Morgunblaðið - 03.02.2002, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3. FEBRÚAR 2002 11
gæti styrkt miðborgina. Ákvörðun
Bolla Kristinssonar kaupmanns um
að segja sig úr miðborgarstjórn og
auglýsa eignir sínar við Laugaveg
til sölu endurspeglar ófremdar-
ástandið í málefnum miðborgarinn-
ar undir stjórn R-listans auk þess
að vera enn eitt dæmið um virðing-
arleysið gagnvart hagsmunum og
viðhorfum hins almenna borgarbúa.
Í störfum mínum undanfarin ár
hef ég ekki síst litið til miðborg-
arinnar með hagsmuni skólanna í
huga og til dæmis verið talsmaður
þess að efla Menntaskólann í
Reykjavík, en talað þar fyrir dauf-
um eyrum gagnvart borgaryfirvöld-
um. Það hefur líka dregist allt of
lengi af hálfu þeirra að taka ákvarð-
anir varðandi framtíðarstað
Kvennaskólans í Reykjavík. Og svo
gerði meirihlutinn þau mistök að
breyta húsnæði Miðbæjarskólans í
skrifstofur. Miðborgarbragurinn
væri annar ef þar væri enn skóla-
starf.“
Þú hefur sagt að skerpa þurfi póli-
tískar línur milli framboðanna í
Reykjavík, svo kjósendur sjái borg-
armál ekki sem þras um tæknileg úr-
lausnarefni. Hvað átt þú við með
þessu?
„Viðfangsefni sveitarstjórna eru
að sjálfsögðu sum hver eingöngu
tæknileg úrlausnarefni. En fólk má
ekki gleyma því að vinnubrögðin
hjá stjórnmálamönnunum eru bæði
hugsjónaleg og tæknileg og þeir
nálgast viðfangsefnin á ólíkan hátt
eftir stjórnmálaskoðunum. Ég hef
þá grundvallarhugsjón, eins og aðr-
ir sjálfstæðismenn, að auka svig-
rúm einstaklinganna, á meðan R-
listinn og vinstrisinnar vilja að hið
opinbera hafi sem mest svigrúm, á
kostnað einstaklinga. Svona and-
stæður hljóta að koma skýrt fram
þegar rætt er um hvernig eigi að
skipuleggja borgina til framtíðar.
Mér finnst miklu skipta, að kjós-
endur geti gengið að því vísu hvaða
stefnu stjórnvöld munu fylgja í
málum sem snerta þeirra hag. En
borgarstjóri sem leiðir þriggja til
fjögurra höfða þurs á auðvitað ekki
hægt um vik. Sá borgarstjóri tekur
helst þann kostinn að þegja um
pólitík, fremur en að vekja eitt eða
fleiri höfuð af værum svefni. Þess
vegna kom á óvart, þegar Ingibjörg
Sólrún Gísladóttir taldi það Fram-
sóknarflokknum að kenna, sem far-
ið hefur illa í skólamálum borgar-
innar.
Innan R-listans er auðveldast að
líta bara á úrlausnarefni sem
tæknilegar þrautir, þar sem grund-
vallarstefna kemur ekki við sögu.
Þar sem slík vinnubrögð eru við-
höfð vakna íbúar upp við þann
vonda draum að borgaryfirvöld
ætla sér að framkvæma eitt og ann-
að án nokkurs samráðs við íbúana
eða tillits til þeirra.“
R-listinn á ekkert óskipt bakland
Þegar þú tilkynntir um framboð
þitt sagðir þú að hvarvetna kvörtuðu
borgarbúar undan því að ná engu
sambandi við borgarstjóra. Ef þú
verður næsti borgarstjóri, hvernig
ætlar þú að tryggja aðgang borgar-
búa að þér?
„Ég mun haga málum með svip-
uðum hætti og ég hef gert í
menntamálaráðuneytinu undanfar-
in sjö ár. Ég sæki fundi og manna-
mót, tek á móti fólki á skrifstofu
minni og á líka mikil samskipti á
tölvupósti. Sumir hafa jafnvel hald-
ið því fram að ég sé nánast aðgengi-
legur á nóttu sem degi. Ég veit hins
vegar að menn sem leita til borg-
aryfirvalda komast ógjarnan í
gegnum kerfi millistjórnenda. Þetta
hefur versnað mjög eftir því sem
valdaárum R-listans hefur fjölgað,
enda hefur R-listinn ekki við annað
að styðjast en eigið embættis-
mannakerfi og styrkir það því
ótæpilega. R-listinn á ekkert óskipt
bakland og hefur engin bein tengsl
við borgarbúa, eins og Sjálfstæð-
isflokkurinn hefur með hverfa-
félögum sínum.“
R-listinn segir að nú séu 93%
barna í Reykjavík í niðurgreiddri
dagvistun. Er hægt að gera mikið
betur?
