Morgunblaðið - 07.11.2001, Page 49
stæði. Þá var yfirborðið skafið af
Markarfljótsaurnum næst girðing-
unni. Viti menn, í þessu raskaða
landi varð líkt og sprenging. Birkið
sáði sér líkt og því væri borgað fyr-
ir, sama má segja um loðvíðinn og
heldur þótti mér bætast í sjálfsáðu
flóruna, þegar við fórum að finna
fjölmargar ungplöntur af alaska-
víði, sem við höfðum gróðursett í
skjólbelti. Stærstu sjálfsáðu
alaskavíðiplönturnar eru nú orðnar
liðlega metra háar.
En nú vandast
málið. Er þetta Ís-
lendingur eða út-
lendingur? Á
kannski að segja ís-
lenskur, íslenskari
og íslenskastur? Það
er skemmst frá að
segja, að ýmsar trjá-
tegundir, sem rækt-
aðar hafa verið í ís-
lenskum görðum eða
skógarlundum, geta
vaxið upp af fræi ut-
an ræktunarsvæða
án þess að manns-
höndin komi til, svo
fremi fræið falli í
hæfilega opinn jarð-
veg, t.d. mela eða raskað land. Á
Egilsstöðum er stórfalleg selja í
vegarkanti, sjálfsagt komin úr
garðinum við Egilsstaðabúið, all-
mikið er af sjálfsáinni viðju og
blendingum alaskavíðis meðfram
Suðurlandsvegi, svo sem ofan
Gunnarshólma og langleiðina upp á
Sandskeið. Meðfram Reykjanes-
brautinni svo sem við Kaplakrika
og suður undir Kapelluhraun er
töluvert af sjálfsáinni alaskaösp,
viðju, alaskavíði og blendingum þar
á milli. Sama er að segja um svæðið
ofan álversins meðfram Krísuvík-
urvegi. Í Borgarfirðinum frá Reyk-
holtsdalsvegamótum að Bifröst er
mikið af sjálfsáinni viðju og alaska-
víði í vegköntum. Sjálfsáið lerki vex
í nágrenni Guttormslundar á Hall-
ormsstað og töluvert var um sitka-
grenisplöntur við Sveinbjarnar-
lund við Ártúnsholtið. Þær smá-
plöntur hafa nú flestar horfið,
líklega lent í görðum Reykvíkinga.
Alls eru nálægt 10 trjátegundir,
sem menn vita að getur fjölgað sér í
óræktuðu landi án þess að maður-
inn eigi hlut að máli. Auk víðiteg-
unda og aspar, sem þegar eru
nefndar, má telja sitkagreni, blá-
greni og rauðgreni, stafafuru,
bergfuru og broddfuru og lerki.
Eru þetta þá ekki að verða íslensk-
ar tegundir eða eiga þær að bera
útlendinga-stimpilinn um aldur og
ævi? Geta menn e.t.v. sæst á að
kalla þær ílendar tegundir eða vilja
menn nota slæðings-heitið, sem
mér sjálfri finnst dálítið niðrandi.
S. Hj.
FRÁ því um miðjan júní hefur ein-
göngu verið fjallað um trjákenndar
plöntur í pistlinum Blómi vikunnar
og það er því líklega kominn tími til
að fjalla svolítið um íslenskar trjá-
tegundir.
Þetta var ósköp einfalt þegar ég
var að byrja að fá áhuga á gróðri
sem smástelpa. Það var birkið og
fjalldrapinn og víðirinn og einirinn
að ógleymdum reyninum.
Þegar ég eltist fór málið að verða
flóknara. Ég komst sem sé að því
að heila trjátegund vantaði í upp-
talninguna, blæöspina, sem fyrst
var talið að yxi aðeins hjá Garði í
Fnjóskadal, en finnst líka í Egils-
staðaskógi og víðar á Austurlandi.
Þetta með birkiættina var líka
flóknara en virtist, þar sem birki og
fjalldrapi geta æxlast innbyrðis.
Fram kemur blendingur sem hefur
verið kallaður skógviðarbróðir.
