Morgunblaðið - 03.02.2002, Qupperneq 56

Morgunblaðið - 03.02.2002, Qupperneq 56
ÞAU heita Dagbjört Rós Helgadótt- ir, Kári Gunnarsson og Andri Óm- arsson og leika Guðmundu, Magga og Dodda í kvikmyndinni Gemsar eftir Mikael Torfason sem frumsýnd var á föstudaginn. Myndin gerist í vinahópi unglinga, sem búa í Breiðholtinu, á tveimur nóttum og einum degi. Og leikararnir eru allir sammála um að það sé ekki spurning að þetta er sannleikurinn. Andri: Já, myndin er allt sem þú veist ekki um unglinga og vilt ekki vita, en þarft samt að vita það. Dagbjört: Já, ég held að foreldrar hefðu gott af því að sjá þessa mynd. Kári: Og gott væri að fá smáum- ræðu um hvað er að gerast í heimi unglinganna og hrista upp í hlutun- um. Andri: Ef foreldrar myndu sjá þessa mynd, yrðu þau ekki par hrifin af börnunum sínum. Dagbjört: Ég er líka viss um að bæði krakkar og foreldrar geta séð sig í einhverjum persónum í þessari mynd. Andri: Já, þetta er stór hópur og allar týpur. Hún segir vel sannleik- ann, kannski pínu ýkt stundum en ekki mikið. Kári: Samt ekki, þetta er það sem er að gerast í dag. Það sem ungling- arnir eru að gera um hverja einustu helgi. Blm: Doddi, sem Andri leikur, er lagður í einelti og er barinn aftur og aftur. Kári: Já, það er alveg týpískt. Það er alltaf einn sem er tekinn fyrir. Andri: Einu sinni hét þetta of- beldi, en núna heitir þetta einelti og ég held að það sé að aukast að krakk- ar séu teknir fyrir þrátt fyrir alla umræðuna um einelti. Það hefur allt- af verið erfitt að vera aðeins öðruvísi. Kári: Doddi fær að hanga með en má ekkert segja hvað sem er, einsog brandara um einhvern annan, þá er hann alveg tekinn fyrir. Dagbjört: Guðmunda sem ég leik er líka hálfgerður lúði og stelpurnar eru leiðinlegar við hana. KRISTÍN (leikin af Höllu Vilhjálms- dóttur): „Segjum að bróðir þinn sé í fangelsi af því að hann þurfti endilega að neyða Guðmundu, bestu vinkonu þína, til að gera fá- ránlega hluti í rúminum þegar hann var að hjakkast á henni fyrir framan Gulla og Emblu í einhverju partíinu...“ Blm: Eða strákarnir. Mér finnst þeir enga virðingu bera fyrir stelp- unum. Þær eru bara kynlífstæki fyr- ir þeim. Guðmundu er eiginlega nauðgað og hún gerir ekkert í því. Dagbjört: Það er bara svo oft að stelpur eru að fíla að vera með eldri gaurum og gera hvað sem er til að falla í hópinn. Blm: Einsog þessi kynlífspartí sem eiga að tíðkast þar sem ungar stelpur eru með mörgum eldri strákum. Dagbjört: Já, ég hef heyrt um það. Það er hræðilegt. Andri: Þetta þekkist alveg en er kannski ekki algengt. Kári: Það eru skuggahliðarnar sem allt hefur, og sem er verið að fjalla um hér. Krakkarnir eiga líka sín góðu tímabil og eru ekki alltaf svona. Andri: Þetta er kannski svolítið tvískipt, en oftast hafa samt foreldr- ar enga hugmynd um hvað er í gangi. það væri gaman fyrir foreldra að sjá þessa mynd, þeir sjá kannski barnið sitt í einni persónu og og ættu að reyna að fylgjast betur með hvað er í gangi. Ég trúi því t.d ekki að for- eldrar viti ekki einu sinni þegar börnin þeirra reykja. Blm: Krakkarnir virðast láta allt yfir sig ganga, einelti og kynferðis- lega misnotkun. Dagbjört: Það er mjög sorglegt, en allt er gert til að falla inn í hópinn. SMÁRI (leikinn af Matthíasi Mattíassyni): „Besti vinur þinn gæti sofið hjá hvaða stelpu sem er, og er núna með einhverri ætt- leiddri gellu, Laufeyju. Það slitnar ekki slefan á milli hennar og Magga. Samt er Magga alveg sama um hana. Hún er bara ekki búin að leyfa honum að fara alla leið og því þykist hann taka þessu sambandi ógurlega hátíð- lega.“ Kári: Nei, það er ekki alveg satt. Hún er opinbera kærastan hans því hann verður að láta sjá sig með flottri gellu. Hann verður fúll ef ein- hver reynir við hana. Blm: Laufey er frá Indónesíu, og m.a.s íslenskur bróðir hennar talar niðrandi um hana. Er mikið kyn- þáttahatur meðal unglinga? Kári: Kannski meðal þeirra sem ekki þekkja hana ekki, en ekki hjá fjölskyldunni. Andri: Fólk sem þekkir ekki litaða Íslendinga, tekur oft ekki eftir því þegar það er með niðrandi athuga- semdir í þeirra garð. Og fattar ekki hvað það er að segja. Ég hef tekið eftir því hjá sjálfum mér eftir að ég eignaðist litaða vinkonu, og ég álít mig ekki rasista. Blm: Strákarnir eru allir að reyna að vera svo miklir töffarar. Kári: Smári er aðallega að reyna að vera töffari. Það eru svo margir sem eru það ekki en eru að reyna. Andri: Þetta er bara baráttan um völdin innan hópsins, bæði í stórum og litlum hópum. Fólk vill láta taka eftir sér. Kári: Það skiptir öllu máli. MIKAEL (handritshöfundur og leikstjóri): Snemma á ferlinum var ákveðið að Gemsar myndu gerast í blokkahverfum Fella- og Hóla- hverfis. En þar eru flestar sen- urnar teknar fyrir utan stóra senu í miðbæ Reykjavíkur og Kringlunni. Gemsar er því sannkölluð úthverf- amynd unnin í samvinnu við þá unglinga sem leika í myndinni.