Morgunblaðið - 10.02.2002, Qupperneq 4
FRÉTTIR
4 SUNNUDAGUR 10. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi athugasemd frá Hreini
Loftssyni, fyrrum formanni einka-
væðingarnefndar:
„Á reikningum mínum til forsæt-
isráðuneytisins vegna starfa við
einkavæðingu ríkisfyrirtækja hafa
jafnan verið tveir liðir á undanförn-
um árum. Fyrri liðurinn er fastir 20
tímar á mánuði fyrir nefndafundi, en
nefndin hefur að jafnaði hist á reglu-
legum fundum einu sinni til tvisvar í
viku tvo til þrjá tíma í senn. Seinni
liðurinn hefur verið vegna starfa
minna utan nefndafunda, þ.e.a.s.
vegna funda, ferðalaga, skjala- og
skýrslugerðar af margvíslegum
toga.
Á því tímabili sem ég hef gegnt
formennsku í framkvæmdanefnd um
einkavæðingu hefur verið undirbúin
og framkvæmd sala á þriðja tug fyr-
irtækja og seld hlutabréf fyrir tugi
milljarða króna. Þetta hefur eðlilega
krafist vinnu af minni hálfu sem for-
manns nefndarinnar til að fylgja
ákvörðunum og verkefnum hennar
eftir milli nefndafunda. Varla ætlast
menn til þess að þau störf séu unnin í
sjálfboðavinnu, eða hvað?
Nú gerist það að umræða hefur
orðið um þóknun til nefndarmanna
og þá einkum til mín persónulega
vegna þessara starfa. Menn hafa lagt
saman þóknun mína síðustu sex ár,
fengið út töluna sextán milljónir
króna og sakað mig um að hafa setið
beggja vegna borðsins. Pantað sér-
fræðivinnu af sjálfum mér. Í áróðr-
inum hefur þess sérstaklega verið
gætt að taka ekki fram að sextán
milljónirnar eru vegna sex ára vinnu
en ekki t.d. sagt að ég hafi fengið að
jafnaði 2–3 m. kr. á ári fyrir þessi
störf, enda lítur það ekki eins vel út
þegar þarf að koma á menn höggi.
Vegna þessarar umræðu neyðist ég
til að taka fram eftirfarandi: Ég hef
ekki skilað inn reikningum vegna
sérstakrar sérfræðivinnu í þágu
einkavæðingar. Ég hef sent inn
reikninga fyrir nefndafundi og vinnu
utan nefndafunda á sama tímagjaldi
og gert grein fyrir þeirri vinnu og
fjölda tíma á reikningunum. Hvoru
tveggja hef ég stillt í hóf.
Upp á síðkastið hefur tímagjaldið
verið 5.000 kr. fyrir utan vsk. (ekki
5.500 kr. eins og fram kemur í svari
forsætisráðuneytisins til Alþingis).
Til samanburðar má geta þess að al-
gengt tímagjald lögmanna er 8–
9.000 kr. á tímann. Þá er rétt að hafa
í huga, að þessi þóknun fer ekki að-
eins til að greiða sjálfum mér laun,
ég þarf að hafa upp í kostnað vegna
aðstöðu og þjónustu sem ég þarf á að
halda þar sem ég er með sjálfstæðan
rekstur.“
Athugasemd frá
Hreini Loftssyni
MIKILVÆGT er að Íslendingar
noti öll tækifæri sem gefast til að
fylgjast með þróun mála á vettvangi
Evrópusambandsins og komi að
mótun löggjafar eftir föngum. Á
undanförnum árum hafa valdahlut-
föll stofnana ESB breyst frá því sem
var við gerð EES-samningsins sem
hefur m.a. leitt til þess að aðkoma
EFTA-ríkjanna að mótun löggjafar
ESB er ekki með eins beinum hætti
og áður var.
Þetta kom m.a. fram í ávarpi Hall-
dórs Ásgrímssonar utanríkisráð-
herra við setningu ráðstefnu um
áhrif EES-samningsins á íslensk
sveitarfélög sem haldin var í Salnum
í Kópavogi á föstudag.
Utanríkisráðherra hvatti sveitar-
félög til að koma með nánari hætti að
því starfi sem unnið er á vettvangi
EES-samningsins, en þar eru mót-
aðar reglur sem geta haft víðtækar
afleiðingar fyrir íbúa sveitarfélaga
og sveitarsjóði. „Það er orðið ljóst að
EES-samningurinn er mun um-
fangsmeiri en svo að hann geti talist
hefðbundinn viðskiptasamningur.
