Morgunblaðið - 03.02.2002, Side 38

Morgunblaðið - 03.02.2002, Side 38
MINNINGAR 38 SUNNUDAGUR 3. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Kristín Bjarka-dóttir fæddist í Reykjavík 9. maí 1981. Hún lést af slys- förum sunnudaginn 27. janúar. Foreldrar hennar eru Bjarki Jó- hannesson, forstöðu- maður Þróunarsviðs Byggðastofnunar, f. 10. júlí 1949, og kona hans Katrín Gunnars- dóttir, fornleifafræð- ingur, f. 1. janúar 1947. Systur Kristín- ar eru Guðrún, hjúkr- unarfræðingur á Hrafnistu Reykjavík, f. 1. apríl 1974, og María, nemi í bókmennta- fræði og starfsmaður Borgarbóka- safns Reykjavíkur, f. 29. mars 1979. Sambýlismaður Maríu er Andri Kristjánsson, nemi. Bróðir Kristínar er Jóhann, f. 28. desem- ber 1987. Kristín hóf menntaskólanám ár- ið 1997 við Polhems-skólann í Lundi í Svíþjóð og lauk stúdentsprófi frá alþjóðadeild Menntaskólans við Hamrahlíð árið 2000. Hún var búsett með foreldrum sínum og systkinum í Urbana- Champaign í Banda- ríkjunum 1981-1983, í Hafnarfirði 1983- 1986, í Oxford í Eng- landi 1986-1988, í Lundi og Staffan- storp í Svíþjóð 1988- 1998 og í Reykjavík 1998-2002. Hún starfaði m.a. í unglingavinnu og blómaverslun á Sauðárkróki, á vistheimilinu Hrafnistu í Reykja- vík, sem leiðsögumaður á Árbæj- arsafni og síðast á veitingahúsinu Gráa kettinum á Hverfisgötu. Útför Kristínar fer fram frá Hallgrímskirkju á morgun, mánu- daginn 4. febrúar, og hefst athöfn- in klukkan 13.30. Hún Kristín okkar fæddist á vor- dögum 1981, þriðja í röðinni af fjór- um systkinum. Hún kom óvænt, og við hjónin höfðum ákveðið að flytja til Bandaríkjanna til framhalds- náms með eldri systurnar tvær, Guðrúnu, sem þá var sjö ára, og Maríu, tveggja ára. Ákvörðunin var því erfið, einkum þar sem langamma hennar, sem var okkur mjög nákomin, lést daginn áður en Kristín fæddist. Við ákváðum samt að fara og þar bjuggum við tvö fyrstu æviár Kristínar. Þá bjuggum við þrjú ár í Hafnarfirði, síðan lá leiðin til Bretlands í doktorsnám, og þar fæddist sonurinn Jóhann. Eftir tvö ár í Bretlandi lá leiðin til Svíþjóðar, þar sem við bjuggum í tíu ár. Þar voru í raun uppeldis- stöðvar Kristínar, og hún hafði allt- af sterkar taugar þangað. Á ung- lingsárunum eignaðist Kristín brosið og glaðværðina, sem alltaf fylgdu henni síðan, og vinahópur- inn var stór. Hún var kosin besti bekkjarfélaginn af skólasystkinum sínum, og oft var húsið okkar fullt út úr dyrum. Henni gekk afburða vel í skóla og allt lék í höndunum á henni. Hún teiknaði listavel, saum- aði og lagaði föt jafnt fyrir sjálfa sig og félagana, og það var „ekkert mál“ eins og hún sagði alltaf. Við fjölskyldan stóðum ætíð þétt saman og sunnudagsmáltíðirnar voru ófrávíkjanleg samverustund. Þá var spiluð létt klassísk tónlist til að skapa stemmningu, og oft náðu þær systurnar sér vel upp í glensi og gamni. Við höfum einnig verið sam- an öll jól, einnig eftir að Guðrún flutti til Íslands til háskólanáms. Þegar við fluttum til Íslands fyrir rúmum þremur árum var Kristín ósátt við að kveðja alla vinina í Sví- þjóð, en því varð ekki breytt. Við hjónin fluttum til Sauðárkróks með Jóhann, en þær systur stunduðu nám í Reykjavík, þar sem Kristín lauk stúdentsprófi frá alþjóðadeild Menntaskólans við Hamrahlíð. Kristín og María bjuggu saman fyrstu tvö árin, en Kristín flutti til Guðrúnar, þegar María hóf búskap með unnusta sínum, Andra Krist- jánssyni. Síðan flutti Kristín í íbúð á Skothúsveginum þar sem hún bjó síðustu