnismöguleikar svæð-
isins gagnvart stóru verslunarmið-
stöðvunum eins og Kringlunni ekki
jafn sterkir. Þetta er lykilatriði að
borgaryfirvöld samþykki deiliskipu-
lag þar sem gert er ráð fyrir veru-
legri endurbyggingu þannig að
Laugavegur geti staðið undir nafni
sem aðalverslunargata borgarinn-
ar,“ sagði Inga Jóna Þórðardóttir.
Skiptar skoðanir
um miðborgarmál
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri segir
gagnrýni tveggja kaupmanna við Laugaveg hér í
blaðinu sl. laugardag um vinnubrögð í miðbæj-
armálum mjög óréttmæta. Inga Jóna Þórðar-
dóttir, oddviti sjálfstæðismanna, segir hins vegar
gagnrýni kaupmannanna vera réttmæta.
EINAR Örn Stefánsson, fram-
kvæmdastjóri Þróunarfélags mið-
borgarinnar, vísar því á bug sem
fram kom í máli tveggja kaup-
manna við Laugaveginn og félaga í
Laugavegssamtökunum í Morgun-
blaðinu á laugardag að félagið starfi
undir stjórn borgarstjóra og sam-
tökin hafi verið „hrakin“ úr Þróun-
arfélaginu.
Einar Örn segir erfitt að hrekja
einhvern úr félagi sem hann sé ekki
meðlimur í. Hann vísar því jafn-
framt á bug að félagið viðhafi ekki
samráð við kaupmenn á Laugaveg-
inum. Tveir fulltrúar þeirra sitji í
stjórn félagsins.
Einar Örn segir að hafi kaup-
mennirnir átt við Þróunarfélag mið-
borgarinnar í blaðinu er þeir sögðu
að „Þróunarfélag Reykjavíkur-
borgar“ ætti að vinna að þeirra mál-
um, það væri undir stjórn borgar-
stjóra, hunsaði þá og vildi ekkert
við þá tala, þá sé um mikinn mis-
skilning að ræða.
„Þróunarfélag miðborgarinnar
er ekki tengt borgarstjóra eða
stjórnkerfi borgarinnar á nokkurn
hátt. Það er fyrst og fremst hags-
munafélag rekstraraðila og íbúa í
miðborginni,“ segir Einar Örn.
„Fimm manna stjórn er í Þróun-
arfélaginu og undanfarin tvö kjör-
tímabil hafa þar af verið tveir versl-
unarmenn við Laugaveginn, og þá
væntanlega félagar í Laugavegs-
samtökunum. Ég kannast heldur
ekki við þá málsmeðferð sem kaup-
mennirnir lýsa í þessu viðtali að
þeir þurfi að senda sín erindi fyrst
til Þróunarfélagsins, sem fari þaðan
til miðborgarstjórnar og loks til
borgarstjóra. Menn geta leitað
beint til hvaða aðila sem er, eftir því
hvernig þeir telja hagsmunum sín-
um best borgið. Stundum er viðhaft
samstarf í ákveðnum málum en það
er af og frá að eitthvert fastmótað
ferli sé í gangi,“ segir Einar Örn.
Langir laugardagar
komið vel út
Kaupmennirnir tveir við Lauga-
veginn sögðu í viðtalinu við Morg-
unblaðið nauðsynlegt að uppbygg-
ing færi fram í miðbænum, gæðum
verslunar á svæðinu hefði hrakað
og „búllur“ komið í stað verslana.
Aðspurður hvað Þróunarfélag
miðborgarinnar sé að gera til að
sporna gegn aukinni samkeppni við
verslunarmiðstöðvar eins og
Smáralind og Kringluna segir Ein-
ar Örn félagið hafa verið að mark-
aðssetja svonefnt miðborgargjafa-
kort, það sé sterkasta trompið fyrir
jólin. Það hafi selst framar öllum
vonum. Kortið gildir í yfir 150 versl-
unum, veitingahúsum, líkamsrækt-
arstöðvun, snyrtistofum, listhúsum
og leikhúsum.