EES-samningurinn er í raun einn
mikilvægasti félagsmálasáttmáli
sem Ísland hefur gerst aðili að,
sömuleiðis einhver mikilvægasti
samningur sem Ísland hefur gerst
aðili að á sviði menntunar og rann-
sókna og jafnframt með mikilvægari
umhverfissáttmálum sem Ísland er
aðili að. Það er einkum á síðasttalda
sviðinu sem kemur til kasta sveitar-
félaga með beinum hætti.“
Halldór ræddi sérstaklega um ná-
lægðarregluna sem mikið hefur ver-
ið í umræðunni í ESB undanfarið.
Felur hún í sér að ákvörðunarvald
skuli vera eins nálægt borgurunum
og unnt er. Varði mál fyrst og fremst
aðildarríki án þess að hafa áhrif á
önnur aðildarríki, er ekki þörf að-
komu ESB. Sé málefni hins vegar
þannig vaxið að það snerti fleiri að-
ildarríki, kemur til kasta hinna sam-
eiginlegu stofnana. Þetta er mikil-
vægur hluti af þeirri viðleitni að gera
borgarana meðvitaðri um ESB og
mikilvægi þess,“ sagði Halldór.
Halldór sagðist hafa áhyggjur af
þróun byggðamála hér á landi þrátt
fyrir aðgerðir stjórnvalda á undan-
förnum árum. Hann nefndi árangur
af stefnu ESB á sviði byggðamála.
Tók hann sem dæmi úttekt sem gerð
var í Svíþjóð á áhrifum aðildar að
ESB fyrir sveitarfélögin þar í landi.
„Á árunum 1995–1999 voru lagðir
um 400 milljarðar íslenskra króna til
afmarkaðra svæða og héraða í Sví-
þjóð. Þar af komu 130 milljarðar úr
uppbyggingasjóðum ESB. Er það
mat skýrsluhöfunda að fyrir tilstilli
þessara verkefna hafi tekist að við-
halda eða búa til 28.000 störf og setja
á fót um 5.000 fyrirtæki á þessum
svæðum.“
Sveitarfélögin
eigi fulltrúa í Brussel
Sagði hann óháða sérfræðinga
telja að ef sambærilegar aðstæður
væru á Íslandi gæti samanlagt fram-
lag til byggðamála numið á bilinu
3.700–4.700 milljónum króna. Þar af
mætti gera ráð fyrir framlögum frá
ESB á bilinu 1.500–2.000 milljónir
króna ef Íslendingar nytu sömu
kjara og aðildarríkin. Mótframlag
Íslendinga gæti verið í formi núver-
andi framlaga til samgöngumála.
Sagði Halldór mikilvægt að sveit-
arfélögin skipuðu sér á bekk með
fulltrúum ríkisvaldsins og komi fyrir
fulltrúa sínum í Brussel, en nú eru
þar fulltrúar um 160 sveitarfélaga og
héraða í 15 aðildarríkjum ESB og
EFTA í því skyni að hafa áhrif á þró-
un löggjafar ESB og til að greiða
götu sinna umbjóðenda.
Utanríkisráðherra um áhrif EES-
samningsins á íslensk sveitarfélög
Einn mikilvægasti
sáttmáli sem Ís-
land er aðili að
ÞÁTTASKILIN verða í maí og við
höfum engar efasemdir um hvernig
þau verða. Það mun takast að halda
verðbólgunni innan þeirra marka sem
ákveðin voru í kjarasamningum.
Þetta segir Grétar Þorsteinsson,
forseti ASÍ. „Við erum sannfærð um
það, að ef okkur tekst að vera réttu
megin við rauðu strikin, sem við ef-
umst raunar ekki um lengur, þá verð-
um við með lækkandi verðlag og verð-
bólgu um einhver misseri.“
Forystumenn ASÍ áttu fund með
stjórnendum Seðlabankans á föstu-
dag en Grétar segir að erindið hafi
ekki verið að þrýsta á um vaxtalækk-
un. Menn fylgist auðvitað með spám
Seðlabankans og hafi ekkert við text-
ann í skýrslunni að athuga. Seðla-
bankinn sé í skýrslunni að vinna vel
og heiðarlega eins og honum beri.
„Við höfum hins vegar,“ segir Grét-
ar, „orðið varir við það í okkar eigin
röðum og þar sem við höfum verið á
ferðinni, að mönnum finnst eins og
Seðlabankinn hafi verið að segja að
það sé fremur vonlítið að okkar mark-
mið náist, þ.e. að verðlagsákvæði
kjarasamninga haldi. Okkar fannst
því rétt að funda með stjórnendum
bankans og ræða við þá milliliðalaust
og segja hvers við hefðum orðið
áskynja í sambandi við verðlagsmálin.
