Morgunblaðið - 10.02.2002, Side 18

Morgunblaðið - 10.02.2002, Side 18
18 SUNNUDAGUR 10. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ FRAMKVÆMDASTJÓRNEvrópusambandsins hefurákveðið að veita tæplega82 milljónir króna til rann-sókna á fyrirhuguðum gagnagrunnum á heilbrigðissviði á Íslandi, Eistlandi, Englandi og Sví- þjóð. Þetta er einn stærsti styrkur sem veittur hefur verið til rannsókna á þessu sviði og sá fyrsti til rann- sóknar af þessu tagi. Um er að ræða misstóra gagnagrunna í þessum löndum, sem munu hafa að geyma heilsufarsupplýsingar úr sjúkra- skrám auk erfðafræðilegra upplýs- inga. Meginmarkmið verkefnisins, sem kallast ELSAGEN, er að gera siðfræðilegar, lögfræðilegar og fé- lagsfræðilegar rannsóknir á gagna- grunnunum í þeim tilgangi að sjá fyrir og setja fram spurningar sem hafa kviknað eða eiga eftir að kvikna varðandi þróunina í erfðavísindum. Jafnframt verða viðhorf og afstaða almennings til gagnagrunnanna könnuð með áherslu á friðhelgi einkalífsins og skyld siðferðisgildi. Siðfræðistofnun Háskóla Íslands stjórnar verkefninu undir yfirstjórn Vilhjálms Árnasonar, prófessors í heimspeki. Rannsóknin er unnin í samvinnu við háskólana í Eistlandi, Svíþjóð, Englandi og á Norður-Ír- landi. Rannsóknin takmörkuð við fjögur lönd „Með það í huga að byggja Sið- fræðistofnun upp sem rannsóknar- stofnun ákvað stjórn stofnunarinnar að afla styrkja til rannsóknarstarfa,“ sagði Vilhjálmur, sem er formaður stjórnar Siðfræðistofnunar. For- stöðumaður Siðfræðistofnunar er Salvör Nordal og segir hún afar mikla vinnu felast í að ganga frá um- sókn um styrki til Evrópusambands- ins. Hafi sú vinna tekið hana og Garðar Árnason, sérfræðing á Sið- fræðistofnun og verkefnisstjóra ELSAGEN, fjóra mánuði. Þá er ótalinn þáttur Rannsóknarþjónustu Háskóla Íslands, sem var meðum- sækjandi og sér um fjárhagslega umsýslu. Styrkur frá Rannís varð til þess að tækifæri gafst til að und- irbúa umsóknina, skilgreina betur verkefnið og leita eftir samstarfs- þjóðum, en ein af forsendum Evr- ópusambandsins fyrir styrkveitingu er að nokkur Evrópulönd standi saman að umsókninni. Sagði Salvör að mikill áhugi hefði verið fyrir að taka þátt í þessari rannsókn en að lokum var ákveðið að takmarka rannsóknarhópinn við þessi fjögur lönd. Eru hefðbundin viðmið virt? „Okkur fannst blasa við í kjölfar þeirrar miklu umræðu, sem hér hef- ur farið fram um gagnagrunninn, að við myndum sækja um styrk til Evr- ópusambandsins til að rannsaka hann betur,“ sagði Vilhjálmur. „Gagnagrunnar þessara þjóða eru hver með sínum hætti en samt sam- bærilegir að stærð í nokkrum grund- vallaratriðum og í þeim er að finna sambærilegar upplýsingar. Laga- rammar eru ólíkir enda eru þetta ólík lönd að mörgu leyti, bæði að stærð og réttarkerfi.“ Vilhjálmur sagðist velta því fyrir sér hvort hefðbundin siðfræðileg viðmið um persónuvernd, vernd fyr- ir áhættu, virðing fyrir sjálfstæði og samþykki þátttakenda væru virt þegar safnað væri saman upplýsing- um úr stórum gagnagrunnum og þeir tengdir saman. „Eru þessi við- mið virt og þá að hvað miklu leyti eða er hugsanlegt að endurskoða þurfi þessi viðmið í ljósi nýrra rann- sóknaraðstæðna?“ sagði hann. „Þarna þrýsta menn á og vilja fá aukið svigrúm, því hefðbundnar við- miðanir geta valdið því að býsna þungt verður í vöfum ef leita á eftir samþykki hvers og eins í hvert sinn sem ný rannsókn er gerð. Þetta finnst mér vera stærsta spurningin fyrir siðfræðinga að svara í þessari rannsókn. Mér finnst einnig mjög at- hyglisvert að vita hvert viðhorf al- mennings er í þessum löndum. Er til dæmis hugsanlegt, eins og stundum er haldið fram, að Íslendingar leggi minni áherslu á persónuvernd en ná- grannaþjóðirnar? Hafa Íslendingar meiri trú á vísindasamfélaginu ein- faldlega af því að þar vinna þeir sína vinnu okkur að skaðlausu?