Morgunblaðið - 14.02.2002, Page 41
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. FEBRÚAR 2002 41
debenhams
S M Á R A L I N D
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
D
EB
1
67
88
02
/2
00
2
Kaupauki á Valentínusardegi!
5 hlutir í tösku.
Ef þú kaupir tvo hluti frá Clinique hlýtur þú þetta að gjöf.*
• Dramatically Different Moisturizing Lotion, 15 ml.
• Anti-Gravity Cream, 7 ml.
• Long Last Lipstick, 4 g.
• Clarifying Lotion, 260 ml.
• Hig Impact Eye Shadow, 8 g
• Ásamt snyrtitösku.
ÁSTIN ER FÖGUR
*Á meðan birgðir endast. Ofnæmisprófað og ilmefnalaust.
w
w
w
.c
lin
iq
ue
.c
om
verð á flísfatnaði
Flíshúfa, til í rauðu og bláu
tvær stærðir
Sími 525 3000 • www.husa.is
690 kr.
Flísbuxur og peysa, margir litir
stærðir: eins árs til átta ára
3.990 kr.
Frábært
ALMAR Grímsson er maður mik-
illar reynslu og þekkingar. Hann
hefur bæði metnað og tíma til að
stunda þá fjöl-
breyttu og krefjandi
vinnu, sem starf
bæjarfulltrúa er.
Hann er skipulagður
í vinnubrögðum og
afkastamikill, eins
og sést af löngum og
farsælum starfsferli
hans.
Í starfi sínu sem lyfjafræðingur
hefur Almar sinnt fjölmörgum trún-
aðarstörfum hér heima og erlendis.
Einnig á sviði líknarmála. Hann var
um árabil embættismaður í Heil-
brigðisráðuneytinu og fulltrúi Ís-
lands í stjórn Alþjóðaheilbrigð-
isstofnunarinnar. Þá hefur hann
verið öflugur liðsmaður Krabba-
meinsfélags Íslands og var formaður
þess í fjögur ár. Einnig hefur hann
verið í stjórn Norræna félagsins og
Þjóðræknisfélags Íslands og var
frumkvöðull í að koma á ungmenna-
skiptum við íslenska þjóðarbrotið í
Vesturheimi.
Þarna er á ferðinni maður með
mikla yfirsýn og dugnað. Það er
mikill fengur fyrir Hafnarfjörð að fá
Almar til starfa fyrir bæjarfélagið,
og ég skora því á Hafnfirðinga að
veita honum öflugan stuðning í próf-
kjörinu 16. febrúar n.k.
Styðjum Almar
til sigurs
Albert Már Steingrímsson
kaupmaður skrifar:
Albert Már
Steingrímsson
Á UNDANFÖRNUM árum hef-
ur hlutur sveitarfélaga í opinberri
stjórnsýslu sífellt farið vaxandi með
flutningi verkefna
frá ríkisvaldinu.
Fyrirsjáanlegt er að
sú þróun mun halda
áfram enda liggur
fyrir pólitísk sátt
þar um í stórum
dráttum. Hér er um
jákvæða þróun að
ræða, í henni felst
valddreifing, ákvarðanir færast nær
fólkinu og það öðlast aukin tækifæri
til að hafa áhrif á sitt nánasta um-
hverfi með beinum hætti.
Eftir því sem verkefni sveitarfé-
laganna verða umfangsmeiri og
ábyrgð þeirra stærri, skipta sveit-
arstjórnarmálin sífellt meira máli
fyrir líf fólksins í landinu. Þá er
mikilvægt að fólk láti þau sig varða
og íhugi vel ólíkar áherslur í stefnu-
málum þeirra stjórnmálaafla sem
leita eftir umboði kjósenda. En þótt
stefna framboðanna skipti vissulega
miklu er það ekki það eina sem mál-
ið snýst um. Menn skipta máli og
konur eru líka menn.