„Þetta er talnaleikur hjá R-list-
anum, þegar litið er til kosningalof-
orða hans, þar sem hann telur sam-
an öll börn í leikskólum,
einkaskólum og hjá dagmæðrum.
R-listinn hefur ekki staðið við lof-
orð sitt um leikskóla fyrir alla.
Hann ber fyrir sig að nú geri fólk
allt aðrar kröfur um leikskólavistun
en voru uppi þegar þetta loforð var
gefið fyrir átta árum. En er það
ekki hlutverk kjörinna fulltrúa að
bregðast við breyttum kröfum?
Minnumst þess líka, að fram hefur
komið, að nú séu um 500 færri börn
á leikskólaaldri í Reykjavík en árið
1994, þegar R-listinn komst til
valda. Það segir vissulega mikla
sögu um íbúaþróun borgarinnar.
Ég beitti mér fyrir því hér í
menntamálaráðuneytinu að sett var
námskrá fyrir leikskólana í fyrsta
skipti. Áður störfuðu þeir sam-
kvæmt uppeldisáætlun, en nú eru
þeir viðurkenndir sem fyrsta skóla-
stigið og gert er ráð fyrir að leikir
séu notaðir til að kenna og til mál-
örvunar. Það er mikilsvert að líta á
þetta og sjá til þess að þjónustan sé
sem víðtækust, til að koma til móts
við þarfir borgaranna. Núna hefur
Hagfræðistofnun Háskóla Íslands
lagt fram hugmyndir um leiðir til
að fækka námsárum til stúdents-
prófs. Það gætum við til dæmis
gert með því að taka 5 ára börn inn
í grunnskólana, í stað þess að þau
hefji nám 6 ára. Þar með myndum
við fá aukið rými á leikskólunum.
Þetta finnst mér áhugaverð hug-
mynd. Rannsóknir sýna að ung
börn geta lært nánast takmarka-
laust.
Ef þessi leið er farin er nauðsyn-
legt að huga vel að skipulagi nám-
skrár. Sex ára bekkurinn var á sín-
um tíma settur inn í grunnskólann
án þess að skilgreint væri í nám-
skrá hvað ætti að kenna börnunum
og slík mistök eigum við ekki að
láta endurtaka sig.“
Leikskólamál í dóm kjósenda
Ef þú ert tilbúinn til að fallast á að
öll börn, 6 ára og eldri, eigi rétt á
skólavist, ertu þá að sama skapi
tilbúinn til að skilgreina það svo, að
öll börn frá t.d. 18 mánaða eða 2ja
ára aldri eigi skilyrðislausan rétt á
leikskólavist?
„Ég tel, að þetta eigi að skoða af
alvöru og til hlítar. Álitamálin eru
spennandi og snerta að sjálfsögðu
fleiri þætti en lúta beint að sveit-
arstjórnarmálum, en nauðsynlegt
er að frumkvæði komi frá þeim,
sem reka leikskólana, sveitarstjórn-
unum. Ég hef beitt mér fyrir marg-
víslegum breytingum í skólamálum
á grundvelli víðtæks samráðs við
alla, sem hlut eiga að máli, og mér
þykir verðugt viðfangsefni að nálg-
ast málefni leikskólans á þeim for-
sendum, sem þú nefnir í spurningu
þinni.“
Verða leikskólamálin kosninga-
mál?
„Já, þau verða það. Ástæðulaust
er að þrátta um tilvist biðlistanna,
þeir blasa við öllum, og eins hitt, að
R-listinn hefur svikið kosningalof-
orð sín vegna leikskólanna. Ég vil,
að í kosningabaráttunni ræði menn
meginsjónarmið um gildi og mark-
mið leikskólastarfsins og aukna
þjónustu á þessu skólastigi. Reyk-
víkingar geta mikið lært af öðrum í
þessu efni og í borginni hafa menn
verið ótrúlega seinir að nýta sér
þau tækifæri, sem gefast, eins og til
dæmis sést af því, hve Leikskólar
Reykjavíkur hafa verið seinir að
laga starfsemi sína að breytingum á
reglugerð, sem ég gerði 9. maí á
síðasta ári og heimilar, að fleiri
börn nýti rými í leikskólum en áður.
