Morgunblaðið - 07.11.2001, Qupperneq 2
FRÉTTIR
2 MIÐVIKUDAGUR 7. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra sagði á fundi
Bresk-íslenska verslunarráðsins, sem haldinn var
í London í gær, að íslenska krónan, sem hefur átt
undir högg að sækja uppá síðkastið, myndi ná sér
á næstunni þegar draga tæki úr þenslu í hagkerf-
inu. Þá sagði hann engar líkur á því að Ísland
gangi í Evrópusambandið.
„Þessi órói krónunnar hefur fengið suma þá
sem kvikastir eru til að boða að nauðsynlegt sé
fyrir Íslendinga að ganga nú þegar í Evrópusam-
bandið og taka upp evru,“ sagði Davíð. „Vissulega
er óvissa í gengismálum óheppileg fyrir atvinnu-
lífið og þjóðfélagið allt. Lækkun á gengi krón-
unnar á rætur sínar fyrst og fremst að rekja til
viðbragða hagkerfisins við þeirri þenslu sem hef-
ur látið á sér kræla á undanförnum misserum.“
Davíð sagði fátt benda til þess að aðild að evr-
unni myndi samræmast efnahagslegum hags-
munum Íslands.
„Íslenska hagkerfið er um margt ólíkt hag-
kerfum meginlandsþjóða Evrópu. Íslendingar eru
til dæmis enn mjög háðir sjávarútvegi og sveiflur
í þeirri atvinnugrein fylgja ekki endilega því sem
er að gerast í hagkerfum stórþjóða meginlands-
ins. Og rétt er að benda á að gengi evrunnar mun
aldrei taka mið af því sem gerist á Íslandi, til þess
er hagkerfi okkar einfaldlega of lítið.“
Erlendar fjárfestingar ekki sjálfgefnar
Að sögn forsætisráðherra kalla viðskiptahags-
munir á að aðgangur sé tryggður að mörkuðum
Evrópusambandsins. Hann lagði þó áherslu á hve
mikilvægt það sé fyrir Ísland að geta sniðið við-
skiptaumhverfi landins að eigin þörfum.
„Það samræmist ekki hagsmunum Íslands að
gangast undir sameiginlega viðskipta- og efna-
hagsstefnu Evrópusambandsins. Það blasir við að
hagsmunir íslensku þjóðarinnar og þær aðstæður
sem hún býr við eru fjarri því að fara saman við
það sem ræður för í stefnumótun sambandsins.
Sem dæmi má nefna möguleika Íslands til þess að
laða að erlenda fjárfestingu. Ísland er úr alfara-
leið og því ekki sjálfgefið að erlendir fjárfestar
horfi til landsins. Einnig hefur opnun fjármála-
markaða leitt til þess að auðvelt er fyrir íslensk
fyrirtæki að flytja starfsemi sína á erlenda grund.
Það er því mjög mikilvægt fyrir okkur að hafa
fullt forræði á því að skapa viðskiptaumhverfið á
Íslandi.“
Tengsl við Evrópusambandið mikilvæg
Davíð tók fram að honum þætti það fullkom-
lega ábyrgðarlaust ef íslensk stjórnvöld sam-
þykktu aðild að Evrópusambandinu og tækju upp
evruna sem mynt án þess að fyrir því lægju af-
gerandi rök að íslenskt efnahagslíf væri í fullum
takti við efnahagslíf evrulandanna.
Hann benti á að Ísland þyrfti enn frekar að
auka fjölbreytileika viðskiptalífs landsins, sem
enn treystir að miklu leyti á sjávarútveginn, svo
að aðild að sambandinu væri raunhæf.
Forsætisráðherra vildi þó minna á hve tengsl
Íslands við Evrópusambandið væru mikilvæg
landinu, ekki eingöngu vegna hinna miklu við-
skiptahagsmuna heldur einnig vegna sögulegra
og menningarlegra tengsla.
Davíð Oddsson forsætisráðherra á fundi Bresk-íslenska verslunarráðsins
Krónan styrkist þeg-
ar dregur úr þenslu
London. Morgunblaðið.
SAMNINGANEFNDIR sjúkraliða
og ríkisins komu til sáttafundar í
húsnæði ríkissáttasemjara fyrir há-
degi í gær og lauk fundinum ekki
fyrr en á ellefta tímanum í gær-
kvöld. Að sögn Þóris Einarssonar
ríkissáttasemjara urðu deiluaðilar
sammála um að fara í ítarlegar
samningaviðræður á næstu dögum
um öll efnisatriði væntanlegs kjara-
samnings, til að kanna hvort unnt sé
að finna grundvöll til samkomulags.
,,Það þýðir að menn munu kemba
þetta upp á nýtt. Nú ætla menn að
fara í aðra yfirferð og taka sér tíma
í það. Segja má að það sé að hefjast
ný sáttafundalota,“ sagði Þórir.
Fengu 10 milljónir úr
vinnudeilusjóði BSRB
Sjúkraliðafélag Íslands fékk í gær
afhentan tíu milljóna kr. styrk í
verkfallssjóð félagsins úr vinnu-
deilusjóði Bandalags starfsmanna
ríkis og bæja.
Var öll samninganefnd sjúkraliða-
félagsins viðstödd afhendinguna.