“ Afdrifarík fordæmi „Það hefur stundum verið horft til smæðar þjóðarinnar í þessu sam- hengi og haft á orði að allir viti hvort sem er allt um alla,“ sagði Salvör. Salvör bendir á að lögfræðilegur þáttur rannsóknarinnar sé mjög áhugaverður með tilliti til frekari samvinnu milli Evrópuþjóðanna. „Það verður forvitnilegt að sjá hvernig lögin útfæra gagnagrunn- ana í þessum löndum,“ sagði hún. „Ég gæti trúað að það hefði haft mikið að segja um samþykki Evr- ópusambandsins fyrir styrkveiting- unni að hér er um samanburðar- verkefni að ræða. Þarna eru samankomin þau lönd sem riðu á vaðið með gagnagrunna, jafnólík og þau eru, og þau gætu sett afdrifarík fordæmi. Fyrst Ísland og í kjölfarið Eistland, England og Svíþjóð og við vitum að aðrar þjóðir eru í starthol- unum og vilja koma sér upp gagna- grunnum. Við ætlum því að reyna að draga saman reynslu og lærdóm frá þessum ólíku löndum. Snemma á rannsóknaferlinu fer fram fé- lagsfræðileg rannsókn í hverju landi fyrir sig, þar sem m.a. verður spurt um hugmyndir fólks um friðhelgi. Því hefur verið haldið fram að við Ís- lendingar leggjum annan skilning í friðhelgi en aðrar þjóðir. Það verður forvitnilegt að sjá hvort hugmyndir fólks um það eigi við rök að styðj- ast.“ Af hverju viljum við vera með? Vilhjálmur sagði að væntanlega yrðu að einhverju leyti bornar sam- an þær umræður, sem fram hefðu farið meðal almennings í löndunum um gagnagrunna og þýðingu þeirra. „Þegar rætt er um íslenska gagnagrunninn hefur ekki verið lögð áhersla á að leita eftir samþykki hvers og eins heldur fremur eftir einhvers konar þjóðarsamþykki og um leið pólitísku samþykki,“ sagði hann. „En hversu upplýst var og er þjóðin? Og af hverju var hún svona viljug til að vera með? Þó að þjóðin sé reiðubúin til að taka þátt í vísinda- rannsóknum og jafnvel að bjarga heiminum ef því er að skipta er það áhyggjuefni ef fólki finnst það ekki skipta svo miklu máli hvernig upp- lýsingarnar eru verndaðar og sam- þykkis er aflað. Það er eins og það skipti minna máli hér en hjá öðrum þjóðum, gæti það verið aðalatriðið? Það er þetta sem verður gaman að rannsaka og fá botn í.“ Salvör sagðist telja þetta viðhorf nokkuð mismunandi eftir þjóðum. „Vera má að það sé eitthvað í sam- félaginu sem veldur þessum áherslu- mun,“ sagði hún. „Eins og við mun- um vorum við að mörgu leyti illa búin undir umræðuna um gagna- grunninn. Ef við tökum mál eins og persónuvernd þá hefur sáralítið ver- ið skrifað um það hér á landi, lítillega um lögfræðiþáttinn en nánast ekkert í öðrum greinum. Í öllum þessum fé- lagsfræðirannsóknum sem gerðar hafa verið hefur t.d. aldrei verið spurt sérstaklega um hugmyndir fólks um friðhelgi. Hér er lítil um- ræðuhefð um vísindi og vísindarann- sóknir. Við höfum heldur ekki nein dæmi, sem betur fer, um víti til varn- aðar þannig að við höfum verið mjög opin og tekið við öllu. Þess vegna vorum við engan veginn undirbúin fyrir umræðuna þegar hún hófst.“ Vísindalegt læsi „Að vísu var mikið skrifað, margar greinar og heilmikil umræða í sjón- varpi og útvarpi, en spurningin er: Hversu upplýst var sú umræða, hversu gagnleg var hún og hverju skilaði hún?“ sagði Vilhjálmur. „Skiptust menn í fylkingar, með eða á móti, eða voru menn að taka raun- verulega ígrundaða afstöðu á grund- velli upplýsinga og skilnings? Þetta er spurning um vísindalegt læsi þjóðarinnar og þarna er auðvitað um að ræða spennandi vísindaleg áform en það er líka athyglisvert hversu stór hluti þeirra sem voru virkilega á móti var í hópi vísindamanna.“ Vilhjámur sagði að þrátt fyrir full- yrðingar um að almenningur hefði engan áhuga á persónuvernd hefði öll umræða um gagnagrunninn snú- ist um hvernig tölvutæknin gæti gulltryggt að upplýsingarnar yrðu ópersónugreinanlegar. „Ef til vill var þessi gríðarlega áhersla á tækni- lega vernd upplýsinganna á kostnað umræðu um hvernig einstaklingar gerðu upp hug sinn,“ sagði hann. „Væri gagnagrunnurinn tæknilega tryggur þyrfti ekkert að spyrja. Það er þetta samspil persónuverndar og samþykkis sem ég hef áhuga á að kanna og eins hvernig farið er með upplýsingarnar. Fólk á rétt á að vita hvað verður um þær. Spurningin er hvort við séum reiðubúin til að taka áhættu og taka þátt í þessu ævintýri sem tíminn einn mun leiða í ljós hvert leiðir.