mánuðina. Við vorum í dag- legu sambandi við dæturnar, og ferðirnar til Reykjavíkur voru margar. Við vorum þá mikið saman, og sunnudagsmáltíðirnar héldu sínu sniði. Nýr vinahópur var fljót- ur að flykkjast að Kristínu í skól- anum, unglingavinnu og blóma- verslun á Sauðárkróki, Hrafnistu í Reykjavík, Árbæjarsafni og á veit- ingahúsinu Gráa kettinum á Hverf- isgötu. Þar var henni treyst fyrir hlutum sem engum starfsmanni hafði verið treyst fyrir áður. Við þekkjum engan, sem átti jafn marga vini og hún, enda var hún ávallt glöð og létt í skapi, og ein- kunnarorð hennar voru: „Brostu, og þú færð bros á móti.“ Hún hafði gaman af að ferðast. Við fjölskyld- an ferðuðumst víða, og þegar við fluttumst heim hélt Kristín því áfram. Þegar hún ætlaði í dagsferð frá Frakklandi til Barcelona með Önnu vinkonu sinni varð úr því heill mánuður. Svo var það laugardaginn 26. janúar að okkur barst hin hræði- lega frétt, að Kristín hefði slasast alvarlega og væri í lífshættu. Við höfum aldrei verið jafn fljót að koma okkur af stað suður, og Guð gaf okkur samverustund með henni um kvöldið. Þótt hún væri meðvit- undarlaus vitum við að hún vissi af nærveru okkar, styrktarorðum og bænum. Okkur varð ekki svefn- samt um nóttina, en um morguninn sá ég ljós fyrir vitum mér, og þá hefur hún Kristín okkar verið á leið inn í ljósið. Þegar við komum á sjúkrahúsið var okkur síðan til- kynnt að þessu væri lokið og sorgin var mikil. Þá rifjaðist upp fyrir mér draumur, sem mig dreymdi þegar Kristín var á öðru ári. Ég var með hana á báti í ólgusjó, hún hljóp frá mér og datt í hafið. Ég reyndi að ná henni, en hún hvarf í djúpið. Nokkrum vikum fyrir andlátið dreymdi móður hennar að hún væri með fangið fullt af hvítum liljum, en það voru síðan fyrstu blómin sem okkur bárust eftir andlátið. Við lít- um því þannig á, að Kristínu hafi aðeins verið ætlað að vera með okk- ur um stund, en við erum þakklát fyrir þau ár sem við fengum með henni. Það er óréttlátt að hún skyldi kvödd á braut svo ung, þegar hún átti alla framtíðina fyrir sér og hæfileika til að nota alla möguleika sem hún hefði kosið. Hún hafði tek- ið ákvörðun um að hefja háskóla- nám í haust, en af því verður víst ekki. Elsku Kristín, við þökkum þér fyrir allar góðu stundirnar sem við áttum saman. Við munum alltaf muna eftir bjarta og fallega brosinu þínu og létta skapinu og vitum að þú verður áfram nálægt okkur. Við biðjum Guð að blessa þig og kveðj- um þig með erindi úr ljóðinu fagra „Haustvísur til Maríu“, sem þú söngst einu sinni með okkur pabba og Maríu systur þinni í kór Íslend- ingafélagsins í Lundi: Þegar mér sígur svefn á brá síðastur alls í heimi möttulinn þinn mjúka þá móðir breiddu mig ofan á svo sofi ég vært og ekkert illt mig dreymi. Þín pabbi og mamma. Eins og andblær á sólríkum degi fórst þú um meðal okkar í gegnum lífið. Þegar blærinn leikur um okk- ur er ekki hægt annað en að líða vel og óska þess að svona verði tilveran alltaf. Þegar haustar og skyggja fer að loknu sumri er gott að láta hug- ann reika til sólríku daganna með söknuði. Þeir eru dýrmætir þessir dagar og enn dýrmætari eru þeir í minningunni þegar kuldi og rökkur ráða ríkjum. Vorið kemur aftur en fyrir okkur, sem Kristín lék fyrir á lífsins hljóðfæri með sinni hjartans einlægni og fölskvalausu ást á til- verunni, verður andblærinn annar og sólargeislarnir hennar eru nú geymdir í hjörtum okkar. Í hugum okkar geymist brosið hennar og glaðværðin. Við