Morgunblaðið - 14.02.2002, Page 55
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. FEBRÚAR 2002 55
DAGBÓK
Dúndur
útsala
25-70%
afsláttur
Yfirhafnir
í úrvali
Allt á að seljast
Mörkinni 6, sími 588 5518
Opið laugardag
frá kl. 10-15
20% afsláttur
í tilefni af
Valentínusardeginum
Full búð af
fallegum
undirfötum
Laugavegi 4, sími 551 4473
Póstsendum
Um hvað
snúast stjórnmál?
Kynntu þér málið í Stjórnmálaskóla Sjálfstæðis-
flokksins í Valhöll mánudags-, þriðjudags- og
fimmtudagskvöld frá 18. febrúar til 7. mars.
Fyrirlestrar og umræður, m.a. um:
borgarmálin
fjölmiðla og stjórnmál
flokksstarfið
hlutverk sveitarfélaga
menntun og menningarmál
heilbrigðisþjónustu
áhrifaríkan málflutning
listina að vera leiðtogi
Ísland í samkeppni þjóðanna
Dagskráin er kynnt á heimasíðu Sjálfstæðisflokksins,
www.xd.is á hnapp Stjórnmálaskólans. Skráning og nánari
upplýsingar í síma 515 1777/515 1700, einnig á netfangi
disa@xd.is.
STJÖRNUSPÁ
eft ir Frances Drake
VATNSBERI
Afmælisbörn dagsins:
Þú ert orðheppinn og
nýtur þess að vera innan
um annað fólk. Þú kannt að
gleðja fólk og innst inni
þráirðu að bæta heiminn.
Það er kominn tími til að
kveðja gamla drauga og
rýma til fyrir nýjum hlutum.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þú ert óvenju hvatvís einstak-
lingur. Gættu að því hvert
hvatvísin leiðir þig í dag því
það er hætt við ruglingi.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Samtal við vin getur gert þig
óöruggan og óvissan í þinni
sök. Láttu þetta ekki slá þig út
af laginu. Flest samtöl eru
svolítið ruglandi í dag.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Farðu varlega í að samþykkja
eitthvað í samtölum þínum við
yfirmenn eða yfirboðara í dag.
Þú gætir verið að lofa upp í
ermina á þér.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Ferðaáætlanir lofa góðu en þú
ættir þó að bíða til morguns
með að skrifa undir samninga.
Þær ákvarðanir sem þú tekur
í dag geta orðið að engu eða
kallað á stórvægilegar breyt-
ingar.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Ekki lána peninga eða per-
sónulega hluti í dag. Það er
hætt við að þú takir ákvarð-
anir sem þú átt eftir að iðrast
síðar.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Þú ættir að njóta lífsins með
vinum þínum í dag. Slappaðu
af og skemmtu þér en forðastu
að taka mikilvægar ákvarðan-
ir.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Farðu varlega í skuldbinding-
ar í vinnunni. Þegar frá líður
er líklegt að þú sjáir hlutina í
öðru ljósi.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Þegar fram líða stundir gæt-
irðu þurft að svíkja loforð við
barn. Vertu varkár og segðu
ekkert fyrr en þú ert alveg
viss.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Forðastu að versla til heimilis-
ins eða fyrir fjölskylduna í
dag. Það eru miklar líkur á að
þú þurfir að skila eða skipta
því sem þú kaupir í dag.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Dagurinn hentar ekki til versl-
unar eða samningagerðar.
Bíddu til morguns því þá hefur
sjálfstraust þitt aukist og þú
sérð hlutina í skýrara ljósi.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Það er eins með þig og stein-
geitina. Dagurinn hentar illa til
verslunar og samningagerðar.
Frestaðu öll slíku til morguns
ef þú mögulega getur.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Það gæti gengið á ýmsu í dag.
Tunglið er í merkinu þínu og
því ætti heppnin að vera með
þér. Þú ættir þó að forðast
mikilvægar ákvarðanir og út-
gjöld.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rc3
Bb4 4. e3 0-0 5. Bd3 c5 6.
Rf3 d5 7. 0-0 dxc4 8. Bxc4
Rbd7 9. a3 cxd4 10. axb4
dxc3 11. bxc3 Dc7 12. Be2
Dxc3 13. Ba3 e5 14. Db1
Dc7 15. Hc1 Db8 16. b5 He8
17. Hd1 b6 18. Bd6 Db7 19.
Rg5 h6
Staðan kom
upp í A-flokki
stórmeistara-
mótsins í Berm-
úda sem lauk
fyrir skömmu.
Alexandre Les-
iege (2.572)
hafði hvítt gegn
Bartlomiej Mac-
ieja (2.612). 20.
Rxf7! Kxf7 21.
Bc4+ He6 22.
