Morgunblaðið - 23.02.2002, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 23.02.2002, Blaðsíða 1
45. TBL. 90. ÁRG. LAUGARDAGUR 23. FEBRÚAR 2002 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS STOFNAÐ 1913 MORGUNBLAÐIÐ 23. FEBRÚAR 2002 Savimbi sagður hafa fallið Lissabon. AFP. STJÓRN Angóla sagði í gærkvöldi að leiðtogi uppreisnarhreyfingarinnar UNITA, Jonas Savimbi, hefði beðið bana í átökum við stjórnarhermenn og hvatti stuðn- ingsmenn hans til að leggja niður vopn. Talsmaður for- seta Angóla sagði að stjórnarher- menn hefðu fund- ið lík Savimbis eft- ir bardaga í austurhluta landsins. „Lík hans verður sýnt opinberlega innan skamms.“ Stjórnarherinn sagði að margir aðrir UNITA-menn lægju í valnum. UNITA hefur barist gegn stjórn- arhernum nær látlaust síðan Angóla fékk sjálfstæði frá Portúgal árið 1975. Marxistahreyfingin Þjóðfrelsisfylk- ing Angóla, MPLA, komst þá til valda og UNITA hóf skæruhernað gegn henni með stuðningi Bandaríkjanna og Suður-Afríku. Talið er að stríðið hafi kostað meira en hálfa milljón manna lífið og hundr- uð þúsunda annarra hafa flúið af átakasvæðunum. Friðarsamkomulag fyrir milligöngu Sameinuðu þjóðanna leiddi til kosninga í september 1992 en UNITA beið ósigur og hóf stríðið að nýju nokkrum mánuðum síðar. Portúgalska utanríkisráðuneytið kvaðst ekki geta staðfest fréttina um dauða Savimbis og sagði að áður hefðu borist rangar fréttir um að hann væri fallinn. Jonas Savimbi Samkomulag næst um vopna- hlé á Sri Lanka Vavuniya. AP. FORSÆTISRÁÐHERRA Sri Lanka og leiðtogi tamílsku tígranna svokölluðu undirrituðu í gær vopna- hléssamning sem fagnað var sem mikilvægum áfanga í átt að friðarvið- ræðum eftir 18 ára blóðuga borgara- styrjöld. Ranil Wickremesinghe, forsætis- ráðherra Sri Lanka, afhenti sendi- herra Noregs, Jon Westborg, samn- inginn eftir að hafa heimsótt tamílskt þorp þar sem uppreisnarmenn höfðu dregið upp hvíta fána í tilefni af vopnahléinu. Tamílar afhentu for- sætisráðherranum sjal og hrísgrjón, hefðbundin tákn hagsældar. „Ég hef mikla trú á því að var- anlegur friður komist á, en ég geri mér engar tálvonir um að það verði auðvelt,“ sagði forsætisráðherrann. Vonast eftir friðar- viðræðum í vor Norska stjórnin hefur reynt að koma á friðarviðræðum á Sri Lanka í tvö ár til að binda enda á stríðið sem hefur kostað meira en 65.000 manns lífið. Jan Petersen, utanríkisráðherra Noregs, sagði að vopnahléssamning- urinn tæki gildi í dag og kvaðst vona að friðarviðræðurnar hæfust í vor. Norsku samningamennirnir fögnuðu samningnum en sögðu að næstu skref í friðarumleitunum þeirra yrðu ekki auðveld. Tamílsku tígrarnir hafa barist fyr- ir sjálfstæðu ríki tamíla í norður- og austurhluta Sri Lanka frá 1983. Tamílar eru um 3,2 milljónir, flestir hindúar, og tígrarnir segja að þeir geti ekki þrifist í sama ríki og singa- lesar, stærsta þjóðarbrotið á eyj- unni. Singalesar eru búddatrúar og hafa bæði tögl og hagldir í stjórn- kerfinu. STARFSMAÐUR evrópskrar súkkulaðikaupstefnu í Róm raðar páskaeggjum á Spænsku tröpp- urnar á torginu Piazza di Spagna. 3.000 páskaeggjum var stillt þar upp í gær til að vekja athygli á kaupstefnunni. Sælkera- hátíð í Róm GEORGE W. Bush Bandaríkja- forseti hélt til Washington frá Peking í gær eftir sex daga heim- sókn til Kína, Suður-Kóreu og Japans. Fyrr um daginn skoðuðu Bush og eiginkona hans, Laura, Kínamúrinn í Badaling, við útjað- ar Peking, þar sem þessi kín- versku börn tóku á móti þeim. Richard Nixon skoðaði sama hluta múrsins fyrir 30 árum þeg- ar hann var í sögulegri heimsókn í Kína. Reuters Bush fetar í fótspor Nixons  Norður-Kórea/26 Danir selja sendi- ráðin Vona að 10 sendiráð gefi af sér um 600 milljónir króna SAMÞYKKTAR hafa verið í utanríkismálanefnd danska þingsins tillögur nýrrar ríkis- stjórnar Venstre og Íhalds- flokksins um að loka allt að tíu sendiráðum og ræðismanns- skrifstofum og munu alls um 120 starfsmenn utanríkisráðu- neytisins, þar af 60 í Dan- mörku, missa vinnuna, að sögn AP-fréttastofunnar. Aðgerðirnar eru liður í áætl- unum stjórnvalda um að draga úr ríkisútgjöldum og er stefnt að því að störfum hjá ríkinu verði fækkað á næstu árum úr 137 þúsund í 133.000. Sendiráðin sem verða lögð niður eru í Argentínu, Ástralíu, Úkraínu, Malawi, Eritreu, Bhútan og á Filippseyjum auk þess sem lokað verður ræðis- mannsskrifstofum í Los Angel- es og í Düsseldorf. Frestað verður ákvörðun um að loka sendiráðinu í Zimbabwe þar til eftir forsetakosningar í landinu í næsta mánuði. Hús dönsku sendiráðanna verða seld og er þess vænst að fyrir þau fáist alls um 50 millj- ónir danskra króna, tæpar sex hundruð milljónir íslenskra króna. Aðrar þjóðir gæti hagsmuna Íslendinga Morgunblaðið spurði Søren Kragholm, embættismann í ut- anríkisráðuneytinu í Kaup- mannahöfn, hvort einhverjar hugmyndir væru uppi um að leggja niður sendiráðið á Ís- landi. Sagði hann það alls ekki hafa komið til umræðu. Danir gæta hagsmuna Ís- lendinga í mörgum löndum þar sem við höfum hvorki sendiráð né ræðismannsskrifstofu. Sverrir Haukur Gunnlaugsson, ráðuneytisstjóri í utanríkis- ráðuneytinu, sagði aðgerðir dönsku stjórnarinnar ekki myndu valda neinum vanda. Samið yrði við aðrar Norður- landaþjóðir um að taka að sér þetta hlutverk fyrir Íslendinga á umræddum stöðum. „Í löndum eins og til dæmis Argentínu og Filippseyjum eru sendiráð á vegum hinna Norð- urlandanna,“ sagði Sverrir Haukur Gunnlaugsson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.