Morgunblaðið - 24.11.2001, Side 33
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. NÓVEMBER 2001 33
Í TILEFNI af dögum myrkurs á
Austurlandi verða tvær sýningar
og kvöldvaka á Skriðuklaustri um
helgina. Charles Ross verður
með innsetningu sem hann nefnir
„Horfnar tónlistir“ og Fjölnir
Hlynsson sýnir ljósaskúlptúra.
Sýningar þeirra tveggja verða
opnar frá kl. 17 í dag og kl. 14–18
á morgun.
Kvöldvakan hefst kl. 20 í kvöld
með blandaðri dagskrá sem helg-
uð verður því sem í myrkrinu
býr.
Myrkraverk
á Skriðuklaustri
SÁLMAR jólanna er með leik Sig-
urðar Flosasonar saxófónleikara og
Gunnars Gunnarssonar organista á
13 þekktum jólasálmum sem tengj-
ast jólum, aðventu og áramótum.
Lögin eru frá ýmsum tímum, þau
elstu frá miðöldum, en hið yngsta var
samið árið 1995. Marga af kunnustu
jólasálmum heimsbyggðarinnar er að
finna á diskinum, þ.m.t. Það aldin út
er sprungið, Í Betlehem er barn oss
fætt og Heims um ból. Einnig eru á
disknum gömul íslensk jólalög, s.s.
Hátíð fer að höndum ein og Með gleði-
raust og helgum
hljóm. Gunnar og
Sigurður leika lögin
í eigin útsetningum,
en í þeim er áhersla
annars vegar á
spuna, en hins vegar á fjölbreytilega
nálgun að viðfangsefnunum.
Sigurður og Gunnar hafa áður sent
frá sér diskinn Sálma lífsins.
Útgefandi er Óma, á vegum Eddu –
miðlunar og útgáfu. Upptökur fóru
fram í Hallgrímskirkju í sumar. Mynd á
kápu er af kirkjuklukkunni frá Hálsi í
Fnjóskadal en hún er varðveitt í Þjóð-
minjasafni Íslands. Verð: 2.499 kr.
Djass
PÍKUSÖGUR verða sýndar á
Kirkjubæjarklaustri í dag kl. 16 og í
Vík í Mýrdal kl. 21. Á þriðjudag
verða þær í Fjölbrautaskóla Vestur-
lands á Akranesi.
Píkusögur eru eftir Eve Ensler og
það eru leikkonurnar Halldóra Geir-
harðsdóttir, Jóhanna Vigdís Arnar-
dóttir og Sóley Elíasdóttir sem segja
sögurnar. Sigrún Edda Björnsdóttir
leikstýrir.
Píkusögur
á flakki