Stjórn vinnudeilusjóðsins lýsti full-
um stuðningi við Sjúkraliðafélagið í
baráttunni fyrir bættum kjörum og
lýsti þeirri von að styrkurinn efldi
og styrkti félagsmenn í erfiðri
vinnudeilu og verkfallsátökum.
Langur sáttafundur í sjúkraliðadeilunni í gær
Morgunblaðið/Þorkell
Garðar Hilmarsson, formaður vinnudeilusjóðs BSRB, afhendir Kristínu Á. Guðmundsdóttur styrkinn.
Stíf fundahöld verða næstu daga
,,Á UNDANFÖRNUM árum hafa
tónlistarskólakennarar dregist veru-
lega aftur úr öðrum kennurum í
launum,“ segir í ályktun sem stjórn
Kennarasambands Íslands sendi frá
sér í gær. Þar er lýst fyllsta stuðn-
ingi við kröfur tónlistarskólakennara
í kjaradeilu þeirra.
,,Stjórnin bendir á að núverandi
byrjunarlaun tónlistarskólakennara
eru um 105 þúsund krónur á mánuði.
Sambærileg byrjunarlaun grunn-
skólakennara eru um 60% hærri og
byrjunarlaun framhaldsskólakenn-
ara rúmlega 70% hærri.
Tilboð LN [launanefndar sveitar-
félaga] felur í sér að meðallaun tón-
listarskólakennara yrðu 165 þúsund
krónur á mánuði. Til samanburðar
eru núverandi meðallaun kennara í
grunnskólum um 194 þúsund krónur
á mánuði og í framhaldsskólum um
211 þúsund krónur. Árlegur vinnu-
tími á öllum þessum skólastigum er
hinn sami,“ segir í ályktun KÍ.
Stjórn KÍ styður kröfur
tónlistarkennara
Hafa dreg-
ist verulega
aftur úr
ÚTSALA hefst í Hagkaupum í dag
og er þetta í fyrsta sinn sem það er
gert á þessum árstíma. Að sögn Sig-
ríðar Gröndals, markaðsstjóra Hag-
kaupa, er með þessu verið að rýma
fyrir jólavörum.
Sigríður segir útsöluna verða í öll-
um verslunum þar sem nýjar vetr-
arvörur verða á boðstólum. „Þetta er
nýjung á Íslandi að hafa útsölu á
þessum tíma. Útsala af þessu tagi er
hins vegar þekkt erlendis bæði í Am-
eríku og Bretlandi og þá undir nafn-
inu „mid-season sale“. Hún segir
þetta gott tækifæri til þess að rýma
fyrir jólavörum sem nú streymi inn.
Útsala í Hagkaupum
Rýmt fyrir
jólavörum
LÖGREGLUNNI í Reykjavík var
tilkynnt um eld í rusli á Miklatúni um
klukkan hálfníu í gærkvöld. Var þar
búið að kveikja í tveimur ruslatunn-
um og náði lögregla tali af ungum
drengjum sem sögðust vera að taka
upp mynd fyrir sjónvarp. Hins vegar
vissu þeir ekki fyrir hvaða sjónvarps-
stöð, að sögn lögreglu.
5 piltar, sem voru með drengjun-
um, hlupu í burtu þegar lögreglan
kom að. Hald var lagt á myndbands-
spóluna og sömuleiðis myndbands-
upptökuvél sem ekki var í eigu kærða.
Tóku sjónvarpsmynd
af eldi í ruslatunnum
Vissu ekki fyr-
ir hvaða sjón-
varpsstöð
♦ ♦ ♦
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.isMagnús Sigurðsson ekki meira
með á þessu ári / B2
Yfirburðir Árna Gauts í kosningu
lesenda VG í Noregi / B1
4 SÍÐUR
Sérblöð í dag
Á ALÞINGI hafa verið lagðar fram
tvær þingsályktunartillögur sem
snerta flutninga olíu um Reykjanes-
braut og vatnsból sem eru í hættu
vegna þeirra. Það eru þingmenn
Reykjaneskjördæmis sem flytja til-
lögurnar.
Annars vegar er lagt til að bann
verði lagt við flutningi jarðefnaelds-
neytis eftir Reykjanesbraut og
Grindavíkurvegi. Hins vegar er lagt
til að farið verði í aðgerðir til að
vernda vatnsból sveitarfélaganna á
Suðurnesjum, sem séu mjög við-
kvæm fyrir mengun á landi.
Í greinargerð kemur fram að árið
1998 hafi verið farnar 3.359 ferðir um
Reykjanesbraut með olíu og flug-
vélabensín, samtals 136.780 tonn.
Reykjanesbraut
Vilja tak-
marka
flutning olíu
Vatnsból/10
HARÐUR árekstur varð á Reykja-
nesbraut á tólfta tímanum í gær-
kvöld þegar tveir fólksbílar rákust
saman 2–3 kílómetra fyrir austan
Vogaafleggjara og endaði annar
þeirra utan vegar. Lögregla og
sjúkralið fóru á vettvang og var fólk í
bílunum flutt á sjúkrahús. Ekki var
vitað hversu alvarlega það var slasað
þegar Morgunblaðið fór í prentun í
nótt.
Harður árekst-
ur á Reykja-
nesbraut
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