Morgunblaðið - 14.02.2002, Síða 39

Morgunblaðið - 14.02.2002, Síða 39
ir einstaklingar finnast sem til- búnir eru í slaginn í ljósi þeirra skipsbrota sem minni íslensk flug- félög hafa mætt á síðustu áratug- um og afkomutölum hinna stærri. Þarna fer fram hópur með ný- stárlegar hugmyndir sem fela í sér minni fjárfestingar en áður hefur verið lagt af stað með. Gengur hugmyndin út á samning við nú- verandi flugfélag um leigu á flug- vélum þess og beinum þjónustu- samningi, t.d. við IGS, dóttur- fyrirtæki Flugleiða, Suðurflug eða annarra. Hér þurfa stjórnvöld og hagsmunaaðilar að hafa skýra stefnu og koma þannig að málum að sómi sé af. Á tímum óvissu og mikilla breytinga þarf að styðja við bakið á þeim mönnum sem vilja Íslandi vel og nýta dug og þor þegnanna til góðra verka. Framtíð Flugleiða Framtíð Flugleiða byggist að miklum hluta á mannauðnum í landinu. Vitund þjóðarinnar um mikilvægi þeirra þjónustu sem Flugleiðir hafa skapað gegnum ár- in er grundvöllur að velgengni fé- lagsins. Mikilvægt er að stjórnvöld geti brugðist við mismunandi að- stæðum með stuttum fyrirvara í sátt við ferðaþjónustuna og Íslend- inga alla sem geta staðið sáttir á bakvið flugfélag þjóðarinnar hve- nær sem er. Því þarf að vera möguleiki á beinni aðstoð frá stjórnvöldum þegar gefur á eins og nú eftir 11. september vegna þeirra gríðarlegu hagsmuna sem íslensk ferðaþjónusta hefur af flugi til landsins. Fyrir um 40 ár- um þegar Loftleiðir hófu reglulegt flug milli Evrópu og Ameríku var ekki sú aðstaða á Íslandi sem þurfti til að sækja erlenda ferða- menn í stórum stíl. Menn voru stórhuga og sáu hvað þurfti. Reist voru hótel ásamt þjónustu tengdri ferðamennsku af mikilli framsýni og brautin „rudd“ sem við byggj- um ferðaþjónustu landsins á í dag. En tímar breytast og fyrirtækin með! Það er því af framtíðarsýn og raunsæi sem ég byggi mitt mat að Flugleiðir eigi að hætta tengdri þjónustu, s.s. reksti hótela, bíla- leigu o.s.frv., þar sem fjölbreytni og samkeppni er vissulega þegar til staðar í landinu í dag. Í ljósi nýjustu atburða þurfa forsvars- menn Flugleiða enn frekar að ein- beita sér að flugfélagsrekstri og standa uppi sem sigurvegarar í þeirri baráttu. Og þeir verða … okkar allra vegna. Samkeppnisfyr- irtæki tengdrar þjónustu eru því í dag betur í höndum annarra sem þá geta af einurð stutt lífæð sína af fullum krafti. Framtíð Keflavíkur- flugvallar Samkeppnishæfni Keflavíkur- flugvallar er og verður grundvall- aratriði til að framgangur verði í íslenskri ferðaþjónustu. Völlurinn hefur þegar yfir að ráða þeirri að- stöðu og starfsfólki sem til þarf vegna aukinnar flugumferðar í Keflavík. Í samtali sem ég átti við Ernu Hauksdóttur, framkvæmdastjóra SAF, fyrir stuttu kom fram mikill vilji til að vinna í málefnum Kefla- víkurflugvallar og gera hann sam- keppnishæfari og áhugaverðari. Nefndi hún í þessu sambandi mál- þing um framtíð Keflavíkurflug- vallar sem ég tel jákvætt og rétt byrjunarskerf. Ég skora á ferða- þjónustuna að koma á faglegri kynningu á vellinum sem lyki með opnu málþingi um Keflavíkurflug- völl og framtíð hans. Ég vil að markaðsráð Keflavíkurflugvallar verði endurvakið. Ég vona að ég fái tækifæri til að taka þátt í þessu verðuga og stóra verkefni. Flug Kanadískir aðilar hafa verið í reglulegu sambandi, segir Stein- þór Jónsson, og óskað eftir aðstoð minni til að koma á reglulegu flugi á milli Kanada og Evrópu með millilend- ingum í Keflavík. Höfundur er hótelstjóri á Hótel Keflavík og áhugamaður um framtíð flugs á Íslandi. UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. FEBRÚAR 2002 39 Margar gerðir t.d. Buffalo, Etnies, Converse, Roots og fl. 30-70% afsláttur Kringlan, sími 533 5150 RÝMUM FYRIR NÝJUM VÖRUM fimmtud, föstud, laugard og sunnudag Helgartilboð: Mörg pör á 990 og 1.990 VERSLUNIN Laugavegi 52, s. 562 4244. Brúðhjón A l l u r b o r ð b ú n a ð u r - G l æ s i l e g g j a f a v a r a - B r ú ð h j ó n a l i s t a r

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.