Morgunblaðið - 14.02.2002, Side 1
37. TBL. 90. ÁRG. FIMMTUDAGUR 14. FEBRÚAR 2002 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
STOFNAÐ 1913
MORGUNBLAÐIÐ 14. FEBRÚAR 2002
ÍSRAELSKIR hermenn og skrið-
drekar héldu inn í þrjá bæi Palest-
ínumanna á Gazasvæðinu í fyrrinótt í
þeim tilgangi að leita uppi vígamenn
og féllu sex Palestínumenn í atlög-
unni. Svo virtist sem ísraelska herlið-
ið hefði verið kallað heim í gærkvöld
þegar það réðst aftur inn í einn bæj-
anna.
Hernaðaraðgerðirnar á Gaza í
fyrrinótt komu í kjölfar þess að
herskáir Hamas-liðar skutu tveimur
heimatilbúnum eldflaugum inn í Ísr-
ael á sunnudag þar sem þær lentu á
ræktarlandi. Höfðu Ísraelar heitið
harkalegum viðbrögðum. Þrír palest-
ínskir lögreglumenn féllu þegar ísr-
aelskir skriðdrekar skutu á bæki-
stöðvar þeirra í fyrrinótt en fjórði
lögreglumaðurinn og óbreyttur borg-
ari voru skotnir annars staðar. Sjötti
maðurinn var skotinn nálægt gyð-
ingabyggð á Gaza. Segja Ísraelar, að
hann hafi verið vopnaður.
Yasser Arafat, leiðtogi Palestínu-
manna, sagði í gær í viðtali við ítalska
dagblaðið La Repubblica, að heima-
tilbúnu eldflaugarnar væru allt að því
„brandari“, ófullkomin vopn, sem
aldrei hefðu náð að valda neinu tjóni.
Arafat verði leystur
úr herkvínni
Mary Robinson, yfirmaður mann-
réttindamála hjá Sameinuðu þjóðun-
um (SÞ), hvatti Ísraela í gær til að
létta herkví þeirra um Arafat en hann
hefur setið í bækistöðvum heima-
stjórnarinnar í Ramallah á Vestur-
bakkanum síðan í desember og hafa
Ísraelar ekki leyft honum að fara.
Segja þeir, að hann verði ekki frjáls
ferða sinna fyrr en hann nái tökum á
herskáum Palestínumönnum sem
geri árásir á ísraelska herinn og al-
menna borgara í Ísrael.
Colin Powell, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, sagði í gær, að Arafat
hefði gengist við ábyrgð á tilraun til
að smygla vopnum til Palestínu með
skipinu Karine A. Stöðvuðu Ísraelar
það í Rauðahafi í síðasta mánuði með
um 50 tonn af skotfærum og vopnum.
Sagði Powell, að þetta hefði komið
fram í bréfi frá Arafat fyrir nokkrum
dögum.
Sex féllu í árás
Ísraela á Gaza
Colin Powell segir Yasser Arafat
hafa viðurkennt vopnasmygl
Reuters
Palestínsk ungmenni brenna ísraelskan fána eftir að ísraelskir hermenn höfðu ráðist inn í þrjú þorp á Gaza.
Gazaborg, Jerúsalem, Genf. AFP, AP.
SLOBODAN Milosevic dró enn á ný
í efa lögmæti Alþjóðastríðsglæpa-
dómstóls Sameinuðu þjóðanna þegar
hann ávarpaði dóminn í fyrsta skipti
í gær en réttarhöld yfir Júgóslavíu-
forsetanum fyrrverandi hófust í
Haag í fyrradag. Sagði hann að þeg-
ar væri búið að ákveða að hann
skyldi fundinn sekur og ásamt her-
ferð saksóknara í fjölmiðlum væri
það markmið dómstólsins að
„hengja“ hann án dóms og laga.
Áður höfðu saksóknarar lokið
tveggja daga yfirferð sinni á ákæru-
atriðunum en þeir reifuðu um leið
þau sönnunargögn sem þeir hyggj-
ast leggja fyrir dómstólinn.
Nokkuð var liðið á daginn þegar
Milosevic gafst tækifæri til að hefja
mál sitt og kaus hann því að flytja
ekki formlega yfirlýsingu til réttar-
ins í gær. Í staðinn krafðist hann
þess að dómarar í málinu brygðust
við ásökunum hans um að dómstóll-
inn væri ólögmætur og handtaka
hans í Belgrað og framsal til Hol-
lands bryti í bága við bæði serb-
nesku og júgóslavnesku stjórnar-
skrána.
Richard May, yfirdómari í réttar-
höldunum, stöðvaði Milosevic hins
vegar í miðjum klíðum og hafnaði
þeim staðhæfingum að dómstóllinn
væri ólögmætur. Úrskurður lægi
þegar fyrir um það atriði. „Skoðanir
þínar á þessum dómstóli skipta engu
máli,“ sagði hann.
