Morgunblaðið - 14.02.2002, Blaðsíða 18
SUÐURNES
18 FIMMTUDAGUR 14. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
TÓMSTUNDA- og íþróttaráð
Reykjanesbæjar leggur til að parket
verði lagt ofan á steingólfið í aðalsal
íþróttahúss Keflavíkur í stað þess að
brjóta gólfið upp, grafa það upp og
steypa nýja plötu eins og áður var tal-
ið nauðsynlegt. Fjármunirnir sem
sparast verði notaðir til að byggja
áhaldageymslu sunnan við húsið.
Leggja á parketgólf á aðalsal
íþróttahússins við Sunnubraut á
árinu, samkvæmt fjárhagsáætlun
Reykjanesbæjar. Á gólfinu er nú dúk-
ur á steinsteyptu gólfi og er hann orð-
inn lélegur. Íþróttafólk hefur kvartað
undan lélegri fjöðrun í gólfinu og var
ákveðið að setja parket á gólfið, gólf
eins og reynst hefur vel í íþróttamið-
stöðinni í Njarðvík.
Vildu stækka salinn
Í fyrstu var talið nauðsynlegt að
brjóta upp steingólfið og fjarlægja,
grafa upp úr grunninum og steypa
nýja plötu neðar til þess að hægt yrði
að leggja grindur sem parketgólfið er
lagt á. Ef parketið yrði lagt á núver-
andi gólf myndi það hækka svo mikið
að hurðargöt inn í salinn yrðu ólögleg.
Við undirbúning málsins komu upp
þær hugmyndir, meðal annars frá
körfuknattleiksdeild Keflavíkur, um
að láta gólfið halda sér en brjóta niður
áhorfendastæðin að gangi fyrir fram-
an búningsherbergi. Síðan yrðu sett
færanleg og útdraganleg áhorfenda-
svæði beggja vegna salarins og
áhaldageymsla byggð við húsið. Við
þetta myndi gólf salarins stækka og
húsið gjörbreytast til batnaðar, að
flestra mati.
Samkvæmt upplýsingum Stefáns
Bjarkasonar, tómstunda- og íþrótta-
fulltrúa, var þessi hugmynd talin
framkvæmanleg frá byggingatækni-
legu sjónarmiði en mjög dýr auk þess
sem nauðsynleg aðstaða myndi tap-
ast, svo sem kennara- og dómaraher-
begi. Segir Stefán að þessi lausn
myndi kosta um 50 milljónir kr. eða
tvöfalt meira en það fé sem varið hef-
ur verið til verksins.
Þá kom upp sú hugmynd að saga
burtu nauðsynlega hluta áhorfenda-
stæða til að ná löglegri hæð á þrjú
hurðargöt inn í salinn með því að
parketið yrði lagt ofan á núverandi
gólf. Hugmyndin er að körfuknatt-
leiksvöllurinn verði færður fjær
áhorfendapöllunum og settir færan-
legir pallar framan við þá föstu. Með
því móti yrði hægt að fjölga áhorf-
endum á leiki. Segir Stefán að þessi
lausn, ásamt því að byggja nýja
áhaldageymslu við suðurgafl hússins
rúmist innan samþykktrar fjárhags-
áætlunar. Áhaldageymsla þessi er á
upphaflegum teikningum fyrir húsið
en var aldrei byggð.
Tómstunda- og íþróttaráð Reykja-
nesbæjar hefur nú samþykkt þessa
síðastnefndu tilhögun og leggur til við
umhverfis- og tækisvið bæjarins að
hún verði notuð. Fram kom í ráðinu
að með því sparaðist mikill tími því
ekki þyrfti að steypa upp nýtt gólf. Þá
fengist stór áhaldageymsla sem hægt
yrði að nota til að geyma færanlega
áhorfendabekki og stærri leikifimi-
áhöld.
Parketið verði
lagt ofan á nú-
verandi gólf
Keflavík
Rætt um ýmsar útfærslur á endurbótum íþróttahússins við Sunnubraut
FYRSTA skóflustungan að sýning-
arskála Saltfiskseturs Íslands var
tekin í Grindavík í gær. Einar
Njálsson annaðist verkið en hann er
formaður stjórnar Saltfisksetursins
og þurfti hann að vera vel klæddur
í rokinu og rigningunni.
Forval fór fram vegna vals á
teikningum og húsi. Lægsta til-
boðið var frá Ístaki hf. og tók fyr-
irtækið að sér að byggja skálann
fyrir rúmar 100 milljónir kr. Við at-
höfnina í gær óskaði Einar Njálsson
verktökum velfarnaðar í þeirri
vinnu sem hæfist strax að athöfn
lokinni. Húsið mun rísa á tiltölulega
stuttum tíma því verklok eru áætl-
uð 14. ágúst á þessu ári.
Í húsi Saltfiskseturs Íslands verð-
ur sett upp saltfisksýning. Húsið er
á góðum stað í bænum, í því er gott
útsýni yfir höfnina. Morgunblaðið/Garðar Páll Vignisson
Framkvæmdir hafn-
ar við sýningarskála
Grindavík
HREPPSNEFND Vatnsleysu-
strandarhrepps hefur falið sveit-
arstjóra að senda eftirlitsnefnd
með fjármálum sveitarfélaga þau
gögn sem nefndin óskaði eftir.
Eftirlitsnefndin taldi ljóst að
fjárhagsstaða sveitarsjóðs Vatns-
leysustrandarhrepps væri fremur
alvarleg. Hún benti sérstaklega á
miklar skuldir sveitarsjóðs sem
námu í árslok 2000 liðlega 421 þús-
und kr. á íbúa og peningaleg staða
neikvæð um 343 þúsund kr. á
mann. Þá var bent á að fjárfesting-
arútgjöld hefðu á árinu 2000 numið
um það bil fimmfaldri framlegð
ársins.
Skuldirnar lækka um 140
milljónir á næstu árum
Í bókun hreppsnefndar, þar sem
erindi nefndarinnar var tekið fyrir,
er þess látið getið að samkvæmt
fjögurra ára fjárhagsáætlun muni
skuldir sveitarfélagsins lækka um
140 milljónir á næstu árum.
Jóhanna Reynisdóttir sveitar-
stjóri Vatnsleysustrandarhrepps
segir að þegar ákveðið var að fara
út í markaðsátak til að stækka
byggðina og fjölga íbúum hafi legið
fyrir að skuldirnar myndu aukast
tímabundið. Útlit sé fyrir að skuld-
irnar verði aftur komnar í lands-
meðaltal á árinu 2005.
Fjárhags-
staðan
fremur
alvarleg
Vatnsleysustrandarhreppur