Ég hef fylgst með störfum Stein-
unnar Valdísar Óskarsdóttur í
borgarstjórn Reykjavíkur, átt við
hana samstarf og kynnst eðlis-
kostum hennar. Hún kann að
hlusta, hugsa og framkvæma. Hún
er ósérhlífin, rækir störf sín af alúð
og hefur sterka réttlætiskennd. Það
eru kostir sem prýða góðan borg-
arfulltrúa.
Veitum Steinunni
Valdísi braut-
argengi
Bragi Guðbrandsson, forstjóri Barnavernd-
arstofu, skrifar:
Bragi Guð-
brandsson
ÞÓTT Stefán Jón Hafstein reki
ættir sínar til frægra íhaldsmanna
og væri sjálfur lengi heldur ópóli-
tískur á tímum þeg-
ar engin skoðun
þótti ná máli nema
hún kæmi lengst af
vinstrikantinum
hafa stjórnunarhæfi-
leikar hans jafnan
verið slíkir í augum
okkar fornvina hans
að aldrei hefur svo vantað mann til
að hafa forystu í mikilvægum mál-
um að ekki hafi nafn hans þar borið
á góma, alveg frá því hann var jafn-
an kosinn til allra hugsanlegra emb-
ætta í félagslífi menntaskólans.
Það var ekki fyrr en Stefán var
farinn utan til náms í fjölmiðlafræði
með tilheyrandi rannsókn á þjóð-
félagslegum álitamálum að hann
gerðist áberandi vinstrisinnaður. Ég
held að í raun hafi hann þar fyrst og
fremst fylgt sinni samvisku: Sú
grunnhugsun ómengaðrar hægri-
mennsku að þeir sem eru dugleg-
astir að raka saman fé og sölsa und-
ir sig eignir skuli drottna yfir
samfélögum var honum andstæð, –
Stefán var og er að upplagi húm-
anískur jafnaðarmaður. Sem slíkur
á hann heima í Samfylkingunni, og
ég veit að hans liðstyrkur verður
Reykjavíkurlistanum mikill hval-
reki.
Ég skora á alla sem eiga þess
kost að kjósa Stefán Jón í prófkjöri
Samfylkingarinnar.
Kjósum öflugan
liðsmann
Einar Kárason rithöfundur skrifar:
Einar Kárason
Í PRÓFKJÖRI Sjálfstæðisflokks-
ins í Hafnarfirði laugardaginn 16.
febrúar nk. gefst kjörið tækifæri til
að hafa áhrif á skipan
lista sjálfstæð-
isflokksins í komandi
sveitarstjórnarkosn-
ingum. Til forystu
þurfum við að velja
dugmikið og traust
fólk sem við bæj-
arbúar getum treyst
að viðhaldi traustri
fjármálastjórn bæjarins.
Það er ánægjulegt að Haraldur
Þór skuli gefa kost á sér í 3. sæti því
þar fer dugmikill og skipulagður
atorkumaður sem nýtast mun okkur
Hafnfirðingum vel við áframhaldandi
uppbyggingu bæjarins.
Þau kynni sem ég hef haft af Har-
aldi í starfi innan fulltrúaráðs sjálf-
stæðisfélaganna styrkja mig í þeirri
bjargföstu trú að hann eigi fullt erindi
í forystusveit Sjálfstæðisflokksins í
Hafnarfirði.
Framsýni hans og þekking á skipu-
lags- og atvinnumálum mun án efa
styrkja Hafnarfjörð sem bæjarfélag.
Hvet ég alla Hafnfirðinga til að
taka þátt í prófkjöri Sjálfstæð-
isflokksins laugardaginn 16. febrúar
nk. og styðja Harald Þór í 3. sæti.
Haraldur Þór
í 3. sæti
Guðrún Jónsdóttir hjúkrunarfræðingur
skrifar:
Guðrún
Jónsdóttir
SIGRÚN Elsa Smáradóttir á er-
indi í stjórnmálin. Allt síðasta kjör-
tímabil hefur hún sýnt og sannað í
störfum sínum sem varaborgar-
fulltrúi Reykjavíkurlistans að hún er
þess trausts verð að vera í forsvari í
borgarstjórn Reykjavíkur. Nú leggur
hún frábær störf sín í
dóm borgarbúa og
æskir þess að fá að
starfa áfram innan
breiðfylkingar jafn-
aðarmanna og fé-
lagshyggjufólks.
