Morgunblaðið - 19.02.2002, Side 20

Morgunblaðið - 19.02.2002, Side 20
ERLENT 20 ÞRIÐJUDAGUR 19. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ GEORGE W. Bush Bandaríkjafor- seti lýsti yfir stuðningi við efnahags- stefnu Junichiros Koizumis, for- sætisráðherra Japans, á sameiginlegum blaðamannafundi þeirra í Tókýó í gær. „Ég hef fulla trú á leiðtogahæfi- leikum þessa manns, ég hef fulla trú á stefnu hans og er fullviss um að hann ætlar að koma henni í fram- kvæmd,“ sagði Bush eftir fjórða fund sinn með japanska forsætisráð- herranum á árinu. „Það er mikilvægt að næststærsta hagkerfi heimsins vaxi. Það kemur þessum heimshluta og öllum heiminum til góða.“ Bush lýsti Koizumi sem „einum af mestu og sönnustu vinum Banda- ríkjanna“ og manni sem hann treysti. Koizumi lofaði að koma á „kerf- isbreytingum“ í efnahag Japans, en skoðanakannanir benda til þess að vinsældir hans hafi minnkað meðal japanskra kjósenda vegna vaxandi efasemda um að hann komi á umbót- um sem taldar eru nauðsynlegar til að blása lífi í efnahag landsins. „Öllum möguleikum“ haldið opnum gegn „öxulríkjunum“ Bush varði einnig stefnu sína í málefnum Norður-Kóreu, Írans og Íraks, sem hann hefur kallað „öxul hins illa“, og hét því að hindra að hryðjuverkasamtök hæfu samstarf við stjórnvöld í ríkjunum þremur. Hann kvaðst hafa sagt Koizumi að hann héldi „öllum möguleikum opn- um“ og gaf til kynna að meðal annars kæmi til greina að beita hervaldi til að hindra hryðjuverkastarfsemi eða smíði gereyðingarvopna í löndunum þremur. Hann kvaðst þó vona að friðsamlegar aðgerðir dygðu og vera sannfærður um að bandamenn Bandaríkjanna myndu styðja stefnu hans. Stjórnvöld í Japan og Suður-Kór- eu hafa látið í ljósi áhyggjur af því að ummæli Bush um „öxul hins illa“ auki spennuna milli kóresku ríkjanna. Koizumi sagði þó í gær að ummælin endurspegluðu „einlægan ásetning Bush forseta og Banda- ríkjastjórnar í baráttunni gegn hryðjuverkum“. „Japanir halda áfram að styðja Bandaríkin,“ bætti Koizumi við. Japanir hafa sent 1.000 hermenn til Indlandshafs til stuðnings hern- aðaraðgerðum Bandaríkjanna. Er þetta í fyrsta sinn eftir síðari heims- styrjöldina sem Japanir veita Bandaríkjaher stuðning utan Jap- ans. Bandarískur embættismaður sagði síðar að Bush og Koizumi hefðu ekki rætt neinar hernaðarað- gerðir á fundi þeirra sem stóð í þrjár klukkustundir. Þar sem Japan væri í stjórnmálasambandi við Íran, en ekki Bandaríkin, hefði Bush beðið Koizumi um að koma skilaboðum Bandaríkjastjórnar á framfæri við írönsk stjórnvöld og beita sér fyrir friðsamlegri lausn deilumála í tengslum við baráttuna gegn hryðju- verkastarfsemi. Bush þakkaði Koizumi fyrir stuðn- ing japönsku stjórnarinnar við hern- aðaraðgerðir Bandaríkjanna eftir hryðjuverkin 11. september og lýsti samstarfi ríkjanna sem „bjargfastri undirstöðu friðar og stöðugleika á Kyrrahafssvæðinu“. Mismæli Bush olli gengislækkun jensins Bandarískir embættismenn hafa sagt að stjórn Japans þurfi að gera meira til að blása lífi í efnahaginn með því að leysa vanda japanskra banka, berjast gegn verðhjöðnun og koma á efnahagslegum umbótum. Koizumi hefur sagt ráðherrum sín- um að grípa til nýrra aðgerða