Morgunblaðið - 19.02.2002, Side 33

Morgunblaðið - 19.02.2002, Side 33
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. FEBRÚAR 2002 33 ✝ Jóhanna KatrínHelgadóttir fæddist í Reykjavík 27. nóvember 1920. Hún lést á Dvalar- heimilinu Holtsbúð 11. febrúar síðast- liðinn. Foreldrar hennar voru Helgi Magnússon, járn- smiður og kaupmað- ur, f. 8. maí 1872, d. 13. mars 1956, og kona hans Oddrún Sigurðardóttir hús- móðir, f. 19. sept. 1878, d. 6. maí 1969. Þau eignuðust tólf börn og af ellefu systkinum Jóhönnu er nú einungis Katrín, fyrrverandi skólastjóri, f. 1906, á lífi. Sonur Jó- hönnu er Helgi Rúnar Magnússon, f. 1958, lögfræðing- ur. Synir hans eru Jóhann Már, f. 1985, og Sigurður Torfi, f. 1990. Jóhanna stundaði nám í Danmörku og síðan í tækniteikn- un við Vita- og hafnamálastofn- unina þar sem hún starfaði allan sinn starfsferil. Útför Jóhönnu fer fram frá Dómkirkjunni í dag og hefst at- höfnin klukkan 13.30. Ég minnist Jóhönnu, fyrrverandi tengdamóður minnar, með söknuði og hlýju í hjarta, genginn er góður vinur. Þegar ég fyrst fyrir tuttugu árum kynntist Jóhönnu og systrum hennar var ég ekki uppburðarmikil, ég satt best að segja kveið því að hitta þessar kjarnakonur sem í mín- um huga voru þá nokkurs konar goð- sögn sveipaðar hetjuljóma, með fyrstu kvenréttindakonunum fannst mér, sannkallaðar valkyrjur. Ótti minn reyndist ástæðulaus, þær tóku mér afar vel eins og þeim einum var lagið og ég sá strax að þarna þurfti engrar uppgerðar með, engan „fínan front“ eins og sagt er á nútíma máli, með okkur tókst einlæg vinátta sem aldrei bar skugga á. Fyrir réttum tveimur árum var Jóhanna lögð inn á hjúkrunarheim- ilið Holtsbúð í Garðabæ sökum veik- inda þar sem hún lést aðfaranótt mánudagsins 11. febrúar sl. Varla leið sá dagur þessi tvö ár að ég kæmi ekki til þín, Jóhanna mín, þú lést mig líka heyra það ef ég að þínu mati hafði svikist um að heimsækja þig. Þú varst svo hreinskiptin, sagðir allt- af allt sem þér bjó í brjósti, það var ekki þér líkt að fara í kringum hlut- ina eins og köttur í kringum heitan graut, nei hafa skyldi það sem sann- ara reyndist og það hreint út, þess vegna meðal annars varstu svo skemmtileg í mínum augum. Þú lést þér annt um barnabörnin þín og fylgdist vel með þeim Jóhanni Má og Sigurði Torfa, þeir voru augastein- arnir þínir, þeir sakna þín sárt, þú varst ákveðin kjölfesta í lífi þeirra. Ég minnist góðra stunda í Frosta- skjóli sem við áttum saman, afmælin þín sem þú hélst alltaf upp á voru einstaklega skemmtileg konuboð, tók þar þó sjötugsafmælið öllu fram. Þar varstu í essinu þínu svo kát og hress og einhvern veginn fannst mér að þannig yrði það alltaf. En menn- irnir áforma, Guð ræður, og víst er að þetta er jú leiðin okkar allra, að fæðast og deyja er lífsins saga stend- ur einhvers staðar og nú hefur þú fengið langþráða hvíld. Þú hefur nú sameinast foreldrum þínum og systkinum, nú brosir þú þínu fallega brosi og brúnu augun þín ljóma eins og þau gerðu, þegar þú rifjaðir upp æskuminningar þín- ar. Þú áttir því láni að fagna að alast upp hjá ástríkum foreldrum í stórum og