þökkum fyrir þá guðs gjöf en tárumst um leið. Við höfum misst svo mikið. Kristín átti að fá að njóta lífsins og lífið að fá að njóta hennar svo miklu lengur. Við vorum svo lánsöm að fá að taka þátt í lífi þínu og uppvexti. Við kölluðum þig Stínsluna okkar, yngsta systirin af þremur, létt í fasi og létt í lund. Gunný bjó með þér í Ameríku og hélst þú frænkunni við efnið með skoðunum á flestu. Þú vildir alltaf vera fín og ekki mátti sjást blettur í kjólunum þá varð að skipta og það strax. Þú varst tveggja ára. Í Hafnarfirði vorum við grannar í tvö ár og þau voru ófá skiptin sem þið systurnar þrjár komuð í heim- sókn á Álfaskeiðið og unga parið fékk að passa ykkur á síðkvöldum. Þá var skriðið í fang, lesið og sung- ið. Þú varst fjögurra ára. Þegar leið okkar lá til Svíþjóðar fluttir þú til Englands. Þar áttum við saman yndisleg jól og vorum hjá ykkur þegar Jóhann bróðir þinn fæddist. Þar afrekuðum við að kenna þér að hjóla um stræti Ox- ford eða öllu heldur að bremsa. Þú varst reyndar aldrei neitt gefin fyr- ir að bremsa, frekar að halda áfram og kanna nýjar slóðir og kynnast nýju fólki, sem þú áttir alla tíð ein- staklega auðvelt með. Þú varst sex ára. Aftur sameinuðumst við í Lundi í Svíþjóð þegar þið fluttuð þangað til okkar og næstu árin var mikill sam- gangur. Sigfríður og Margrét okk- ar komu í heiminn og nutu þess nú að eiga fjörmiklar frænkur og Kristín var farin að passa fyrir okk- ur. Þú eignaðist fljótt vini í Svíþjóð og talaðir orðið þrjú tungumál. Þú varst níu ára, lítil og fínleg, fljót til svars og með útgeislun sem kallaði á bros og væntumþykju. Sumarið 1993 komst þú frá Sví- þjóð til okkar á Blönduós, í mál- hreinsun sögðu mamma þín og pabbi. Þú passaðir litlu frænkurnar þínar, varst fljót að eignast vini og ferðaðist með okkur um landið, naust náttúrunnar í útilegum og gladdir allt og alla í kringum þig. Þú varst tólf ára. Sumarið l996 komst þú aftur til okkar í málhreinsun og skyndilega höfðum við eignast ungling. Þú fórst að vinna í unglingavinnunni og þar sem við eignuðumst Unni í júlí gekkst þú í heimilisstörfin og tjónkaðir við frænkur þínar Sigfríði og Margréti. Þú taldir það ekki eft- ir þér að grípa í pensil og mála og hjálpa til við eitt og annað í nýja húsinu okkar. Þú varst fljót að eignast vini á Króknun og rúmur útivistartími á sólríkum íslenskum sumarkvöldum átti vel við þig. Þetta var góður tími og þú varst yndislegur unglingur. Þú varst fimmtán ára. Þremur árum seinna flytja svo mamma þín og pabbi á Sauðárkrók til okkar en nú án ykkar systranna. Þú, María og Guðrún orðnar sjálf- stæðar ungar konur í skóla í Reykjavík og studduð hver aðra í dagsins önn. Jóhann einn eftir í hreiðrinu. Þú laukst stúdentsprófi frá MH og fórst að vinna í Reykja- vík og njóta lífsins, ferðast og eign- ast enn fleiri vini. Komst norður á Sauðárkrók í stuttar heimsóknir til pabba þíns og mömmu og kíktir á okkur og litlu frænkurnar þínar þrjár. Nú varst þú orðin stóra frænka. Þú varst mjög handlagin og listræn í þér og varst búin að ákveða að fara í Kennaraháskólann haustið 2002, sem óneitanlega gladdi okkur kennarahjónin. Þú varst tuttugu ára. Fyrir þetta allt og miklu meira þökkum við þér, Kristín, er nú skilja leiðir. Óútreiknanleg tilveran hefur lostið okkur svo við hrökklumst undan í sárri reiði, sorg og forundr- an. Hví fékkst þú ekki að eiga fleiri orð í ræðustóli lífsins? Upp í hug- ann koma hugrenningar nóbel- skáldsins Gabriel