gegn verðhjöðnuninni fyrir lok mánaðar- ins. Stjórn Bush hefur sætt vaxandi þrýstingi á bandaríska þinginu að undanförnu vegna lágs gengis jap- anska jensins gagnvart Bandaríkja- dollar sem kemur sér meðal annars illa fyrir bandaríska bílaframleið- endur vegna betri samkeppnisstöðu japanskra keppinauta þeirra. Gengi jensins hækkaði nokkuð gagnvart dollarnum í gær eftir fund Bush og Koizumis. Gengi jensins lækkaði þó um tíma eftir að Bush mismælti sig á blaðamannafundinum og kvaðst hafa rætt „gengisfellingu“ (e. devaluation) við Koizumi. Hann átti þá við „verðhjöðnun“ (deflation). Leiðtogarnir ræddu einnig áætlun Bush um að draga úr losun gróður- húsalofttegunda sem hann kynnti á fimmtudaginn var sem svar við Kyoto-bókuninni við loftslagssátt- mála Sameinuðu þjóðanna. Koizumi sagði að áætlunin væri „mjög já- kvæð“ en Bandaríkjastjórn þyrfti að gera frekari ráðstafanir til að draga úr loftmengun. Eftir blaðamannafundinn hugðist Bush ávarpa japanska þingið og ræða við Akihito Japanskeisara. Hann fer síðan til Seoul í dag til að ræða við Kim Dae-Jung, forsætis- ráðherra Suður-Kóreu, og fer til Peking síðar í vikunni. Asíuferð for- setans lýkur á föstudaginn kemur. Suður-kóreskir námsmenn mót- mæltu fyrirhugaðri heimsókn Bush í Seoul í gær. Lögreglumenn réðust inn í byggingu Bandaríska verslun- arráðsins í borginni til að handtaka námsmenn sem höfðu lagt hana und- ir sig. George W. Bush Bandaríkjaforseti í opinberri heimsókn í Japan og fleiri Asíuríkjum Kveðst styðja stefnu Koizumis Reuters Bush Bandaríkjaforseti ræðir við sumoglímukappann Mushasimaru, sem fæddist á Hawaii. Koizumi, forsætisráðherra Japans, fylgist með. Tókýó. AFP, AP. TIL ryskinga kom í þinghúsinu í Katmandu í gær þegar nokkrir þing- manna stjórnarandstöðunnar í Nep- al rifu niður ræðupall og kröfðust þess að stjórnin segði af sér fyrir að koma ekki í veg fyrir árásir upp- reisnarhreyfingar maóista sem kost- uðu meira en 130 manns lífið um helgina. Eru þetta mannskæðustu árásir maóistanna frá því að þeir hófu uppreisn fyrir sex árum. Stjórnarandstæðingar og þing- verðir flugust á eftir að einn þing- manna stjórnarflokksins sakaði stjórnina um að hafa hunsað viðvar- anir um að árásir væru yfirvofandi í heimahéraði hans, Achham, í norð- vesturhluta landsins. Uppreisnarmennirnir réðust á höfuðstöðvar öryggissveita í hér- aðinu og nálægan flugvöll og felldu 76 lögreglumenn, 48 hermenn, leyni- þjónustumann og fjóra óbreytta borgara. Að sögn varnarmálaráðu- neytisins féllu allt að 100 uppreisn- armenn í átökunum. Maóistarnir rændu einnig banka og réðust á fangelsi til að frelsa fanga sem styðja þá. Fjórir lögreglu- menn féllu í árás uppreisnarmanna í héraðinu Sarlahi í suðurhluta lands- ins. Enginn slasaðist í áflogunum sem hófust í þinghúsinu þegar þingið kom saman til að ræða tillögu Sher Bahadurs Deuba forsætisráðherra um að framlengja neyðarlög sem sett voru fyrir þremur mánuðum vegna uppreisnarinnar. Búist er við að tillagan fái nægan stuðning, eða tvo þriðju atkvæða, en stjórnarand- stæðingarnir komu í veg fyrir að for- sætisráðherrann gæti lagt tillöguna fram í gær. Um 2.500 manns hafa fallið Maóistarnir hófu uppreisnina