Morgunblaðið - 14.02.2002, Síða 37
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. FEBRÚAR 2002 37
NÚNA skal minnast
morðárása Englend-
inga og Bandaríkja-
manna á þýsku borgina
Dresden 13. og 14. febr-
úar 1945. Þetta einstaka
athæfi er líklega hið löð-
urmannlegasta í sögu
Evrópu og vestrænnar
menningar! Englend-
ingar byrjuðu sprengju-
æðið öllum að óvörum
um tíuleytið að kveldi
13. febrúar, þegar fólk
var að leggjast til
svefns, og héldu því
gangandi alla nóttina og
næsta dag. Notaðar
voru um 2000 risastórar
Lancaster sprengjuflugvélar sem
vörpuðu 650000 (sexhundruð og
fimmtíu þúsund) fosfórsprengjum,
ásamt 3000 öðrum þungasprengjum.
Daginn eftir, þann 14. febrúar, bætt-
ust Bandaríkjamenn við brjálæðið,
með aukinni heift!
Dresden var óvarin menningarmið-
stöð, fræg fyrir söfn, gamlar bygg-
ingar og fjölda og fegurð kirkna.
Borgin var yfirfull af varnarlausu
flóttafólki, mestmegnis undan morð-
sveitum Sovétríkjanna í Austur-
Prússlandi. Dresden var haldið utan
stríðsins vegna menningarlegrar sér-
stöðu borgarinnar, og var hún því
varnarlaus allt stríðið og um leið
griðastaður stríðhrjáðs fólks. Dres-
den hafði alls enga hernaðarþýðingu.
Hinar ægilegu morðárásir á varnar-
laust fólkið hófust skyndilega af af-
kastamestu sprengjuflugvélum
Bandaríkjamanna og Englendinga,
sem vörpuðu hræðilegustu sprengj-
um í fórum stríðsaðila, ásamt óhugs-
anlega hræðilegum fosfórsprengjum,
sem hreinlega suðu fólk lifandi.
Fosfórsprengjurnar kæfðu einnig
fólk í órafjarlægð með súrefnisskorti
og hita loftsins. Þessar sprengjur
sköpuðu banheita hvirfilvinda (allt að
1000º) sem soguðu súrefni loftsins í
sig og óðu um borgina með ógnar-
hraða. Eldhafið í Dresden sást í 200
kílómetra fjarlægð og gjöreyðilagði
75% borgarinnar á örskömmum tíma.
Þessum glæp og þjáningum fórnar-
lambanna, verður vart lýst með orð-
um, en þessu mega siðaðir vestrænir
menn aldrei gleyma!
Það skal haft í huga að Þjóðverjar
gáfust formlega upp 8. maí 1945, en
höfðu tapað stríðinu löngu áður. Það
er sagt að um 300.000 manns hafi látið
lífið í helför Dresden og ómetanlegar
gersemar vestrænnar menningar
eyðilagðar og glataðar að eilífu! Það
sem gerir þessi hræðilegu fjöldamorð
enn óhugnanlegri er að stríðinu var í
raun lokið, aðeins börn, unglingar og
gamalmenni mönnuðu vopn Þjóð-
verja og þjóðin öll sem enn tórði, var
örmagna af þjáningum og hungri!
Bandamennirnir – Bandaríkja-
menn, Englendingar og Sovétmenn –
þvertóku fyrir að semja við Þjóðverja
um frið og grið allt stríðið, en heimt-
uðu fullkomna tortímingu lands og
þjóðar með opinberum hótunum um
fyrirvaralaust líflát forystumanna
þjóðarinnar og landrán víðáttumikilla
svæða Þýskalands, sem yrðu sett
undir hæl kommúnista Sovétríkj-
anna. Yfirlýst var að þjóðin skyldi búa
við sult og seyru um ókomna framtíð
samkvæmt Morgenthau-áætlun
Bandaríkjamanna, (kennd við Henry
Morgenthau Jr.) sem var samþykkt
af Roosevelt og Churchill í Quebec,
Kanada, september 1944 og síðar af
kumpána þeirra Stalín með „girnd-
arglotti“.