“ Blm: Er myndin sérstaklega ein- kennandi fyrir Breiðholt frekar en alla Reykjavík eða úti á landi? Andri: Nja.. myndin verður að gerast einhvers staðar, en ég held að hún gæti gerst alls staðar, þótt Breiðholt hafi á sér slæmt orðspor. Kannski er það smádjók að láta hana gerast þar. Blm: Nú eruð þið ekki úr Reykja- vík. Kannist þið við þessa stemmn- ingu? Kári: Ég er úr sveit og þar er þetta öðruvísi. Valdabaráttan er allt- af til staðar, en þetta er ekki svona gróft. Það gerist samt margt á sveitaböllunum! Dagbjört: Myndin hefði alveg get- að gerst í Hafnarfirðinum... Andri: ... og vesturbænum, Graf- arvoginum. Alls staðar þar sem eru unglingar. Kvikmyndin Gemsar er allt sem þú veist ekki um unglinga… Baráttan um völdin Það er nöturleg og ofbeldisfull sýn á íslenska unglinga sem dregin er upp í kvikmyndinni Gemsar. Hildur Loftsdóttir spurði leikarana hvort þetta væri sannleikurinn. Partístuð! Guðmunda í yfirheyrslu. Laufey talar í gemsann sinn. Morgunblaðið/Þorkell Dagbjört, Andri og Kári í alvöru. hilo@mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM 56 SUNNUDAGUR 3. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ „LÖGIN í Gemsum gefa smjörþefinn af því sem íslenskir krakkar eru að hlusta á í dag og end- urspegla fjölbreytnina. Hér sullast tegundirnar saman – Rokk og raf, rapp og popp – enda er ekkert eðlilegra en víðsýni. Þetta er flest glæ- nýtt stöff og allt íslenskt, en ég ætla að sleppa ykkur við rövl um hvað íslenskt tónlistarfólk sendur framarlega. Það veit hver heilvita mað- ur hvort sem er.“ Þannig er yfirlýsing Gunnars Hjálmarssonar inni í umslagi geislaplötunnar Gemsar en platan inniheldur efni frá rappsveit- um eins og XXX Rottweilerhundum og Af- kvæmum guðanna til rokksveita eins og Maus og Ensími. Óþekkt nöfn eru svo áberandi, en t.a.m. eiga Smarty Pants, Coral og BMX inn- legg. „Þetta er náttúrlega ekki kvikmyndatónlist,“ segir Gunnar. „Mikael bað mig um sjá um þetta og í byrjun reyndi ég að búa til eitthvert svona „kvikmyndatónlistar-veggfóður“ en ég nennti því ekkert þegar til kastanna kom. Fannst það mjög óáhugavert – að vera að búa til einhverja tónlist sem lyti þeim lögmálum að því minna sem þú tækir eftir henni því betri væri hún.“ Gunnar segir brosandi að aðrir snillingar geti séð um slíkt. „Þannig að ég ákvað að gera það sem ég kann skást. Þ.e. að búa til einhver popplög. Ég samdi því nokkur slík og fékk ýmsa meistara til að ljá þeim barka (t.d. Stefán Hilmarsson, Hreimur og Heiða). Nú, svo er þetta mynd um unglinga og mig langaði til að vera með tónlist sem að passaði við þá. En þó með þeim skilyrðum að það væri íslenskt og helst eitthvað nýtt og ferskt. Þannig er gaman að hafa þessar rapp- sveitir þarna en textagerðin þar er það lang- besta sem maður hefur heyrt í íslenska poppinu lengi.“ Gunnar segist hafa sett sig upp á tær og skimað eftir efni. „Sæmilega víðsýnn unglingur er að fíla rokk, rapp og raftónlist hlið við hlið. Ég vann því smá rannsóknarvinnu með hjálp miðla eins og rokk.is (sem hýsir mp3-skrár með nýju, ís- lensku efni) og gagnvirku útvarpsstöðina mu- zik.is. Þessi rapplög voru öll meira og minna komin þangað. Síðan hafði ég samband við afa íslenska hipp-hoppsins, Sesar A, og hann var mér innan handar.“ Gunnar segir að um lágmarksfjármagn hafi verið að ræða og hann því hagað seglum eftir þeim vindunum. „Þannig að það var ekki mikið í boði fyrir böndin – þetta er næstum því bara Snarl 4!“ segir hann og hlær og vísar þar í safnsnældur sem hann gaf út á merki sínu Erðanúmúsík fyr- ir meira áratug. Snarl 4 Það var Gunnar Lárus Hjálmarsson, Dr. Gunni, sem sá um tónlistarval fyrir myndina Gemsar eftir Mikael Torfason. Arnar Eggert Thoroddsen innti hann góðfúslega skýringa. Gunnar Lárus Hjálmarsson, Dr. Gunni. arnart@mbl.is Morgunblaðið/Arnaldur Tónlistin í Gemsum
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.