Það skiptir auðvitað máli hver tónn-
inn í samfélaginu er og ég er viss um
að þetta markmið næst.“
Grétar segir að ASÍ hafi nú þegar
rætt við flest ef ekki öll stóru sveit-
arfélögin og stóru keðjurnar á mat-
vörumarkaðinum. „Nú erum við byrj-
aðir að ræða við bankana og eigum
fund með Búnaðarbankanum eftir
helgi og munum væntanlega einnig
bera okkar erindi upp við sparisjóð-
ina. Við funduðum með stjórnendum
Sjóvár-Almennra á föstudagsmorgun
og munum einnig ræða við VÍS og
Tryggingamiðstöðina og síðan fjár-
málafyrirtækin. Við munum nota
næstu vikur í þetta og ég minni á að
það eru verðlagsmælingar í hverjum
mánuði, ekki bara núna 12. febrúar.“
Grétar segir að allir þeir sem for-
ysta ASÍ hafi rætt við hafi tekið erindi
þeirra vel. „Þetta er eðlilegt, menn
vildu bíða eftir aðgerðum ríkisstjórn-
arinnar. Nú liggja þær fyrir en síðan
þurfa sveitarstjórnirnar að halda
formlega fundi og þetta tekur allt
tíma.“
Grétar segir að ASÍ sé ekki að gefa
einstökum fyrirtækjum eða sveitar-
félögum einkunn í þessu sambandi.
„Við erum einfaldlega þakklát ef
menn sýna lit í rétta átt. Við getum
ekki verið annað en ánægð með ár-
angurinn það sem af er, allt annað
væri vanþakklæti.“
Stemmning við velgengni
Grétar segir að árangur landsliðs-
ins í handknattleik hjálpi ASÍ í því
sem menn séu að fást við. Það skapist
mikil stemmning við svona velgengni
sem eykur á samheldnina í þjóðfélag-
inu og það þarf samheldni til þess að
ná verðbólgunni niður.
„Eftir fyrstu leikina ræddum við
um, að það væri við hæfi að rétta
landsliðinu einhverja fjármuni. Við
ætluðum að doka við fram að mið-
stjórnarfundi síðasta miðvikudag.
Síðan áttuðum við okkur, ég og Hall-
dór Björnsson, varaforseti ASÍ, ein-
faldlega á því eftir leikinn við Þjóð-
verja, að þetta var rétta augnablikið.
Við ákváðum að gefa 250 þúsund með
því skilyrði að Guðmundur landsliðs-
þjálfari réði hvernig fénu yrði ráðstaf-
að.“
Grétar Þorsteinsson, forseti ASÍ, eftir fundalotu síðustu daga
Okkur tekst að vera réttu
megin við rauðu strikin BOLLUDAGURINN er á morgun og
vafalaust eru margir bakarar nú
sveittir við að baka bollur og þeyta
rjóma ofan í landann.
Þau Halldóra Þorgeirsdóttir og
kökumeistarinn Jón Rúnar Arilíus-
son hjá Kökumeistaranum í Hafn-
arfirði virtust þó alls ekki hafa feng-
ið nóg af bollunum, þegar þau
brugðu á leik fyrir ljósmyndara
Morgunblaðsins.
Jón segir að hann baki einar fjór-
ar tegundir af bollum, púns-, jarð-
arberja-, karamellu- og rjómabollur,
bæði vatnsdeigs- og gerdeigsbollur.
Mest selst af hefðbundum
vatnsdeigsbollum
En í sölu hafi vatnsdeigsbollurnar
vinninginn og mest sé keypt af hefð-
bundnum vatnsdeigsbollum með
rjóma og súkkulaði. Jón segist selja
stykkið á 195 krónur en verð al-
mennt sé allt upp í 240 krónur á
bolluna. „Í dag er bolludagur fjöl-
skyldunnar en á morgun eru það
fyrirtækin sem kaupa mest af boll-
unum og ég sel heldur meira þá en í
dag.“
Aðspurður segir Jón að það sé
heilmikil vinnutörn kringum bollu-
daginn. „Venjulega erum við tveir
að baka um helgar en við erum sex
núna og það gengur oft heilmikið á.
En törninni lýkur að mestu á morg-
un, það má segja að við seljum ein-
ungis sýnishorn á þriðjudögum fyrir
þá sem misst hafa af bollunum.“
Margir
munnar
um bolluna
Morgunblaðið/RAX
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Grétar afhendir Guðmundi landsliðsþjálfara ávísunina.