Ég hvet alla sem
vilja hag borgarinnar
sem bestan til að
taka þátt í opnu prófkjöri Samfylk-
ingarinnar í Reykjavík núna í vik-
unni. Félagsmenn í Samfylkingunni
fá kjörseðlana senda heim en aðrir
sem vilja lýsa yfir stuðningi við flokk-
inn geta mætt á kjörstað alla vikuna
og fram á sunnudag. Því skora ég á
alla jafnaðarsinnaða borgarbúa að
taka þátt í prófkjörinu og styðja Sig-
rúnu Elsu í annað sætið.
Til að tryggja áframhaldandi sig-
urgöngu Reykjavíkurlistans þarf að
vanda valið á hann. Sigrún Elsa er
glæstur merkisberi nýrrar kynslóðar
stjórnmálamanna. Veitum henni
brautargengi.
Sigrúnu í 2. sætið
Katrín Júlíusdóttir verkefnastjóri skrifar:
Katrín
Júlíusdóttir
SIGRÚN Elsa Smáradóttir er
kjarkmikill brautryðjandi á ýmsum
sviðum stjórnmálanna. Hún hefur
beitt sér með eft-
irtektarverðum hætti
innan fræðsluráðs
Reykjavíkur síðasta
kjörtímabil. Hún er
varaborgarfulltrúi
Reykjavíkurlistans
og sem slík tekið þátt
í að gera borgina
okkar betri og mann-
vænlegri en hún hefur nokkurntíma
verið fyrr. Um leið og við tryggjum
Reykjavíkurlistanum áframhaldandi
umboð til að stjórna þurfum við að
veita ferskum straumum inn á hann.
Sigrún Elsa gefur kost á sér í ann-
að sæti í prófkjöri Samfylkingarinnar
núna í vikunni. Sigrún Elsa er þess
trausts verð og ég skora á alla þá sem
vilja hag borgarinnar og hag Reykja-
víkurlistans sem bestan til að taka
þátt í prófkjörinu og veita Sigrúnu
Elsu brautargengi með því að kjósa
hana í annað sætið. Ferskleiki og
kraftur einkenna Sigrúnu Elsu og öll
hennar störf. Á því er alltaf þörf í
stjórnmálin og því lýsi ég yfir ein-
dregnum stuðningi við framboð henn-
ar.
Kjarkmikla konu
í fremstu röð
Þorvarður Tjörvi Ólafsson
hagfræðinemi skrifar:
Þorvarður Tjörvi
Ólafsson
EINN frambjóðenda í prófkjöri
sjálfstæðismanna í Hafnarfirði 16.
febrúar er Vilborg Gunnarsdóttir,
fyrrverandi bæj-
arfulltrúi á Ak-
ureyri. Ég kynntist
Vilborgu þegar hún
slóst í lið með okkur í
bæjarmálaflokknum
á Akureyri fyrir síð-
ustu sveitarstjórn-
arkosningar.
Það kom fljótt í
ljós að hún stóð fyllilega undir því
orði sem af henni fór. Hún reyndist
sérlega duglegur bæjarfulltrúi,
framtakssöm og heiðarleg. Það er
gott að vinna með fólki sem kemur
til dyranna eins og það er klætt og er
að auki tilbúið til að leggja á sig þá
vinnu sem til þarf til að gera gott
sveitarfélag betra. Vilborg var for-
maður nefndar sem fjallaði um
skipulags- og byggingarmál og sýndi
þar bæði frumkvæði og dugnað.
Ég skora á Hafnfirðinga að bæta
Vilborgu í fríðan flokk bæjarfulltrúa
í Hafnarfirði með því að veita henni
brautargengi í prófkjörinu um
næstu helgi.
Vilborgu í
forystusveitina
Þórarinn B. Jónsson, bæjarfulltrúi Sjálf-
stæðisflokksins á Akureyri, skrifar:
Þórarinn B.
Jónsson