Morgunblaðið - 23.02.2002, Síða 16
LEIÐINDAVEÐUR var í Eyjafirði
í gærmorgun. Ófært var frá Ak-
ureyri til Dalvíkur og Ólafsfjarðar
fram eftir degi og ekki var byrjað
að hreinsa veginn milli Dalvíkur
og Ólafsfjarðar síðdegis, en þá var
búið að opna veginn til Dalvíkur.
Öxnadalsheiði var ófær og þar
geisaði stórhríð. Einnig var veg-
urinn yfir Víkurskarð ófær en
beðið var átekta með mokstur
fram eftir degi eða þar til veðrið
gekk niður. Flug lá einnig niðri.
Að sögn lögreglu í Ólafsfirði
var kolvitlaust veður þar í fyrri-
nótt og gærmorgun, en síðdegis
fór að lægja. Skólahald féll niður,
en slíkt er að sögn lögreglu fátítt
þar í bæ. Einkum var um að ræða
mikið hvassviðri, þannig að snjó
tók upp og var mjög blindað. Svip-
að var uppi á teningnum á Dalvík
að sögn lögreglu þar og var frem-
ur þungfært í bænum, en eitthvað
hafði verið mokað. Lögregla á Ak-
ureyri aðstoðaði nokkra ökumenn
sem höfðu fest bifreiðar sínar.
Götur voru þokkalega færar, en
skyggni var mjög slæmt, einkum
snemma í gærmorgun.
Stjórnendur Lundarskóla á Ak-
ureyri brugðu á það ráð að biðja
foreldra að sækja börn sín í skól-
ann og samkvæmt upplýsingum
var það ekki síst út af ófærð í
hverfinu sem það var gert. Þá
leist mönnum ekki á blikuna þeg-
ar fór að blása hraustlega um
miðjan morgun. Árshátíð sem
vera átti í skólanum síðdegis var
frestað þar til betur viðrar.
Skömmu fyrir hádegi streymdu
foreldrar yngstu barnanna í skól-
ann til að sækja þau.
Morgunblaðið/Kristján
Þessir duglegu nemendur Giljaskóla tóku að sér að moka og sópa gangstétt og tröppur skólans.
Foreldrar yngstu barnanna í Lundarskóla fengu skilaboð um að sækja
börn sín fyrir hádegi í gær og þar var því mikil umferð á skólalóðinni.
Þungfært var í úthverfum og þurftu einstaka bílstjórar aðstoðar við.
Fresta varð skíðaferð eldri nem-
enda í Oddeyrarskóla í Hlíðar-
fjall í gær og því var ekki um
annað að ræða en fara heim aft-
ur með skíðabúnaðinn.
Leiðindaveður setti
samgöngur úr lagi
AKUREYRI
16 LAUGARDAGUR 23. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Konudagsblóm
og dekurkörfur
sími 462 2900
Blómin
í bænum
Blaðbera
vantar
• Skerjafjörður
Upplýsingar fást í síma
569 1122
Hjá Morgunblaðinu starfa um 600 blaðberar á
höfuðborgarsvæðinu
ⓦ
vantar
Blaðburður verður að hefjast um leið og blaðið kemur
í bæinn. Góður göngutúr sem borgar sig.
Morgunblaðið,
Kaupvangsstræti 1, Akureyri,
sími 461 1600.
í innbæinn á Akureyri
Tónlistarfélag
Akureyrar
Píanótón-
leikar í
Laugarborg
HALLDÓR Halldórsson píanóleik-
ari kemur fram á þriðju tónleikum
Tónlistarfélags Akureyrar sem
haldnir verða í Laugarborg í Eyja-
fjarðarsveit á morgun, sunnudaginn
24. febrúar kl. 17.
Á efnisskrá tónleikanna eru tvö af
stærstum verkum píanóbók-
menntanna, Eroica-tilbrigðin eftir
Beethoven og Sinfónískar etíður eft-
ir Schumann en auk þess flytur Hall-
dór einnig Theme varie eftir Francis
Poulenc.
♦ ♦ ♦
Síðumót á
Hrafnagili
SÍÐUMÓTIÐ verður haldið í
íþróttahúsinu á Hrafnagili í Eyja-
fjarðarsveit í dag, laugardaginn 23.
febrúar, og hefst það kl. 14. Um er
að ræða innafélagsmót Íþrótta-
félagsins Eikar á Akureyri og verð-
ur keppt í boccia. Keppendur verða
rúmlega 30 talsins og eru allir vel-
komnir að fylgjast með tilþrifum
þeirra.
Kynning á
Gídeonfélaginu
FÉLAGAR úr Gideonfélaginu á Ak-
ureyri kynna félagið við messu í Gler-
árkirkju á morgun, sunnudaginn 24.
febrúar. Einnig syngja þeir nokkra
sálma og annast predikun. Kynningin
verður endurtekin við messu að
Möðruvöllum í Hörgárdal 3. mars
næstkomandi. Gideonfélagið dreifir
Biblíunni og Nýjatestamentinu í gisti-
hús, farþegaskip, sjúkrahús, fangelsi
og víðar auk þess sem það gefur öllum
10 ára börnum Nýjatestamenti.