Þarna koma fram einstaklingar
sem hafa „birki“lauf en talsvert af
rauðum haustlit fjalldrapans, þar
sem arfhreint birki hefur gula
haustliti.
Þó tók fyrst stein-
inn úr þegar farið
var að skoða víðinn
nánar. Grasvíðirinn
litli er svo sem ósköp
einfaldur, enda svo
lágvaxinn, varla
meira en 5 cm. Ég
geri það stundum af
skömmum mínum að
vekja athygli út-
lendra samferða-
manna á honum og
segi um leið að þetta
sé nú minnsta tré á
Íslandi. Þeir sem
meiri þekkingu hafa
á grjóti en gróðri
stara á mig eins og
naut á nývirki, er konan alvarlega
biluð? Svo er það gulvíðirinn, sem
getur verið allt að 8 m á Hallorms-
stað en víða annarsstaðar varla í
hné. Eins geta vaxið hlið við hlið
runnar, þar sem allt að mánuður
líður á milli laufgunar einstakling-
anna. Gulvíðirinn er svo ótrúlega
breytilegur að maður gæti jafnvel
haldið að um margar tegundir væri
að ræða.
Svo er það grávíðir, loðvíðir og
fjallavíðir. Nú er ég komin á hálan
ís. Ég lærði nefnilega að loðni víðir-
inn sem hefði rauða fræfla væri grá-
víðir, en loðni víðirinn sem hefði
gula fræfla væri loðvíðir. Svo þegar
farið var að skoða latneska heitið á
grávíðinum kom í ljós, að menn voru
ekki vissir um hvað væri á ferðinni,
hann var bæði kallaður Salix glauca
og Salix callicarpaea. Nú hefur verið
leyst úr þessum vanda. Víðirinn
með rauðu fræflunum er nefnilega
fjallavíðir, Salix arctica, en víðirinn
með gulu fræflunum er Salix lanata,
sem kalla má hvort sem er loðvíði
eða grávíði, enda hefur það trúlega
verið gert um aldir, löngu áður en
grasafræðingarnir reyndu að koma
skipulagi á hlutina. Jóhann Pálsson
grasafræðingur gerir þessu mjög
góð skil í grein sinni um víði og víði-
ræktun á Íslandi í Skógræktarritinu
1997.
Á sumarbústaðalandi okkar
hjónanna vex bæði grasvíðir, loð-
víðir, gulvíðir og fjallavíðir, en síð-
ustu ár hefur ný víðitegund skotið
upp kollinum. Fyrir um 5 árum var
ýtt upp malargarði sem girðingar-
Sjálfsáinn alaskavíðir.
KIRKJUSTARF
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. NÓVEMBER 2001 49
VIKUNNAR
BLÓM
Um s j ó n S i g r í ð u r
H j a r t a r
464. þáttur
Íslenskar
trjátegundir?
„VÍST mun vorið koma“ í Þorláks-
kirkju föstudagskvöld 9. nóvember
kl. 20:30. Dægurlagatónlist með
kristilegu ívafi. Flytjendur Skál-
holtskórinn, Kór ML, Kór Skál-
holtshátíðar. Hilmar Örn Agn-
arsson stjórnar. Einsöngvarar Páll
Rósinkranz og Maríanna Másdóttir.
Texti tónverksins er byggður á Op-
inberunarbók Jóhannesar. Séra
Tómas Guðmundsson les texta úr
Opinberunarbókinni. Barna- og
foreldramorgnar miðvikudaga kl.
10:00. TTT starf sunnudaga kl.
19:30. Biblíulestrar fimmtudaga kl.
20:00.
Sóknarprestur.
Sumarkirkja að vetri
í Fáskrúðsfirði
Á LIÐNU sumri hófst starfsemi
Sumarkirkjunnar að frumkvæði
hjónanna Þorvalds Halldórssonar
söngvara og Margrétar Scheving.