Frestaði May síðan réttarhöldun-
um þar til í dag en þá er gert ráð fyr-
ir að Milosevic hefji málsvörnina.
Ibrahim Rugova meðal vitna
Geoffrey Nice, einn saksóknar-
anna, lýsti fyrir réttinum í gær þeim
voðaverkum sem framin voru á
Balkanskaga á síðasta áratug síð-
ustu aldar og sem Milosevic er sak-
aður um að bera ábyrgð á. Sagði
hann Milosevic hafa átt sér það
markmið eitt að tryggja hag Serba í
eins konar Stór-Serbíu.
Saksóknarar sýndu m.a. mynd-
band af sveltandi fólki í Trnopolje-
fangabúðunum í Bosníu frá 1992.
Sagði Nice að þar og í öðrum sam-
bærilegum búðum hefðu fangar mátt
þola sult, barsmíðar, kynferðisárásir
og pyntingar. Voru margir þeirra
myrtir og lík þeirra grafin í fjölda-
gröfum, að sögn saksóknara.
Greindi Ibrahim Rugova, leiðtogi
hófsamra Kosovo-Albana, frá því að
hann yrði meðal vitna saksóknara í
Haag. Rugova sagði það heiður að fá
að vitna í málinu fyrir hönd íbúa
Kosovo en ákærur á hendur Milosev-
ic snúa m.a. að ódæðisverkum sem
hersveitir Serba eru sakaðar um að
hafa framið þar 1998–1999.
Reuters
Slobodan Milosevic, fyrrverandi forseti Júgóslavíu, fyrir stríðsglæpa-
dómstólnum í Haag í gær er dómarar reifuðu málið gegn honum.
Milosevic segir dóm-
inn þegar ákveðinn
Haag, Pristina. AP, AFP.
Saksóknarar í Haag ljúka yfirferð á ákæruatriðum
FRÁ 2005 munu allir borgarar í
Evrópusambandsríkjunum hafa
eitt og sama sjúkraskírteinið,
sem tryggir þeim aðgang að
sjúkrastofnunum í ríkjunum
fimmtán.
Anna Diamantopoulou, sem
fer með félags- og tryggingamál
í framkvæmdastjórn ESB,
skýrði frá þessu í gær en breyt-
ingin mun fyrst og fremst verða
til að útrýma þeirri skriffinnsku,
sem nú fylgir því að leita læknis
annars staðar en í sínu eigin
ESB-ríki. Sagði hún, að sameig-
inlega skírteinið myndi auð-
velda fólki verulega að stunda
vinnu utan síns heimaríkis og
auk þess koma ferðafólki vel.
Talið er, að ein afleiðing nýja
skírteinisins verði sú, að fólk
geri meira af því en áður að leita
sér læknismeðferðar í ríkjum
þar sem auðveldast er að fá
hana.
Fyrir utan þetta er nú unnið
að því að samræma reglur um
háskólagráður og starfsferils-
skrár og til stendur, að allir
ESB-borgarar geti flutt lífeyris-
og önnur tryggingaréttindi til
annars ESB-ríkis hyggist þeir
setjast þar að.
Sameigin-
legt sjúkra-
skírteini
Brussel. AP.
BRESKIR verkfræðingar eru að
leggja lokahönd á smíði of-
urþunnra hátalara úr bylgju-
pappa og að þeirra sögn hillir nú
undir það, að alls konar pakka-
vara, til dæmis kornfleks- og
sápupakkar, geti auglýst sjálfa
sig í hillum verslananna.
Þessi nýja tækni hefur verið
þróuð hjá breska fyrirtækinu
NXT að því er segir í tímaritinu
New Scientist, sem kemur út á
laugardag. Eru fyrstu hátal-
ararnir, 70 sm háir, væntanlegir
á markað en þeir eru til dæmis
ætlaðir fólki, sem vill bjóða vin-
um sínum til veislu án þess að
eiga á hættu, að þeir skemmi
annan og dýrari hátalarabúnað.
Hátalararnir eru eins og fyrr
segir úr bylgjupappaörk, sem er
brotin saman þannig, að úr verði
þríhyrningur. Aftan á eina hlið-
ina er festur rafsegul-„hvati“, 2,5
sm þykkur, sem breytir rafboð-
um í hljóðboð. Þegar „hvatinn“
hefur verið tengdur magnara fer
pappinn eða þríhyrningurinn að
virka eins og þind eða hljóð-
himna og gefa frá sér hljóð.
Verið er að vinna að smíði
minni hátalara og þá verður þess
kannski ekki langt að bíða, að
pakkavaran hrópi á fólk í búð-
unum „kauptu mig, kauptu mig“
og geri því um leið ýmis gylliboð.
„Kauptu
mig,
kauptu
mig“
París. AFP.