Df5 Rb8 Svartur
stæði einnig
höllum fæti eftir
22... Rf8 23. Bd5
Dd7 24. Bxf8
Kxf8 25. Bxa8. 23. Bd5 Dd7
24. Bxe5! Bb7 25. Bb3 De7
26. Hac1 Rbd7 27. Bxf6! og
svartur gafst upp.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
SUM spil eru blátt áfram á
yfirborðinu en búa yfir
leyndum töfrum. Þetta er
eitt af þeim:
Norður
♠ 1094
♥ D72
♦ K65
♣ÁG83
Suður
♠ ÁK2
♥ K103
♦ Á42
♣D1096
Suður opnar á 15–17
punkta grandi og norður
lyftir beint í þrjú grönd.
Vestur kemur út með spaða-
fimmu, fjórða hæsta, tían fer
upp blindum og austur læt-
ur drottninguna. Hver er
áætlun lesandans?
Augljóslega er spilið létt-
unnið ef vestur á laufkóng-
inn. En ef hjartagosinn ligg-
ur fyrir svíningu er
efniviður í níu slagi þótt
laufið gefið aðeins þrjá.
Vandinn er hins vegar sá að
gefa ekki of marga slagi á
spaða og meginhættan ligg-
ur í því að vestur hafi byrjað
með gosann fimmta.
Það væri ógætilegt að
dúkka spaðadrottninguna,
því austur gæti tekið upp á
því að skipta yfir í tígul.
Sagnhafi drepur því og ætti
nú að bíða með laufið og
spila hjarta á drottninguna.
Ef austur tekur á ásinn og
spilar spaða á sagnhafi góða
möguleika á níu slögum, því
það er nóg annaðhvort lauf-
kóngur eða hjartagosi liggi
rétt. En ef drottningin held-
ur…
Norður
♠ 1094
♥ D72
♦ K65
♣ÁG83
Vestur Austur
♠ G8753 ♠ D6
♥ Á96 ♥ G854
♦ 873 ♦ DG109
♣42 ♣K75
Suður
♠ ÁK2
♥ K103
♦ Á42
♣D1096
… er best að spila strax
aftur hjarta á tíuna! Lauf-
svíningin getur enn beðið. Í
þessari legu getur vörnin
ekki haldið áfram að með
spaðann og sagnhafi hefur
nægan tíma til að fríspila
laufið.
Sagnmingurinn fer hratt
og örugglega niður ef sagn-
hafi svínar í laufi í öðrum
slag, því þá fríar austur
spaðann og vestur á enn inn-
komuna á hjartaás.
BRIDS
Umsjón Guðmundur
Páll Arnarson
Árnað heilla
50 ÁRA afmæli. Í dag,fimmtudaginn 14.
febrúar, er fimmtug
Guðveig Sigurðardóttir,
Freyjuvöllum 3 Keflavík.
Eiginmaður hennar er Guð-
mundur Guðbjörnsson.
70 ÁRA afmæli. Í dag,fimmtudaginn 14.
febrúar, er sjötugur Haukur
Tómasson, jarðfræðingur
og fyrrverandi forstjóri
vatnsorkudeildar á Orku-
stofnun, Furugerði 9,
Reykjavík. Eiginkona hans
er Karitas Jónsdóttir, kjóla-
meistari. Þau taka á móti
gestum í Félagsheimili
Fylkis, Fylkisvegi 6, á af-
mælisdaginn kl. 17–19.
60 ÁRA afmæli. Í dag,fimmtudaginn 14.
febrúar, er sextug Nína
Þórðardóttir frá Þingeyri
við Dýrafjörð, Strandaseli
5, Reykjavík.
Með morgunkaffinu
LJÓÐABROT
LAUSAVÍSA
Ormstungu varð engi
allr dagr und sal fjalla
hægr, síz Helga in fagra
Hrafns kvánar réð nafni;
lítt sá Hörðr inn hvíti
hjörþeys, faðir meyjar,
(gefin var Eir til aura
ung) við minni tungu.
Gunnlaugur ormstunga Illugason
MORGUNBLAÐIÐ
birtir tilkynningar um
afmæli, brúðkaup,
ættarmót og fleira les-
endum sínum að
kostnaðarlausu. Til-
kynningar þurfa að
berast með tveggja
daga fyrirvara virka
daga og þriggja daga
fyrirvara fyrir sunnu-
dagsblað. Samþykki
afmælisbarns þarf að
fylgja afmælistilkynn-
ingum og/eða nafn
ábyrgðarmanns og
símanúmer. Fólk get-
ur hringt í síma 569-
1100, sent í bréfsíma
569-1329, eða sent á
netfangið ritstj
@mbl.is.
Einnig er hægt að
skrifa:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1,
103 Reykjavík
- - -
Jú, en ég drekk bara
til þess að gestirnir
komist líka í stuð.
Hlæðu bara, það
kemur brátt að þér
að fara í megrun.
GAGNASAFN
MORGUNBLAÐSINS
mbl.is