Breytingin auðveldaði til dæmis
bæjaryfirvöldum á Akureyri að
bjóða öllum tveggja til sex ára
börnum leikskólarými síðasta
haust, en þar hafa sjálfstæðismenn
haft forystu um að eyða biðlistum
leikskólabarna á þremur árum, en á
átta árum R-listans í Reykjavík
hafa biðlistarnir lengst. Seinagang-
urinn hér er svo mikill, að það var
sagt frá því í Fréttablaðinu 29. jan-
úar 2002 að nú væru Leikskólar
Reykjavíkur að taka til við að nýta
sér tækifærin, sem felast í regl-
unum frá því í maí 2001.
Í Garðabæ hefur verið farið inn á
skynsamlegar brautir í leikskóla-
rekstri í samstarfi við einkaaðila.
Þannig get ég lengi nefnt dæmi
um, hve illa hefur verið staðið að
þessum málum hér í Reykjavík.
Vissulega er þörf á að leggja þetta
mál með skilmerkilegum hætti und-
ir dóm kjósenda.“
Þú hefur bent á að biðlistar eftir fé-
lagslegu húsnæði og hjúkrunarrými í
Reykjavík hafi aldrei verið lengri en
nú. Hvað er til ráða?
„R-listinn valdi þá leið í fé-
lagslega íbúðakerfinu að stofna sér-
stakt félag um skuldasúpuna og
láta eins og þar með hefði hann
þvegið hendur sínar í þessu máli.
Kraftarnir hafa meira farið í að
verja þær bókhaldsæfingar en huga
að þjónustu við borgarbúa. Fréttir
af vanda húsnæðislausra eru sorg-
legur blettur á borgarlífinu. Auðvit-
að þarf að finna lausnir á vandanum
en ekki sópa honum undir teppið.“
Hver eru sjónarmið þín í málum
Orkuveitunnar og Línu.Nets?
„Mér blöskrar hvernig staðið hef-
ur verið að Línu.Neti. Frá upphafi
hefur verið staðið að þessu máli af
hálfu borgarstjórnarmeirihlutans
eins og menn hafi eitthvað að fela.
Ég er að sjálfsögðu ekki andstæð-
ingur þess að leiðir eftir upplýs-
ingahraðbrautinni séu greiðar, en
hér starfa öflug fyrirtæki sem hafa
fulla burði til að sinna þessu hlut-
verki. Borgin á ekki að vera í sam-
keppnisrekstri á sviði fjarskipta og
yfirlýsingar um að starfsemin komi
neytendum til góða í lækkaðri
gjaldskrá standast ekki. Borgin
hefði getað skilgreint verkefni á
þessu sviði og leitað tilboða í úr-
lausn þeirra. Þeir sem að þessu
standa hafa verið á hröðum flótta
og aldrei lagt öll spilin á borðið.
Upphaflega átti að bjóða upp á
gagnaflutninga um rafdreifikerfið,
en nú virðist það úr sögunni. Svo
reynir meirihlutinn að drepa mál-
inu á dreif með því að tala um sölu
Perlunnar.“
Meirihlutinn segir að sala Perl-
unnar hljóti að vera í samræmi við
stefnu sjálfstæðismanna um að borg-
in skuli ekki vera í samkeppnis-
rekstri. Ert þú fylgjandi sölu Perl-
unnar?
„Fasteign er alls ekki sambæri-
leg við þjónustu, sem er í sam-
keppni við einkaaðila. Mér finnst
athugandi að selja Perluna, ef góð-
ur kaupandi fæst. Hins vegar sýnist
mér R-listinn ekki einu sinni hafa
skilgreint hvað eigi í raun að selja.
Þetta mál minnir mig á sumir menn
voru sífellt að tala um Flugstöð
Leifs Eiríkssonar sem óþarfa bruðl
og óráðsíu, nánast bagga á þjóð-
félaginu. Til að réttlæta þetta við-
horf létu þessir sömu menn undir
höfuð leggjast að nýta tækifæri til
tekjuöflunar í flugstöðinni, sem
varð til þess að hún safnaði skuld-
um þar til allt var komið í óefni. En
hvar værum við án flugstöðvarinn-
ar? Að sama skapi væri Reykjavík
svipminni borg ef Perlunnar nyti
ekki við. Þessi bygging, eins og
önnur glæsileg mannvirki í borg-
inni, er liður í því að búa hér til
samfélag sem gerir okkur kleift að
standast samkeppni við aðrar þjóð-
ir. Það á ekkert skylt við bruðl að
skapa slíkt ástand.“
Úthverfin afskipt
Gagnrýnendur R-listans hafa
stundum talað um að hann sinni
eingöngu 101 Reykjavík. Hafa út-
hverfin verið afskipt hjá núverandi
meirihluta?