Þau störfuðu með prestum landsins
að helgihaldi með óhefðbundnum
hætti jafnt sem hefðbundnum. Á
Þingvöllum og Laugarvatni, þar
sem sr. Þórey Guðmundsdóttir
þjónaði þá, voru nokkrar sam-
verustundir, sem voru blanda af
tónleikum og helgihaldi. Þetta var
ákaflega vel heppnað og nú ætla
þau þrjú að endurtaka leikinn á Fá-
skrúðsfirði í vikunni.
Á fimmtudagskvöld kl. 20.00
verða þau í Fáskrúðsfjarðarkirkju,
á föstudag kl. 16.00 verður barna-
og ungmennastund á sama stað.
Um kvöldið verður samvera á dval-
arheimilinu Uppsölum á Fáskrúðs-
firði.
Sumarkirkjan að vetri býður alla
velkomna til samverustundanna á
meðan húsrúm leyfir, hvaðanæva
að og á þá stund, sem hentar hverj-
um og einum best. Samverustund-
irnar eru í boði Fáskrúðsfjarð-
arkirkju, en lögð er áhersla á að
utansóknarfólk er ekki síður vel-
komið.
Biskup situr
fyrir svörum
Í KVÖLD, miðvikudagskvöld, kl. 20
mun biskup Íslands, herra Karl Sig-
urbjörnsson ræða og sitja fyrir
svörum í Hallgrímskirkju um efni
hirðisbréfs síns, Í birtu náðarinnar.
Undanfarin miðvikudagskvöld hef-
ur leshópur verið að ræða efni
bréfsins og undirbúa umræðuna. Í
hirðisbréfinu er gripið á fjölmörg-
um atriðum sem varða framtíð
kirkjunnar og starf hennar í
breyttu þjóðfélagi á 21. öld og má
gera ráð fyrir að marga fýsi að
ræða við biskup um þau efni. Allir
eru velkomnir.
„Víst mun vorið
koma“ í
Þorlákskirkju
Bústaðakirkja. Opið hús fyrir aldraða í dag
kl. 13. Handavinna, spil, föndur og gam-
anmál.
Dómkirkjan. Hádegisbænir kl. 12.10.
Léttur málsverður á eftir. Prestarnir taka
við fyrirbænum í síma 562-2755.
Grensáskirkja. Foreldramorgunn kl. 10–
12. Samverustund aldraðra kl. 14. Bibl-
íulestur, bænastund, kaffiveitingar og
samræður.
Hallgrímskirkja. Opið hús fyrir foreldra
ungra barna kl. 10–12. Starf fyrir 9–10 ára
börn kl. 16. Starf fyrir 11–12 ára börn kl.
17.30.
Háteigskirkja. Morgunbænir kl. 11. Súpa
og brauð kl. 12 í hádegi í Setrinu á neðri
hæð safnaðarheimilis. Brids kl. 13 fyrir
eldri borgara. Yngri deild barnakórsins æf-
ir kl. 16.30 undir stjórn Birnu Björnsdóttur.
Kórinn er ætlaður börnum úr 1.–3. bekk.
Eldri deild barnakórsins æfir kl. 17.30
undir stjórn Birnu Björnsdóttur. Kórinn er
ætlaður börnum úr 4.–6. bekk. Kvöldbæn-
ir kl. 18.
Langholtskirkja. Heilsuhópurinn hittist kl.
11–12 í Litla sal. Kaffispjall, heilsupistill,
létt hreyfing og slökun. Kyrrðar- og fyrir-
bænastund í kirkjunni kl. 12–12.30.
Bænaefnum má koma til sóknarprests og
djákna í síma 520-1300. Kærleiksmáltíð
kl. 12.30. Matarmikil súpa, brauð og
álegg kr. 500. Samvera eldri borgara kl.
13–16. Kaffi og smákökur, söngstund
með Jóni Stefánssyni, tekið í spil, málað á
dúka og keramik í stóra sal. Upplestur sr.
Tómasar Guðmundssonar (kl. 13.30–
15.15) á Bör Börsson í Guðbrandsstofu í
anddyri kirkjunnar. Boðið er upp á akstur
heiman og heim fyrir þá sem komast ekki
að öðrum kosti til kirkju. Verið öll hjart-
anlega velkomin. Foreldra- og barnamorg-
unn á morgun, fimmtudag. Upplestur,
söngstund, kaffispjall.
