Morgunblaðið - 14.02.2002, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 14.02.2002, Blaðsíða 16
AKUREYRI 16 FIMMTUDAGUR 14. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ Nýjar vörur Vor 2002 Akurliljan Hafnarstræti 100, Akureyri, sími 462 4261. Einkafjármögnun stórframkvæmda Hádegisverðarfundur á vegum Íslandsbanka, AFE og Félags viðskipta- og hagfræðinga föstudaginn 15. febrúar kl. 12:00 til 13:15 á Fiðlaranum, 4. hæð Dagskrá: Fjármögnun stórverkefna Sigfús Jónsson, framkvæmdastjóri Nýsis hf., ráðgjafar- og rekstrarþjónustu. Fjallar um tækifæri og ógnanir sem fyrir- tækið hefur staðið frammi fyrir við einkafjármögnun mannvirkja. Einkafjármögnun — Væntingar og veruleiki, frá sjónarhorni fjármagnsmarkaðar. Alexander Kristján Guðmundsson, forstöðumaður verkefnis- og fasteignafjármögnunar Íslandsbanka FBA. Fjallar um hvaða verkefni hefur verið ráðist í á síðastliðnum árum og á vegum hverra. Aðferðafræðin, kosti hennar og galla, þarfir fjármagnsmarkaðarins, hvað hefði mátt betur fara við skipulag einkafjármögnunar út frá sjónarhorni fjármögnunar. Fundarstjóri: Ingi Björnsson, svæðisstjóri Íslandsbanka Akureyri LÁGVAXNAR furðuverur fuku til í roki og rigningu öskudagsins á Ak- ureyri. Veðrið lék ekki við blessuð börnin sem klæddu sig upp á í glæsilega grímubúninga í býtið og héldu af stað í árlega bæjarferð, þar sem sungið er fyrir starfsfólk fyrirtækja, stofnana og verslana sem launa fyrir með sælgæti. Gler- hált var í bænum og því erfitt að fóta sig í hvassviðrinu, en ekki virt- ust börnin láta það á sig fá og héldu sínu striki. Reyndar kusu mörg þeirra að dvelja í hlýjunni í versl- unarmiðstöðinni Glerártorgi þar sem hægt var að taka lagið á sviði. Kötturinn var að venju slegin úr tunnunni á Ráðhústorgi og sýndu þar margir mikið harðfylgi. Morgunblaðið/Kristján Á Glerártorgi stigu börnin á svið og sungu af hjartans lyst fyrir fjölda fólks. Þar var gott að vera enda leiðindaveður úti. Ísinn bragðaðist vel eftir sönginn. Kötturinn sleginn úr tunnunni á Ráðhústorgi í roki og rigningu. „Hlaupa lítil börn um bæinn“ HEYRNARTÆKNI ehf. hóf starf- semi á Akureyri nýlega með opnun útibús í Hafnarstræti 95. Árni Hafstað, heyrnar- og talmeina- fræðingur, mun sinna þar heyrn- armælingum og sölu á heyrnar- tækjum og hjálparhlustunarbúnaði. Heyrnar- tækni hóf starfsemi í júní 2001 og er fyrsta einkarekna heyrnar- tækjastöðin á Íslandi. Heyrnartækni er með umboð fyrir danska fyrirtækið Oticon sem er elsta starfandi heyrnartækja- fyrirtækið í dag og hefur verið leiðandi í tækninýjungum. Oticon var fyrsta fyrirtækið til að setja á markað sjálfvirk stafræn heyrn- artæki. Heyrnartækni leggur áherslu á að bjóða upp á nýjustu og fullkomnustu heyrnartækin frá Oticon, segir í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu. Langir biðlistar eftir heyrnar- tækjum hafa skapast á undanförn- um árum og er stærstur hluti þeirra sem bíður eftir þjónustu eldri borgarar. Landsbyggðarfólk hefur ekki farið varhluta af þessu ástandi og sem dæmi má nefna að þá hefur ekki verið starfrækt heyrnartækjastöð á Akureyri um árabil. Eldri borgarar eru sá hóp- ur sem mest þarf á heyrnartækj- um að halda og eiga þeir oft og tíð- um erfitt með að ferðast langt til að leita eftir þjónustunni. Með opnun útibúsins vonast Heyrnar- tækni til að bæta þjónustu við heyrnarskerta á Norðurlandi, seg- ir ennfremur í fréttatilkynning- unni. Heyrnartækni á Akureyri er op- ið á hverjum fimmtudegi. Nánari upplýsingar og móttaka tímapant- ana er í síma 893 5960 og 568 6880 og á heimasíðu fyrirtækisins, www.heyrnartaekni.is. Heyrnartækni opnar útibú FERÐAFÉLAG Akureyrar verður með þorraferð í Botna um komandi helgi, dagana 16. og 17. febrúar. Botni er einn af skálum félagsins og er í Svartárbotnum, um 15–16 kílómetra frá Svartárkoti. Þetta er skíðagöngu- ferð. Félagið býður svo upp á skíða- gönguferðir alla laugardag í vetur, þ.e. í mars og apríl. Í maímánuði verð- ur árleg