“ Mikill áhugi fyrir rannsókninni Vilhjálmur sagði að öll viðbrögð við umsókninni hefðu verið góð og verkefnið þætti mjög tímabært. Verulegur áhugi er á Norðurlöndum fyrir rannsókninni og hefur NORFA, Norræna rannsóknaraka- demían, veitt styrk til verkefnisins. NORFA styrkir net norrænna þjóða og sérstaklega verkefni sem unnin eru í samstarfi við Eystrasaltsríkin og önnur evrópsk ríki. Flestir sam- starfsaðilarnir í rannsóknarverkefn- inu eru aðilar að NORFA og sagði Salvör að sá styrkur gæfi möguleika á að halda „seminar“ með háskóla- nemum og efla þannig ungt fólk til rannsókna eða jafnvel bjóða fagfólki utan hópsins að koma og halda er- indi. Hér gæfist því frábært tilefni til að setja saman þverfaglegan rann- sóknarhóp og skapa jafnframt tæki- færi fyrir nemendur við Háskóla Ís- lands. Gagnagrunnar fjögurra Evrópulanda rannsakaðir Morgunblaðið/Þorkell Salvör Nordal, forstöðumaður Siðfræðistofnunar, og Vilhjálmur Árnason, prófessor og formaður stjórnar Siðfræðistofnunar. Siðfræðistofnun Háskóla Íslands hefur fengið 82 milljóna króna styrk til rannsókna á gagnagrunnum á heilbrigðissviði í fjórum Evrópulöndum. Kristín Gunnarsdóttir ræðir við Vilhjálm Árnason prófessor og Salvöru Nordal, forstöðumann Siðfræðistofnunar, um tilhögun rannsóknarinnar, en stofnunin fer með stjórnun og yfirumsjón með henni. ’ Því hefur verið haldið fram að við Íslendingar leggjum annan skilning í friðhelgi en aðrar þjóðir. Það verður forvitnilegt að sjá hvort hugmyndir fólks um það eigi við rök að styðjast. ‘ STYRKUR Evrópuráðsins til rann- sókna á gagnagrunnunum er til þriggja ára og er veittur sam- kvæmt fimmtu rammaáætlun, en samkvæmt henni eru veittir styrkir til hugvísinda. Siðfræðistofnun Háskóla Íslands hefur yfirumsjón með rannsókn- inni, undir stjórn Vilhjálms Árna- sonar prófessors, og verður mest- allur siðfræðiþáttur rannsóknarinnar unninn við stofn- unina. Siðfræðiþátturinn, sem unn- in verður af Vilhjálmi, Salvöru Nor- dal, Sigurði Kristinssyni, heimspekingi við Háskólann á Ak- ureyri, og fleirum, felur í sér per- sónuvernd, samþykki í rann- sóknum og mismun á grundvelli arfgerðar. Jonas Josefsson, að- junkt við Háskólann í Lundi, kemur einnig að þessum verkþætti. Margit Sutrop, prófessor í heim- speki við Háskólann í Tartu, hefur yfirumsjón með rannsókn á rekstri og stjórnun gagnagrunnanna og þjóðfélagslegri umræðu, sem fram hefur farið í hverju landi fyrir sig. Tony McGleenan, dósent í lög- fræði við Queen’s-háskóla í Belfast á Norður-Írlandi, hefur yfirumsjón með lögfræðilegum hluta verkefn- isins. Oddný Mjöll Arnardóttir lög- fræðingur mun sennilega vinna að þesssum verkþætti af hálfu Sið- fræðistofnunar. Ruth Chadwick, prófessor í heimspeki við Lancashire-háskóla á Englandi, hefur yfirumsjón með rannsókn á þekkingu, gildismati og réttindum ásamt Matti Hayry, for- stöðumanni Siðfræðistofnunar Central-Lancashire-háskóla á Eng- landi. Garðar Árnason heimspek- ingur mun vinna að þessum verk- þætti af hálfu Siðfræðistofnunar. Kjell E. Eriksson, verkefnisstjóri við félagsvísindadeild Háskólans í Lundi í Svíþjóð, hefur yfirumsjón með félagsfræðilega rannsókn- arþættinum. Margrét Lilja Guð- mundsdóttir félagsfræðingur mun vinna að þessum verkþætti af hálfu Siðfræðistofnunar. Ásta Erlingsdóttir, verkefnisstjóri hjá Rannsóknarþjónustu Háskóla Íslands, sér um fjármálastjórnun verkefnisins og Garðar Árnason, sérfræðingur á Siðfræðistofnun og verkefnisstjóri ELSAGEN, heldur utan um framkvæmd verkefnisins og sér um samskipti milli rann- sóknarhópanna, en þverfaglegt teymi er í hverju landi fyrir sig. Þverfaglegt teymi í hverju landi

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.