„Ég verð ekki var við annað en að
kaupmenn í miðborginni beri sig
vel. Langir laugardagar í upphafi
hvers mánaðar hafa komið mjög vel
út, umferð verið mikil og verslunin
eftir því,“ segir Einar Örn.
Framkvæmdastjóri
Þróunarfélags miðborgarinnar
Störfum ekki undir
stjórn borgarstjóra
TVEIR kaupmenn við Laugaveginn,
sem Morgunblaðið ræddi við í gær,
kannast ekki við að borgaryfirvöld
hunsi Laugavegssamtökin eða versl-
unareigendur við Laugaveginn þeg-
ar ákvarðanir eru teknar sem varða
þetta svæði, líkt og Gunnar Guðjóns-
son í Gleraugnamiðstöðinni og Jón
Sigurjónsson í úra- og skartgripa-
versluninni Hjá Jóni og Óskari héldu
m.a. fram í blaðinu sl. laugardag.
Gísli Jón Magnússon í Nikebúð-
inni segir langflesta kaupmenn við
Laugaveginn vilja vinna á jákvæðan
hátt með borgaryfirvöldum og mik-
ilvægt sé að hagsmunaaðilar setjist
niður til að ræða framtíðarsýn þessa
verslunarsvæðis í borginni. Undir
það tekur Margrét Pálsdóttir, kaup-
maður í leikfangaversluninni Liver-
pool til fjórtán ára.
„Bæði Þróunarfélag miðborgar-
innar og miðborgarstjórnin eru til
staðar og kaupmenn við Laugaveg-
inn eiga þar sína fulltrúa. Hér hefur
ýmislegt verið gert til að fá fólk í
miðborgina. Menningarnóttin hefur
fest sig í sessi og staðið hefur verið
fyrir fleiri uppákomum sem hafa
örvað umferðina til okkar. Lífgað
hefur verið upp á miðbæinn, líkt og
gert var hér á Laugaveginum, þann-
ig að borgaryfirvöld hafa gert ým-
islegt til að halda miðborginni við.
Við þurfum bara að vera jákvæð og
hafa frumkvæði í að gera eitthvað
sjálf í okkar málum,“ segir Margrét
og nefnir einnig góða reynslu af svo-
nefndum löngum laugardögum. Hún
segir veitingamenn þó geta tekið
þátt í þeirri uppákomu með sýnilegri
hætti og verið t.d. með tilboð sem
laði að fjölskyldufólk.
Margrét hefur undanfarin ár ver-
ið virk í starfi Laugavegssamtak-
anna, átt sæti í stjórn Þróunarfélags
miðborgarinnar og í stjórn Kaup-
mannasamtakanna. Hún segist geta
tekið undir með Gunnari og Jóni að
bílastæðasektir séu of háar. Einnig
megi skoða aðkomu að bílastæða-
húsunum betur og koma upp al-
menningssalernum.
Megum ekki sofna á verðinum
Gísli Jón Magnússon segist geta
talað fyrir hönd fjölmargra kaup-
manna við Laugaveginn sem séu
ekki „á sömu bylgjulengd“ og Gunn-
ar Guðjónsson og Jón Sigurjónsson.
Þeir hafi verið í fremstu víglínu fyrir
Laugavegssamtökin til fjölda ára og
gert margt gott en yngri kaupmenn
horfi á þessi mál öðrum augum.
„Við megum ekki sofna á verðin-
um og þurfum stöðugt að vera á tán-
um. Vissulega höfum við lent í sam-
keppni við Kringluna og nú síðast
Smáralind en mér heyrist á kaup-
mönnum að þeir hafi ekki fundið
mikinn samdrátt. Það var rífandi
sala hjá okkur um síðustu helgi og
sumir líktu stemmningunni jafnvel
við Þorláksmessuna. Viðskiptavinir
koma að máli við okkur og tala um
hvað fallegt sé orðið um að líta í mið-
borginni og á Laugaveginum og
hvergi sé betra að vera,“ segir Gísli.
Tveir kaupmenn innan
Laugavegssamtakanna
Viljum vinna á
jákvæðan hátt