Laugarneskirkja. Morgunbænir kl. 6.45–
7.05. Kirkjuprakkarafundur kl. 14.10–
15.30 ætlaður börnum í 1.–4. bekk. Ferm-
ingartími kl. 19.15. Unglingakvöld Laug-
arneskirkju og Þróttheima kl. 20. (Sjá síðu
650 í Textavarpi.)
Neskirkja. Foreldramorgunn kl. 10. Kaffi
og spjall. Umsjón Elínborg Lárusdóttir. 7
ára starf kl. 14. Öll börn í 2. bekk velkom-
in. Skráning í síma 511-1560. Opið hús kl.
16. Spjallað yfir kaffi og meðlæti. Fræðsla
um Davíðssálma kl. 17 í umsjón sr.
Franks M. Halldórssonar. Bænamessa kl.
18. Prestur sr. Frank M. Halldórsson.
Seltjarnarneskirkja. Kyrrðarstund kl. 12.
Léttur málsverður í safnaðarheimili eftir
stundina.
Árbæjarkirkja. Kyrrðarstund kl. 12. Org-
elspil, söngur, fyrirbænir og heilög kvöld-
máltíð. Súpa og brauð í safnaðarheimilinu
á eftir gegn vægu verði. Opið hús fyrir aldr-
aða frá kl. 13–16. Kirkjuprakkarar kl. 17–
18.
Breiðholtskirkja. Kyrrðarstund í dag kl.
12.10. Tónlist, altarisganga, fyrirbænir.
Léttur málsverður í safnaðarheimilinu eftir
stundina. Kirkjuprakkarar. Starf fyrir 7–9
ára börn kl. 16.30. TTT-starf fyrir 10–12
ára kl. 17.30. Æskulýðsstarf á vegum
KFUM&K og kirkjunnar kl. 20.
Digraneskirkja. Fjölskyldumorgnar kl. 10.
Helgistund kl. 11. Unglingadeild Digranes-
kirkju og KFUM&K, 13–16 ára kl. 20.
Grafarvogskirkja. Kyrrðarstund í hádegi
kl. 12 með altarisgöngu og fyrirbænum.
Boðið er upp á léttan hádegisverð á vægu
verði að lokinni stundinni. Allir velkomnir.
KFUM fyrir drengi 9–12 ára kl. 17.30–
18.30. Kirkjukrakkar í Rimaskóla fyrir börn
7–9 ára kl. 18–19. Æskulýðsfélag Engja-
skóla fyrir börn í 8.–9. bekk kl. 20–22.
Hjallakirkja. Fjölskyldumorgnar kl. 10.
TTT-starf fyrir 10–12 ára kl. 17. Litlir læri-
sveinar í Lindaskóla kl. 17.
Kópavogskirkja. Starf með 8–9 ára börn-
um í dag kl. 16.45–17.45 í safnaðarheim-
ilinu Borgum. Starf með 10–12 ára börn-
um TTT á sama stað kl. 17.45–18.45.
Seljakirkja. Kyrrðar- og bænastund í dag
kl. 18. Beðið fyrir sjúkum, allir velkomnir.
Tekið á móti fyrirbænaefnum í kirkjunni og
í síma 567-0110.
Vídalínskirkja. Foreldramorgnar – foreldr-
astundir. Nú er búið að breyta foreldra-
morgnum sem verið hafa kl. 10 á fimmtu-
dögum í foreldrastundir sem verða
framvegis á fimmtudögum kl. 13–15. Þá
gefst kjörið tækifæri fyrir heimavinnandi
foreldra með ung börn til að koma saman
og eiga skemmtilega samveru í safnaðar-
heimili kirkjunnar.
Bessastaðasókn. Dagur kirkjunnar í
Haukshúsum í boði Bessastaðasóknar.
Foreldramorgnar, starf fyrir foreldra ungra
barna, kl. 10–12. Heitt á könnunni. Fjöl-
mennum. Opið hús fyrir eldri borgara kl.