skíða- og gönguferð á Súlur fyrsta dag þess mánaðar, þá er á dag- skrá göngu- og skíðaferð á Kaldbak og fuglaskoðunarferð. Ferðafélag Ak- ureyrar hefur kynnt ferðaáætlun sína fyrir árið 2002 og að venju kennir þar margra grasa. Öskjuvegsferðirnar sí- vinsælu er þar að finna, sumarleyf- isferð til Noregs, fjölbreyttar göngu- ferðir, jeppaferð, hjólaferð og eyjasigling. Ferðaáætlunina má finna á heimasíðu félagsins, á slóðinni http://ffa.est.is en þar eru upplýsing- ar um félagið, skála þess, gönguleiða- kort og fleira. Ferðafélag Akureyrar er með opið hús fyrsta fimmtudags- kvöld í hverjum mánuði. Ferðafélag Akureyrar Þorraferð í Botna FORSVARSMENN Húsasmiðjunn- ar hafa unnið að endurskoðun á rekstri fyrirtækisins á Lónsbakka við Akureyri að undanförnu, en í tengslum við þá vinnu var nær öllu starfsfólki, alls 28 manns, sagt upp störfum í byrjun nóvember sl. Bogi Þór Siguroddsson, forstjóri Húsa- smiðjunnar, sagði að frá því að fyr- irtækið tók yfir rekstur bygginga- vörudeildar KEA á Lónsbakka fyrir um þremur árum hafi átt sér stað miklar breytingar á markaðnum fyr- ir norðan, en að þar gætti þó nokk- urrar bjartsýni um þessar mundir. „Til þess að geta farið yfir rekst- urinn og endurskipulagt hann á sem bestan hátt fyrir okkar viðskiptavini var ákveðið að fara þá leið að segja starfsfólkinu upp. Í dag eru um 20 stöðugildi á Lónsbakka og hefur þeim fækkað um 3-5 stöðugildi frá því í haust. Í þessari grein er tölu- vert um sveiflur og þessi fækkun starfsfólks sem hefur orðið er meira í bakvinnslu og á lager. “ Bogi Þór sagði að töluverð um- ræða hafi verið um hugsanlegan flutning á starfseminni frá Lóns- bakka og inn á Akureyri. „Við erum ekkert á leiðinni frá Lónsbakka og það eru margir mjög góðir kostir við það að vera þar. Svæðið er stórt og aðgengi gott fyrir þungavöruþjón- ustu. Það er rétt að við erum ekki staðsettir í miðbæ Akureyrar og ein- hverjum finnst langt að fara út á Lónsbakka, þannig að það eru bæði kostir og gallar við staðsetninguna. Hins vegar hafa ýmsir sýnt þessu svæði áhuga og líkt og í öðrum við- skiptum endurskoðum við stöðu okk- ar eftir því sem aðstæður leyfa og tækifæri gefast.“ Bogi Þór sagði að gríðarleg sam- keppni væri á þessu svæði, en þrátt fyrir umtalsverðan flutningskostnað væri fyrirtækið að bjóða sama verð á Lónsbakka og í Reykjavík. Fækkun hjá Húsasmiðjunni EINKAFJÁRMÖGNUN stórfram- kvæmda er yfirskrift hádegisfund- ar sem Íslandsbanki, Félag við- skipta- og hagfræðinga og Atvinnuþróunarfélag Eyjafjarðar stendur fyrir á morgun, föstudag- inn 15. febrúar frá kl. 12 til 13.15. á Fiðlaranum. Sigfús Jónasson, framkvæmda- stjóri Nýsis, ráðgjafar og rekstr- arþjónustu, flytur erindi um fjár- mögnun stórframkvæmda og fjallar m.a. um þau tækifæri og þær ógn- anir sem fyrirtækið hefur staðið frammi fyrir við einkafjármögnun mannvirkja. Einkafjármögnun, væntingar og veruleiki frá sjónarhóli fjármagns- markaðar er yfirskrift erindis Alex- anders Kristjáns Guðmundssonar forstöðumanns verkefnis- og fast- eignafjármögnunar Íslandsbanka. Hann fjallar um hvaða verkefni hefur verið ráðist í á síðastliðnum árum og á vegum hverra, aðferða- fræðina, kosti hennar og galla. Einkafjármögnun stórframkvæmda AÐALSTEINN Vestmann opnar sýningu á Café Karólínu 16. febrúar kl. 14.00. Hann sýndi fyrst fyrir hálfri öld og þá með Gunnari Dúa í Gagnfræðaskóla Akureyrar. Aðalsteinn málaði leiktjöld í nokk- ur ár hjá Leikfélagi Akureyrar og víðar. Hann hefur haldið margar einkasýningar og tekið þátt í sam- sýningum. Á sýningunni eru akríl- verk og mótíf úr næsta nágrenni og eitt olíumálverk. Er það verkið „Að kvöldi K-dagsins“ en sú mynd er til- einkuð Karli Hjaltasyni en hann var smíðakennari við Barnaskóla Akur- eyrar. Aðalsteinn er nú að ljúka sín- um 40 ára starfsferli við þennan sama skóla. Sýningin er opin á af- greiðslutíma kaffihússins. Aðalsteinn Vestmann sýnir myndlist ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.