„Ekki þarf að fara í neinar graf-
götur um það, að fólk sem býr í út-
hverfum borgarinnar telur sig af-
skipt og að ekki sé tekið nóg tillit til
sjónarmiða þess. R-listinn sagðist
ætla að eiga gott samstarf við alla
borgarbúa, en annað hefur komið á
daginn. Meirihlutinn á í stríði við
almenning í stóru og smáu, eins og
sést til dæmis í Suðurhlíð, þar sem
allt í einu gnæfa byggingakranar
við himin án þess að íbúar fái hald-
góða vitneskju um fyrirhugaðar
byggingar þar og hafi því síður
nokkuð um þær að segja. Ef R-
listinn ræður ekki við að sætta
sjónarmið íbúanna í smærri málum,
hvernig getur hann þá ráðið við
stærri mál? Svo eru settar á svið
sýningar, eins og atkvæðagreiðslan
um flugvöllinn, sem kostaði borg-
arbúa meira en 30 milljónir króna,
án þess að nokkuð kæmi út úr
þeim. Auk þess sem borgarstjóri
túlkaði niðurstöðuna síðan með
óábyrgum hætti.
Sjálfstæðisflokkurinn á betra
bakland í borginni en hinn sund-
urleiti R-listi, hann er byggður upp
á allt annan hátt og boðleiðirnar
eru aðrar, meðal annars vegna
hverfafélaganna. Sjálfstæðisflokk-
urinn á öflugar og skipulagðar ræt-
ur í öllum hverfum borgarinnar og
er ánægjulegt að fylgjast með því,
hve vel félög hans þar dafna.“
Skýrar átakalínur
Hver verða helstu baráttumál
Sjálfstæðisflokksins í komandi kosn-
ingum?
Átakalínurnar í þessum kosning-
um eru skýrar. Meginatriðið er að
sjálfsögðu að sýna fram á nauðsyn
þess, að R-listinn fari frá völdum
vegna þess að undir hans stjórn
hefur ríkt stöðnun í Reykjavík. Við
viljum skattalækkanir í stað skatta-
hækkana. Við viljum aðgerðir í stað
athafnaleysis og aukið val borgar-
anna í stað miðstýringar og reglu-
veldis. Ég vil, að staðið verði að
stjórn borgarsjóðs með jafnábyrg-
um hætti og sjálfstæðismönnum
hefur tekist að ná tökum á útgjöld-
um ríkisins. Dregið verði úr álögum
til að auka svigrúm borgaranna.
Leitað sé lausna í samvinnu við
borgarana en ekki andstöðu, fram-
tak þeirra sé virkjað í stað þess að
drepa allt í dróma.
Ég hef skýra framtíðarsýn um
miðborg Reykjavíkur, nauðsynlegt
er að gera stórátak til að greiða
fyrir umferð og við eigum að taka á
skólamálum með því t.d. að efla
innra starf skólanna og afnema
hverfaskiptingu, fylgja markvisst
eftir nýjum námskrám í grunnskól-
um, koma til móts við góða nem-
endur ekki síður en að hjálpa þeim,
sem slakir eru og kalla foreldra og
einkaaðila til náins samstarfs auk
þess að hefja umræður á nýjum for-
sendum um leikskólana. Í þessum
málum er R-listinn ráðþrota vegna
vinstrimennskunnar.
Ég vil sjá stóra íbúðabyggð í
Geldinganesi sem er eitt fallegasta
byggingarland í Reykjavík.
Ég vil líka setja upplýsinga-
tæknina í fyrirrúm, en ekki með því
að halda áfram að moka peningum í
Línu.Net. Reykjavíkurborg á ekki
að vera í neinum rekstri sem einka-
aðilar geta leyst af hendi, og það
betur en borgin.“
Skuldastaða borgarinnar hefur
verið ykkur sjálfstæðismönnum þyrn-
ir í augum.
„Og ekki að ástæðulausu. Skuldir
borgarinnar hafa áttfaldast frá
1993 og aukast nú um 8–9 milljónir
á hverjum degi mitt í góðærinu.