í febrúar 1996 með það að markmiði að afnema konungsveldið og stofna alþýðulýðveldi. Átökin hafa kostað um 2.500 manns lífið. Deuba forsætisráðherra náði vopnahléssamkomulagi við maó- istana í júlí og friðarviðræður voru hafnar. Skæruliðarnir rufu vopna- hléið í nóvember með árásum á nokkrar her- og lög- reglustöðvar og stjórnin setti neyð- arlögin nokkrum dögum síðar. Gyan- endra konungur fyr- irskipaði einnig hernum að berjast við uppreisnarmenn- ina, en áður hafði stjórnin aðeins beitt lögreglunni í átökun- um. Leiðtogi maóist- anna, Pushpa Kamal Dahal, öðru nafni Prachand, sagði í vikunni sem leið að hann vildi hefja frið- arviðræður að nýju. Fréttaskýrendur í Katmandu sögðust telja að maóstarnir hefðu gert árás- irnar um helgina til að reyna að knýja stjórnina að samningaborðinu. Þeir töldu þó að árásirnar gætu haft þveröfug áhrif því stjórnin virtist nú ákveðnari en nokkru sinni áður í að brjóta uppreisnina á bak aftur með hervaldi. Maóistarnir hafa gert árásirnar frá afskekktum fjallahéruðum. Þeir njóta mikils stuðnings í dreifbýlinu þar sem fátæktin er mikil, en Nepal er á meðal snauðustu landa heims. Maóistarnir hafa hvatt til allsherj- arverkfalls á föstudag og laugardag í tilefni af því að sex ár eru liðin frá því að uppreisnin hófst. Uppreisnarmenn í Nepal vega rúmlega eitt hundrað og þrjátíu manns Mannskæðustu árásir til þessa í uppreisn maóista ()*+,-./0 ! "#$%  &&  '$ ( )$$*"&&)$& )$ $+& $ )$'#* $,"% $- & "9 0 $  4 !:      ;: ;  :;90  : 9 ! $  90 0 *< : 9$    4 0"9 3 ;     % 0 ; * &' (  )   %   * ) ( +     *  "  =>>   !$  "0 4   & 0 0 0? 1* 2 :4 4 ; )" $ ,:  $ @0*& 4  3  :9 4 34$     !% !  $ A3$  : %B*   . / 0 1  0 % 2 3 / 4$ 5'' '6 !#$7# & 4     ,   !  $    0  4  ! 8 23/ Katmandu. AP, AFP. AP Lögreglumaður á verði í Katmandú í gær. MILOS Zeman, forsætisráð- herra Tékklands, líkir Yasser Arafat, forseta heimastjórnar Palestínumanna, við Adolf Hit- ler og segir að það ætti að koma til greina að reka Palestínu- menn frá Vesturbakkanum og Gazasvæðinu ef þeir gengju ekki að friðartillögum Ísraela. Í tveggja daga opinberri heimsókn til Ísraels sagði Zem- an m.a. að Ísraelar ættu ekki að þurfa að semja við Arafat, fremur en leiðtogar ríkja heims hefðu átt að standa í samninga- viðræðum við Hitler fyrir heimsstyrjöldina síðari. Þegar Zeman var spurður hvort hann væri að líkja Arafat við Hitler svaraði hann: „Að sjálfsögðu.“ Á sunnudaginn lýsti Zeman yfir stuðningi við þá afstöðu Ar- iels Sharons, forsætisráðherra Ísraels, að ekki sé hægt að hefja friðarviðræður við Palest- ínumenn fyrr en ofbeldisverk- um linni. Í viðtali við blaðið Haaretz, sem birt var í gær, sagði Zeman að rétt eins og reka hefði átt Þjóðverja frá Tékkóslóvakíu þegar Hitler samþykkti ekki skilyrði sem leiðtogar ríkja heims settu í því augnamiði að aftra stríði ætti að gera Palestínumenn brott- ræka fyrir að samþykkja ekki friðartillögur Ísraela. Í yfirlýsingu frá upplýsinga- málaráðherra palestínsku heimastjórnarinnar í gær voru ummæli Zemans fordæmd og sögð bera vott um kynþáttahat- ur í garð Palestínumanna. Líkir Arafat við Hitler Jerúsalem. AP.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.