García Márquez: „Enginn á sér tryggðan morgun- dag, hvorki ungur né gamall. Í dag kannt þú að sjá í síðasta skipti þá sem þú elskar. Því skaltu ekki bíða lengur. Breyttu í dag eins og morg- undagurinn renni aldrei upp, þú munt örugglega harma daginn þann þegar þú gafst þér ekki tíma fyrir bros, faðmlag, koss og þú varst of önnum kafinn til að verða við óskum annarra. Hafðu þá sem þú elskar nærri þér, segðu þeim í heyranda hljóði hversu mjög þú þarfnast þeirra, elskaðu þá og komdu vel fram við þá, taktu þér tíma til að segja „mér þykir það leitt“, „fyrirgefðu mér“, „viltu vin- samlegast“, „þakka þér fyrir“ og öll þau kærleikans orð sem þú þekkir.“ Elsku Katý, Bjarki, Guðrún, María og Jóhann, ættingjar og vin- ir, megi algóður Guð veita ykkur styrk í ykkar miklu sorg. Gunnhildur, Ársæll og dætur. Kristín Bjarkadóttir kom í Menntaskólann við Hamrahlíð árið 1998 með glæsilegan vitnisburð frá sænskum skóla. Hún skráði sig í IB nám og gekk þar með inn í lítinn og samheldinn hóp nemenda og kenn- ara. Þessi bjarta og brosmilda stúlka varð fljótt ómissandi í hópn- um. Hún var kát og glaðlynd en bar samt með sér vissa rósemd. Hún hafði sérstakt lag á að fá alla með sér í því að sjá lausnir í stað vanda- mála, að koma auga á það skemmti- lega í kringumstæðum hverju sinni. Þegar hópurinn vann saman að verkefni var Kristín alltaf alveg sérstakleg iðin og glöð í starfi, jafnt við öflun gagna á bókasafninu sem við risauppþvott í útilegu. Á framhaldsskólaárunum er grunnur lagður að framtíðinni. Kristín notaði þennan tíma vel – öðlaðist virðingu kennara sinna og samferðamanna, treysti vinabönd, menntaði sig af dugnaði þannig að hún lauk erfiðu prófi með góðum árangri og útskrifaðist sem stúdent af IB braut vorið 2000. Það er sárara en orð fá lýst að hún skuli nú ekki fá tækifæri til að byggja á þeim góða grunni. Fyrir hönd vina Kristínar í Menntaskólanum við Hamrahlíð vottum við fjölskyldu hennar, vin- um og vandamönnum okkar dýpstu samúð. Wincie Jóhannsdóttir, Sigurborg Matthíasdóttir, Ida Semey. Það blóm sem ætlar blíðast að lifa bráðast deyr. (Sigurður Pálsson.) Við kynntumst Kristínu fyrir um fjórum árum. Fjögur ár eru ekki langur tími. En hlutirnir gerast hratt þegar gaman er og með Kristínu leið tíminn eins og elding. Það er ekki hægt að hugsa um Kristínu án þess að brosa. Sjálf var Kristín alltaf brosandi. Sama hverjar aðstæðurnar voru gat hún alltaf hlegið. Hún hafði al- veg einstaklega frumlegt og skemmtilegt skopskyn, hvort sem var fyrir sjálfri sér eða öðrum. Á erfiðum skóladögum var ávallt létt yfir Kristínu. Í myrku skammdeg- inu reyndist hún okkur hinum mik- ill styrkur með æðruleysi sínu. Við munum sakna hennar mikið. Kæra fjölskylda, elsku Anna. Minningin um lífsglaða stelpu og sannan vin er okkur styrkur á erf- iðum tímum. Við vottum ykkur okkar dýpstu samúð. Bekkjarfélagar úr MH. Þó að kali heitur hver, hylji dali jökull ber, steinar tali og allt hvað er, – aldrei skal ég gleyma þér. (Skáld-Rósa.) Hvern hefði grunað að þegar við kvöddum Kristínu á föstudaginn væri það í síðasta sinn sem við sæj- um hana? Kristín byrjaði að vinna á Gráa kettinum haustið 2000, eftir að hafa unnið sem heimasæta á Ár- bæjarsafninu klædd þjóðbúningn- um. Í fyrstu sýndi hún bara spari- hliðina á sér, brosmild, kurteis og bein í baki en fljótlega sáum við að á bak við þessa settlegu stúlku bjó einnig alvöru rokkari sem kunni að njóta lífsins. Við minnumst hennar eins og