efnilegum systkinahópi á menn- ingarheimili. Það var svo gaman að hlusta þegar þú og systur þínar rifj- uðu upp þessa tíma, allt varð svo ljóslifandi, margt var greinilega brallað og mikið var oft gaman og glatt á hjalla á ykkar merkisheimili í Bankastrætinu. Ekki get ég hætt án þess að minnast á sumarbústaðinn ykkar, Trínukot. Hann var eins og vin í eyðimörkinni, lítil Paradís þar sem þið höfðuð ræktað sannkallaðan aldingarð. Þar héldum við í mörg ár upp á af- mæli sonar míns Magnúsar og síðar Jóhanns, þessum veislum gleymi ég aldrei og allir hlökkuðu til að mæta í afmæli í Trínukoti að ári liðnu. En þar sem þú ert núna er eílíft vor og það væri mikil eigingirni að þakka ekki fyrir að þú hefur fengið þá hvíld sem þú þráðir. Ég kveð þig með söknuði, elsku Jóhanna mín, en ég veit að þú mund- ir ekki vilja hlusta á neitt víl. Hafðu þökk fyrir allt. Hjartans Katrín mín, ég bið Guð að gefa þér styrk, öðrum ástvinum og vandamönnum votta ég innilega samúð mína. Og því varð allt svo hljótt við helfregn þína sem hefði klökkur gígjustrengur brostið og enn ég veit margt hjarta harmi lostið sem hugsar til þín alla daga sína. (Tómas Guðm.) Svava Jóhannsdóttir. Elsku amma. Eins ótrúlega og það kann að hljóma þá ertu farin frá okk- ur. Þótt það taki okkur sárt þá eigum við óteljandi margar minningar um þig og systur þínar á Miklubraut 50 þar sem þú áttir heima stóran hluta ævi þinnar. Helstar af þessum minn- ingum eru frá blessuðum jólunum en allt frá því ég var í vöggu héldum við, ég og fjölskylda mín, jólin með þér og systrum þínum á Miklubrautinni. Ein af þessum einstöku minningum var um síðustu jól en þá varstu ekki vel haldin en komst nú samt á Miklu- brautina til Katrínar systur þinnar og við héldum með þér gleðileg jól. Mér fannst það hetjulegt. Ég kveð þig með söknuði en ég er viss um að við eigum eftir að hittast aftur, í draumi og á himnum. Jóhann Már Helgason. Látin er Jóhanna Katrín Helga- dóttir, mágkona mín, áttatíu og eins árs að aldri. Hún var dóttir Oddrúnar Sigurð- ardóttur og Helga Magnússonar kaupmanns í Reykjavík. Hún var næstyngst tólf systkina. Ein systir lifir hana, Katrín Helgadóttir, fyrrv. skólastjóri Húsmæðraskóla Reykja- víkur, 95 ára gömul. Jóhanna andaðist aðfaranótt 11. febrúar á Dvalarheimilinu Holtsbúð í Garðabæ, þar sem hún naut mjög góðrar aðhlynningar síðustu árin. Hún átti við mikla vanheilsu að stríða mestan hluta ævi sinnar. Sem ung stúlka varð hún fyrir því að veikjast í mjöðm og þurfti að liggja í gifsi mánuðum saman. Eftir þetta hlaut hún talsverða bæklun, sem olli henni miklum erfiðleikum það sem eftir var. Hún tók sínum örlögum með undraverðri rósemi en rósemi einkenndi allt hennar líf á hverju sem gekk. Strax og ég kom inn í fjölskylduna mynduðum við Jóhanna vináttubönd sem aldrei rofnuðu. Milli Magnúsar, eiginmanns míns, og Jóhönnu var sterkt systkinaþel sem hafði dafnað og vaxið frá barnæsku þeirra. Sú vinátta hafði mikil og góð áhrif á samband okkar Jóhönnu. Nú þegar ég lít til baka og hugsa til allra þeirra ánægjustunda sem við fengum notið í faðmi fjölskyldunnar fyllist ég