13–16 í samstarfi við Félag eldri borgara á
Álftanesi. Notalegar samverustundir með
fræðslu, leik, söng og kaffi. Auður og Er-
lendur sjá um akstur á undan og eftir.
Hafnarfjarðarkirkja. Kyrrðarstund í kirkj-
unni kl. 12, íhugun, altarisganga, fyrir-
bænir. Léttur hádegisverður kl. 13 í Ljós-
broti Strandbergs.
Víðistaðakirkja. Foreldramorgnar á
fimmtudögum kl. 10–12. Opið hús fyrir
eldri borgara í dag kl. 13:00. Helgistund,
spil og kaffiveitingar.
Lágafellskirkja. Kirkjukrakkafundur í
Lágafellsskóla á miðvikudögum frá kl.
13.15–14.30.
Keflavíkurkirkja. Kirkjan opnuð kl. 12.
Kyrrðar- og fyrirbænastund í kirkjunni kl.
12.10. Samverustund í Kirkjulundi kl.
12.25, súpa, salat og brauð á vægu verði.
Allir aldurshópar. Umsjón Ólafur Oddur
Jónsson. Æfing Kórs Keflavíkurkirkju frá
kl. 19.30–22.30. Stjórnandi Hákon Leifs-
son. Fundur hjá verðandi áfallateymi Suð-
urnesja kl. 16. Alfanámskeið í Kirkjulundi
kl. 19 og lýkur í kirkjunni um kl. 22.
Njarðvíkurkirkja (Innri-Njarðvík). Foreldra-
morgun í safnaðarheimilinu í dag miðviku-
dag frá kl. 10.30–11.30.
Ytri-Njarðvíkurkirkja. Biblíulestrar
fimmtudag kl. 20 í umsjá Ástríðar Helgu
Sigurðardóttur guðfræðings. Farið verður í
Jóhannesarguðspjall. Fyrirbænasamvera
fimmtud. kl. 19. Fyrirbænaefnum er hægt
að koma áleiðis að morgni fimmtudagsins
milli kl. 10 og 12 í síma 421-5013. Spila-
kvöld aldraðra fimmtudag kl. 20.
Landakirkja í Vestmannaeyjum. Kl. 11
helgistund á Hraunbúðum. Allir velkomnir.
Kl. 20 Aglow-fundur í safnaðarheimilinu.
Kl. 20 opið hús unglinga í KFUM&K-húsinu
við Vestmannabraut.
Hvalsneskirkja. Taize-helgistund kl.
20.30. Boðið upp á kaffi eftir stundina.
Kletturinn, kristið samfélag. Bænastund
kl. 20. Allir velkomnir.
Hvítasunnukirkjan Fíladelfía. Fjölskyldu-
samvera kl. 18 sem hefst með léttri mál-
tíð á vægu verði. Kl. 19 er kennsla og þá
er skipt niður í deildir. Það er krakkaklúbb-
ur fyrir krakka 2–12 ára, unglingafræðsla
fyrir 13–15 ára unglinga, fræðsla fyrir ungt
fólk á aldrinum 16–20 ára. Þá er grunn-
fræðsla en þar eru kennd undirstöðuatriði
kristinnar trúar. Síðan er kennsla á ensku.
Einnig eru til skiptis biblíulestrar, bæna-
stundir og vitnisburðarstundir. Það eru all-
ir hjartanlega velkomnir að koma og vera
með okkur.
Kristniboðssalurinn. Samkoma í kvöld kl.
20.30. Kristín Bjarnadóttir talar. Ólöf Inger
Kjartansdóttir syngur einsöng. Allir vel-
komnir.
Safnaðarfélag Digraneskirkju heldur fund
í safnaðarsal fimmtudaginn 8. nóvember
kl. 20.30. Katla Ólafsdóttir og Frosti
Bjarnason segja frá Kenýaferð frá í vor.
Kaffiveitingar að loknum fundi. Allir eru
velkomnir.
Safnaðarstarf
Þorlákskirkja í Þorlákshöfn.