Skuldaaukningin verður því um
milljarður fram að kosningum. Við
verðum að fara vel yfir hvert allir
þessir peningar fara, en það er þeg-
ar ljóst að allt of háar fjárhæðir
fara í þunglamalegt stjórnkerfi og
millistjórnendur. Ingibjörg Sólrún
gerir lítið úr þeim áhyggjum sem
fólk hefur af skuldasöfnun borgar-
innar; þeirri hækkun sem hefur
verið á sköttum, löngum biðlistum
eftir þjónustu borgarinnar og flótta
fólks og fyrirtækja úr borginni.
Hún gerir lítið úr því að við viljum
gera betur og teljum að Reykvík-
ingar eigi betra skilið.
Fyrir mér eru þetta raunveruleg-
ar áhyggjur sem verður að leysa.
Borgin hefur alla burði til að gera
miklu betur við fólk, fyrirtæki og
fjölskyldur. Til þess þarf breytta
stjórnarhætti, nýjar áherslur og
nýtt fólk. Til þess þurfum við að
koma R-listanum frá.“
Ætlarðu að segja af þér sem ráð-
herra á næstunni?
„Þegar framboðslisti Sjálfstæðis-
flokksins hefur verið ákveðinn mun
ég skýra frá brotthvarfi mínu úr
menntamálaráðuneytinu. Ég get
tekið mér leyfi frá störfum eða sagt
af mér embættinu.
Hvað sem framboði mínu til
borgarstjórnar líður, hafði ég
ákveðið að starfa ekki lengur en
átta ár sem menntamálaráðherra.
Mér finnst ég hafa náð fram flestu
sem ég vil hér í ráðuneytinu og að
vel fari á því að nýr ráðherra, með
nýjar hugmyndir, taki við. Kosið er
til Alþingis á fjögurra ára fresti og
sú regla gerir í raun ráð fyrir end-
urnýjun. Tvö kjörtímabil eru nægur
tími í starfi sem þessu, sem er til
dæmis allt annars eðlis en starf for-
sætisráðherra. Að tveimur kjör-
tímabilum loknum í fagráðuneyti er
þörf á endurnýjun. Hið sama á við
um embætti borgarstjóra. Nú er
verið að kalla á Ingibjörgu Sólrúnu
til að bjarga Samfylkingunni á
landsvísu og ekkert óeðlilegt að
hún svari því kalli, það myndi gefa
Samfylkingunni nýjan svip og
gagnast Reykvíkingum, því að hug-
myndasjóður hennar í borgarmál-
um er tæmdur. Það er frekar
óspennandi að spóla þannig alltaf í
sama farinu. Margir virðast upp-
teknir af því hvort ég hætti hér í
ráðuneytinu vikunni fyrr eða síðar,
en að sama skapi er réttmætt að
spyrja Ingibjörgu Sólrúnu hversu
lengi hún ætlar að sitja, nái hún
endurkjöri, sem er alls óvíst.“
Ætlar þú að sitja í borgarstjórn
sem oddviti minnihlutans, fari svo að
R-listinn sitji áfram að völdum?
„Að sjálfsögðu. Ég er að bjóða
mig fram til starfa í borgarstjórn
og hef ekki hugsað mér að tjalda til
einnar nætur.“
Hvaða hugmyndir hefur þú um
endurnýjun á framboðslista Sjálf-
stæðisflokksins?
„Það þarf ákveðna endurnýjun á
listanum, en ég ætla ekki að telja
upp neinn óskalista, enda ekki mitt
að velja á listann heldur kjörnefnd-
ar. Skoðanakönnun innan fulltrúa-
ráðsins um nýja og vænlega fram-
bjóðendur lýkur 6. febrúar og ég
reikna með að línur fari að skýrast
um miðjan mánuðinn.“
’ Ástæðulaust er að þrátta um tilvistbiðlistanna, þeir blasa við öllum, og
eins hitt, að R-listinn hefur svikið
kosningaloforð sín vegna leikskólanna.
Ég vil, að í kosningabaráttunni ræði
menn meginsjónarmið um gildi og
markmið leikskólastarfsins og aukna
þjónustu á þessu skólastigi. ‘
rsv@mbl.is
’ Átakalínurnar í þessum kosningumeru skýrar. Meginatriðið er að sjálf-
sögðu að sýna fram á nauðsyn þess, að
R-listinn fari frá völdum vegna þess að
undir hans stjórn hefur ríkt stöðnun í
Reykjavík. Við viljum skattalækkanir í
stað skattahækkana. Við viljum aðgerð-
ir í stað athafnaleysis. ‘