þakklæti og auðmýkt gagn- vart því lífi sem okkur er gefið til að varðveita og koma áfram til næstu kynslóðar. Fjölskylda Jóhönnu bjó á þremur stöðum í Reykjavík. Í Bankastræti 6 frá upphafi tuttugustu aldarinnar fram yfir 1930, síðan í Bankastræti 7 fram á sjöunda áratuginn og loks á Miklubraut 50 fram til dagsins í dag. Umfang heimilisins var oft ótrú- lega mikið, á milli 15 og 20 manns í heimili og stöðugur gestagangur. Húsbændur voru mikið rausnarfólk sem tók vel á móti gestum og gang- andi og ekkert var til sparað að láta öllum líða sem best. Ekki létu syst- urnar heldur sitt eftir liggja. Allir sem tengdust þessari fjöl- skyldu eiga góðar minningar frá ótal afmælisboðum, jólaboðum og gaml- árskvöldum að ógleymdum sumar- deginum fyrsta og öðrum tyllidög- um. Jóhanna starfaði um árabil hjá Vita- og hafnamálaskrifstofunni sem tækniteiknari. Þar var hún í hópi góðra vinnufélaga sem hún naut samvista við. Jóhanna var afar jafn- lynd manneskja sem ég tel að hafi sjaldan skipt skapi. Velvilji í garð annarra einkenndi hana einnig. Hún bjó alla tíð á heimili foreldra sinna og síðar með systrum sínum, uns hún flutti á dvalarheimilið. Hún var lagin í höndunum og gerði mikið af því um tíma að mála postulín og eiga margir snotra hluti sem hún gerði. Öll börn Oddrúnar og Helga hlutu þá menntun sem hugur þeirra stóð til. Á árunum 1920 til 1940 héldu þau öll út í heim til frekara náms og báru með sér nýja strauma sem settu svip á líf fjölskyldunnar, þegar þau sneru heim. Jóhanna Katrín giftist ekki. Hún eignaðist einn son, Helga Rúnar. Hann kvæntist Svövu Jóhannsdótt- ur og eignuðust þau synina Jóhann Má og Sigurð Torfa. Fyrir átti Svava einn son, Magnús Má. Þau Svava og Helgi Rúnar slitu samvistum. Svava hefur reynst fyrrverandi tengda- móður sinni afar vel í veikindum hennar undanfarin ár, þannig að eft- ir hefur verið tekið. Megi hún hafa bestu þakkir fyrir. Um leið og ég kveð mágkonu mína hinstu kveðju og þakka samfylgdina votta ég eftirlifandi systur hennar, Katrínu Helgadóttur, syni hennar, fyrrverandi tengdadóttur og drengj- unum þremur mína dýpstu samúð. Blessuð sé minning Jóhönnu K. Helgadóttur. Katrín Sigurðardóttir. JÓHANNA KATRÍN HELGADÓTTIR Sími 562 0200 Erfisdrykkjur Davíð Osvaldsson útfararstjóri Sími 551 3485 • Fax 568 1129 Áratuga reynsla í umsjón útfara Önnumst alla þætti Vaktsími allan sólarhringinn 896 8284 1 (       #  ;< /0 1(. 9== /  & 8&4>5 ! '2    2    &  6(    ## /, &      6(     !#  #$$" / / ,$     -  && /'(- 2         6*  =0    ?! ') '        6   , !! #7"" %        &        &   ',    / 6   ( 1$%  & &&  6      /    &()     / 6   :  !/ 6 - 1          < @  :A <(99==  ,8  ! &       #$ /,       , !! #$$" $# ' *   ,$% 0&& && 1  0&&$  "  $ && * 1$% $-             <B  #-#  0 ,  #     , & % - .    #8 3  ,   + # +  *'  && ,%  &' ,% ,  ,% -               ; =00 , &C   ! ! &      ,  #7 & $ &&  ";  &&  ;  && . + ,  ,% ,  ,  ,% - 1        (90 1 !&'D '+ !  &)'  * 1'         )      !" #7"" 9 ( && :  E'&- (+  ( ( && 6      ,$% &( &&  "(% ' && + 8 2&!-

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.