Þetta breyttist síðar vegna ódrep-
andi dugnaðar þýsku þjóðarinnar,
kóreustríðsins, vinslita bandamanna
og uppgötvunar sigurvegarana að
þeir hefðu betur uppúr Þjóðverjum ef
þeir fengju að njóta sín að ákveðnu
marki, en ef þeir væru ölmusu land-
búnaðar-þrælaþjóðfélag eins og þeim
var ætlað samkvæmt Morgenthau-
áætluninni! Ennþá daginn í dag eru
Þjóðverjar hersetnir af fjölmennum
erlendum herjum, alrændir, heila-
þvegnir, og kúgaðir á ýmsan hátt.
Þeir fá ekki einusinni að syngja sinn
fagra þjóðsöng í friði og eru enn án
mikilvægra landshluta Þýskalands!
Hin hræðilega Morgenthau-áætl-
unin hefur aldrei verið
opinberlega tekin úr
gildi, og miklu af henni
er enn haldið leyndri!
Churchill og Roosvelt
höfðu heimsótt Stalin
vin sinn í Yalta í Sovét-
ríkjunum, og skrifuðu
undir hinn alræmda
Yaltasamning 11. febr-
úar 1945, aðeins tveim
dögum fyrir morðæðið í
Dresden. Enski sagn-
fræðingurinn David
Irwing heldur því fram
að Churchill sem var sí-
drykkjusjúklingur og
kominn á háan aldur,
hafi lofað Stalin ódæðinu í Dresden
undir áhrifum áfengis. Roosevelt
bandaríkjaforseti sem var bæklaður
og helsjúkur undir stjórn vafasamra
manna, samþykkti helförina í Dres-
den, enda utan við sig og lést tæpum
tveim mánuðum síðar. David Irwing
heldur því fram að bæði Churchill og
Roosvelt hafi verið undir álögum hat-
rammra svartnæturafla sem séu enn
mögnuð við iðju sína, leynt og ljóst, og
megi sjá greinileg verksummerki
þeirra í alþjóðamálunum og „sagn-
fræði“ vorra daga.
Þeir tveir menn sem höfðu einna
mestu og verstu áhrifin á Churchill og
Roosvelt í gegnum stríðsárin, voru
þeir Friedrich Lindemann, síðar
Cherwell lávarðurog Henry C. Morg-
enthau Jr., ásamt starfs og samsæris-
mönnum þeirra.
Það létust fleiri í árásunum á
Dresden en í kjarnorkuárásum
Bandaríkjamanna á Nakasaki og
Hiroshima í Japan síðar sama ár, sem
er annar ófyrirgefanlegur glæpur!
Það urðu meiri skemmdir og miklu
fleiri létust í borginni Dresden einni,
en í öllu Englandi af völdum stríðsins,
öll stríðsárin!
Kirkjuklukkur Dresden og Þýska-
lands alls, hljóma þann 13. og 14. febr-
úar hvers árs til minningar þeirra
hundraða þúsunda sem voru myrt í
Dresden, og eyðileggingar þessarar
undurfögru menningarborgar. Það
færi vel að kirkjuklukkur Íslands
gerðu hið sama!
Drengskaparfólk allra landa má
aldrei gleyma helför Dresden!
Fólk ætti einnig að hafa í huga að
áróðurinn viðvíkjandi síðari heims-
styrjöldinni sem enn er spúið einhliða
allt til þessa dags, er ekki allur heil-
agur sannleikur!
Þá er ekki meiningin að fegra neinn
aðilann að fyrri né síðari heimsstyrj-
öldinni, sem knésettu vestræna
menningu. Styrjaldirnar sem aðal-
lega fóru fram í Evrópu, menningar-
miðstöð heimsins, voru stærstu glæp-
ir gegn mannkyninu sem framdir
hafa verið!
Minnumst Dresden!
Helgi
Geirsson
Sprengjuárás
Þetta einstaka athæfi,
segir Helgi Geirsson, er
líklega hið löðurmann-
legasta í sögu Evrópu.
Höfundur er ráðgjafi.