hún var alltaf, síbrosandi, ham- ingjusöm og alltaf var stutt í húm- orinn. Hún var lítil og nett og því kom áhugi hennar á þungarokkt- ónlist, smíðum og raftækjum okkur á óvart. Má þar nefna þegar út- varpið með mörgu tökkunum og flóknu stillingunum kom á Köttinn, settist Kristín full áhuga niður, las leiðbeiningarnar í þaula og pró- grammeraði tækið af mikilli snilld. Henni líkaði illa skipulagsleysi og létti því mikið starfið hjá okkur öll- um þegar hún aðeins 19 ára falaðist eftir prókúru á ávísanahefti fyrir- tækisins til þess að geta haldið al- mennilega utan um birgðirnar. Eft- ir það sá hún meira og minna um að allt væri til. Lífsgleði Kristínar var smitandi, enda átti hún auðvelt með að kynn- ast fólki og átti marga góða vini. Hugur okkar er hjá fjölskyldu hennar og ekki síst hjá Önnu Hrund sem hefur nú misst bestu vinkonu sína. Vinátta þeirra var einstök og var Kristín eins og hluti af fjölskyldu hennar líka. Þessi vika hefur verið okkur öllum erfið. Kristínar er ekki aðeins sárt sakn- að af okkur samstarfsfólkinu henn- ar og vinum heldur einnig af mörg- um viðskiptavinum kaffistofunnar. Við erum eilíflega þakklát fyrir að hafa kynnst þessari einstöku stelpu. Hún hefur skilið eftir sig ótal fallegar minningar sem munu lifa með okkur um ókomna tíð. Fyr- ir stuttu komst Kristín að því, sér til mikillar ánægju, að hún þyrfti á gleraugum að halda. Hún mætti svo sæt og fín með þau til okkar um leið og hún fékk þau og fannst hún orð- in svo spekingsleg. Við sem þurfum að nota gleraugu að staðaldri vor- um hálfundrandi á þessari kátínu hennar af þessum feng sínum og minnumst hennar þar sem hún stóð úti á miðju gólfi og tók af sér gler- augun og setti þau aftur upp til skiptis: ,,Ég sé, ég sé ekki. Ég sé, ég sé ekki...“ Við viljum votta fjölskyldu henn- ar og vinum dýpstu samúð okkar. Guð geymi þig, Kristín okkar. Katla, Gunnhildur, Auður, Sigríður, Áslaug, Eygló, Hulda og Jón Óskar á Gráa kettinum. Sunnudaginn 27. janúar síðast- liðinn bárust okkur þær fréttir að Kristín, eða Stínsla eins og við vor- um vanar að kalla hana, væri þungt haldin á gjörgæslu. Nokkrum klukkustundum síðar bárust okkur enn sorglegri fréttir. Stínsla var dáin. Kristínu hittum við fyrst snemma sumars 1998, er hún hún fluttist hingað frá Svíþjóð. Maríu systur hennar höfðu við kynnst áð- ur, þegar við unnum á sama vinnu- stað. Fljótlega eftir heimkomuna fóru Kristín og María að leigja saman á Laugavegi og þá fengum við að kynnast því hversu yndisleg Kristín var. Á þeim tíma vorum við systurnar tíðir gestir á Laugaveg- inum, þar sem heilu kvöldstundirn- ar gátu farið í kaffidrykkju og spjall. Á þessum kvöldum gripum við ósjaldan í heklunál eða prjóna, en Kristín var einmitt mjög lagin við alls kyns hannyrðir. Kristínu var ýmislegt fleira til lista lagt. Hún var listræn og teikn- aði afar vel. Hún var góður kokkur og hafði gaman að eldamennsku og bakstri. Oft fengu vinir hennar að njóta þess. Kristín var góður náms- maður og oft gátum við leitað til hennar ef við þurftum hjálp með stærðfræðina. Hún var alltaf fús að veita aðstoð og gerði það með bros á vör. Að sama skapi var hún öðrum þakklát sem gerðu slíkt hið sama fyrir hana. Kristínar er sárt saknað því hún var í alla staði yndisleg. Við syst- urnar trúum því að Drottinn hafi ætlað henni annað og meira hlut- verk. Við höfum fulla trú á að hún KRISTÍN BJARKADÓTTIR

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.